Helgarpósturinn - 18.02.1988, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 18.02.1988, Blaðsíða 11
Aukefni eða eitur Vegna fréttar í Helgarpóstinum um „Eiturát íslendinga", sem birtist í blaðinu fimmtudaginn 11.02.1988, vill Hollustuvernd ríkisins koma með eftirfarandi athugasemdir. 1. Samkvæmt upplýsingum frá franska sendiráðinu verður að telja þau gögn sem Heigarpó^turinn not- ar, sem heimild fyrir fréttinni, föls- uð. 2. Fréttamaður Helgarpóstsins, Freyr Þormóðsson, ræddi við starfs- mann Hollustuverndar ríkisins varðandi reglur um notkun aukefna hér á landi og eftirlit með notkun þeirra. Efnisleg atriði varðandi til- greind aukefni í þeirri skýrslu sem fréttamaður hafði undir höndum voru ekki rædd, en fram kom að það væri skýrsla frá frönsku háskóla- sjúkrahúsi í Chaumont. Starfsmaður Hollustuverndar ríkisins tjáði þá fréttamanninum að stofnunin Irefði áður fengið fyrirspurnir um aukefni vegna upplýsinga sem fram kæmu í skýrslu frá frönsku sjúkrahúsi. Var fréttamanni bent á, að ef um sömu skýrslu væri að ræða kæmu þar fram upplýsingar sem væru rangar. Meðal annars var bent á að þar væru skaðlaus efni talin til efna sem gætu verið krabbameinsvaldandi. 3. Stofnunin hefði talið eðiilegt, sbr. framanritað, að fréttamaður Helgar- póstsins aflaði sér gagna um rétt- mæti þeirra upplýsinga sem fram koma í áðurnefndri skýrslu. Frétt Helgarpóstsins getur augljóslega valdið neytendum óþarfa áhyggjum og söluaðilum og framleiðendum ómældum skaða. Því er brýnt að at- hugasemdir þessar komist á fram- færi eins fljótt og auðið er og verður að átelja vinnubrögð af þessu tagi. Hollustuvernd ríkisins • Varðandi grein mína í síðasta tölu- blaði Helgarpósts um aukefni í mat- vælum verður eftirfarandi að koma fram: Þær upplýsingar sem ég studdist við taldi ég koma frá óopinberum dönskum neytendasamtökum (Dansk Forbrugerád), sem ég sá ekki ástæðu til að rengja. Ég varaði mig þó á því að fullyrða ekki um aukefni heldur hafa fullan fyrirvara á í samanburði mínum. Þetta má greinilega sjá í greininni. Hollustu- vernd ríkisins hefur sent Helgar- pósti gögn frá dönskum matvæiayf- irvöldum (Levnedsmiddelstyrelsen) sem segja öll rök benda til að um ótraustar, jafnvel falsaðar, upplýs- ingar sé að ræða, meðal annars vegna þess að aukaefnið E-330 (sítr- ónusýra) er þar talið krabbameins- valdandi. E-330 er í raun aigengt náttúruefni og skaðlaust með öllu. Samkvæmt frönskum matvælayfir- völdum (Institut Gustave Roussy) hafa sjúkrahúsin í Villejuifog Chau- mont tilkynnt að þau kannist ekki við rannsóknina og geti því ekki borið ábyrgð á niðurstöðunum. Bresk matvælayfirvöld (British Ministry of Agriculture, Fisheries and Food) hafa varað opinberlega við útbreiddri falskri aukefnarann- sókn sem kennd er við Chaumont og Villejuif. Hér er því greinilega um alþjóðavandamál að ræða. Mótmæli Hollustuverndar ríkisins við grein minni í síðasta tölublaði Helgarpósts hafa samkvæmt ofan- greindu við rök að styðjast. Ég harma að upplýsingar mínar reynd- ust ekki traustari og dreg til baka þær niðurstöður um íslensk mat- væli sem af þeim eru dregnar í ljósi þess að hafa ber það sem sannara reynist. Freyr Þormóðsson, blaðamaður HP. Þ að er mikið rætt um vexti og ávöxtunarkröfu þeirra sem hafa at- vinnu af því að leigja út peninga. Vextir eru hér með alhæsta móti og segja fjármálaspekingar, að ísland sé að verða fyrirmyndarland í aug- um þeirra sem vilja ávaxta pund sitt vel. Mun samanburður á ávöxtunar- möguleikum í Vestur-Evrópu hafa leitt í Ijós að hér eru hvað hagstæð- astar aðstæður fyrir sparifjáreig- endur, einkum og sér í lagi vegna þess að vaxtatekjur manna eru hér undanskildar skatti, en það mun fátítt í nálægum löndum. Þannig þéna menn hér fjórar milljónir á ári með því að leigja út tíu og fá þær skattlausar í ofanálag. Ekki slæm kaup það. . . L ar Garðar. Hefði ekki réttnefni verið G-vörur?... lögbirtingablaðið greinir dyggum lesendum sínum reglulega frá stofnun nýrra hlutafélaga. Fyrir örfáum árum voru nýskráningar blaðsins uppfullar af nýjum mynd- bandaleigum og söluturnum og sól- baðs/líkamsræktarstofum. Nú er öldin önnur að því er virðist. 3 síð- ustu mánuðina og á síðasta ári voru tilkynnt 37 ný hlutafélög á landinu og af ofangreindu var aðeins eina sólbaðsstofu að finna. 7 nýjar heild- sölur voru stofnaðar og 9 iðnfyrir- tæki af ýmissi sort auk fjögurra verktakafyrirtækja. Ein heildversl- unin sem stofnuð var heitir Lúxus- frystivörur hf. í Reykjavík og heita stofnendurnir Guðbrandur, Guð- mundur, Guðlaugur, Garðar og ann- S. 'extíu og tveir fimmtíu og tveir fimmtíu og tveir er þín leið til aukinna viðskipta. . . Nýr auglýsingasími 625252 LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF Laugavegi 178* Reykjavík • Simi 685811 HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.