Helgarpósturinn - 14.04.1988, Qupperneq 39
FRETTAPOSTUR
Sturlumál
Borgardómur hefur dæmt Sturlu Kristjánssyni, fyrrum
fræðslustjóra í Norðurlandsumdæmi eystra, 900.000 kr. í
skaðabætur vegna ólögmætrar brottvikningar hans úr emb-
ætti, en eins og menn muna rak Sverrir Hermannsson, þá-
verandi menntamálaráðherra, Sturlu. Sturla fór fram á 6
milljóna króna bætur fyrir borgardómi. í dómsniðurstöðu
segir að Sturla hafi brotið trúnað og að fjárstjórn hans hafi
verið ámælisverð. Hins vegar séu sakir ekki það miklar að
þær réttlæti fyrirvaralausa brottvikningu úr starfi og því sé
rétt að dæma Sturlu bætur.
Útvegsbanki íslands hf.
Fyrsti aðalfundur Útvegsbanka íslands hf. var haldinn á
þriðjudaginn. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra lagði þar
til að greiddur yrði 5% arður á síðasta starfsári, sem svarar
til 3,5% arðs á ársgrundvelli þar eð bankinn tók ekki til
starfa fyrr en um vorið. Bankaráð hafði áður lagt til að ekki
yrði greiddur út arður. Hallgrimur Snorrason hagstofu-
stjóri var kjörinn i bankaráðið í stað Baldurs Guðlaugsson-
ar lögmanns. Aðrir bankaráðsmenn voru endurkjörnir, en
þeir eru: Björgvin Jónsson framkvæmdastjóri, Gísli Ólafs-
son forstjóri, Jón Dýrfjörð vélvirki og Kristján Ragnarsson
framkvæmdastjóri.
Fréttapunktar
• Dómsmálaráðuneytið mun mælast til þess við ríkis-
saksóknara að höfðað verði opinbert mál gegn einum þeirra
lögreglumanna sem komu við sögu er ungur maður hand-
leggsbrotnaði í vörslu lögreglunnar í Reykjavík. Ekki er enn
ljóst hvort fleiri verða ákærðir í þessu máli.
• Ungur maður var skorinn á háls af kunningja sínum í síð-
ustu viku. Hann var um tima í lífshættu en er nú talinn úr
henni eftir aðgerð í Borgarspítalanum. Talið er víst að báðir
mennirnir hafi verið undir áhrifum fíkniefna er þessi at-
burður varð. Árásarmaðurinn, sem er tvítugur Keflviking-
ur, hefur verið úrskurðaður í 60 daga gæsluvarðhald og gert
að sæta geðrannsókn.
• Á fundi fulltrúaráðs Kennarasambands íslan&s var tekin
ákvörðun um að hlíta úrskurði félagsdóms þess efnis að
verkfallsboðun félagsins hefði verið ólögmæt. I framhaldi af
því var tekin ákvörðun um að fresta frekari aðgerðum fram
til næsta hausts en þá verður gripið til aðgerða ef samningar
hafa ekki tekist.
• Framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins hefur ákveðið
að kalla miðstjórn flokksins saman til fundar. Hún hefur
ekki komið saman síðan ríkisstjórnin var mynduð. Stein-
grímur Hermannsson, formaður flokksins, vildi ekki
meina að þetta þýddi að Framsóknarflokkurinn væri á leið
út úr stjórninni en menn væru áhyggjufullir vegna ástands
atvinnuvega og órólegir vegna þróunar þyggðamálefna.
• Borgarstjórn Reykjavíkur staðfesti á fundi í síðustu viku
þá ákvörðun byggingarnefndar Reykjavikur að heimila
grunnframkvæmdir við byggingu ráðhúss við Tjörnina.
íbúar við Tjarnargötuna hafa kært þessa leyfisveitingu og
ennfremur stækkun á byggingarreit ráðhússins til Jó-
hönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Ráðherra hefur
leitað umsagnar skipulagsstjórnar ríkisins og byggingar-
nefndar Reykjavíkur um kæruna, sem varðar veitingu
graftarleyfis. Á meðan framkvæmdir standa yfir mun
Tjörnin skerðast um rúmlega 6.000 fermetra. Borgarráði
hafa nú verið afhentir undirskriftalistar með nöfnum
10.000 manna þar sem byggingu ráðhúss við Tjörnina er
mótmælt.
• Sigmundur Guðbjarnason var endurkjörinn rektor Há-
skóla íslands. Hann hlaut 82% atkvæða. Þátttaka í rektors-
kjöri var dræm.
• Útvarpsráð hefur samþykkt vantraust á Ingva Hrafn
Jónsson, fréttastjóra sjónvarpsins. Er það vegna ummæla
hans um ríkisútvarpið i nýlegu tímaritsviðtali svo og vegna
ýmissa atriða er varða störf hans og ákvarðanir. Ingvi Hrafn
Jónsson segir að hann hafi aldrei notið trausts ráðsins.
Framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins mun koma saman eft-
ir næstu helgi til að ræða mál Ingva Hrafns. Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri telur málið orðið mjög alvarlegt, en
hann einn hefur vald til þess að reka fréttastjórann.
• Samningar hafa tekist milli Verslunarmannafélags
Reykjavíkur og atvinnurekenda. Grunnlaun verslunar-
manna verða óbreytt frá því sem samið var um í heildar-
samningunum í mars. Samið var um 10% launauppbót á
grunnlaun í desember og að verslanir skyldu vera lokaðar
á laugardögum í sumar.
• Félagsdómur úrskuröaði á mánudag að verkfall Hins ís-
lenska kennarafélags væri ólögmætt. Því verður ekkert af
boðuðu verkfalli hjá HÍK sem hefjast átti á miðvikudag.
Forsendur dómsins voru þær að innan við helmingur þeirra
er þátt tóku í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun sam-
þykkti hana, þar eð 60 seðlar voru auðir, en þeir skyldu
skoðast sem greidd atkvæði. Það voru því hinir auðu seðlar
sem réðu úrslitum í atkvæðagreiðslunni.
• Þriðja umræða um bjórinn hófst í neðri deild Alþingis í
gær. Ólafur Þ. Þórðarsson las upp nöfn 138 lækna og reyndi
síðan að slá þagnarmet Hreggviðs Jónssonar sem er tæplega
hálftími. Ólafi tókst þó ekki að þegja nema 6 mínútur. Um-
ræðunni var að lokum frestað vegna boðaðra breytingartil-
lagna.
• Grunur leikur á að falsaðir hafi verið allmargir miðar á
tónleika breska popparans Boy George, en tónleikarnir voru
haldnir i Laugardalshöll á laugardagskvöldið. Málið hefur
verið kært til Rannsóknarlögreglu ríkisins.
• Skúli Alexandersson, alþingismaður og fiskverkandi á
Hellissandi, hefur stefnt sjávarútvegs- og fjármálaráðherra
fyrir upptöku meints ólöglegs afla fyrir um 1,5 milljónir
króna. Stefnandi bendir á þrígreiningu ríkisvaldsins máli
sínu til stuönings, þ.e. að málið hafi átt heima hjá dómstól-
um i upphafi en ekki sjávarútvegsráðuneytinu. Ennfremur
að úrskurðurinn hafi verið órökstuddur og að Skúla hafi
ekki verið gefinn kostur á að skýra mál sitt.
HAFNFIRÐINGAR ATHUGIÐ
IVIÓTTÖKUSTAÐIR ERU
Tréborg, Reykjavíkurvegi 68
Steinar, Strandgötu 37
Söluturninn Miövangi
ATH.! Ekki lengur í
Bókabúöum Böðvars
HELGARPÓSTURINN 39