Helgarpósturinn - 26.05.1988, Blaðsíða 22
IIM HELGINA
BÍÓ
O úff ★ sæmileg ★★ góð ★★★ ágæt ★★★★!
Regnboginn Síðasti keisarinn (The Last Emperor) ★★★★ Hættuleg kynni (Fatal Attraction) ★★★ Brennandi hjörtu (Flamberede hjerter) ★★ Hentu mömmu af lestinni (Throw Momma from the Train) ★★ Gættu þín kona (Lady Beware) ★ Hetjur himingeimsins (Masters of the Universe) ★
Bíóhöllin Spaceball ★★★ Þrír menn og barn (Three Men and a Baby) ★★ Hættuleg fegurð (Fatal Beauty) ★
Bíóborgin Veldi sólarinnar (Empire of the Sun) ★★ Sjónvarpsfréttir (Broadcast News) ★★ Fullt tungl (Moonstruck) ★★
Stjörnubíó lllur grunur (Suspect) ★★ Dauðadansinn (Tough Guys Don't Dance) ★★
Laugarásbíó Hróp á frelsi (Cry Freedom) ★★★★ Rosary-morðin (The Rosary Murders) ★★ Kenny ★★ Hárlakk (Hairspray) ★
Háskólabió Metsölubók (Best Seller) ★★
MYNDBANDALISTI VIKUNNAR
1 ( D Dirty Dancing (J.B. heildsala)
2 ( 4) No Mercy (Steinar)
3- -4 ( 3) Beverly Hills Cop *3 (Háskólabíó)
3- -4 ( 2) Roxanne (Skífan)
5 ( 6) Raising Arizona (Steinar)
6 ( 5) Ishtar (Skífan)
7 (-) Rent a Cop (J.B. heildsala)
8 (-) Case Closed (Steinar)
9 (-) Critical Condition (Háskólabíó)
10 (-) Made in Heaven (J.B. heildsala)
11 (-) Big Easy (Skífan)
12 (-) Assassination (Myndbox)
13 (17-18) Creeps of the Night (Steinar)
14 -15 (-) Midnight Madness (Bergvík)
14 - 15 (-) WooWoo Kid (J.B. heildsala)
16 (7) La Bamba (Skífan)
17 (-) Eureka (Steinar)
18 (17-18) NAM — Tour of Duty (V8íS dreifing)
19 ( 9) Jumping Jack Flash (Steinar)
20 (10) Hamburger Hill (J.B. heildsala)
Ath. aö merkingin (-) merkir aö viökomandi myndband sé nýtt inni á lista. Tolur
í svigum sýna stööu titilsins í vikunni á undan.
Listi þessi er geröur af samtökum íslenskra myndbandaleiga og er miö tekiö af
útleigu hjá um tuttugu aöilum á öllu landinu.
There is no business like show
business er ein af vinsælustu setn-
ingum sem menn slá um sig meö
þegar þeir komast i „bransann".
Þessi margfræga setning er einnig
heitið á kvikmynd sem Stöð 2 sýnir
i dag klukkan 16.25—18.20 og heitir
i þýöingunni Lif og fjör i bransanum.
Þar segir frá Molly og Terry,
skemmtikröftum sem hafa fengið
börnin sín þrjú til liðs við sig, vel-
gengni þeirra og breytingunni sem
verður þegar halla fer undan fæti í
skemmtanaiðnaðinum. Þessi mynd
er komin vel til ára sinna, gerð árið
1954, en hafi menn ekki gaman af
dansog söngvamyndum geta þeir
eigi að síður sungið með hástöfum
þegar titillagið hefst: „There is no
business like show business..."
Á laugardagskvöldið sýnir Stöð 2
mynd um Idi Amin og er hún byggð
á sannsögulegum staðreyndum og
samtímaatburdum frá upphafi
valdaferils Amins til endanlegrar
hnignunar hans. Þessi mynd þykir aö
sjálfsögðu óhugnanleg og segir í
kynningu aö hún sé ekki við hæfi
barna, enda hefst hún hvort sem er
ekki fyrr en kl. 23.20 og þá er kominn
háttatími.
Nóbelsverðlaunahafar 1987 er
nafn á þætti sem sýndur verður á
sunnudaginn á Stöö 2 og hefst
klukkan 16.55. Þarer litið inná heimili
Nóbelsverðlaunahafanna, forvitnast
um áhugamál þeirra og fleira húm-
anískt ber án ef á góma. Þá vekjum
við athygli á myndinni Á milli vina
sem verður sýnd á mánudaginn
klukkan 16.45 og væri æskilegt að
fólk þættist vera að fara til tannlækn-
is klukkan fjögur svo það nái heim.
Þessi mynd segir frá ólíkum við-
brögðum tveggja vinkvenna við
skilnaöi og meö hlutverk þeirra fara
Eli2abeth Taylor og Carol Burnett.
Ríkissjónvarpið verður með Kast-
Ijós á dagskrá sinni í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, klukkan 20.35. Þar veröur
fjallað um innlend málefni og beinist
kastljósið nú að þvi, að í dag eru
tuttugu ár liðin frá því haegri umferð
var tekin upp á íslandi. Á eftir Kast-
Ijósi verður Matlock á sínum stað og
dagskránni lýkur á þætti um rann-
sóknina á Palme-morðinu, sem
fengið hefur gífurlega gagnrýni eins
og menn vita.
Á föstudagskvöldið sýnir rikis-
sjónvarpið kvikmynd byggða á sögu
eftir Hemingway. Morðingjarnir
heitir hún og segir frá afbrotamanni
í eyðilegum smábæ sem tveir leigu-
morðingjar hafa verið fengnir til að
koma fyrir kattarnef. í þessari mynd
eru leikarar ekki af lakara taginu en
meðal þeirra eru Burt Lancaster og
Ava Gardner, enda er myndin orðin
42 ára gömul...
Skólaslit og lokatónleikar Söng-
skólans i Reykjavík veröa haldnir t
íslensku óperunni á sunnudaginn,
skólaslitin kl. 15entónleikarnirkl. 16.
Við Söngskólann í Reykjavík stund-
uðu 150 nemendur nám í vetur, og
luku sex þeirra lokaprófi úr almennri
deild, VIII. stigi, og einn söngkennari
var útskrifaður, Inga J. Backman. Að
lokatónleikunum afstöðnum verður
boðið upp á kaffiveitingar í Söng-
skólanum, en á mánudaginn verða
haldnir VIII. stigs- og söngkennara-
prófstónleikar i Norræna húsinu þar
sem Björk Jónsdóttir og Inga J.
Backman syngja. Þeir tónleikar hefj-
ast klukkan 20.30 og er verð að-
göngumiða kr. 300.
Ef þú átt 24.900 krónur, ert aðdá-
andi Michaels Jackson og langar til út-
landa er hér tækifærið: Utvarpsstöö-
in Stjarnan og ferðaskrifstofan Úr-
val hafa skipulagt ferð á tónleika
Jacksons i Gautaborg 12. júni og
verður um þriggja daga ferð aö
ræða, þ.e. farið verður héðan 11. júní
og komið heim þann þrettánda. Inni-
falið í þessum tæpu 25.000 krónum
er auðvitað flugferðin — fram og til
baka — gisting og aðgöngumiði á
tónleikana. Þeir sem vilja ekki fara
aftur heim mega vera áfram úti og
geta komið sér sjálfir heim gegnum
Kaupmannahöfn allt aö þremur vik-
um síðar.
„Við ætluðum reyndar aldrei að
taka okkur þetta nafn." Þessi setning
er höfð eftir Magnúsi Eiríkssyni
lagasmið um hljómsveit sína
Mannakorn sem nú sendir frá sér
fimmtu breiðskífuna, Bræðrabanda-
lagið. Með höfuðpaurum Manna-
korns, Magnúsi og Pálma Gunnars-
syni, koma fram á nýju plötunni Ey-
þór Gunnarsson, Gunnlaugur
Briem, Ellen Kristjánsdóttir,
Tryggvi Hubner og fleiri - kunnir
hljóðfæraleikarar. Bræðrabandalag-
ið geymir 11 lög, öll eftir Magnús
Eíriksson, en Pálmi hafði umsjón
með útsetningum óg upptökum
þeirra.
Maður stórefast reyndar um að,
fólk taki allt í einu upp á þvi að stiga
dans yfir óhreinum matardiskum
milli sjö og átta á kvöldin en þó er
aldrei að vita. Að minnsta kosti vant-
ar ekki tónlistina, Gullaldartónlist á
Stjörnunni, rokk og ról og tvist og
gvuö má vita hvað og það væri bara
alls ekkert vitlaust að lífga upp á til-
veruna með því að taka nokkur skref
é eldhúsborðinu. Annað eins hefur
nú verið gert.
Endilega gleymið ekki að stilla líka
á Stjörnuna á Jaugardaginn þegar
Bjarni Dagur ráeöir við hlustendur
milli fjögur og sjö. Það get ég svo-
sem svariö að maður finnur sér af-
sakanir til að vera aleinn úti að keyra
svo hægt sé að hlusta á þetta i friði
stundum. Maðurinn lætur venjulegt
fólk um allan bæ og allt land hringja
og hringja og þaö segir frá alls konar
málum eins og mönnunum sínum,
konunum sínum.jbörnunum sínum,
matnum, tiltektipni, vændi og fleiru
og fleiru og maður veit bara ekkert
hvað kemur næst. Ef maður hins
vegar hlustar ekki þá gæti svosem
vel verið að maöur missti af ein-
hverju rosalegu. En hins vegar bendi
ég á hér og nú aö"ép fatta ekki alveg
kaflann í Mannle^a þættinum um
bestu þjónustúna. Aldrei nokkurn
tíma hef ég heyrt hver vann. Hver
vann í síðustu viku til dæmis? Von-
andi stúlkurnar á Skansinum/Gest-
gjafanuml
í hóp Gangskörunga hafa nú bæst
nýir listamenn og i kjölfar þess er
ýmissa breytinga að vænta á galler-
íinu, Gallerí Gangskör, á næstunni.
Til að mynda — þetta sagði ís-
lenskukennarinn minn alltaf í gamla
daga — já til að mynda hefur verið
ákveðið aö standa aö samsýningu á
listahátíð í júní og hópurinn hefur
ennfremur í hyggju að sýna saman í
galleríum innanlands og utan. Fyrsta
sýningin verður í gallerí Arctander í
Osló i september og aftur i maí á
næsta ári. Listamennirnir i Gangskör
eru tólf en þeir nýju eru myndlistar-
mennirnir Anna Gunnlaugsdóttir,
Áslaug Höskuldsdóttir, Margrét
Jónsdóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir
og Sigrún Olsen. Sú breyting hefur
núha oröiöátiþnunartíma gallérísihs
að'þar er lokað frá laugárdegi til
mánudags, nema þegar sérsýningjar
eru þar á ferðinni.
Haukur Dór var með vinsælli leir-
kerasmiðum hér á landi i den, en
núna segist hann hafa skilið við leir-
inn og snúið sér eingöngu að málun
og teikningu. IHann sýnir verk sín,
teikningar og málverk unnin á pappír
og striga, í Listasalnum Nýhöfn,
Hafnarstræti 18, og menn mega al-
veg taka kipp því sýningu Hauks
Dórs lýkur eigi síðar en 1. júní. Það er
opið i Nýhöfninni virka daga klukkan
10—18 og um helgar frá 14—18.
Þjóðminjasafniö er komið í við-
bragðsstöðu, enda fullt af erlendum
ferðamönnum væntanlegt þangað í
heimsókn í sumar sem endranær.
Ákveðiö hefur verið að lengja opn-
unartíma Þjóðminjasafnsins og er það
nú opið alla daga vikunnar, nema
mánudaga, frá kl. 11—16. Á laugar-
dag í næstu viku, 4. júni, verður opn-
uð í Bogasalnum sýning á myndum
eftir enska fræöimanninn og málar-
ann W.G. Collingwood, sem ferðað-
ist um ísland árið 1897.
Páll Guðmundsson frá Húsafelli
opnar á morgun, föstudag 27. maí,
sýningu á höggmyndum í Gallerí
Grjóti viö Skólavörðustíg.
Páll er 29 ára og stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
á árunum 1977—1981. Hann fór síð-
an til náms í höggmyndalist við lista-
háskólann í Köln árið 1985 þar sem
hann nam hjá Burgeff prófessor í eitt
ár. Páll Guðmundsson hefur haldið
tíu einkasýningar, þar af tvær í
Þýskalandi. Sýningin í Gallerí Grjóti
stendur yfir til 12. júni og þar er opið
virka daga kl. 12—18 og um helgar
frá 14—18.
listahátið 1988
JÓHANN
EYFELLS
Sýning á pappaverkum
Gallerí Svörtu á hvítu
A laugardaginn kemur opnar Jó-
hann Eyfells sýningu í Gallerí
Svörtu á hvítu. Sýning þessi er fram-
lag gallerísins til Listahátíðar og er
eins konar forskot á sæluna ef svo
má segja, því formlega verður hátíð-
in ekki opnuð fyrr en 4. júní. Það er
vissulega spennandi og um leið
gleðiefni að fá sýningu frá Jóhanni
Eyfells á Listahátíð, en hann hefur
sjaldan sýnt hér heima í gegnum tíð-
ina. Hefur verið búsettur í Flórída á
annan áratug og unnið þar að list
sinni ásamt konu sinni, Kristínu Ey-
fells. Síðast sýndi Jóhann hér heima
árið 1984 en þar áður voru liðin
sextán ár frá síðustu sýningu hans á
Islandi.
Jóhann fæddist árið 1923. Hann
stundaði nám í arkitektúr, bygging-
ar- og myndlist við Kaliforníuhá-
skóla á árunum eftir stríð og um leið
tók hann eitt ár í keramik við Lista-
og handíðaskólann í Oakland í Kali-
forníu. Hann lauk MFA-gráðu í
skúlptúr frá sama skóla árið 1964 og
varð prófessor í myndlist við
Flórída-háskólann í Orlando
nokkru síðar og þeirri stöðu hefur
hann gegnt æ síðan. Jóhann hélt
sína fyrstu einkasýningu hér heima
árið 1961, þá í húsi bróður síns,
Einars Eyfells, í Selvogsgrunni og
sagði þá í blaðaviðtölum að hann
hygðist einbeita sér að gerð
mónúmenta (minnisvarðabygging-
ar) þar sem hann gæti samræmt
skúlptúrinn og arkítektúrinn. Þá
sýndi Jóhann mestmegnis álverk
sem vöktu töluverða athygli. Valtýr
heitinn Pétursson sagði m.a. eitt-
hvað á þá leið að Jóhann hefði ekki
eins mikið vald á litum og formi og
að það yrði spennandi að fylgjast
með þróun hans í skúlptúrnum.
Bragi Ásgeirsson segir síðan um
Jóhann 1968, eftir sýningu í Lista-
mannaskálanum, að sú sýning stað-
festi að við íslendingar höfum eign-
ast enn einn frambærilegan mynd-
höggvara á alþjóðlegan mæli-
kvarða. Það gekk enda eftir, því
Jóhanni hefúr hlotnast margs konar
viðurkenning fyrír höggmyndir sín-
ar í gegnum tíðina, var m.a. einn
þeirra sem valdir voru á sýningu
bandarískra listamanna í Múnchen
ólympíuárið 1972. Hann hefur í
gegnum tíðina einkum unnið í
málma; ál, járn og kopar, en líka
brugðið frá vananum, sýnt m.a.
verk sem hann vann úr gúmmí-
slöngu í upphafi áttunda áratugar-
ins.
Eyfells í
Johann Eyfells
Bandaríski listfræðingurinn Lotz
hefur m.a. sagt um verk Jóhanns að
þar séu mest áberandi í þróun hans
sem listamanns: sterk meðvitund
um uppruna hans og víkingablóð,
norræn goðafræðileg hugmynda-
fræði, íslenskt landslag, áhrif
arkitektúrsins, rannsóknir hans á
jötunsteinum í Stonehenge og stans-
lausar tilraunir með efni, sem
reyndar einkennir alla myndhöggv-
ara. Vinnuaðferðir Jóhanns eru að
mati Lotz sömuleiðis nátengdar
uppruna hans. Hann vinnur öll verk
sín utandyra við heimili sitt, sem
reyndar hýsir einnig vinnustofu
þeirra hjóna, notar mikinn hita til að
bræða efnið, vatn til að forma og
sömuleiðis blástur. Þetta telur Lotz
vera tengt þeim öflun sem stans-
laust vinna áð itiótún þess lands
sem Jóhann kemur frá.
Lotz segir einnig að líta megi á
verk Jóhanns út frá þeirri arkitýp-
ísku fyrirmynd sem jötunsteinarnir
eru. Þeir eru massífir í fyrirferð og
stífir beina þeir sjónum til himins i
leit að hinu raunverulega, hinu
heilaga. Um leið verða skúlptúrarn-
ir þannig vísun til einhvérs endan-
legs í alheiminuín, merking þeirra
er hafin yfir tíma og rúm en þeir eru
samt bjargfastir í fortíðinni.
Sem fyrr segir opnar Jóhann
Eyfells sýningu sína í Gallerí Svörtu
á hvítu á laugardaginn og stendur
hún til 18. júní. Yfirskrift sýningar-
innar er Lídandi stund í sinni mynd
en á henni verður Jóhann með verk
unnin í pappa.
kk
22 HELGARPÓSTURINN