Helgarpósturinn - 26.05.1988, Page 17
reyna að blanda sér inn í umræður
á þessu heimili... Eins og ég viti ekki
vel að kennarar fá léleg laun og eng-
an ókeypis bíl!)
Eg gefst upp á þessari familíu einn
daginn. Það er alltaf verið að segja
manni að fylgjast með og hlusta á
fréttirnar (helst ,,þrjár“ í röð, eins og
pabbi og mamma gera), en svo
hlæja þau, þegar ég reyni að ræða
málin. Það er ekkert venjulegt að
reyna að þóknast þessu fullorðna
fólki!!!
Bless, Dúlla.
SÝNDU
FYRIRHYCCJU
SKÓIABÓK
STYRKIR DIC
í NÁMI
Með sparnaði á Skólabók ávaxtar þú
sumarlaunin og ávinnur þér um leið lánsréttindi.
Hringdu eða líttu inn og kynntu þér
möguleikana sem hún gefur þér.
SAMVINNUBANKINN
Þjónusta í þfna þágu
DAGBÓKIN HENNAR DÚLLU
Kæra dagbók.
Pabbi og mamma eru alveg óð,
vegna þess að ríkisstjórnin var að
hækka verðið á sumarfríinu okkar.
Eg fatta nú ekki alveg hvernig ein-
hver ríkisstjórn getur skipt sér af
svoleiðis málum, en það er eitthvað
í sambandi við gengisfellinguna um
daginn. Svo nú þarf pabbi að borga
alveg helling í viðbót fyrir sumar-
húsið og bílinn... fyrir utan það að
hver einasti ís, sem keyptur verður
handa manni, verður trilljón sinn-
um dýrari. (Það sagði pabbi að
minnsta kosti.) En ég er sko ekkert
viss um að mennirnir þarna úti í
löndum viti af því að ein smá ríkis-
stjórn á eyju úti í hafi tók sig til og
hækkaði barasta verðið á ísnum hjá
þeim — án þess að spyrja um leyfi.
Eg yrði ekki hissa þó það væri hægt
að kæra þetta fyrir útlenskum dóm-
stólum! Eða fyrir barnaverndar-
nefnd, kannski. (En þá yrði maður
líklega að tala um hækkun á mjólk
í staðinn fyrir á ís.)
Það blíðkaði mömmu nú soldið að
fá þessa góðu skoðanakönnun í
blöðunum, þegar hún var sem ergi-
legust. Hún verður alltaf svo ógeðs-
lega glöð yfir því hvað Kvennalist-
anum gengur vel. Það rennur ekki
af henni brosið og hún segir já við
næstum öllu, sem maður biður um.
Samt segir hún alltaf: „Það er ekk-
ert að marka skoðanakannanir,
Dúlla mín. Þetta eru ekki kosninga-
úrslit." (Gvuuuð, hvað fullorðna fólk-
ið getur verið yfirvegað og kúúl á
yfirborðinu, þój)að sé að springa af
sælu inni í sér. Eg ætla sko aldrei að
verða svoleiðis, takk fyrir! Ef þetta
er að „þroskast" — þá er það örugg-
lega ekkert spennandi.)
Mér finnst pínulítið erfitt að skilja
af hverju forsetinn lætur ekki Stein-
grím hætta að vera forsætisráð-
herra, fyrst það vilja miklu fleiri fá
Kvennalistann. Hann vill alveg
örugglega ekki stjórna landinu
lengur. Maður sér það bara á svipn-
um á honum í sjónvarpinu. Það er
greinilegt að hann er orðinn hund-
leiður á þessu öllu. Mamma segir
reyndar að ég nái ekki upp í þetta.
Hún segir, að ráðherrarnir séu allir
alsælir með að fá að ráða, þó það sé
stundum soldið þreytandi að bjarga
efnahagsmálunum og þeir verði fúl-
ir á svipinn. Það er víst bara af því
að þeir vildu frekar verða að dútla í
garðinum hjá sér eða í útlöndum.
En þeir vilja ekki hætta að vera ráð-
herrar fyrir því... Mamma kallar
ríkisstjórnina líka BOSSABANDA-
LAGIÐ og segir, að þeir hugsi bara
um rassana á sér. Þeir vilja hafa þá
í ráðherrastólum, vegna þess að
þeir kunna ekkert annað starf. Það
hlýtur annars að vera einhver della
hjá henni mömmu. Allir þessir kall-
ar hljóta að hafa unnið annars stað-
ar, áður en þeir urðu ráðherrar. Og
ef þeir gátu verið kennarar eða eitt-
hvað annað fyrir nokkrum árum
geta þeir auðvitað gert það aftur.
Kannski þyrftu þeir bara að fara á
smá endurmenntunarnámskeið í
sumar. (Pabbi veltist um, þegar ég
sagði þetta. Það þýðir ékkert að
ÞÚFÆRÐ .
100g MEIRIJOGURT
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS!*
* Eða réttara sagt 102 g þegar miðað er við verð á jógúrt í 180 g dósum.
SUMARKJÖR:
CHEVROLET MON.
Við erum í sumarskapi og viljum stuðla að því að sem flestir geti farið
í sumarleyfið á glænýjum Chevrolet Monza,fólkshíl sem hæfir íslensku vegakerfi.
Þess vegna gefum við kr. 25.000 í sumargjöf
með hverjum Monza seldum til mánaðamóta.
, ... BíLVANGURsf
■' Jtí****^^'\ HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
vWiSr
CHEVROLET
HELGARPÓSTURINN 17