Helgarpósturinn - 26.05.1988, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 26.05.1988, Blaðsíða 26
KROSSGÁTA ##■ rÞað að samningsréttur sé ffrjáls hlýtur að vera jaffnmikil- vægt hér og t.d. i Póllandi." Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, um afnám samningsréttar verkalýöshreyfingarinnar. „Eigum við, „pöbullinn’ í landinu, sem ekki megum njóta trúnaðar, að trúa því að það hafi verið bankakerfið á Islandi sem skipulagði „rönn” á gjaldeyrissjóðinn?“ „Það er verið að kjósa um leið- toga þjóðarinnar og fólkið á að fá þann sem það treystir." Albert Guömundsson, fyrrum forseta- frambjóöandi, um vaentanlegar forseta- kosningar. „Forsetakosningar á Islandi eru að verða grín." Ellert B. Schram, ritstjóri DV, i grein sem hann kallar „Hláturinn lengir lífiö". „Auðvitað myndi ég leita ráða hjá fólki sem hefur góða innsýn í hlut- ina og fá, áður en ég skrifa undir forsetaeið, útskýringar á þvi hvað er á ferðinni. Sigrún Þorsteinsdóttir forsetaframbjóð- andi. „Annars finnst mér svolítið und- arlegt að heima á íslandi, þar sem er mikið af góðum fjármálamönn- um, skuli engum hafa dottið i hug að íslenskar kvikmyndir geti skilað af sér góðum arði." Jón Tryggvason, leikstjóri Foxtrot, i Cannes. „Hún (ríkisstjórnin) vill aðeins ræða ákvæði kjarasamninga sem ráðherrar hafa þó viðurkennt að séu ekki vandamálið." Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ. „Við verðum að ná vísitölunum burt." Ólafur Þ. Þóröarson, framsóknarþingmað- ur í stjórnarandstöðu. Jón Baldvin Hannibalsson á fundi i Múlakaffi. „Það er unnið að málinu í sam- starfi við Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra. Við viljum gefa heildstæða skýrslu. Öll kurl munu koma til grafar." Geir Hallgrímsson seölabankastjóri um óskir Jóns Baldvins Hannibalssonar um upplýsingar um gjaldeyrisviöskipti þau sem leiddu til gengisfellingar íslensku krónunnar. „Þetta hlýtur að koma, en ég ítreka að upplýsingarnar verða ekki birtar í smáatriðum." Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra um gjaldeyriskaupaskýrsluna frá Seðlabank- anum. „Þetta er hópur fallegra andlita með fallegar smáhugmyndir." Jón Baldvin Hannibalsson um Kvennalist- „Með því að skírskota stöðugt til þessara „arkitýpa" ævintýranna nær Matthías að setja þetta í hið stóra samhengi „allegóríunnár" og losa það viö þessa nærsýni semvar alltaf verið að klína á verkið, nær- sýni lykilskáldskapar." x Kristín Jóhannesdóttir, höfundur sjón- varpsmyndarinnar Glerbrota, um fyrir- myndina, FjaÖrafok Matthíasar Johann- essen. STJÖRNUSPÁ HELGINA 27.-29. MAÍ ITTF Þér finnst kominn timi til að endurbæta útlit þitt en gleymdu ekki öðrum hlutum sem skipta meira máli. Breytinga er að vænta á heimilinu og einhver í fjölskyldunni leitar til þín eftir ráðleggingum. Neyddu ekki skoðunum þínum upp á neinn, gefðu til kynna hvað þér finnst og láttu hinn aðilann um að ráða fram úr hlutunum. Það er tímabært fyrir þig að horfa fram á við og gleyma því sem gerðist í fortíðinni. Gerðu sérstakar ráðstafanir til að bæta sam- band þitt við ákveðinn aðila, hvort heldur er maki eða góður vinur. Þér lærist ýmislegt um lögin þessa helgi og trúlega leggur þér einhver skyldur á herðar i því sambandi. Stattu fast á þínu. TVÍBURARNIR (22/5-21/6 Taktu ekkert sem gefið og forðastu að lenda i tilfinningalegri klemmu. Manneskja í Fiskamerkinu lofar þér ákveönum hlutum sem eru ekki á hennar færi að veita. Hugboð sem þú færð reynist rétt og verður þér til góðs að fara eftir því. Þér tekst að Ijúka ætl- unarverki þínu með góðum árangri. KRABBINN (22/0-20/7 Starf sem þú ert búinn að inna af hendi fy rir þó nokkru skilar þér árangri. Heima fy rir þarftu að takast á við ábyrgðarhlut. Gamlir rómantískir draumar skjóta upp kollinum en þér tekst að leysa málin með því að vera fastur fyrir. Varastu að láta persónu úrfortið- inni eyðileggja nútíðina fyrir þér. LJÓNIÐ (2 ! /7-23/8 Leggðu á ráðin fyrir framtíðina núna þvi óvíst er að þér gefist síðar tími til að skipu- leggja. Náinn vinur eða ættingi sem hefur staðið gegn áformum þinum hættir að geta haft áhrif á þig. Breyting á högum þínum leiðir til skemmtilegra og tilbreytingaríkara lífernis. Njóttu samvista við fjölskylduna og leyfðu þér að láta hugann reika til fortíðar- MEYJAN (24/8-23/9 Þú kemst að kjarna málsins og finnst mik- ið hafa áunnist. Þú kemst að raun um að ein- hver sem vill ráðleggja þér í fjármálum er í raun ekkert betri á því sviði en þú sjálfur. Farðu ekki út í umferðina á laugardaginn ef þú ert í æstu skapi. Reiknaðu með að verða undir álagi þessa helgi. Margs er krafist af þér og óvíst að þú standir undir því öllu. VOGIN (24/9-22/10 Þér reynist nauðsynlegt að fá hvatningu frá þínum nánustu svo þú getir haldið áfram á þeirri braut sem þú óskar. Þér hættir til að láta tilfinningarnar verða skynseminni yfir- sterkari og þarft að taka þig á til að forðast slíkt. Farðu þér hægt og ihugaðu hvað það er í raun sem þú sækist eftir. SPORÐDREKINN (23/10-22/11 Haltu kímnigáfunni — aðeins þannig tekst þér að ýta leiðindunum á burt. Þótt öðrum finnist áhugi þinn á dulrænum efnum þreyt- andi skaltu spyrja þeirra spurninga sem þér hentar. Þú verður á réttum stað á réttri stundu á laugardaginn og tekst þannig aö komast framhjá hindrunum sem á vegi þín- um verða. Láttu ekki skemmtanaglatt fólk trufla störf þín. BOGMAÐURINN (23/11—21/12 Hugsaðu áður en þú framkvæmir svo ekki verði óvæntar hindranir á leið þinni. Vertu viðbúinn því að takast á við vandamál sem upp kemur og láttu ekki hefta frelsi þitt. Kannaðu bakgrunn mála áður en þú fellir dóma. Ræddu við rétta aðila um lausn vand- ans. Einhver af gagnstæðu kyni biður eftir að þú takir fyrsta skrefið. Þú þarft að vera meira í einrúmi með ástvini þínum. STEINGEITIN (22/12-21/1 Segðu manneskju í áhrifastöðu frá hug- myndum þínum þótt þér finnist þær fjar- stæðukenndar í fyrstu. Vinum þínum finnst þú helst til of leyndardómsfullur en varastu að segja frá áformum þinum fyrr en þau eru fullmótuð. Vertu raunsær þegar þú ráðgerir framtiðina og mundu að ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið. VATNSBERINN (22/1-19/2 Fjölskyldusamkoma er á næsta leiti og þér gefst tækifæri til að létta andrúmsloftið. Þú færð fregnir af einhverjum sem þú hafðir afskrifað úr lífi þinu. Gerðu nauðsynlegar breytingar á lífsháttum þínum til að þið náið saman á ný. Forðastu að fara í gamla farið og krefjast of mikils af þessari persónu og lærðu af fenginni reynslu. FISKARNIR (20/2-20/3 Taktu ekki fljótfærnislegar ákvarðanir varðandi fjármálin. Áhættusöm fram- kvæmd sem kostar peninga ætti að bíða betri tíma. Ferðalag vegna starfs þíns kemur inn í myndina og hugur þinn verður bundinn við framtiðina. Þú tekur öllum tilboðum af fullri alvöru og ert staðráðinn í að nýta þau þér i hag. 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.