Helgarpósturinn - 14.04.1988, Blaðsíða 11
^l^eir aðstoðarvarðstjórar
munu nú hafa sagt upp störfum í
lögreglunni á Keflavíkurflug-
velli vegna óánægju með yfirstjórn
mála. Mennirnir, sem störfuðu í
flugstöð Leifs Eiríkssonar, voru
sérþjálfaðir til átaka og höfðu æft
með víkingasveitinni í Reykjavíkur-
lögreglunni. Eftir þessar uppsagnir
eru engir slíkir menn til staðar í flug-
stöðinni. Heimildir HP herma að að-
alástæðan fyrir uppsögnunum sé
óánægja með hvernig almennt sé á
málum haldið auk óvissu um hvern-
ig bregðast eigi við er hættuástand
skapast. Telja ýmsir að öryggismál
í flugstöðinni séu langt frá því að
vera í góðu lagi. . .
I ú hefur Morgunblaðið
kveðið upp dóm yfir útvarpsstöð-
inni Rót. Hún hefur gert sig seka um
brot gegn einu boðorðanna, þ.e. að
leggja nafn Krists við hégóma. Sam-
kvæmt hinni vísu bók er það bann-
að. Þetta veit Morgunblaðið. Hringir
þess vegna i biskupinn og spyr hann
hvort hann sé ekki svekktur. Bisk-
upinn segist vera það. Þá heggur
Morgunblaðið — einhvers staðar í
upphæðum sitja þeir sem þar
stjórna og skrifa niður til breyskra
manna um það hvernig þeir eigi að
haga sér, einkum um það hvernig
þeir eigi ekki að vera, hverju þeir
eigi að trúa og hvað megi segja um
það sem Morgunblaðið trúir á. Vér,
hinir auðmjúku villuráfandi, þökk-
um hinum vísu mönnum á Morgun-
blaðinu leiðsögnina. . .
u
m þessar mundir standa
sem hæst æfingar á dans-leiknum
“...en andinn er veikur“, sem leik-
hópurinn Pars pro toto stendur
að. Þarna er á ferðinni blanda af
dansi, leik og tónlist undir stjórn
Guðjóns Pedersen. Þátttakendur í
sýningunni eru Katrín Hall, Lára
Stefánsdóttir, Birgitta Heide,
Sigrún Guðmundsdóttir — allar
úr Islenska dansflokknum — og svo
leikararnir Ellert Ingimundarson
og Arni Pétur Guðjónsson. Verk-
ið er að hluta til fengið að láni frá
ýmsum stöðum en danshöfundar
eru þær stöllur úr dansflokknum,
Katrín Hall og og Lára Stefánsdóttir.
Tónlistina semur Kjartan Ólafs-
son, höfundur afar spennandi leik-
myndar er Ragnhildur Stefáns-
dóttir og um lýsinguna sér Ágúst
Pétursson. Verkið verður sýnt í
Hlaðvarpanum og verður frumsýn-
ing þann 20. þessa mánaðar, síðasta
vetrardag...
Árétting
í greininni „100% öryrki eftir
smáaðgerð" í síðasta tölublaði voru
meðal annars höfð eftir Karvel
Pálmasyni ummæli sem ekki kom-
ust rétt til skila. Rétt er að skýrt
komi fram það álit Karvels, að svo
virðist sem hluladeigandi læknar,
en þó sérstaklega borgarlögmadur
og borgarstjórn, geri sér far um að
flækja og tefja vísvitandi mál sem
þessi — þar sem fórnarlömb lækna-
mistaka leita réttar síns og bóta.
Þá má geta þess, að nú er mjög
skammt í að undirréttardómur verði
kveðinn upp í máli „Svölu", sem
einnig var rifjað stuttlega upp í
greininni. Að líkindum verða þá lið-
in 5 ár og 3 mánuðir frá hinni
örlagaríku aðgerð — og sá tími
lengist síðan væntanlega til muna ef
dómnum verður áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Athugasemd vegna
vidtals
í síðasta tölublaði Helgarpóstsins
er viðtal við Selmu Dóru Þorsteins-
dóttur, formann Fóstrufélag lslands.
Þar segir Selma Dóra, aðspurð um
viðbrögð Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar, að þau hafi verið lítil,
en vitað sé, að meirihluti stjórnar
St.Rv. sé á móti stofnun nýrra stétt-
arfélaga.
Vegna þessa er þess eindregið
óskað, að eftirfarandi yfirlýsing
verði birt í blaði yðar.
„Stjórn Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar hefur enga samþykkt
gert varðandi stofnun nýrra stéttar-
félaga og engin afskipti haft af þeim
málum, önnur en þau að koma á
framfæri sem sönnustum upplýsing-
um um áhrif og afleiðingar þess fyr-
ir félagsmenn St.Rv. að ganga í nýtt
stéttarfélag."
Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar,
Haraldur Hannesson, formaður.
FISHER
BORGARTÚNI 16
REYKJAVIK. SÍMI 622555
SJÓHVARPSBÚÐIN
AUK/SlA K95-46
Ftyst (
ora
Jgrænmetí
FERSKT OG LJUFFENGT!
i aut sumar.
íbúðir í besta gæðaflokki
rúma allt að 6 manns.
Verð frá
á farþega (miðaðvið 2 fullorðna og 4 böm)
MALLORKA-CALA IVULLOR
HELGARPÓSTURINN 11