Helgarpósturinn - 18.02.1988, Qupperneq 14
NANDI
VATN
ÚMEN
HVAÐ?
il!§!
*
Afengisverslunin heimsótt og
framleiöslu á íslensku áfengi
kynnst.
Það var svolítið einkennileg lykt sem mætti okkur í
dyrum Áfengisuerslunar ríkisins í Árbænum. Kartöflu-
lykt eða kúmenlykt? Við gátum ekki áttað okkur á því,
en hún minnti okkur á eitthvað matarkyns, hversu gáfu-
lega sem það annars hljómar. Hins vegar er ljóst þegar
inn er komið að þar er ekki framleiddur matur. Þarna er
búið til brennivín, vodka og fleiri drykkir í tugþúsundum
lítra á hverju ári.
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYNDIR: JIM SMART
- ■
* & -
-
Hér sést hvernig vatnið og vínandinn bulla
þegar blöndunin fer fram. Það tekur um 15
mínútur, og ef allar vélar eru tilbúnar tekur
ekki nema klukkustund að framleiða 2.200
lítra af brennivíni.
■
Við höfðum ekki hugsað okkur að
kynna okkur framleiðsluna svona
upp á eigin spýtur, heldur höfðum
beðið Jón O. Edwald lyfjafræðing
að leiða okkur í allan sannleikann.
Að vísu fengum við ekki uppskrift-
irnar — enda vart við því að búast.
(Maður hefði getað útvegað sér
spíra, bætt í vatni og þeim bragðteg-
undum sem við á, og hætt að versla
í Ríkinu!) Nei, varla. Svo auðvelt er
þetta nefnilega ekki.
FJÖRUTÍU ÞÚSUND
LÍTRAR AF HREINUM
SPÍRA
Jón O. Edwald hefur lyklavöldin.
Einn lykilinn notaði hann til að
opna stóra járnhurð og þar komum
við inn í herbergi sem í voru m.a.
nokkrar tunnur af gömlu ákavíti og
fjórir stórir stálgeymar, fullir af
hreinum vínanda (spiritus vini). í
hverjum geymi eru 10.000 lítrar (já,
tíu þúsund) af 96% vínanda, sem
fluttur er inn frá dönsku vínanda-
verksmiðjunum, „fyrsta flokks vín-
andi" eins og Jón segir. Ákavítis-
tunnurnar voru fimm, fullar af
gömiu ákavíti sem Jón segir að
geymt sé í eitt ár, áður en það er sett
yfir á flöskur.
HEFURÐU ALDREI
BORÐAÐ KRINGLU?
Stálpípur liggja úr vínandageym-
unum fram í sal þar sem er annar
geymir, ögn minni. Töivustýrð vél
er í herbergi upp af salnum og þar er
stimplað inn hversu mikið af spíritus
og hversu mikið af vatni eigi að fara
í geyminn. Þar er vínandanum og
vatninu blandað saman „ásamt
bragðefnum" segir Jón Edwaid, án
þess þó að fara nánar út í þá sálma.
Segir brosandi að ekki fari hann að
gefa uppskrift að víninu! Þegar vín-
andinn og vatnið hafa verið í blönd-
un í u.þ.b. 15 mínútur er leginum
dæit í gegnum batterísþétta síu.
Þaðan liggur leiðin upp á loft. Eigin-
lega öfundaði maður vínið af því að
komast upp á efri hæðina í gegnum
stálpipur, því stiginn upp er snar-
brattur og jafnvel þótt öryggisgrind
varni því að nokkur geti hrapað nið-
ÚR GAMALLI FRÉTTATILKYNNINGU FRÁ
ÁFENGISVERSLUN RÍKISINS
BIRTIST 13. NÓVEMBER 1947
Áfengisverslun ríkisins varstofnuð samkvæmt lögum nr. 62 27. júní 1921.
Áður hafði samkvæmt lögum nr. 44 30. júlí 1909 gilt aðflutningsbann á
áfengifrá 1.1.1912ogsölubannfrá 1.1.1915. Jafnhliða lögunum er kveðið
á um stofnun áfengisverslunar. Var heimilaður innflutningur áfngis allt að
21% aðstyrkleika aðrúmmáli. Eraðhaldiðum þettafrá Spáni sem að öðr-
um kosti hefði eigi látið ísland njóta bestu kjara um tolla á saltfiski. Að
undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu sem fórfram 1933 var heimilaður
innflutningur á öllu venjulegu neysluáfengi öðru en öli. Frá 1. febrúar 1934
hefur að lögum verið frjáls verslun áfengis á íslandi að öðru en því, sem
takmarkað hefur verið með reglugerðum og stjórnarráðsbréfum á hverj-
um tíma, og voru einkum á stríðsárunum reynd ýmis úrræði til að stilla
áfengisneyslu i hóf, svo sem skömmtun, algjör lokun og loks svokallaðar
„undanþágur". En nú er aftur frjáls salan.
14 HELGARPÓSTURINN