Helgarpósturinn - 26.05.1988, Blaðsíða 29
<
hann á sóknaraðila að halda. Þar
kemur Tony Avirgan til sögunnar.
LEYNIGENGIÐ
AFHJÚPAÐ
Frekari rannsóknir Christic
Institute á máli þessu leiddu í ljós til-
vist þess sem í Bandaríkjunum hef-
ur verið kallað „Leynigengið" (The
Secret Team).
Sheehan telur sig hafa heimildir
fyrir því að rekja megi leynigengið
allt aftur til áranna um og eftir 1960,
þegar CIA háði leynilegt stríð á
hendur Fidel Castro sem þá var ný-
kominn til valda á Kúbu. Leynistríð
þetta var háð allt til ársins 1965
undir stjórn CIA-mannanna
Thedores Shackley og Thomas
Clines. Sheehan heldur því fram að
þetta fyrsta „kontrastríð" hafi verið
fjármagnað með eiturlyfjasölu
Mafíumannsins Santo Trafficante.
Shackley og Clines voru síðan
fluttir til Suðaustur-Asíu á dögum
stríðsins í Víetnam. Á þeim slóðum
bættust í hópinn John Singlaub,
Oliver North og Richard Secord,
sem allir eru viðriðnir vopnaflutn-
ingana til kontraskæruliða, en
North og Secord hafa sem kunnugt
er verið formlega ákærðir fyrir hlut-
deild sína í málinu. I Suðaustur-Asíu
eiga þessir menn að hafa haft yfir-
umsjón með morðum tugum þús-
unda óbreyttra borgara sem grun-
aðir voru um að vera hliðhollir
kommúnistum.
Daniel Sheehan heldur því fram,
að eftir að Bandaríkjaþing bannaði
alla aðstoð við kontraskæruliða hafi
Oliver North verið falið það af yfir-
boðurum sínum að fá leynigengið til
að hlaupa í skarðið. Hópurinn efndi
til víðtækrar fjársöfnunar meðal
hægrisinnaðra auðkýfinga í Banda-
ríkjunum til að standa straum af
vopnakaupunum. Þá á hópurinn
einnig að hafa stundað viðamikið
kókaínsmygl inn til Bandaríkjanna,
jafnvel undir verndarvæng leyni-
þjónustunnar. Hópurinn fékk að
starfa óáreittur í nokkur ár, og það
var ekki fyrr en flugvél með Eugene
Hasenfus innanborðs var skotin nið-
ur yfir Nicaragua í byrjun október
1986, að brestir fóru að koma í
leyndarhjúpinn. Sheehan og
Christic Institute höfðu hins vegar
löngu áður afhjúpað þessa ópinberu
utanríkisstefnu Bandaríkjanna, sem
var í höndum einkaaðila.
SHEEHAN
GAGNRÝNDUR
Lögsókn Christic Institute hefur
ekki fengið mikla umfjöllun í hinum
hefðbundnu bandarísku fjölmiðl-
um. Engu að síður hefur Sheehan
verið töluvert gagnrýndur fyrir
rannsókn sína á leynigenginu. Hann
hefur verið sakaður um að fara ekki
rétt með staðreyndir og bent hefur
verið á að margir af heimildar-
mönnum hans séu óforbetranlegir
lygarar. Aðrir segja að ekki hafi ver-
ið farið rétt með það sem eftir þeim
var haft. Sheehan á sér þó nokkuð
marga stuðningsmenn, og margir
blaðamenn sem hafa rannsakað
ásakanir hans hrósa honum fyrir að
grafa upp nýja heimildarmenn í
Miami.
Hvað sem mönnum kann að finn-
ast um samsæriskenningar
Sheehans er það skjalfest að hinir
ákærðu hafa eytt miklum fjárhæð-
um í tilraunir til að reyna að eyði-
leggja málið. Það kom t.d. í ljós í
íran-kontra-yfirheyrslunum síðast-
liðið sumar að fyrrum CIA-starfs-
maður var fenginn til þess af Oliver
North að fara til Costa Rica í þeim til-
gangi að grafa upp eitthvað misjafnt
um Tony Avirgan og Martha Honey.
Það var þessi sami fyrrum CIA-mað-
ur sem sá um að koma fyrir öryggis-
kerfi í húsi Norths að beiðni
Richards Secord. En viðtaka örygg-
iskerfisins er m.a. eitt af því sem
North hefur verið ákærður fyrir af
Lawrence Walsh, sérstökum rann-
sóknardómara í íran-kontra-málinu.
Undirbúningur fyrir málaferli
Christic Institute gegn leynigenginu
er nú langt kominn og er jafnvel bú-
ist við að byrjað verði að rétta í mál-
inu síðar í sumar. Þessari sögu er því
langt í frá lokið.
(Grein þessi er tekin saman úr gögn-
um frá Christic Institute, skýrslu
Tonys Avirgan og Martha Honey um
rannsókn þeirra á La Penca-
sprengjutilræðinu, tímaritinu
Mother Jones, o.fl.)
SMARTSKOT
HELGARPÓSTURINN 29