Helgarpósturinn - 14.04.1988, Blaðsíða 2
Hvernig tilfinning
er að vera númer
hundrað?
Rannveig Guömundsdóttir
varaþingmaöur
„Þaö er kannski engin sérstök tilfinning að vera númer
hundraö, þótt hundrað sé auövitaö flott tala ef litiö er á það
frá þeim punkti! En þaö var ekkert sérlega gaman aö vera
númer hundrað fyrst þaö kallaði á athugasemd þingforseta
um varamenn, þó ég taki þær athugasemdir ekki sem
tengdar minni persónu, enda væri þaö óeðlilegt. Ef ég hins
vegar tengi númer hundrað við þaö, þá er þaö ekki
gaman!"
Hvernig finnst þér að koma inn á þing?
„Þaö er spennandi og mjög áhugavert aö koma inn í
þessa stofnun. Því er hins vegar ekki hægt aö neita að
maður er ansi bágborinn fyrstu dagana sína hér innan
veggja. Ef til vill er munur á hvort maður er að koma inn
stuttu eftir að þing hefst, eöa eins og núna þegar lokarisp-
an er aö hefjast. Maöur starir bara á þessa málastafla á
borðinu fyrir framan sig og finnst þaö hljóti aö vera hið erf-
iðasta mál hvaö sé til afgreiðslu hverju sinni. En þetta er
skemmtilegt, ég held að öllum beri saman um þaö."
Hvaða mál eru þér hugleikin?
„Það er nú kannski svolítiö erfitt aö svara því hvaöa mál
mér eru hugleikin hér inni á þingi. Þarna er feikilegur stafli
og það er kannski ekki margt af því sem er aö koma til af-
greiðslu akkúrat þessa dagana, sem mér er sérstaklega
hugleikið. En þaö eru mál sem munu koma fram á þinginu
í vor sem ég veit ekki hvort aö nást fram meðan ég sit hér
og þá nefni ég mál eins og kaupleigufrumvarpið, sem er
mér mjög hugleikið og ég er spennt aö vita hversu fljótt
þaö nær fram. Ef ég væri sest inn á þing til að vera í ein-
hvern verulegan tíma, þá býst ég viö aö ósjálfrátt myndu
mér vera ýmis sveitarstjórnarmál hugleikin, því þar hef ég
starfað í nærri tíu ár."
Heldurðu að það sé ekki erfitt að yfirgefa þing og vera
kannski með óleyst mál í farteskinu?
„Hafi maður flutt mál sem manni eru hugstæö og ýtt
þeim úr staö, og þau eiga að koma fyrir þing síðar, hlýtur
það aö vera óþægileg tilfinning ef þingmaöur er genginn
af þingi og aðrir eiga aö sjá um málið."
Hvenær kemur að jómfrúrræðunni?
„Ég hef enga ákvöröun tekið um það, enda kom ég hérna
inn á þeim tíma sem verið var aö loka fyrir mál í þinginu.
Þar sem ég var ekki með neitt sérstakt mál sem ég haföi
hugsað mér að flytja um leið og ég settist inn myndi ég
aldrei flytja mál málsins vegna eða jómfrúrræðu ræðunnar
vegna. Það verður því bara að reyna á hvort hér beri mál
á góma þar sem mig langar að leggja orð í belg og þá flyt
ég mína jómfrúrræðu. Verði það ekki mun ég bara hafa
hana þess betri næst þegar ég kem inn!"
Þú myndir ekki kvíða því að flytja ræðu þarna?
„Ég hef verið að velta því fyrir mér þaðan sem ég sit, en
þetta er allt svo óskaplega heimilislegt að sjá að ég held ég
myndi ekki kvíða því stórlega."
Tekurðu einhvern sérstakan þingmann þér til fyrir-
myndar?
„Ef ég væri að fara að vinna á þingi til lengri tíma held
ég að ég myndi taka mér Jóhönnu Sigurðardóttur til fyrir-
myndar. Hún er þingmaður sem ég hef litið til með mikilli
aðdáun í gegnum árin. Ég yrði ánægð með mín störf ef ég
kæmist með tærnar þar sem hún hefur hælana."
Rannveig Guðmundsdóttir er formaður bæjarráðs Kópavogs og
varaþingmaður Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi. Hún er
hundraðasti þingmaðurinn á þessu þingi, þ.e.a.s. 37. varaþingmað-
urinn sem kemur til starfa á 110. löggjafarþingi.
FYRST OG FREMST
NÝÚTKOMNA giæsiritið
Fluglídindi er að þessu sinni
helgað fimmtíu ára afmæli Flug-
leiða. Ritið er á ensku og er dreift
til 2 eða 3 þúsund áhrifamanna í
flugrekstri víða um heim. Auglýs-
ingarnar eru líka á heimsmæli-
kvarða; Saudia, McDonnel
Douglas, Sterling, Lufthansa, KLM
og þannig mætti lengi telja heil-
síðuauglýsingar sem borgað er
fyrir á amerísku verðlagi. Forsíðu-
textinn er svohljóðandi: Icelandair
flying high at fifty, sem útleggst á
íslenska tungu: Flugleiðir
fimmtugt félag í sjöunda himni, til
dæmis. í blaðinu er mikil og góð
úttekt á sögu og stöðu félagsins í
dag, myndir af brosandi starfsfólki
með flugmódel sem stefna upp,
fjármálastjóra með pílu sem rís
hærra en nokkurt tippi og mark-
aðsstjóra á Flugleiðafarseðli sem
líkist arabísku töfrateppi. Aldrei
hafa Sigurðir Helgasynir sést
brosa breiðar. Þessu er dreift út
um heiminn. Lókalfréttir af aðai-
fundi: Rekstrartap, uppsagnir,
niðurskurður og hugsanleg stór-
fækkun flugleiða á Atlantshafsrút-
unni. . .
ÁTRÚNAÐARGOÐ ung-
menna, Boy George, var hér um
helgina og hélt tónleika við góðar
undirtektir svo sem von var. í til-
efni heimsóknar bresku popp-
stjörnunnar var efnt til sérstakrar
samkeppni um það hver líktist
goðinu mest í landinu öllu. Og
gáfu sig margir fram. Flest ungl-
ingar á milli tektar og tvítugs og
létu menn sér ekki til hugar koma
að skyggnast eftir líkingum ofar í
aldursstiganum. Glöggur lesandi
HP og góðvinur blaðsins læddi út
úr sér við blaðamann, að í sínum
huga léki enginn vafi á því hver
væri líkastur Boy George á þessu
ísa kalda landi — eða hverjum
poppgoðið líktist mest — sá væri
að sjáifsögðu Jón Helgason land-
búnaðarráðherra. Poppstjarnan
gæti hæglega átt ætir sínar að
rekja til Seglbúða, svo líkur væri
Boy George Jóni. Skýrt skal fram
tekið, að ekkert bendir til skyld-
leika eða tengsla á milli heimilis-
fólksins á Seglbúðum og drengsins
George Alan O’Dowd alias Boy
George sem fæddur er 14. júní
1961. . .
SKOÐANIR blaðamanna Morg-
unbladsins og Þjóduiljans á söngv-
aranum Boy George eru greini-
lega mjög skiptar. Á baksíðu Þjód-
uiljans á þriðjudaginn segir að
söngvarinn hafi um síðustu helgi
haldið hér einhverja lélegustu tón-
leika sem haldnir hafa uerid fyrir
landann. Síðar í greininni segir að
uonsuiknir addáendur og adrir
gestir hafi gengið út með fýlusuip.
Blaðamaður Morgunblaðsins segir
hins vegar að framkuæmd tónleik-
anna hafi ueriö öll hin ágœtasta
og greinilegt að uiðstaddir hafi
haft af hina bestu skemmtan. Og
þá er það stóra spurningin: Var
gaman eða leiðinlegt á tónleik-
unum???!
ÞEIM sem skrifuðu undir lista
samtakanna „Tjörnin lifi“ þótti
kveðjurnar heldur kaldar frá
Magnúsi L. Sueinssyni, sem veitti
mótmælalistunum viðtöku í fjar-
veru borgarstjóra. Magnús glotti
og sagði það auðvitað út í hött að
ætlast til að borgarráð tæki mark
á því sem 15% borgarbúa óskuðu
eftir. Þykir Magnús farinn að taka
sér mjög til fyrirmyndar hroka-
fulla framkomu borgarstjórans,
Dauíðs Oddssonar.
BARNABLÖÐIN abc og
Æskan hafa hingað til fengið litla
umfjöllun í fjölmiðlun, enda höfða
þau til mjög afmarkaðs lesenda-
hóps. Fyrir nokkrum vikum rakst
HP á nýtt eintak af ABC
þar sem lesendabréf um drauma-
prinsa og draumaprinsessur vöktu
athygli okkar og sögðum við frá
nokkrum þeirra bréfa í þessum
dálkum. Núna í vikunni tókum við
svo eftir því að Stjarnan var farin
að fjalla um samskonar lesenda-
bréf sem birst hefðu í nýjasta hefti
Æskunnar. Samkeppnin er greini-
lega á fullu á þessum vettvangi
sem öðrum!
REYKVÍKINGAR sem flytja
út á land eiga oft fullt í fangi með
að fella sig við nýja staðinn. Kona
ein, sem búið hefur á Akureyri í
nokkur ár, hafði á orði nýlega að
nú væri orðið tímabært að flytja
aftur til Reykjavíkur. Sonur
hennar, fæddur á Akureyri og
mikill Akureyringur í sér, horfði
stórum augum á mömmu sína og
sagði: „Ætlarðu uirkilega að fara
að búa á stað þar sem bara fást
mjólkurfernur sem enginn getur
opnað!"
HELGARPÚSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR
Dómsorð
Sturlu var réttmætt aö reka, fyrir refsiverð afbrot og leka. En þaö gekk alltof glatt, þaö gerðist of hratt, því dæmum við Sverri hinn seka. „Skortur á stefnumörkun er þjóðhagslega óhagkuœmur." ÓTTAR PROPPÉ í GREIN í ÞJÓÐVILJANUM UM BVGGÐASTEFNU
Niðri
J
2 HELGARPÓSTURINN