Helgarpósturinn - 18.02.1988, Page 39

Helgarpósturinn - 18.02.1988, Page 39
FRETTAPOSTUR Sturlumálið í dóm í vikunni lauk málflutningi i Borgardómi Reykjavíkur i máli Sturlu Kristjánssonar, fyrrverandi fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra, gegn fjármálaráðherra fyrir hönd rikissjóðs. Sturla krefst ólögmætis á hrottvikningu sinni og 6 milljóna króna í skaðabætur vegna launataps og miska, auk málskostnaðar. Dómari í málinu er Hjördís Há- konardóttir en meðdómendur Jón L. Arnalds borgardómari og Guðmundur Arnlaugsson, fyrrverandi rektor. Lögmaður rikissjóðs er Guðrún M. Árnadóttir en lögmaður Sturlu er Jónatan Sveinsson. Skotið á bil Skotið var á bíl á Eiðsgranda nú í vikunni. Ein kona var í bílnum en rétt áður höfðu tvö börn verið í aftursætinu og má það teljast mikil mildi að þau voru farin úr bilnum þegar skotið reið af. Talið er að ef þau hefðu verið í bílnum hefði annað þeirra getað orðið fyrir skotinu. Ekki er enn vitað hver skotmaðurinn var en RLR vinnur að rannsókn máls- ins. Benedikt í hæstarétt Nú nýverið skipaði forseti íslands samkvæmt tillögu dómsmálaráðherra Benedikt Blöndal hæstaréttarlögmann í embætti hæstaréttardómara. Umsækjendur um embættið voru alls níu. í umsögn Hæstaréttar um umsækjendurna var sérstaklega mælt með þeim Sveini Snorrasyni, Hirti Torfasyni og Benedikt Blöndal. Kynferðisafbrotamaður dæmdur Hæstiréttur hefur dæmt í máli ákæruvaldsins gegn manni sem gert var að sök að hafa nauðgað 3V4 árs gamalli stjúpdóttur sinni. Maðurinn var dæmdur í Sakadómi Hafn- arfjarðar í 3 Vás árs fangelsi en Hæstiréttur lækkaði refsing- una í ZVa. ár. Guðmundur Skaftason hæstaréttardómari skil- aði sératkvæði og vildi sýkna ákærða vegna ónógra sann- ana. Dóminn kváðu upp hæstaréttardómararnir Magnús Thoroddsen, Guðmundur Jónsson, Hrafn Bragason og Sig- urður Líndal prófessor. ' Préttapunktar • Arnór Diego, átján ára Reykvíkingur, var á laugardags- kvöldið kosinn herra ísland 1988 í fegurðarsamkeppni karla sem haldin var á veitingastaðnum Zebra á Akureyri. • Togarinn Hrafn Sveinbjarnarsson III GK H, sem strand- aði í innsiglingunni við Grindavík aðfaranótt föstudagsins, hefur nú verið dæmdur ónýtur og tryggingafé hans greitt út. • Skáksnillingurinn ungi Karl Þorsteins tryggði sér fyrir helgina þátttöku í úrslitum á heimsmeistaramótinu í hrað- skák sem fer fram í St. John í Kanada 18. febrúar. • Sundkappinn Eðvarð Þór Eðvarðsson setti nýtt íslands- met í 50 metra baksundi á alþjóðlegu sundmóti sem haldið var í Bonn í V-Þýskalandi um helgina. Eðvarð synti vega- lengdina á 26,55 sek. • Nú er bolludagurinn liðinn og var hann að þessu sinni umsvifameiri en undanfarin ár. Alls voru bakaðar u.þ.b 100.000 bollur sem þýðir að hver landsmaður hafi sporð- rennt u.þ.b. fjórum bollum. • ísbjarnarhúnn sem gekk á land í síðastliðinni viku var veginn á sunnudaginn af Sigurbirni Þorleifsyni, bónda í Langhúsum. Ekki þótti annað hægt en aflífa björninn þar sem álitið var að hann gæti verið hættulegur börnum og skepnum; Ákveðið hefur verið að stoppa bangsa upp. • Einar Ólafsson lenti í 65. sæti í 30 km skiðagöngu karla á vetrarólympíuleikunum í Calgary á mánudaginn var. Einar gekk vegalegndina á 1:39,56 klst. Hann var því 15,21 mín. á eftir sigurveganum, Prokurorov. • Samningaviðræðum Verkamannasambandsins og Vinnu- veitendasambandsins miðar hægt og sigandi i samkomu- lagsátt. Ekki er hægt að útiloka að ríkisvaldið komi inn í samningana. • Nú eru komin til landsins um 700 tonn af stáli sem reka á niður í tjörnina vegna fyrirhugaðrar ráðhúsbyggingar. • Á mánudaginn var voru heitar umræður á Alþingi um flugstöðvarmálið þegar utanríkisráðherra mælti fyrir skýrslu sinni um útgjöld og kostnað vegna flugstöðvarinn- ar. Júlíusi Sólnes þótti flugstöðin illa hönnuð og lítið hefði fengist fyrir alla þá fjármuni sem eytt var i hana. • Norska landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út innflutn- ingsleyfi fyrir íslensk laxaseiði. Norskar stöðvar hafa sýnt áhuga á seiðakaupum héðan og hefur verið talið að mögu- legt yrði að selja allt að 4—5 milljónir seiða að verðmæti um 300 milljónir króna til Noregs. • Tvær ungar konur hafa verið hnepptar í gæsluvarðhald grunaðar um innflutning á fíkniefnum. Önnur þeirra var handtekin í Leifsstöð á sunnudaginn með 200 g af hassi og 210 g af amfetamini. Grunur leikur á að konurnar hafi áður stundað innflutnlng fíkniefna. • Mikil aðsókn hefur verið að Listasafni íslands síðan það var opnað nú fyrir skömmu og segja forsvarsmenn safnsins að það sé meiri aðsókn heldur en þeir bjuggust við i upphafi. •Enn fjölgar bílum landsmanna og voru 1.414 bílar ný- skráðir í janúar í ár og er það 97 bílum fleira en á sama tíma í fyrra. • Porseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, hefur verið boðið í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna. Rikisstjórnin hefur ákveðið að þiggja boðið um heimsóknina en hefur ekki fallist á þá ósk Sovétmanna að forsetinn komi 28. febrú- ar næstkomandi og vill að rætt verði við Sovétmenn um aðra dagsetningu. • Sambandið missti af kaupum á Smárahvammslandi í Kópavogi þegar Kópavogsbær ákvað að nýta sér forkaups- rétt á landinu. Bærinn hefur selt landið til fjögurra aðila, Hagkaups, IKEA, Frjáls framtaks og BYKO. Auk þess hyggst bærinn halda fimm hekturum fyrir sjálfan sig. Sambandið hefur nú fengið endurgreidda þá upphæð sem það hafði greitt inn á kaupin. GRUNNSKÓLANEMAR! ERT ÞÚ TILBÚINN TIL AÐ TAKA SAMRÆMDU PRÓFIN? - EÐA ERT ÞÚ KANNSKI EKKI ALVEG NÓGU VEL UNDIR ÞAÐ BÚINN? VIÐ GETUM AÐSTOÐAÐ ÞIG í EFTIRTÖLDUM NÁMSGREINUM: - ENSKU - DÖNSKU - ÍSLENSKU - STÆRÐFRÆÐI KENNSLA HEFST 22. FEBRÚAR AÐ ÁNANAUSTUM 15, UNDIR LEIÐSTÖGN REYNDRA OG GÓÐ] KENNARA. KENNT ER TVÆR KENNSLUSTUNDIR í SENN TVISVAR í VIKU. INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMUM 10004 OG 21655 Á SKRIF- STOFUTÍMA. MÁLASKÓLINN mímir ANANAUSTUM 15, RVIK. SÍMI: 10004 & 21655. / Ibúar Laugarneshverfis! hefur opnað nýtt bakarí að Hrísateigi 47 Verið velkomin! HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.