Helgarpósturinn - 26.05.1988, Blaðsíða 32

Helgarpósturinn - 26.05.1988, Blaðsíða 32
V, ið sögðum frá því í síðasta blaði, að viðræður stæðu yfir á milli sjálfstæðismanna og forystu- manna Borgaraflokksins um hugsanlega sameiningu eða sam- starf í kosningum, ef til þeirra kæmi skyndilega, sem alls ekki er talið úti- lokað. Sagt var frá því að Guð- mundur H. Garðarsson, Ólafur G. Einarsson, Július Sólnes og Óli Þ. Guðbjartsson hefðu tekið þátt í þessum viðræðum. Við þetta má bæta, að heyrst hefur að Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi einnig átt í viðræðum við Kristmann í Pfaff um samstarf flokkanná',' en Krist- mann er náinn vinyr ÁIberts Guð- mundssonar. Samkvæmt heimild- um HP hefur verið rætt hvernig sameining gæti átt sér stað og eink- um og sér í lagi með hvaða hætti væri hægt að tryggja Borgara- flokksmönnum völd í flokkskerfinu í Reykjavík. Kannski þeir fái fram- kvæmdastjóra flokksins í Reykja- vík. . . Þ að vakti óneitanlega athygli að gjaldeyrisbrask skyldi hafa komið í veg fyrir að Þorsteinn Pálsson kæmist til fundar við Ronald Reagan, forseta Banda- ríkjanna, og nýtti sér þar með tæki- færi sem gefst ei meir. Minni athygli virtist það hins vegar vekja, að ann- ar ráðherra og af mörgum talinn ábyrgari fyrir stefnunni í efnahags- málum en Þorsteinn Pálsson lét ,,rönnið“ á gjaldeyrisforðann ekki stöðva utanferð sína. Þetta var Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem hélt til OECD-fundar... 32 HELGARPÓSTURINN O g meira um viðskiptaráð- herra, Jón Sigurðsson. Seðla- banki íslands eða þeir tveir stjórn- endur hans sem svarað hafa fyrir gjaldeyrisúttektina, Jóhannes Nordal og Geir Hallgrímsson, virðast hafa tekið gleði sína á ný og svara nú fullum hálsi afskiptum Jóns Baldvins Hannibalssonar af gjaldeyrismáium. Bankastjórinn síðarnefndi gefur skýringuna í Morgunblaðinu í gær, en þar segir hann m.a.: ,,Það er unnið að málinu í samstarfi við Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra. Við viljum gefa heildstæða skýrslu." Óhætt að segja að Jón sé kominn heim... |k| ■ ýbreytni í fréttum er að vænta hjá Stöð 2. Nú heyrum við að Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttamaður muni síðsumars halda norður til Akureyrar og verða staðsettur þar í nokkra mánuði til að byrja með og miðla fréttum frá Norðurlandi tii áhorfenda stöðvar- innar. Eðlilegt að senda Sigmund, sem er þrautreyndur fréttamaður og heimavanur nyrðra enda Norð- lendingur. Hugsanlegt er að hann muni þegar líður á haustið sjá um gerð fréttaþáttar á landsvísu, sem sendur verður út frá Akureyri. Ekki er að efa að þeir þættir verða athygl- isverðir eins og margt af því sem Sigmundur Ernir hefur gert í sjón- varpi. . . l nýjasta tölublaði Stúdenta- blaðsins eru birtar niðurstöður skoðanakönnunar sem SKÁÍS gerði fyrir blaðið. Kannað var m.a. hvernig fylgi stúdentafélaganna Röskvu og Vöku skiptist eftir háskóladeildum meðal þeirra sem þátt tóku í síðustu stúdentaráðs- kosningum. Röskva er félag félags- hyggjufólks í HÍ, stofnað í vetur þeg- ar vinstrimenn og umbótasinnar runnu saman, og Vaka er hægri- mannafélagið í stúdentapólitíkinni. Það verður varla sagt að niðurstöð- urnar komi á óvart þó finna megi ýmislegt athyglisvert. Röskva hefur yfirgnæfandi meirihluta í félags- vísindadeild og heimspekideild og meirihluta í læknadeild. At- hygli vekur að allir sem afstöðu tóku í guðfræðideild fylgja Röskvu að málum en þar er að vísu hæsta prósentutala þeirra sem ekki tóku afstöðu, eða 33%. Jafnmargir styðja Vöku og Röskvu í raunvísinda- deild. Vaka hefur á hinn bóginn mikinn meirihlutastuðning í þeim deildum sem „arðvænlegastar” eru frá peningasjónarmiðinu, þ.e. laga- deild, tannlæknadeild og við- skiptafræðideild, og einnig meiri- hluta í verkfræðideild. Snemma beygist krókur. . . hf svo er, þá erum við til þjónustu reiðubúin, með fvrsta flokks mat úr veislueldhúsinu okkar. tVið tökum að okkur veislur og mannamót af öllum stærðum og gerðum, og bjóðum eingöngu upp á fyrsta flokks hráefni \ og fjölbreytni í vali: Kalt borð, __ _ _ _ - __ heita rétti, pottrétti og smárétti. S I OFNANlli Ekki má gleyma brauðinu okkar, sem Við minnum á okkar besta í bænum: Cockteil-snittur, umtöluðu matarbakka 'V i hadeginu ur bakka sJmKKmM. J- \ og okkar rómuðu brauðtertur. eldhúsinu. Hægt er að j 4 Svo erum við f---- velja um 3 tegundir: |neð hagstætt verð. * HEITANMAT ■■ ■ ||K Pantið ___I KABARETT ' tímanlega VEITINGAMAÐURINN BÍLDSHÖFÐA 16 - SÍMI 68-68-80

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.