Helgarpósturinn - 14.04.1988, Síða 19

Helgarpósturinn - 14.04.1988, Síða 19
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MVND JIM SMART með permanent á rauðum persche Hann var ekki hár í loftinu þegar hann eignaðist fyrstu Ijósmyndavélina. Tók hana med sér í sveitina þar sem hann myndadi lífid í bak og fyrir. Síðan á leiksvæðunum þar sem sett voru upp heilu Ieikverkin. En þegar hann síð- ar komst í kynni við kvikmyndatökuvél vissi hann við hvað hann vildi starfa. Frá því hann rölti um öskuhaugana í fylgd stúlku og barnavagns við gerð heimildamyndar um umgengnina í borginni hefur Vilhjálmur Ragn- arsson staðið hinum megin við vélina. Hann á þátt í fjölmörgum sjónvarps- auglýsingum, hann var framleiðandi þáttanna „Bítla og blómabarna“ og hann vann í félagi við þýska sjónvarpsstöð að rúmlega þriggja tíma löngum þætti um Island, sem sýndur var í þýska sjónvarpinu. Hann segist telja sig heppinn að hafa alist upp hjá móður Sinni og móðursystur: ,,Ég átti þess vegna tvær mömmur," segir hann. ,,Eg ólst upp við mjög góðar aðstæður, var einkabarn og því lítil samkeppni i uppeldinu! Fyrstu árin bjuggum við á Snorrabraut 52 þar sem nú er Gistiheimilið, en fluttum síðan inn á Rauðarárstíg 3 þar sem við bjuggum þar til ég var unglingur. Þar var mikið af góðum leiksvæðum. Fyrst ber að telja gasstöðina gömlu sem stóð þar sem Lögreglu- stöðin er núna, en á gasstöðinni stóðu stórir gaspottar, grýlupottar eins og ég kallaði þá, því ég var sannfærður um að grýla eða aðrar ófreskjur byggju ofan í þeim!“ GÓSENLAND Á SKÚLAGÖTUNNI Hann segist þó ekki hafa séð eftir gasstöðinni þegar hún var rifin, því þá reis upp „skemmti- legasta leikpláss í heimi, lögreglustöðin", segir hann. „Sölunefndarportin stóðu hinum megin við Skúlagötuna, mikið gósenland. Þar voru meðal annars skriðdrekar og önnur merk áhöld sem vöktu mikla athygli okkar krakkanna. Þetta voru brynvarðir bílar og eldri strákar í hverfinu sögðu okkur að áður hefðu verið á þeim stórar fallbyssur, en það gátum við aldrei sannreynt. Þriðja leiksvæðið var svo gífurlega stór leikvöll- ur þar sem við lékum fótbolta. í þessu hverfi var mikið af krökkum og mikið líf." Á sumrin var Vilhjálmur í sveit í Rangárvalla- sýslu hjá móðurbróður sínum: „Þangað fór ég fyrst þegar ég var sex ára, tekinn úr götuum- hverfinu og sendur í sveit. Mamma vann auðvit- að alltaf úti þannig að það var spurning um að vera á götunni eða komast upp í sveit. Þar átti ég nokkur mjög góð sumur. Við vorum þrír sum- arstrákar á bænum, hinir tveir voru úr Hafnar- firði og hétu báðir Guðmundur. Þess vegna vor- um við allir kallaðir „Gvendarnir"!" Barnaskólagönguna hóf Vilhjálmur í Austur- bæjarskólanum, „þar sem ég var með ágætis fólki sem ég held ennþá sambandi við í dag. Við erum meðal annars í menningarklúbbi, og uppi- staða hans er fólk sem var saman í barna- og gagnfræðaskóla. Við förum saman á sýningar, tónleika og þess háttar og reynum að hittast nokkuð markvisst." HLUSTAÐ Á PLÖTUR í NÆSTA HÚSI Hann segist hafa byrjað að vinna fyrir sér 11 ára gamall sem sendill hjá Grænmetisverslun- inni „og það þótti vont mál að nemendur væru að vinna með skólanum — sérstaklega ef þeir voru í ellefu ára bekk!" segir hann og brosir. „Hins vegar held ég að ég hafi ekki haft vont að því, að minnsta kosti var ég alltaf í efri mörkun- um í einkunnum í barnaskólanum. Ég hafði mjög gaman af að læra og átti auðvelt með það. Eftir að ég komst á unglingsárin sinnti ég hinu hefðbundna unglingalíferni ásamt því að vinna fyrir mér. Bjó mér til peninga til að kaupa smá- hluti, til dæmis fyrstu hljómplötuna mína. Það var Animals-platan „House of the Rising Sun“ og þá plötu á ég ennþá. Að vísu átti ég ekki plötuspilara á þessum tíma svo ég fór yfir í næsta hús til vinar míns og fékk að hlusta á hana þar." FRÁ ÚTLÖNDUM KOM ALLT GOTTI Vilhjálmur segist snemma hafa haft áhuga á að festa á filmu það sem fyrir augu bar og fyrstu Ijósmyndavélina fékk hann að gjöf frá pabba sín- um: „Pabbi kom með hana frá útlöndum, þaðan sem allt gott kom! Frá útlöndum kom til dæmis Mackintosh og lakkrískonfekt og það var bara hægt að kaupa í einni sjoppu á Leifsgötunni. Þar fæst ennþá útlenskt sælgæti...! Ég tók mikið af myndum, bæði í sveitinni og á leiksvæðunum. Þessar myndir geymi ég í möppu sem ég hef gaman af að glugga í öðru hverju. Þar má meðal annars sjá myndir af strákum sem var stillt upp við grindverk og átti að fara að „skjóta" og myndir af draugaleikriti þar sem draugar léku á hljóðfæri. Einn þeirra sem léku í draugaleikrit- inu hafði alveg gífurlegan áhuga á hestum og einhvern tíma lögðum við leið okkar inn að Eli- iðaám til að skoða hesta. Þá kom allt í einu styggð að hestunum og þessi mikli hestaáhuga- maður varð svo skelkaður að hann flaug yfir gaddavírsgirðingu, sem var helmingi hærri en hann sjálfur! Síðar varð þessi strákur tamninga- maður og er núna atvinnuhestamaður." BYRJAÐI AÐ REYKJA 12 ÁRA Eitt af minnisstæðustu atvikum frá bernskuár- unum segir yilhjálmur vera þegar hann byrjaði að reykja: „Ég byrjaði að reykja tólf ára," segir hann. „Ég fór auðvitað laumulega með það, enda þótti ég ekki tilheyra þeim hópi nemenda sem byrjuðu að reykja svo ungir. Upphafið að reykingunum má rekja til þess að ég var á leið í handavinnutíma og fyrir framan húsið hjá mér lá brúnn bréfpoki. Ég sparkaði í hann og út úr honum datt heilt karton af Camel-sígarettum. Daginn eftir byrjaði ég að reykja... Auðvitað fór það mjög dult, sérstaklega hjá fjölskyldunni, en ég reykti stanslaust í tíu ár, hætti 22 ára gamall." Vilhjálmur segist eiga góðar minningar úr gagnfræðaskóla: „Við höfðum góða og skemmtilega kennara, til dæmis Arnfinn Jóns- son, sem nú er skólastjóri í Hólabrekkuskóla, og Jón Marteinsson, sem þótti ofsalega strangur og hættulegur kennari og var byrjað að vara mann við honum strax i ellefu ára bekk! Hann var hins vegar skemmtilegasti maður og góður kennari." í SÍÐUM FRÖKKUM MEÐ ÞVERSLAUFUR Á þessum tíma var Vilhjálmur í ritstjórn skóla- blaðsins ásamt æskuvini sínum, Elíasi Níelssyni: „Við skrifuðum nokkur skólablöð, ortum atóm- kvæði og vorum mjög pólitískir. Við skrifuðum greinar þar sem við mótmæltum skólakerfinu og öðru sem okkur mislíkaði. Við gengum í póli- tísk samtök og vorum mjög „aktívir", sem ekki var algengt með þrettán ára stráka. Þess á milli sóttum við fyrirlestra í háskólanum hjá Þórhalli Vilmundarsyni prófessor um náttúrunafnakenn- inguna. Svo lásum við Þórberg; „Bréf til Láru" og „Ofvitinn" voru við rúmið mitt og ég glugg- aði í þær á hverju kvöldi á þessum árum. „Góði dátinn Svejk" var aldrei langt undan, og hef ég tekið mér lífsspeki hans mikið til fyrirmyndar enda hefur það verið eftirlætisbókin mín allt frá unglingsárunum. Við Elías vinur minn gengum í síðum frökkum og vorum með þverslaufur, sem var svolítið óeðlilegt á þessum tíma — nokkurs konar fyrirboði hippatískunnar! Elías fékk sér ennfremur kringlótt sólgleraugu og hatt en slíkt sást varla á þessum tíma. Þegar jafnaldrar okkar hlustuðu á Bítlana hlustuðum við Elías á blues, fórum yfir í Cream og John Mayall, sem var merkilegur tónlistarmaður og fóstraði ýmsa snillinga sjöunda áratugarins eins og Eric Clapt- on, Jack Bruce og Peter Green. Snemma á ungl- ingsárunum eignaðist ég Garrard-plötuspilara og á kvöldin hlustuðum við á tónlist, ræddum um Þórberg og lífið. Síðan fórum við að sýsla við aðrar skemmtanir og prófuðum snemma að bragða áfengi. Ég man að Elías hafði verið í sveit á Snæfellsnesi og kom eitt haustið með viskí- flösku með sér í bæinn. Þetta var 1968 og við urðum alveg ævintýralega fullir. Daginn eftir heyrðum við í útvarpinu að Rússar hefðu ráðist inn í Tékkóslóvakíu og lengi á eftir vorum við með það á hreinu að innrásin hefði verið í bein- um tengslum við þetta fyllerí okkar!" „RÓTTÆKIR VINSTRIMENN" I landsprófi segir Vilhjálmur þá vinina hafa verið orðna „róttæka vinstrimenn": „Við vorum virkir á málfundum og vorum í hópi þeirra fáu sem voru á móti Kanasjónvarpinu. Eftir það var ég stimplaður kommúnisti og enn þann dag í dag er sagt við mig „þínir menn í Rússlandi!" — jafnvel þótt ég hafi kosið Kvennalistann í síðustu kosningum! En þetta situr ennþá í sumum þrátt fyrir að ég sé atvinnurekandi í dag og hafi sem slíkur verið kallaður kapítalisti og arðræningi! I landsprófi vorum við óánægð með lands- prófið og héldum mikla ráðstefnu í Tónabæ, fór- um í mótmælagöngu og gerðum ýmsa hluti, sem örugglega voru áhrif frá stúdentaóróanum erlendis. Maður mátti ekkert vera að því að sinna náminu, það var alltaf eitthvað annað sem vakti áhugann, Ieiklistarféiagið, skóiablaðið og alls kyns skemmtanir. Félagslífið var í fyrirrúmi, en þegar upp er staðið var þetta kannski bara miklu betra en að hafa setið heima og lesið og fengið þar með annan félagslegan bakgrunn. Ég var með það nokkuð á hreinu að fara í mennta- skóla eftir landsprófið og þá í Menntaskólann í Hamrahlíð. Flestir náðu landsprófinu en ég og vinur minn, Gústaf Adolf Níelsson, féllum og fór- um aftur í landspróf veturinn á eftir. Þar mætt- um við alls ekki alltaf því við eyddum megninu af þeim vetri í billiard." HEIMILDAMYNDIN SEM ENN ER I KLIPPINGU Landsprófinu náði Vilhjálmur í annarri tilraun og fór í Menntaskólann við Hamrahlíð: „Þar var mikil gróska í öllu. Þar var nemendadómstóll sem átti að fjalla um agabrot nemenda, þar var pólitísk vakning, verið að sýsla við fíkniefni og þess háttar. Félagslífið var mikið og þar voru menn eins og Jakob Magnússon, Valgeir Guð- jónsson og Broddi Broddason framarlega í flokki — og reyndar alveg endalaust af góðu fólki. Þarna fór ég að fá áhuga fyrir kvikmynda- gerð. Eg geri mér ekki alveg grein fyrir hvað það var sem kveikti áhugann, en fjöiskýlda vinar míns, Sigfúsar Cassata, rak Ijósmyndaverslunina Fókus og það held ég að hafi kveikt áhugann. í Hamrahlíðinni tók ég þátt í að gera mynd um dreng, leikinn af Sigurði Bjólu, sem villtist í rangölum skólans. Þessi mynd var tekin á Bolex- vél sem Ásgeir Long átti. Síðar keypti Páll Kr. Pálsson, skólafélagi okkar, 16 mm Bolex-vél í Þýskalandi og þá héldum við áfram að sýsla við kvikmyndagerð. Tókum alls kyns „experiment- al“ myndir og fengum m.a. styrk frá mennta- málaráðuneytinu, sem sjálfsagt hefur verið einn af fyrstu styrkjunum sem veittir voru til kvik- myndagerðar. Þá byrjuðum við á ádeilumynd sem átti að sýna umgengnina á höfuðborgar- svæðinu og lélegt skipulag þar. Við tókum myndina meðal annars á öskuhaugunum þar sem ég og Sigríður Hrafnhildur Jónsdóttir geng- um um með barnavagn, hún var með stóran bleikan hatt og var atriðið mjög dramatískt. Vinnslan var mjög óskipulögð hjá okkur þannig að ekkert varð úr myndinni og hún er enn í klippingu! Hins vegar byrjuðum við á að gera kredit-listann, sem okkur þótti mikilvægt að

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.