Helgarpósturinn - 18.02.1988, Síða 23
„Þetta er einhver frumkraftur sem er að brjótast fram," segir Ólafur Lárusson,
sem er fyrstur til að sýna í nýju húsnæði gallerísins.
Gallerí Svart a hvítu
opnað á nýjum stað
*
Reyni að losna undan skynseminni segir Olafur Lárusson,
sem vígir húsakynnin
Föstudagskvöldið 19. febrúar opnar Ólafur Lárusson
sýningu í Gallerí Svörtu á hvítu og verður þá væntanlega
mikið um dýrðir því um leið vígir galleríið nýtt húsnæði
á horni Laufásvegar og Skálholtsstígs, en eins og menn
muna eflaust var það áður til húsa við Óðinstorg. HP hitti
Ólaf og ræddi við hann um myndirnar sem verða á sýn-
ingunni um leið og við kynntum okkur ný húsakynni
gallerísins.
Ólafur sagði myndir sínar flestar
málaðar á síðasta hausti en reyndar
væru nokkrar frá þessu ári. Hann
sýnir í það heila um fjörutíu myndir,
bæði stórar myndir sem hann vinn-
ur með blandaðri tækni, mest með
túss, akrýl og pastel, og svo enn-
fremur einþrykk.
„Þetta eru fyrst og fremst ex-
pressíónískar myndir sem eiga að
sýna einhvers konar hugarástand,
gos eða einhvern frumkraft sem er
að brjótast upp á yfirborðið," sagði
Ólafur. ,,Ég vinn myndirnar mjög
hratt í upphafi og hvíli þær svo í
nokkra daga áður en ég tek ákvörð-
un um hvort ég ætla að halda áfram
með þær.‘‘
— A sýningunni eru tvær andlits-
myndir sem skera sig nokkuð úr...
„Já, þetta eru draugar frá því sem
ég var að fást við síðastiiðin ár.
Kannski eru þetta sjálfsmyndir, hug-
læg portrett, en eins og sjá má fer
ég frjálslega með formin, enda eiga
þær fyrst og fremst að sýna sálar-
ástand frekar en ákveðin form, eins
og allar mínar myndir í rauninni."
— Þetta virkar dálítið eins og
krass og tilviljunarkennt, verða
myndirnar til sem einhvers konar
„happening"?
„Nei, það er ekki svo mikið svo-
leiðis, ég sé nokkuð fyrir mér áður
en ég byrja hvað ég ætla að gera. Ég
byrja yfirleitt á grunninum með
tússinum eða akrýl og kómpónera
svo bara nokkrar línur áður en ég
hvíli myndirnar. Þetta kemur eins
og flass í hausinn á mér og ég veit
hvað ég ætla mér, myndirnar eru
alls ekki eins tilviljunarkenndar og
þær líta kannski út fyrir að vera.“
— Vannstu sérstaklega fyrir sýn-
inguna, myndirnar þarafleiðandi
skyldar?
„Já, það er töluverður skyldleiki
með þeim, ég vinn þetta mikið í
tvennum og þrennum og svo eiga
þær þetta þema sameiginlegt sem
ég var að nefna áðan, með gosið,
frumkraftinn sem brýst fram. Það
má kannski segja að ég sé að reyna
að losna við skynsemina. Það má
ekki vera of mikið af henni vegna
þess að hún miðast við það sem
þekkt er fyrir og getur verið dragbít-
ur á framþróun og valdið því að
menn komist ekkert úr sporunum."
Eins og áður sagði verður Gallerí
Svart á hvítu opnað í nýju húsnæði
á föstudaginn, ólíkt rúmbetra en það
fyrra, en uppgangur gallerísins hef-
ur verið afar mikill síðan það tók til
starfa fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári.
Þeir gallerísmenn með Jón Þórisson
í fararbroddi hafa sýnt mikinn metn-
að í sýningarhaldi og margar af
betri sýningum síðasta árs voru hjá
þeim. Að auki eru þeir með um-
boðssölu á listaverkum og má þar
finna gott safn verka, einkum eftir
unga listamenn.
KK
Skapar fegurðin hamingjuna?
Don Giovanni í íslensku óperunni
Á föstudaginn frumsýnir íslenska óperan í Gamla bíói
óperuna Don Giovanni eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Þetta er ein frægasta ópera Mozarts og gjarna kölluð
ópera óperanna. Alls tekur þátt í sýningunni á 7da tug
listamanna, söngvarar og hljóðfæraleikarar. Enn eitt
stórvirkið af hálfu óperunnar.
Mozart sækir efnivið sinn til hinn-
ar frægu sögu af kvennaflagaranum
Don Juan, sem þótti ómótstæðileg-
ur í eina tíð og þætti svo vafalítið
enn. En þrátt fyrir ómótstæðilegan
sjarma Don Giovannis, eins og hann
heitir hjá Mozart, er líf hans ekki
dans á rósum því skeytingarleysi
hans leiðir hann að lokum til glöt-
unar. Fegurðin er ekki allt, eins og
nútíminn virðist stundum halda.
Mozart samdi verkið árið 1787 og
var það níunda ópera hans, en hann
samdi alls tólf slíkar. Don Giovanni
var frumsýndur í Prag sama ár og
Mozart samdi óperuna og er af því
löng saga og merkileg, m.a. er talið
að Mozart hafi skrifað forleikinn
nóttina fyrir aðalæfinguna.
í verkinu eru óvenjumargir ein-
söngvarar, alls sjö, og eru hlutverk
þeirra allra stór og vandmeðfarin.
Kristinn Sigmundsson syngur Don
Giovanni sjálfan, Bergþór Pálsson
syngur hlutverk þjóns hans, en
þetta er fyrsta óperuhlutverk hans.
Auk þeirra eru þarna Olöf Kolbrún
Harðardóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir,
Sigríður Gröndal, Gunnar Guð-
björnsson og Viðar Gunnarsson.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir
og hljómsveitarstjóri Bretinn
Anthony Hose. Hose hefur stjórnað
hér áður, en er alla jafna aðalstjórn-
andi The Welsh Chamber Órch-
estra. Una Collins gerir búninga.
KK
„Passlega stórt hlutverk“
Gunnar Gudbjörnsson
Gunnar Gudbjörnsson, tenórinn
ungi, syngur í Don Giovanni sitt
fyrsta óperuhlutverk og hann var
spurdur hvernig þaö legdist í hann?
„Mér líst bara vel á þetta en þetta
er auðvitað erfitt í fyrsta skiptið,
eins og allt er erfitt í fyrsta skipti, allt
nýtt er erfitt. En þetta er langstærsta
stökkið, því hér sameinast allt, bæði
söngur og ieikur.“
— Hvernig stendurðu í leiklist-
inni?
„Ég hef alltof lítið lært, verið á
einstaka námskeiðum, en þetta er í
fyrsta sinn sem maður fær almenni-
lega tilsögn í því hvernig maður á að
vera á sviði. Þetta er fyrsta praktíska
reynslan ef svo má segja."
— Er leikurinn stór hluti af þessu,
ekki nóg að syngja vel?
„Ég myndi segja að þetta vægi
jafnt, og ef maður hefur ekki nema
annað á valdi sínu þá er maður
ómögulegur."
— Segðu mér frá hlutverkinu, er
það stórt?
„Það er nokkuð stórt, svona pass-
lega held ég, það er ekki gott að
byrja á of stóru hlutverki. Maður
nær frekar árangri með því að taka
skynsamlega stórt hlutverk. Svo er
ég líka svo ungur enn."
— Þú stefnir samt auðvitað
hærra, belgja þig út eins og tenórar
aðrir í gegnum tíðina?
„Já, já, ég ætla að belgja mig út á
alla kanta, líkamlega og í söng,
tenórkomplexinn"
— Einhverjar áætlanir fyrir fram-
tíðina?
„Já, ég fer út í sumar, til Sviss á
námskeið, og svo er ég búinn að
taka samningi í Bretlandi, lítið hlut-
verk í Haydn-óperu á Buxton Festi-
val hjá sama hljómsveitarstjóra og
stjórnar hér hjá okkur núna. Svo er
ég að reyna að finna mér kennara
fyrir næsta vetur, ég ætla að reyna
að komast eitthvað þar sem mikið
er að gerast í óperulífi, mig langar
að fara til Berlínar. Þetta er nú það
sem er á döfinni."
KK
Don Giovanni í trylltum dansi ásamt einni lagskonu sinni.
HELGARPÓSTURINN 23