Helgarpósturinn - 18.02.1988, Side 15

Helgarpósturinn - 18.02.1988, Side 15
%'C-Íéj} 1 *■"" i I Wíti JZ. /séa'&eí < Kassar og aftur kassar af áfengi. Viö buðumst til að halda smápartý inni í þessum sal eitthvert kvöldið . l Jón Edwald lét ekki slá sig út af laginu og benti á að kókverksmiðjan væri í næsta húsi. ur virkaði það sem hreinasta glap- ræði að príla þarna upp. — Hvað þá niður! — Ákveðin í að sækja aldrei um vinnu við blöndun horfðum við ofan í næsta geymi, þar sem brenni- vínið var. Þegar við lyktuðum af drykknum gaus á móti okkur lykt sem við töldum okkur þekkja. „Kartöflur?" spurðum við. „Hvað er þetta? Hefurðu aldrei borðað kringlu!" svaraði Jón. „Kúmen." Niður aftur. Nú niður í annan sal þar sem flöskur í tuga- eða hundraðatali biðu þess að vera þvegnar í bak og fyrir. Jón segir þvottavélina vera að verða tíu ára gamla og þörf sé á nýrri, jafnvel þótt þessi hreinsi mjög vel. „Hreinlætið er stórt atriði hér,“ segir hann. Þegar flöskurnar koma úr vélinni rennur vínið í þær og síðan er þeim lokað. Allt er sjálfvirkt. Tappaðar og til- búnar renna þær eftir færibandi þar sem þær eru merktar ásamt því að á þær límist sérstakur miði fyrir tölvur. „Þetta er alþjóðieg tölvu- merking," segir Jón, „og af þessum miðum lesa tölvurnar hvaða tegund er í flöskunum og hversu mikið magn.“ ÞESS VEGNA ER VODKINN í SÍBERÍU STERKUR! Jón segir að uppskriftinni að Tinda-vodka hafi verið breytt um áramótin '86—^87, en áfengið sem framleitt er hér á landi er um 40% að styrkleika. Sterkari blanda veld- ur því að meira bragð finnst af vín- andanum. Hann bendir einnig á að eðlisþyngdin skipti auðvitað öllu máli í sambandi við blöndun áfengis og segir okkur af manni einum sem prófaði að geyma eina flösku við stofuhita og aðra í frysti og var svo gáttaður á að eðlisþyngdin væri alls ekki sú sama: „Þetta er eins og í Síberíu," segir Jón. „Það skal engan undra að Rússarnir eigi sterkan vodka!" ÞÁ VAR HRÆRT MEÐ HÖNDUNUM Áfengisverslunin var stofnuð þeg- ar bannárunum lauk, en þá kröfðust Spánverjar þess að Islendingar keyptu af þeim áfengi á móti því að þeir keyptu fisk af okkur. Allt frá ár- inu 1933 hefur brennivín verið framleitt hjá Áfengisversluninni og uppskriftin alltaf verið sú sama. Áfengisverslunin hefur ennfremur framleitt ýmsar aðrar tegundir eins og bollu, kokteil (sambland af gini og vermouth), messuvín, kræki- berjalíkjör ásamt ákavíti og fleiri tegundirj en nýjasta framleiðslan er „Eldur Is-vodká'. Jón sýnir okkur tunnur þær sem notaðar voru til framleiðslu áfengis á árum áður, þegar Áfengisverslunin var til húsa í „Nýborg" en framleiðslan hefur farið fram í Árbænum frá því í júlí árið 1970. í tunnunum var vínand- anum og vatninu hrært saman með til þess gerðri „hræru", sem Jóni finnst einna líkust „lélegri kanóár"! í þá daga var blandað í eina tunnu í einu, um það bil 1.200 lítrum. í rauninni ekki svo lítið þegar tekið er tillit til þeirrar vinnu sem hefur falist í að hræra stöðugt í leginum. Núna er gamalt brennivín geymt í tunn- unum. Frammi í anddyri byggingar- innar gefur að líta fyrstu brennivíns- dæluna, handdælu sem sérhönnuð var til áfengisframleiðslu í Dan- mörku, og töppunarvél. Satt að segja hafa þeir sem unnu við átöpp- un ekki átt sjö dagana sæla! Að vísu má reikna með að sala áfengis hafi verið í mun minni mæli á þeim tím- um, en samt....! Síðar léttist vinnan við blöndunina töluvert. Eftir að notkun handhræru lagðist af var sett slanga ofan í tunnurnar og lofti dælt niður. Núna er tæknin í fullu veldi við áfengisgerðina og þegar allar vélar eru tilbúnar tekur aðeins um klukkustund að búa til 2.200 lítra af áfengi — eða um 3.000 flösk- ur. Jón O. Edwald hefur unnið hjá Áfengisverslun ríkisins „með annan Tunnurnar góðu sem brennivínið var búið til í á árum áður. Núna eru þessar tunnur fullar af gömlu brennivíni. fótinn í áratugi" segir hann. „Núna er ég með báða fæturna hér.“ Áður starfaði Jón sem yfirlyfjafræðingur hjá Lyfjaverslun ríkisins en þegar ég spyr hvort þeir súpi aldrei á „leka- byttunum" svarar hann: „Nei, það væri óþolandi að vinna hér ef mað- ur væri mikið fyrir áfengi!” Bætir við að þegar hann fari í samkvæmi vilji hann helst ekkert nema óá- fengt: „Maður fær nóg af því að vera innan um þetta allan daginn," segir hann brosandi. „Það væri eins og þér væri boðin prentsverta ofan á brauð í veislum!" 1 framhaldi af tali um lekabytt- urnar segir Jón mér að „haninn" á geymunum heiti „cock" og líklegast sé því orðið „cocktail" dregið af því að blandað var saman því sem lak eftir að skrúfað hafði verið fyrir kranana. „Þessi þýðing á „cocktail" — hanastéi — hefur ekkert með stél á hana að gera!" segir hann hlæj- andi. Við enduðum heimsókn okkar í Áfengisverslunina á að fara inn á lagerinn. Kassar og aftur kassar af áfengi blöstu við. Áfengi frá öllum heimshornum. Rússneskt vín, skoskt, sænskt, finnskt, bandarískt, íslenskt, jafnvel kínverskt. Samt hef- ur aðeins einu sinni verið reynt að brjótast inn þarna. Þá ruddu ungl- ingspiltar sér leið með sleggju og brutu niður vegg. Þegar þeir komu að sækja varninginn var tekið á móti þeim af lögreglunni. „Lögregl- an er hér inni á lóðinni," segir Jón. „Þessarar byggingar er vel gætt.“ Jón O. Edwald meö „hræruna" sem notuð var til að blanda saman vín- anda og vatni í trétunnum, meðan Áfengisverslunin var til húsa í Ný- borg. BÍLEIGENDUR BODDÍHLUTIR! ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI 0.FL. Á FLEST- AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST Á STAÐNUM. BÍLPLAST Vegnhöfða 19. simi 6*8233. Póstsendum. Ödýrir srurtubotnar. Tökum að okkur trefjaptaatvinnu. VMjið islenskt. Skoöaöur ’88, svartur, sérlega gott eintak. Upplýsingar í síma 681511 á daginn. Til sölu Mercedes 1970 Tilboð óskast KÉRASIASE 'FRÁ L’ORÉAL PARÍS ÁTT ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ. LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU- MEISTARANUM. SPURÐU HANN UM KERASTASE. FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM. HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.