Helgarpósturinn - 18.02.1988, Side 35
Guðjón Friðriksson
sagnfrœðingur segir sögu
gamalla húsa við
Þingholtsstrœti
Þœttir Guðjóns Friðrikssonar sagnfrœðings hafa vakið
athygli okkar sem annarrá, en Guðjón hefur annast
þáttagerð hjá Ríkisútvarpinu um göturnar í Reykjavík.
Guðjón lauk BA-prófi í sagnfrœði árið 1970 og segist
snemma hafa fengið áhuga á byggðasögu, skrifaði t.d.
BA-ritgerð sína um upphafþorps á Patreksfirði. Að námi
loknu starfaði hann sem kennari til ársins 1976, er hann
gerðist blaðamaður á Þjóðviljanum þar sem hann starf-
aði í níu ár.
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYNDIR JIM SMART
„Á fyrstu árum mínum í blaða-
mennsku var mikið rifist hér um
ákveðin hús í borginni, Grjótaþorp,
Bernhöftstorfuna og fleiri. Ég var
fljótt mjög ákveðinn húsfriðunar-
sinni og sinnti þeim málum mikið í
blaðinu, skrifaði töluvert um þau
sem og sögulega hlið Reykjavíkur.
Síðan þróaðist áhugi minn á þessum
gömlu húsum smátt og smátt. Ég
átti ljósmyndasafn úr Reykjavík eftir
föðurbróður minn, Skafta Guðjóns-
son, og ég stóð m.a. fyrir því að þær
yrðu gefnar út á bók. Síðan fór ég að
hafa viðtalsþætti í útvarpi við gamla
Reykvíkinga um bernsku þeirra og
þau viðtöl komu einnig út á bók.
Þannig þróaðist þetta stig af stigi.
Smám saman fór ég að halda spjald-
skrá yfir gömul hús í borginni og hef
fært inn í hana jafnóðum og ég sé og
fræðist um fleiri hús.“
Haustið 1985 ákvað Reykjavíkur-
borg að ráða Guðjón við annan
mann til að skrá sögu Reykjavíkur
og sá þriðji hefur bæst við á þessu
ári. Þeir stefna að því að koma út
þriggja binda verki af sögu Reykja-
víkur á næsta ári. Við þá efnisöflun
segist Guðjón auðvitað hafa farið í
gegnum geysilegan fjölda af heim-
ildum og þá haft það sem hliðar-
áhugamál að skrifa niður það sem
hann verður vísari um gömul hús,
„og á þess vegna nokkuð fullkomna
skjalaskrá yfir þau“, segir hann.
EMBÆTTIS-
MANNAGATAN
ÞINGHOLTSSTRÆTI
En tilgangurinn með heimsókn til
Guðjóns var ekki einvörðungu sá að
fræðast um hann sjálfan. Helgar-
pósturinn hafði farið þess á leit við
Guðjón að hann gengi með okkur
um einhverja merka götu og segði
okkur sögu húsa sem við þá götu
standa. Guðjón valdi Þingholts-
strœti, sem hann segir marga
embættismenn hafa byggt hús sín
við fyrir og um aldamótin. „Þessa
götu var fyrst farið að leggja upp úr
1870 og henni gefið nafn 1880. Upp
úr því fór hún að byggjast hratt upp.“
Við endann á Þingholtsstræti, við
Bankastrætið, segir Guðjón hafa
staðið röð af torfbæjum á síðustu
öld. „Þeir hétu hinum ýmsu nöfn-
um, en voru kallaðir einu nafni
„Þingholtsbæir". Holtið, sem var
hér, hét reyndar Arnarhólsholt, en á
þeim tíma sem Reykjavík tilheyrði
Seltjarnarneshreppi hinum forna
hafði hreppurinn látið reisa þinghús
á þeirri lóð, sem síðar stóð Guten-
berg-prentsmiðjan í Þingholtsstræti
6, eða rétt þar fyrir neðan. Það mun
hafa verið laust upp úr 1750. Rétt
Elsta húsið sem enn stendur við Þingholtsstrœti: Númer 13. Það var reist áriö
1876 og lengst af bjó í því Þorsteinn Guðmundsson yfirfiskmatsmaður, sem
á sér merka sögu í sambandi við vöruvöndun á íslenskum saltfiski. Húsið er
friðað.
fyrir ofan þinghúsið fóru svo kot-
ungar fljótlega að reisa kot sín og
voru þau kölluð Þingholt eftir þing-
húsinu. Smám saman breiddist
nafnið svo út yfir allt hverfið."
Guðjón segir að það hafi verið
1880 sem ákveðið var í bæjarstjórn
að gefa götunni nafn. „Einn í bæjar-
stjórninni lagði til að vegurinn héti
„Þingholtsröð" en sú hugmynd var
felld með öllum atkvæðum gegn
hans.
Það má segja að Þingholtsstrætið
sé með merkari og heillegri götum
í gamla bænum. Þegar fyrsta við-
leitni til húsfriðunar í Reykjavík var
gerð, fyrir rúmum tuttugu árum,
voru Hörður Ágústsson og Þor-
steinn Gunnarsson tilnefndir af
borginni til að gera úttekt á gamla
bænum. Þeir lögðu mikla áherslu á
að Þingholtsstrætið fengi að varð-
veitast. Á því hefur verið allur gang-
ur, sum húsin hafa verið gerð upp á
þann hátt sem þeim ber, önnur ver-
ið skemmd, til dæmis með heilum
rúðum og öðru sem ekki á við upp-
runalega mynd þeirra."
ELSTU HÚSIN VIÐ
ÞINGHOLTSSTRÆTIÐ
„Þingholtsstrætið byggðist aðal-
lega á árunum frá 1880—1900. Þá
var farið að reisa hér timburhús og
gömlu torfbæirnir viku. Mörg þess-
ara húsa standa enn,“ segir Guðjón
og bendir á húsið nr. 13. „Þetta hús
er byggt árið 1876 og í því bjó lengi
Þorsteinn Guömundsson, yfirfisk-
matsmaður í Reykjavík. Hann á
mjög merkilega sögu að baki í sam-
bandi við sjávarútveg og verkun
fiskafla í iandinu. Meðal annars
skipulagði hann mat á saltfiski, fór
til Spánar og Ítalíu að kynna sér
hvernig menn þar vildu hafa fisk-
inn. Það var sagt að Spánverjarnir
þyrftu ekki annað en stimpil frá Þor-
steini til að þeir tækju fiskinn gildan.
— Þorsteinn bjó alla sína tíð í þessu
húsi og það hús er ntHriðað, sem
þýðir að ekki má brevjta því á ytra
Þetta var aöalsjúkrahús Reykjavíkur á árunum 1882—1902, teiknaö og smíðað
af Helga Helgasyni. Húsið, sem flestir eldri Reykvfkingar þekkja undir nafninu
Farsóttarhúsið í Þingholtsstræti 25, hefur nýlega verið gert upp af borgaryfir-
völdum í upprunalegum stíl. Spítalastígur er kenndur við húsiö.
HELGARPÓSTURINN 35