Helgarpósturinn - 26.05.1988, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 26.05.1988, Blaðsíða 8
Birgir Árnason, hagfræðingur í „vísitölunefnd ‘ BANN Á VERÐTRYGGINGU HÆ Lítið hefur borið á svokallaðri „vísitölunefnd“ sem skipuð var af Jóni Sigurðssyni í apríl sl. í kjölfar efnahags- aðgerða ríkisstjórnarinnar hafa nefndinni hins vegar verið falin ný og viðamikil verkefni. Hún á að móta tillög- ur um framhald verðtryggingar og leggja línur um vaxta- mál. í henni sitja þeir Björn Björnsson, bankastjóri Al- þýðubanka sem er formaður, Birgir Árnason, sérfræð- ingur í viðskiptaráðuneytinu, Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur Seðlabanka, Ólafur ísleifsson, efnahags- ráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Gestur Jónsson hrl., Magnús Jónsson veðurfræðingur og Stefán Melsteð, lögfræðing- ur iðnlánasjóðs. Nefndin á að skila tillögum fyrir 1. júlí. Svo gæti farið að líf ríkisstjórnarinnar ylti á niðurstöðum þessarar nefndar. I henni á sæti Birgir Árnason, hagfræð- ingur í viðskiptaráðuneytinu. EFTIR PÁL HANNESSON MYND MAGNÚS REYNIR Hins vegar var nefndinni jafnframt falið að koma með ábendingar um frekari áfanga í afnámi verðtrygg- ingar, en með þeim fyrirvara, að í þeim tillögum verði höfð hliðsjón af verðlagsþróun. Þetta ákvæði má skilja þannig að það sé ekki stefnan að afnema verðtryggingu með öllu fyrr en tekist hefur að koma bönd- um á verðbólguna. Hins vegar var verkefnum bætt á nefndina, m.a. var henni gert að skila tillögum um hvernig koma eigi í veg fyrir misgengi launa og láns- kjara. Eins var bætt á nefndina því verkefni að undirbúa nauðsynlega lagasetningu um fyrirkomulag verðtryggingar, þar á meðal hvort uextir á verðtryggðum lánum verði fastir en ekki breytilegir og að þeir lækki til samræmis við það sem ger- ist í helstu viðskiptalöndum." Þad er Ijóst ad stjórnarflokkarnir hafa lagt mismunandi áherslur uardandi uerdtryggingu og uísitölu- bindingar, Framsókn hallast ad midstýringu, en Sjálfstœðisflokkur aö auknu ,,frelsi". Þessi nefnd er m.a. skipud pólitískum fulltrúum flokkanna. Áttu von á ad nefndin komist ad samkomulagi? „Ég held að þó að í nefndinni séu menn með pólitískar skoðanir líti flestir á sig sem einstaklinga í nefnd- inni og að þeim beri fyrst og fremst að vinna samkvæmt eigin sannfær- ingu, en ekki til þess að framfylgja stefnu einstakra flokka. Ég get ekki svarað fyrir aðra nefndarmenn, en fyrir mitt leyti er ég ekki alls kostar sáttur við yfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar, sérstaklega hvað varðar bannið við verðtrygg- ingu fjárskuldbindinga til skemmri tíma en tveggja ára. Ég held að menn verði að gera sér grein fyrir því að á íslenskum fjármagnsmark- aði eru tvö ár ekki skammur tími. Þetta bann nær til langstærsta hlut- ans af inn- og útlánum bankakerfis- ins. Það hefði kannski verið æski- legt að stíga eitt og styttra skref í þessa átt núna, jafnvel þó vafasamt sé út af verðlagsþróuninni eins og hún er núna." En nœr þetta bann til innlána bankanna? ,,Ég held að viðskiptabankarnir og Seðlabankinn hafi ekki komist að niðurstöðu um það hvernig beri að túlka þetta ákvæði bráðabirgða- laganna. Þannig nær bannið ekki til innlána sem stofnað var til fyrir 1. júlí og þeirra innstæðna sem á þeim voru þá. Hins vegar nær bannið örugglega til reikninga sem stofnað- ir verða eftir 1. júlí og lagt er inn á eítir þann tíma. Hins vegar er óljóst hvað verður með innstæður sem Huert er upphaflegt hlutuerk vísi- tölunefndarinnar og hvernig breytt- ist hlutuerk hennar í kjölfar að- gerða ríkisstjórnarinnar í efnahags- málum? „Nefndin var skipuð til þess að fjalla um fyrirkomulag á verðtrygg- ingu fjárskuldbindinga í ljósi reynslu síðustu ára og aukins frjálsræðis í vaxtamálum. Henni var falið að kanna lagagrundvöll verðtyggingar á fjárskuldbindingu og koma með ábendingar. Verðtryggingu í núver- andi mynd var komið á 1979 með Ólafslögum. Meðal sérstakra atriða sem kanna átti voru þróun einstakra vísitalna og samsetning lánskjara- vísitölunnar, áhrif verðtryggingar á sparnað, verðtrygging til skamms tíma, þáttur óbeinna skatta í láns- kjaravísitölunni og réttarstaða gildandi lánssamninga, verði gerð- ar breytingar á lánskjaravísitölunni, og fleira í þessum dúr. Nefndin hafði síðan frjálsar hendur með það hvaða tillögur hún gerði til breyt- inga á núverandi fyrirkomulagi. Það sem gerist síðan með sam- þykkt ríkisstjórnarinnar frá 20. maí er að ákvarðanir eru teknar um frambúðarfyrirkomulag verðtrygg- ingar. Nú er t.d. búið að setja bráða- birgðalög, sem banna verðtrygg- ingu á fjárskuldbindingar til skemmri tíma en tveggja ára. „Er ekki sáttur við bannið við verð- tryggingu fjárskuldbindinga til skemmri tíma en tveggja ára." 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.