Helgarpósturinn - 14.04.1988, Síða 40
II
m þessar mundir er að
koma út allmerkileg ljóðabók í
Bandaríkjunum. Það er forlag þeirr-
ar merku konu Yoko Ono sem gef-
ur þessa Ijóðabók út en forlagið
heitir eftir alkunnu bítlalagi Straw-
berry Fields. Þessi bók verður gef-
in út til minningar um John Lenn-
on og í henni verða Ijóð ýmissa
skálda sem ort hafa til tónlistar-
mannsins. Meðal þeirra sem Ijóð
eiga í bókinni er Matthías
Johannessen, sem á þar ein þrjú
ljóð. . .
N
H ú hefur verið auglýst til
umsóknar staða lektors í almennri
bókmenntafræði við Háskóla ís-
lands. Stöðunni gegndi áður Álfrún
Gunnlaugsdóttir en hún hefur
eins og kunnugt er verið skipuð
prófessor við deildina. HP er kunn-
ugt um fjóra umsækjendur um stöð-
una: Ástráður Eysteinsson, en
FISHER
SSSS^SSm Reykjavík. sími 622555
SJÖNVARPSBÚOIN .
hann var sá sem dómnefnd um áð-
urnefnda prófessorsstöðu í al-
mennri bókmenntafræði taldi hæf-
astan á sínum tíma en fékk samt
ekki stöðuna; Kristján Árnason,
lengi kennari við bókmenntadeild-
ina; Halldór Guðmundsson,
mag.art. og útgáfustjóri Máls og
menningar; og Baldur Gunnars-
son...
likki alls fyrir löngu sögðum
við frá ferð fulltrúa Alþingis til
Austurlanda fjær á fund Alþjóða-
samtaka þingmanna. Nú eru þing-
menn aftur komnir af stað og að
þessu sinni til Gvatemala í Mið-
Ameríku, en þar mun vera lýð-
ræði, að nafninu til að minnsta
kosti. Þeir þrír sem héldu í vestur-
veg eru Geir Haarde, frá Sjáif-
stæðisflokki, Júlíus Sólnes, frá
Borgaraflokki, og Sighvatur
Björgvinsson, frá Alþýðuflokki.
En ekki nóg með það. Skrifstofa
Alþingis sendi sérstaklega tvo full-
trúa til þessa fundar. Eru það þeir
Ólafur Ólafsson og Helgi Bern-
ódusson, starfsmenn Alþingis, sem
fylgdu þingmönnum að þessu sinni.
Ekki verður annað sagt en Alþingi
sé að verða ansi fyrirferðarmikil
stofnun. . .
A
aðalfundi Utvegsbank-
ans hf., sem haldinn var á dögun-
um, kom mönnum það ónotalega á
óvart, að viðskiptaráðherra Jón
Sigurðsson skyldi láta stinga upp á
Jóni Þorsteinssyni sem fundar-
stjóra á þessum fyrsta aðalfundi
bankans. Jón Þorstejnsson samdi,
eins og menn muna, Útvegsbanka-
skýrsluna fyrir Alþingi ásamt
tveimur öðrum, en í henni setti
hann fram hugmyndir um ábyrgð
bankastjóra og bankaráðs, sem
síðar varð grundvöllurinn sem Hall-
varður Einvarðsson ríkissak-
sóknari notaði sér þegar hann
ákærði alla stjórnendur Útvegs-
banka íslands aðra en bankaráðs-
menn. Þeirri ákæru var síðar vísað
til föðurhúsanna. Nú velta menn því
fyrir sér hvort viðskiptaráðherra
var með þessu að senda „gömlu"
bankastjórunum tóninn, eða hvort
þessi tilnefning var gerð í ógáti.. .
U
ndangengna vetur hefur
Leikfélag Reykjavíkur sýnt stærri
verk sín og viðameiri i svo-
kallaðri Leikskemmu v/Meist-
aravelli. Lengi hefur staðið til að rífa
skemmuna (vantar örugglega bíla-
stæði eins og alltaf) en því jafnan
verið frestað. Nú mun hins vegar út-
séð um að skemman verður rifin
þegar leikárinu lýkur, þ.e. strax í
byrjun júlí. Leikfélaginu tókst reynd-
ar að ná fram einhverri frestun því
áður átti að rífa húsið fyrr á árinu.
Þeir leikfélagsmenn leita því log-
andi ljósi að viðlíka húsnæði til að
geta haldið áfram að sýna söngleik-
inn Síldin kemur, sem rokgengur
hjá þeim um þessar mundir. Ekkert
hús hefur þó fundist enn sem komið
er, en m.a. hefur verið leitað á
Ártúnshöfðanum svo dæmi sé
nefnt. Það eru hins vegar mestar lík-
ur á því sem stendur að LR leiki ein-
ungis í Iðnó á næsta leikári og hvort
sem mönnum líkar betur eða verr
verði Síldin að fara í stað þess að
koma. . .
Afl DRAUMABÍLNUM ER BINGÓSPJALDID ÞITT
SIÓNVARPSBINGÓ Á STÖD 2
ALLTAF Á
MÁNUDÖGUM
KL. 20.30
í ÓTRUFLAÐRI
DAGSKRÁ
ÁSTÖÐ2
'JÖNVARPS
Aðalvinningur á hverju mánudagskvöldi er VOLVO
740 GL frá VELTI að verðmæti kr. 1.100.000,-
Sannkallaður draumabíll
Aukavinningar eru 10 talsins: hljómflutningstæki frá
HLJÓMBÆ, PIONEER XZL, hvert að yerðmæti
kr. 50.000.-
Heildarverðmæti vinninga f hverri viku er því
1.600.000 KRÓNUR
Spilaðar eru 2 umferðir í hverjum Bingóþætti:
FYRRI UMFERD: Spiluð er ein lárétt lína um 10
aukavinninga
SEINNI UMFERÐ: Spilaðar eru 3 láréttar línur (eitt
spjald) um bílinn.
Þú þarft ekki lykil að STÖÐ 2 því dagskráin er send
út ótrufluð. Allt sem þú þarft er BINGÓSPJALD,
og það færð þú keypt á aðeins 250 krónur
í sölutumum víðsvegar um land.
UPPLAG BINGÓSPJALDA
ER TAKMARKAÐ,
AÐEINS 20.000 SPJÖLD
VINNINGAR ERU SKATTFRJÁLSIR
OG BER AÐ VITJA ÞEIRRA
INNAN MÁNAÐAR
S.T.YRKTARFÉ LAG
UPPLÝSINGASlMAR ERU 673560 OG 673561
40 HELGABPÓSTURINN