Helgarpósturinn - 18.02.1988, Page 2
Ertu gasa góður
gæi?
„Ég hlýt aö vera þaö!"
Af hverju ertu svona vinsæll?
„Það er sjálfsagt fyrir þaö hvað ég er skemmtilegur."
Finnst þér þaö sjálfum?
„Já, mér finnst ég vera einn af skemmtilegustu mönnum
sem ég hef nokkurn tíma hitt!"
Hverjir völdu þig vinsælasta keppandann?
„Þaö voru hinir keppendurnir. Við vorum alls sjö."
Var engin öfund milli ykkar keppendanna?
„Nei, þaö var engin öfund sem slík. Það var góöur mórall
milli okkar keppendanna og engin samkeppni sem viö
fundum fyrirokkará milli meðan keppnin stóö. Við þekkt-
umst ekki mikið, hittumst bara í tvo, þrjá daga fyrir keppn-
ina."
Varstu spældur að vinna ekki aðaltitilinn?
„Nei, ég er bara mjög ánægöur meö það sem ég fékk og
geri mig tiltölulega ánægðan með þaö. Hins vegar heföi
auðvitað veriö gaman aö vinna báöa titlana. Þá hefði ég
hlotið þrjá „vinninga" sama kvöldið, því ég vann líka í Lottó-
inu þetta kvöld."
Eitthvað mikið?
„Nei nei, ég fékk fjóra rétta og það var smáuppbót."
Þannig aö þú átt fyrir silfursiegnum pípuhatti ef þig
langar að eignast einn slíkan?
„Já já, ég hugsa ég hefði efni á því!"
Geturðu eitthvað nýtt þér þennan titil í framtíðinni?
„Nei ég hugsa að hann komi mér ekki að neinu gagni
nema því að orðsporið sem fer af mér breytist eitthvað til
batnaðar. Þetta er geysilegt „kompliment" fyrir mig að fá
þennan titil."
Kannski meira kompliment en að vera kosinn Herra ís-
land?
„Þetta er bara allt annað kompliment. Þetta er miklu
persónulegra."
Hvað þýðir þessi titill fyrir þig?
„Hann þýðir ekki margt. Hann er í rauninni bara smávið-
urkenning á þessum geysilegu skemmtilegheitum sem ég
hlýt að hafa til að bera. Það er ekki mikið annað sem hann
þýðir!"
Sérðu eftir að hafa tekið þátt í keppninni þar sem þú
sigraðir ekki?
„Nei, ég sé alls ekki eftir því. Framkvæmd keppninnar og
allur aðbúnaður var mjög góður og við höfðum allir mjög
gaman af þessu og jafnframt gott af því."
Myndirðu taka aftur þátt í svona keppni væriröu beð-
inn?
„Náttúrulega ekki þessari keppni. Það yrði að vera
keppni af einhverjum öðrum toga, því maður tekur auðvit-
að ekki þátt í keppni um sama titilinn nema einu sinni. Ann-
að væri hallærislegt."
Þú sagðir fyrir keppnina að það væri ekki meira mál að
koma fram á sundskýlu en að fara í sund. Varð það raun-
in?
„Maður var náttúrulega strekktari á sviði í sundskýlu en
í sundi. Jú, ég verð að viðurkenna að þetta var aðeins verra,
en þó ekki verulega!"
Fékkstu aldrei bakþanka eftir þvi sem nær dró keppn-
inni?
„Nei, aldrei. Ég var mjög ánægpSuur mttb alh van*Qndi
keppnina og kem aldrei til með aðspi eHwíaéktfa rekið
þátt í henni. Keppniskvöldið og víkumar fyfirkeppru voru
mjög ánægjuleg."
Og svo lokaspurningin fyrir ungu stúlkurnar: Ertu heit-
bundinn?
„Nei."
Síðastliðið laugardagskvöld fórfram í fyrsta skipti á íslandi keppni
um Herra Island. Þá var einnig valinn vinsælasti keppandinn af
þeim sjö sem þátt tóku í keppninni, og þann titil hlaut Hallgrímur
Óskarsson, tvítugur Akureyringur. HP hringdi norður til Akureyrar
og spurði Hallgrím um eitt og annað varðandi þennan nýja titil
hans.
Hallgrímur Óskarsson
vinsælasti keppandinn
FYRST OG FREMST
BORN eru fljót að komast upp á
lagið með hvað er söluvara og
hvað ekki. Nýlega gengu tveir litl-
ir og sætir strákar í hús og buðu
til kaups blað Krabbarneinsfélags-
ins á 250 krónur. Grunlausir borg-
arbúar keyptu blaðið umsvifalaust,
vitandi það að þeirra framlag til
Krabbameinsfélagsins skipti auð-
vitað máli. Þegar hinir sömu fóru
að lesa blaðið kom hins vegar í
ljós að tímarit þetta hafði ekkert
með Krabbameinsfélagið að gera.
Þetta var blaðið Meö fólki og er
tímarit um uppeldismál. Hins veg-
ar veitir fólki greinilega ekki af að
lesa slík blöð og athuga betur
hvað hefur farið úrskeiðis í upp-
eldinu þegar börnin eru farin að
selja blað — sem hvergi er getið
um hvað eigi að kosta — á 250
krónur í nafni Krabbameinsfélags-
ins...
FERÐALANGARsem taka sér
bíl á leigu í Bretlandi á vegum
Flugleiöa hafa kynnst því að betra
er að vita fyrirfram hversu lengi á
að nota bílinn. Margir hafa lent í
því að greiða fyrir bílaleigubíl í
ákveðinn tíma, en ekki getað not-
að hann nema hluta tímans. Þegar
þeir hafa síðan snúið sér til Flug-
leiöa með miða frá bílaleigunni
Town & Country, þess eðlis að
þeir hafi ekki notað bílinn allan
tímann, fást þau svör hjá Flugleið-
um að lítil von sé til þess að fjár-
hæðin fáist greidd þar eð sam-
skiptin viö skrifstofuna hjá Town
& Country séu þung í vöfum. Þá
spyrja menn að sjálfsögðu: Hvers
vegna skipta Flugleiðir við svo lé-
lega bílaleigu? Og svarið? Jú, bíla-
leigan sem við skiptum við áður
var með svo lélega bíla og lélega
þjónustu! Það er semsagt útilokað
að skipta við bílaleigu sem býður
upp á fyrsta flokks þjónustu, fyrsta
fiokks bíla og fyrsta flokks skrif-
stofurekstur...
VIÐ heyrðum eina góða þegar
við vorum að vinna greinina um
ATVR í blaðið. Þar var maður við
störf og eitt sinn er hann fór í
samkvæmi kom til hans banka-
gjaldkeri og sagði: „Heyrðu, get-
urðu ekki útvegað mér spíra?"
Hinn sagði að sjálfsögðu að það
væri útilokað. Gjaldkerinn horfði á
hann stórum augum og sagði: „Já,
en ertu hvort sem er ekki innan
um þúsundir lítra af honum?"
Hinn lét ekki slá sig út af laginu
og spurði á móti: „ Getur þú redd-
að mér nokkrum milljónum? Ertu
ekki hvort sem er alltaf með pen-
inga milli handanna í vinnunni?"...
ÞAÐ fór eins og viðbúið var með
þátttöku íslendinga á Vetrar-
ólympíuleikunum. Þar höfum við
oftast verið okkur til skammar;
alpagreinafólkið hefur í gegnum
tíðina sjaldnast komist í gegnum
brautirnar, göngumennirnir iðu-
lega veikst þegar á hólminn hefur
verið komið, nú eða íslensku
keppendurnir ná sér bara ekki á
strik, einhverra hluta vegna. Það
nýjasta er þó að íslensku þátt-
takendurnir hafa skíðin sín ekki
með til leikanna, enda er skipu-
lagningin öll þannig hjá skíðasam-
bandinu. Síðasta mögulega vél
tekin út úr landinu þrátt fyrir að
öllum sé kunnugt um að tíma-
áætlun Flugleiða er bara til upp á
grín og hefur svo verið í mörg ár.
Svo þegar skíðafólkið sér að það
er að missa af öllu gillinu kastar
það bara frá sér skíðunum og
skundar af stað enda eina raun-
hæfa markmiöið það að íslenski
fáninn sjáist á opnunarhátíð
leikanna...
HINN nýi íslenski sjónvarps-
fréttastíll, sem fngvi Hrafn ætlaði
að koma með í sjónvarpið en Páll
Magnússon útfærði síðan á Stöö 2,
er kannski fyrst og fremst hraður.
Páll heggur fréttakynningarnar
niður í áhorfendur og síðan koma
fréttamennirnir inn, en því miður
fyrir þá og fréttina vantar oftast
fyrstu setninguna þannig að áhorf-
andinn eins og dettur inn í frétt-
ina. En það er líklegast bara til að
auka hraðann...
ARNÓR Diego hefur verið
valinn úr fjöldanum fegursti karl-
maður íslands 1988, spengilegur
og útlimafagur með óræð augu.
Hann stundar ljósaböð, vaxtarrækt
og fyrirsætustörf. Sú sem krýndi
Arnór pípuhatti var ekki ljótari en
hann, Anna Margrét Jónsdóttir,
fegursta kona íslands 1988. Anna
stundar líka ljósaböð, vaxtarrækt
og fyrirsætustörf svo eitthvað gátu
þau stungið saman nefjum um
sameiginleg áhugamál. í hita
stundarinnar stóðu bæði á sviðinu
og brostu út undir eyru á meðan
hinir brostu ekki sem var hafnað.
Fyrst búið er að velja bæði
fegursta karl og konu íslands er
ekkert að vanbúnaði. Næsti leikur
er að leiða drottningu undir kóng
til undaneldis svo upp vaxi
íslenskt úrvalskyn, ósigrandi á
öllum sýningum í framtíðinni...
HlfJí) VELHR ivw
VEL Imv/NOR SER
flfö 1 'FRRrviTfelNísU
VERBl STÖOVARUfta
REKNftR EÆÐÍ fi
VBGum varsjaR
OG ATU9NTÞ-HRFS'
BANCALA&SIkiS....
^ fiLL WL Uz=D
r |5 L®V3 r
NU,nÉR ER E.KKI
KUNNH6T UÞl )=wo
RP SRniO HflFI
VERIG Um (sessiR
Fimma ötóo....
HELGARPÚSTURINN
Jason með gullna reyfið
Eystra sel ég ull með snilli
— íhaldið má veina —
Ekki kemst hún öll á milli
eymanna á Steina
Niðri
UMMÆLI VIKUNNAR
,,Starf alþingismannsins er krefjandi
þjónustustarf sem tekur allan tíma sem
maöur hefur. Ég hef því tekiö mér frí í
vinnunni meöan ég sit á Alþingi."
KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR, VARAÞINGMAÐUR
BORGARAFLOKKSINS, í VIÐTALI VIÐ DV.
2 HELGARPÓSTURINN