Helgarpósturinn - 18.02.1988, Síða 5

Helgarpósturinn - 18.02.1988, Síða 5
• Forseti ekki til Moskvu 29. febrúar vegna ágreinings í ríkisstjórn • Fer Steingrímur sjálfur? HELI ÞEIR ÞYRFTII PðSTBIRA — segir Steingrímur Hermannsson Kostulegar deilur hafa orðið í kjölfar boðs Gorbatsjofs til forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, um að heimsækja Sovétlýðveldið 29. febrúar nk. í raun snýst málið ekki um för forseta, heldur fylgdarlið hennar, en skv. venju ætti utanríkisráðherra, Steingrímur Her- mannsson, að fylgja forseta til Moskvu. t>ví vilja samráð- herrar Steingríms ekki una, sérstaklega munu ráðherrar Sjálfstæðisflokks hafa þvertekið fyrir för Steingríms til Moskvu. Mun væntanlegur utanríkisráðherrafundur NATO-ríkjanna í Brussel í marsbyrjun skipta hér miklu máli. Ágreiningurinn í ríkisstjórn kemur í veg fyrir að forseti lýðveldisins haldi í austurveg 29. febrúar. EFTIR HELGA MÁ ARTHURSSON OG PÁL H. HANNESSON MYND JIM SMART Boðið til forseta íslands, frú Vig- dísar Finnbogadóttur, og þar með utanríkisráðherra, Steingríms Her- mannssonar, frá Gorbatsjof barst ís- lenskum stjórnvöldum á miðviku- dag í síðustu viku og bar utanríkis- ráðherra það strax undir ríkisstjórn. UNDRANDI OG HISSA í ríkisstjórn urðu ráðherrar í senn undrandi og hissa á þessu boði, eða nánar tiltekið að boð um heimsókn sem þessa skyldi berast með svo skömmum fyrirvara. Ráðherrar Sjálfstæðisflokks settu strax fyrir- vara við heimboð Sovétleiðtogans og eru skv. áreiðanlegum heimild- um HP argir vegna þess að Sovét- menn binda heimboðið við 29. febr- úar nk. — og að ráð er fyrir því gert að utanríkisráðherra. Steingrími Hermannssyni, skuli boðið ásamt forseta, en það þykir sjálfsögð skylda aö bjóða utanríkisráðherra með þegar um opinbera heimsókn forseta lsiands er að ræða. Fyrst mun hafa borið á góma að frú Vigdís færi til Sovétríkjanna þegar leiðtog- ar risaveldanna funduðu í Reykjavík í október 1986. Samkvæmt því sem HP kemst næst mun ástæðan fyrir ergelsi sjálf- stæðisráðherranna vera sú, að utan- ríkisráðherra, Steingrímur Her- mannsson, á að mæta til NATO- fundar í Brussel í byrjun mars og telja þeir að Sovétmenn hafi dagsett heimboð forseta og þar með utan- ríkisráðherra með NATO-fundinn i huga. Vilja áhrifamenn í Sjálfstæðis- flokki ekki una því að Sovétmenn hafi með þessum hætti áhrif á NATO- fundinn, eða það hlutverk sem utan- ríkisráðherra, Steingrímur Her- mannsson, fengi hugsanlega í tengslum við þann fund. Líta menn svo á að Gorbatsjof muni e.t.v. ætla Steingrími það hlut- verk, að bera í krafti utanríkisráð- herranafnbótarinnar boð frá Sovét- mönnum til kollega sinna frá öðrum NATO-ríkjum. Eru menn andsnúnir því að utanríkisráðherra landsins sé með þeim hætti sendill fyrir Sovét- leiðtogann og vísa til blaðamanna- fundar sem Steingrímur sat þegar Perestrojka Gorbatsjofs var kynnt í jólabókaflóðinu, en þá fannst mörg- um áhrifamönnum í Sjálfstæðis- flokknum utanríkisráðherra mis- nota aðstöðu sína. Steingrímur Hermannsson var spurður um þessar skýringar á af- stöðu sjálfstæðismanna. ,,Ég heyrði þessa kenningu fyrst í Ríkisútvarp- inu í gær og á bágt með að trúa því að þannig sé hugsað." STEINGRÍMUR REIÐUBÚINN Steingrímur Hermannsson, sem m.a. lét þau orð falla i Helgarpóstin- um í síðustu viku að ratsjárstöðvar gætu hugsanlega gegnt hlutverki fyrir NATO og Varsjárbandalagið í framtíðinni, var áfram um að af för hans og forseta yrði á þeim tíma sem Sovétmenn leggja til. Stein- grímur leggur áherslu á að dagsetn- ingin sé síður en svo valin með hlið- sjón af ráðherrafundi NATO, heldur sé um það að ræða að ná fundum Gorbatsjofs, sem sé önnum kafinn maður og tími hans skipulagður langt fram á árið. I samtali við HP í gær sagði Steingrímur Hermanns- son að fráleitt væri að halda því fram að Sovétmenn hygðust nota sig til að bera skilaboð inn á NATO-fund. ,,Ég hélt nú að Reagan og Gorbat- sjof hefðu orðið beint símasamband og því þyrfti nú ekki lengur póst- bera,“ sagði Steingrímur Hermanns- son. Utanríkisráðherra, sem áður hef- ur lagt sitt af mörkum til að liðka fyrir verslunarsamningum við Sov- étmenn, leggur mikla áherslu á að reyna nú öðru sinni að hnika sov- ésku verslunarnefndinni að samn- ingaborðinu vegna sölu trefla hins nýstofnaða Álafossfyrirtækis til Sov- ét og einhvers af bútungsfiski og síld, sem illa hefur gengið að selja austur undanfarið. Steingrímur var spurður hvort för til Moskvu væri ekki kjörið tækifæri til að ræða viðskiptasamskipti við Sovétmenn. ,,Jú, ég held að það hefði orðið. Nú bauð ég upp á það að annar ráðherra færi í minn stað, þar sem ég er nokkuð bundinn. Svo það hefði ekki þurft að standa í veg- inum.“ Á ríkisstjórnarfundinum sem hér er vísað til munu alþýðuflokksráð- herrar hafa lagt það til, að Stein- grímur Hermannsson héldi sig við fyrirfram ákveðinn NATO-fund og sinnti skyldum sínum þar, en að Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra slægist í för með forseta lýðveldisins í stað Steingríms, enda heyrðu treflaviðskipti undir hann í strang- asta skilningi orðsins. Munu sjálf- stæðisráðherrar hafa tekið tillögu krata fálega. Steingrímur Hermannsson var spurður um ágreininginn í ríkis- stjórninni. „Ja, þú skalt spyrja for- sætisráðherra um skýringuna. Ég vil ekki gera neinn ágreining. Það voru allir sammála um að taka þessu boði og þó tíminn hafi verið talinn óheppilegur hélt ég að það myndi ekkert standa í veginum. Ég reyndi mjög að finna annan tíma. Það fór sólarhringur í það. Sendi- herrann ræddi við þá þarna fyrir austan, en það tókst ekki vegna þess hve Gorbatsjof var tímabundinn. Rússar lögðu áherslu á að þau gætu hist og ég mat það svo, að af þessu ætti að verða enda þótt fyrirvarinn væri stuttur. Því er ekki að neita að ég tel að þarna séu mjög stórir við- skiptahagsmunir og vissir erfiðleik- ar núna og þótt þeir tengist ekki beint forsetanum að sjálfsögðu þá þekkjum við Rússana það vel að við vitum að þeir láta ekki slíkt varpa skugga á svona heimsóknir." NYJAR ÁHERSLUR? Þorsteinn Pálsson hefur látið hafa það eftir sér að fráleitt sé að tengja saman viðskiptasamninga og opin- berar heimsóknir forseta lýðveldis- ins. Þetta er nýlunda. íslenskir ráð- herrar og reyndar forsetaembættið sjálft hafa lagt áherslu á að kynna íslenska framleiðslu á ferðalögum sínum. Steingrímur Hermannsson var spurður um þessa tengingu opin- berra heimsókna og viðskiptamála í ljósi þeirra ferða og kynningar sem forseti hefur farið. „Forseti er vitanlega beint og óbeint mjög góður fulltrúi íslensks útflutnings, — líklegast sá besti. En hitt er annað mál að við höfum vit- anlega ekki tengt samningana um ullina beint við för forseta. Það er aldrei hægt að skilyrða á neinn máta, en það er alveg ljóst að ef að hér á landi hefðu dunið yfir upp- sagnir fleiri hundruð manna á með- an á heimsókninni stæði hefðu Rússar ekki látið það gerast." Aðspurður um hvort Steingrímur héldi að málið snerist um það hverj- um hlotnaðist heiðurinn af að seija trefla til Sovét sagði utanríkisráð- herra: „í mínum huga snýst málið ekki um það. Ég veit ekki hvort aðr- ir hafa haft svo annarlegar hugsjón- ir." SOVÉSKIR FAGMENN Utanríkisráðherra hefur legið fremur gott orð til Sovétleiðtogans, Gorbatsjofs, og hefur verið óhrædd- ur við að viðra skoðanir sínar á um- bótastefnu hins síðarnefnda. Það er því alls ekki út í hött hjá Sovétmönn- um að bjóða forseta Islands og þar með utanríkisráðherra í opinbera heimsókn til Sovét og fá Steingrími það hlutverk að bera boð Sovét- manna inn á fund utanríkisráðherra NATO. í ljósi viðskiptahagsmuna ís- lenskra iðn- og fiskiðnaðarforkólfa og pólitískra hagsmuna Sovétlýð- veldisins gætu Sovétmenn metið það svo að þarna mætti gera gott samkomulag, en almennt hafa ís- lenskir ráðamenn verið iðnir við að keðja saman viðskiptahagsmuni og pólitík. Það er því ekkert óeðlilegt við það þótt Sovétmenn setji krók á móti bragði og vilji fá nokkuð fyrir snúð sinn í viðskiptum. Og má reyndar fullyrða að heimboðið sé óvenjusnjall leikur og ber hann því vitni að á ferðinni eru sovéskir fagmenn í alþjóðasamskiptum. Steingrímur Hermannsson full- yrðir að hafa haft náið samráð við forsætisráðherra um alia þætti málsins og m.a. skýrt Þorsteini Páls- syni frá því á laugardagsmorgun að hann sæi sig tilknúinn að bóka and- stöðu sína við niðurstöðu ríkis- stjórnarinnar. Forsætisráðherra heldur því hins vegar fram nú, að enginn ráðherranna hafi vitað af bókun utanríkisráðherra fyrr en í kvöldfréttum útvarps sl. þriðjudag. Utanríkisráðherra var að endingu spurður um hvort hann myndi ekki, þrátt fyrir andstöðu forsætisráð- herra, skreppa austur og kippa áð- urnefndum ullarsamningum í lið- inn. Hann sagði: ,,Ja, út af fyrir sig yrði það ekki opinber heimsókn og ég veit ekki hvort hún leiddi til nokkurs árangurs. Ég hef hins vegar sagt sem ráðherra utanríkisvið- skipta, að þarna séu miklir hags- munir í húfi og að mér sé skylt að gera allt sem ég get. En þarna eru viðræður í gangi og ég hef ekki boð- ið upp á að ég færi. Ég hef ekki verið beðinn um það.“ HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.