Helgarpósturinn - 26.05.1988, Side 10

Helgarpósturinn - 26.05.1988, Side 10
VETTVANGUR HELGARPÓSTURINN Ritstjórar: Helgi Már Arthursson og Ólafur Hannibalsson Blaöamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir, Freyr Þormóösson, Friðrik Þór Guðmundsson, Jón Geir Þormar, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson, Páll Hannesson. Prófarkir: Sigríður H. Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Jim Smart Útlit: Jón Óskar Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Dreifingarstjóri: Birgir Lárusson Sölu- og markaðsstjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Auglýsingar: Sigurrós Kristinsdóttir, Sigurður Baldursson. Áskrift: Guðrún Geirsdóttir Afgreiösla: Bryndís Hilmarsdóttir Aðsetur blaðsins: er í Ármúla 36, Reykjavík, sími 91-681511. Útgefandi: Goðgá hf. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Blaðaprent hf. Sólskinssleikj ur í kerfinu Allt frá upphafi íslands byggdar hefur þessi þjóð þráð komu vors og sumars af meiri ákefð og óþreyju en flestir aðrir þjóðflokkar. Vonin um „nóttlausa voraldar veröld“ hefur blásið okkur í brjóst kjarki og þrótti til að paufast gegnum skammdegissvartholið full óþreyju að láta hend- ur standa fram úr ermum þegar hábjargræðistíminn loks rennur upp og vinnuljóst verður allan sólarhringinn. Kannski er það þessi óþreyja, sem því veldur, að við getum ekki þreyð veturinn á enda, heldur sláum því föstu og prentum í almanök, að sumardagurinn fyrsti renni upp löngu áður en veturinn hefur runnið skeið sitt á enda. Og þar sem íslendingar eru trúaðri á sannindi prentaðs máls en gang himintungla kemur ekki til mála að leiðrétta þessa prentvillu í almanakinu, heldur skulu börnin okkar vaða skaflana berlæruð móti hríð og hragl- anda, veifandi íslenskum fánum í litlum, krókloppnum höndunum og lofsyngja sumar og sól gegnum munn- herkjuna. Hins vegar er „hábjargræðistíminn" ekki skráður í almanök. Því er okkur leyfilegt að brengla inntaki þessi forna hugtaks, þannig að á mörgum sviðum þjóðlífsins er þaö merkingarlaust eða andhverfa fyrri merkingar. Enn stundum við sjóinn af kappi um sumartímann, en fisk- vinnslunni er að verulegu leyti haldið uppi með vinnu barna, unglinga, gamalmenna og útlendinga, meðan fólk á besta aldri flatmagar á ströndum undir suðrænni sól og reynir að breiða brúna slikju yfir skammdegisfölv- ann. Byggingariðnaðurinn verður líka að hamast við að steypa meðan frostleysan varir og sólbitnir bændurnir að hamast við að bjarga heyjum í kappi við duttlunga nátt- úrunnar, en það er eins og flest önnur starfsemi lamist meira eða minna með hækkandi sól. Fjöldi fyrirtækja lokar opinberlega vegna sumarleyfa. Önnur reyna að láta líta svo út að að þar sé starfsemi haldið uppi eins og venjulega. Hin opinbera stjórnsýsla er fremst í flokki í þeim blekkingaleik. Það er auðvitað opinbert leyndar- mál og á allra vitorði, að eftir að kemur fram á þennan tíma er yfirleitt ekki hægt að ná í nokkurn mann eða þoka fram nokkru máli í stjórnkerfinu. Vissulega er eitt- hvert fólk starfandi, sem sér um að opna kontórana á morgnana og loka þeim á kvöldin. Þess á milli eru síma- stúlkur önnum kafnar að útskýra af hverju viðkomandi starfsmaður sé ekki við. Sumir hafa náttúrlega fetað í fót- spor hinna fornu Vandala og baka sig í hópi annarra landsmanna á strandgrillum Andalúsíu. Aðrir eru ný- farnir í mat eða kaffi eða rétt ókomnir úr því sama. Stundum eru menn uppteknir í símanum eða á fundi og vilja ekki láta trufla sig. Iðulega hefur starfsmaðurinn „skroppið frá en er örugglega í húsinu. Jakkinn hans er hérna“. Svo þegar menn fóru að sjá í gegnum þetta og gera sér grein fyrir að menn geta haft með sér aukajakka og hengt á stólbak, þá var farið að bæta skónum við. Menn eiga erfitt með að ímynda sér virðulega embættis- menn jakkalausa og berfætta út um borg og bý í vinnu- tímanum, jafnvel þótt þeir hafi einhvern tíma verið hipp- ar af 68-kynslóðinni. Stundum hvarflar að mönnum, hvort ekki væri heiðar- legra að loka sjoppunni frá miðjum júní til miðs septem- ber og semja við einhverja nágrannaþjóðina um að reka þetta þessa mánuði meðan við erum að slappa af og safna kröftum og kaffibrúnum lit til að komast gegnum eitt skammdegi í viðbót. Og gjarnan mættum við, sem heima sitjum, hafa það hugfast, þegar við erum að bölsótast yfir seinagangi mál- efna okkar gegnum kerfið að sumrinu, að vissulega er þessum mönnum hollara að sleikja sólskinið en ýmislegt það sem þeim er gefin völ á í svartnætti skammdegisins. 10 HELGARPÓSTURINN Litfríð og ljóshærð Fegurðarsamkeppni. Spennandi. Bein útsending og allt. Pelsklæddar á hiýju vorkvöldinu gengu dísirnar í salinn, flestar einhvers staðar innan við tvítugt og hafa áhuga á ferðalög- um. Kannski ekki við öðru að búast en hópurinn sé einlitur, eins og hafi myndast hefð fyrir tungumála- og ferðalagaáhuga fegurðardísa í gegnum tíðina. í forvalinu er spurt: Hefurðu áhuga á ferðalögum? Ef svarið er nei. Næsta. Ef svarið er já má gaumgæfa kvenkostinn, kanna hvort hún hefur ekki örugglega áhuga á einhverju heilbrigðu, íþrótt- um eða vaxtarrækt, skiptir miklu að hún vilji mennta sig til að reka af fegurðarsamkeppnum andlegrcir-eyði- merkur-slyðruorðið. Fínt lika að hafa áhuga á verslun eða viðskipt- um. Módelið tilbúið. Fellur eins og fiís við rass. Svo er líka allt svo fínt. Limósínur afþví svoleiðis er það útí heimi. Rauður dregill og í járnglerssteypu- húsi í klæðfátæku og stórhýsalausu íslandi til þúsund ára eru skósveinar útá tröppum að frönskum sið. Hvítir hásokkar og gljáandi lakkskór með gylltri spennu. Hvítar hárkollur. Rauðar kápur og hvítir hálsklútar. Eins og þeir hafi verið dregnir útúr öðrum tíma og eru kjánalegir innan um nútímaglerið, plastið, kókdoll- urnar og óli sem er ofið í teppið. Stimplað á glösin og grafið í disk- ana. Verst að maðurinn skuli ekki heita Loðvík eða Hinrik eða eitt- hvað tignarlegt. Óli frekar lummó í þessu samhengi. Líka tíkarlegt að sjá glitta í barþjónana sem eru bara á þessum venjulega búningi. Hvítar skyrtur og svart og rautt við. Nýrík- ir, fortíðarlausir Islendingar að skemmta sér og kunna sér ekki hóf í óhófi og smekkleysi. Skraut oná skraut, á endanum er það orðið í raun og veru barokk eða jafnvel rókókó í glerinu og plastinu og skó- sveinunum og pelsunum og limósín- unum og endalausum vörukynning- um. Búið að draga leikkonu og óperusöngvara á svið til að kynna. Rétt til að sýna tengsl við menning- una eða kannski er þetta hugmynd að óbeinu styrkjakerfi. Með réttu lagi ætti að vera Bach undir gallerí- inu til að skapa stemmninguna í takt við inngöngumars skósveinanna en í staðinn er það dúndrandi 4/4. Kannski ætti samt ekki að vera Bach. Rokkið gefur þessu grátlega eymdarlegt tímaleysi taumlausrar tilgerðar þar sem hátíðleikinn er hlaupinn í hnút um sjálfan sig. Ösku- buskur gerðar að prinsessum i nokkra klukkutíma. En engin þeirra gleymir lengur skóm. Allt svo gríðarlega skipulagt. Dómnefndin stendur upp til að kynna sig. Stelpugreyin vingsa um sviðið fyrst svona klæddar, svo ein- hvern veginn öðruvísi og þvínæst á þriðja veginn. Dómnefndin leggur á þetta faglegt mat. Metur niðurstöð- ur viðtala sem hafa verið löng og ít- arleg. Leggur mat á framkomu og viðmót. Svo kemur niðurstaðan. Jöfn keppni og spennandi — sem aldrei fyrr — en ein verður að sigra. Kannski dettur einhver úr rull- unni, man ekki replikku á réttum stað eða stund eða hefur fengið of mikið borðvín. Galleríið hrynur, brosin stirðna og ljósin dofna. Ritú- alið snögghemlar. Jafnvel lazer- geislunum fellur allur ketill í eld. Diplómatískt horfast menn svo í augu og ákveða að láta þetta ekki á sig fá. Samt alltaf eitruð augnaráð að skjótast. Einhver segir úrslitin óréttmæt, vildi frekar fá þessa ljós- hærðu leggjalöngu, væri betri land- kynning . .. Kristján Kristjánsson

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.