Helgarpósturinn - 18.02.1988, Page 32
ÞORRI
Það er gömul frásaga að í ein-
hvörju hallæri sem gekk yfir landið
á þorra hafi verið svo mikil bágindi
í Vopnafirði að forstjórum sveitar-
innar kom saman um að saman-
safna öllum aumingjum og þurfa-
mönnum og reka allt í hóp á fjöll
upp allt norður í Heljardal til að lifa
og deyja eftir því sem verkast
vildi.
Enn erum við á göngu yfir ísinn
einsog þjóðsaga og liðumst á milli
stranda með lífsmark í framvindu.
Fyrrúm gengu þau út á ísinn sem
brast undan farginu og hurfu í
djúpið með lágu skvampi. Barnið
sá hvað gerðist. Þau rak á lítilli
spöng út í helkalt tómið án þess
að glata hugsun en fundu loks við
ísbjarnarmóðurbrjóstið ylinn sem
kveikti líf. Fyrrum lét hann reka
undan vindi eftir breiðunni á leggj-
um að nema land á köldu grann-
landi hlýju og bera þar bein. í þrjá
vetur gekk hann í hringi og fleytti
lífinu fram milli skerja. I þrjá langa
vetur gróf hann sig dýpra í fönn
eftir æti uns ekkert var lengur að
fá. Þá segir þjóðsagan gróf hann
sig sjálfan í gaddfreðna urðina
snjófarg yfir og ís svo ekki yrði
hann ætur sjálfur gamall og seig-
ur. Hann blundaði þá i fyrstu hlýj-
unni og dreymdi sig barnið burtu
flogið til baka. Enn erum við á
göngu yfir ísinn sem enn læsir
klónum í allt. Þó hann þrýsti sér
allt um kring, þó hann grafi allt
undir sem hugsanlega má bærast
heyrist lífsmarkið kalla í gegnum
kófið einsog Ijósinu varparfrá helj-
arbreiðunni. Svo er vor.
FÞ
i
,,Það tilheyrir hins vegar góðum
siðum veiðímanna að slcjóta
ekki dýr nema þekkja það og
hafa eínhverja nugmynd hversu
stórt það er.#i
Sverrir Scheving Thorsteinsson, Skotveiöifélagi íslands.
„Sannindi eru það, sem menn vita
sannast og réttast hverju sinni, en
sannindi verða seint endanleg. Við
erum því alltaf að leita meiri þekk-
ingar og nýrra sanninda."
Hjörtur E. Þórarinsson, formaður Búnaö-
arfélags íslands.
„Við vorum einfaldlega ekki með
bragð sem hentaöi íslendingum."
Davíö Scheving Thorsteinsson,
forstjóri Sólar hf.
„Hf framleiðslan borgar sig ekki á
að hætta."
Jón Ásbergsson,
forstjóri Hagkaups.
„Það er rosalegur hugur í fólki,
rosaleg harka. Menn eru komnir á
suðumark."
Guömundur J. Guömundsson,
formaður VMSÍ.
„Kröfugerð VMSÍ er 20—40 árum
á eftir tímanum."
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ.
„Þetta kaupmáttartal eru meira
og minna ósannindi og tölur um
kaupmátt almennings er meira og
minna blekking."
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaöur VMSÍ.
„Rekstur Sambandsins er þungur,
Guöjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins.
„Ég skaut hann í bóginn og hann
steiniá í fyrsta skoti."
Sigurbjörn Þorleifsson,
bóndi á Langhúsum.
„Teningakastið er ógeðfelld að-
ferð."
Jónatan þórmundsson,
forseti lagadeildar HÍ.
„Mín persónulega skoðun er fyrst
og fremst sú að byggingin sé ekki
of dýr heldur hafi kostnaðaráætl-
anir verið of lágar."
Guömundur G. Þórarinsson,
formaður byggingarnefndar
Listasafns íslands.
„Það er hlægilegt hvernig
Sambandið hagar sér."
Guðmundur Oddsson,
bæjarfulltrúi í Kópavogi.
„Ef við geröum alltaf ráð fyrir
hinu versta þá sætum við með
hendur í skauti."
Þórólfur Antonsson,
framkvæmdastjóri Öluns á Dalvík.
„Við höfum ekki fengið launin
okkar frá því í september, það var
því lakur jólamatur hjá okkur."
Starfsmaður skemmtigarösins Tivolí,
Hverageröi.
STJORNUSPA
HELGINA 19.-21. FEBRÚAR
Skyndilega fer að birta til og ótti þinn
hverfur eins og dögg fyrir sólu. Þú verður
frjálsari og félagslífið blómstrar. Þér verður
boðið á eftirsóknarverðan stað. Laugardag-
urinn getur orðið einstaklega ánægjulegur.
NAUTIÐ (21/4-21/5
Þú ert óumdeilanlega við stjórnvölinn og
færð tækifæri til að bæta fyrir fyrri mistök.
Fáðu útrás fyrir forvitnina, notaðu aðstöðu
þína til upplýsingaöflunar og láttu rithæfn-
ina njóta sín. Þú nýtur lífsins af meiri áhuga
en oft áður.
EznnnmnisE
Þú verður fyrir vonbrigðum, en ferð síðan
að sjá hlutina í skýrara Ijósi, þegar þú kemst
að einhverju sem áður var á huldu. Helgin
verður annars ósköp Ijúf og heppnin verður
með þér. En það er mikið um leyndarmál,
svo þú ættir að gæta þess að láta ekki leyna
þig neinu.
KRABBINN (22/6-20/7
Hvernig væri að næra sálina með því að
fara í leikhús, á tónleika eða skoða safn? Það
veitir þér innblástur og gerir þér lífið léttara.
En láttu ekki fagurt yfirborð villa þér sýn.
Aðili með mjög sérstaka rödd hefur mikil-
vægu hlutverki að gegna.
LJÓNIÐ (21 /7—23/8
Þig dauðlangar til að stinga af síðla á
föstudag, en ættir fyrst að ganga frá fjármál-
um og viðurkenna mistök, sem þér hafa orð-
ið á. Ef þú ferðast eitthvað á laugardag
muntu komast að ýmsu merkilegu, t.d. með
því að hlusta á reynslusögu ákveðins aðila.
MEYJAN (24/8-23/9
Sérfræðingur, sem vill fræða þig um
ýmislegt, kennir þér margt. Brautin fram-
undan er líka breið, ef þig skortir ekki úthald.
Fjárhagslegum bagga er þar að auki af þér
létt, sem gerir allt auðveldara. Láttu ekki
neikvæða manneskju eyðileggja fyrir þér
dagdraumana.
VOGIN (24/9-22/10
Þú ert orðinn hundleiður á þeim takmörk-
unum, sem þér eru settar, og nauðsyn þess
að þóknast öðrum. En þú ættir ekki að
hætta, nema þú hafir að öðru að hverfa, og
Ijúktu erfiðu vérkefni með sóma. Á heima-
velli má líka bæta ýmislegt. Láttu þér ekki
nægja sama gamla farið, því þú átt betra
skilið.
SPORÐDREKINN (23/10-22/11
Öll tjáning er þér auðveld þessa dagana
og til stendur að reyna eitthvað nýtt í þeim
efnum. Verkefni, sem þú byrjaðir á til gam-
ans, gæti borið ríkulegan ávöxt. Vertu við því
búinn að svara ýmsum spurningum. Þú
gætir átt ánægjuleg skoðanaskipti á sunnu-
dag.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12
Áhyggjur gera einungis illt verra. Það er
mun skynsamlegra að afla sér upplýsinga
og taka þvi, sem að höndum ber, af karl-
mennsku. Þolimæði er líka mikilsverð. Laug-
ardagurinn verður á léttu nótunum og þú
ættir að nota hann til að slaka á og gleyma
öllum erfiðleikum.
STEINGEITIN (22/12-21/1
Einhver, sem kemur frá fjarlægum stað,
laðast að þér. Gerðu þér far um að skilja
þennan aðila. Það gerist líka eitthvað bráð-
skemmtilegt atvik. Ákveðin nýbreytni lífgar
upp á sunnudaginn, ef þú lýkur skyldustörf-
um fljótt af og ferð i heimsóknir til áhuga-
verðs fólks.
mnnmnnMm
Hafðu hugann við hversdagsleg verkefni
á föstudag og ekkert „vesen"! Gerðu þér
grein fyrir hvar þú stendur, t.d. fjárhagslega,
og settu þér takmörk af svolítilli hagsýni. Á
laugardag kemstu í samband við ræðna og
skemmtilega persónu af gagnstæða kyninu.
FISKARNIR (20/2-20/3
Það gerast svo sem engir stóratburðir
þessa helgi, en hún gengur þokkalega þægi-
lega fyrir sig. Þú verður eitthvað á ferðinni
og ættir m.a. að kaupa gjöf handa ákveðn-
um fjölskyldumeðlim til að koma á sættum.
Reyndu að hafa fæturna á jörðinni á sunnu-
dag og ekki lofa upp í ermina á þér.
32 HELGARPÓSTURINN