Helgarpósturinn - 26.05.1988, Side 27
06 EITURL YFJASM YGL
Snemma morguns þann 30. maí 1984 söfnudust rúm-
lega tuttugu bladamenn saman á bílastœdi Irazu-hótels-
ins í útjadri San José, höfudborgar Costa Rica. Þeir uoru
á leið á blaöamannafund sem Eden Pastora, einn fræg-
asti leiötogi sandínistabyltingarinnar í Nicaragua og nú-
verandi foringi í skœruliöasamtökunum ARDE, haföi
boöaö til í frumskógarbúðunum La Penca, Nicaragua-
megin á San Juan-ánni, sem rennur á landamœrum ríkj-
anna. Pastora haföi ákveðiö aö lýsa því yfir á fundinum
að hann œtlaði að hœtta vopnaðri andspyrnu við stjórn
sandínista í Nicaragua.
EFTIR GUÐIAUG BERGMUNDSSON
Bandaríska leyniþjónustan, CIA,
hafði gefið Pastora 30 daga frest til
að sameinast helstu skæruliðasam-
tökunum, FDN, sem hafa aðsetur
sitt í Honduras, ella myndi hreyfing
hans verða af mánaðarlegum fjár-
stuðningi CIA. Þeim stuðningi mun
hafa verið hætt í apríl 1984, sam-
kvæmt heimildum innan ARDE,
auk þess sem CIA mun þá hafa gefið
yfirvöldum í Costa Rica grænt ljós á
að ráðast til atlögu gegn leynilegum
búðum Pastora. Einnig þrýsti CIA á
um að fá að hafa nánari yfirumsjón
með hernaðaraðgerðum hans.
Pastora neitaði hins vegar að hlýða
skipunum leyniþjónustunnar, nema
alræmdir hershöfðingjar Somosa,
fyrrum einræðisherra í Nicaragua,
væru reknir úr FDN.
Meðal blaðamannanna sem biðu
eftir að komast á fundinn voru
Bandaríkjamaðurinn Tony Avirgan,
sem þá starfaði sem kvikmynda-
tökumaður fyrir ABC-sjónvarps-
stöðina, og „danskur" ljósmyndari
sem kallaði sig „PerAnker Hanserí'.
Eftir nokkra ringulreið, bæði
vegna þess að skæruliðar höfðu
ekki tiltæka nægilega marga bíla og
vegna þess að meina átti Avirgan að
fara á fundinn, var loks haldið af
stað til Boca Tapada, lítils þorps á
landamærunum. Þaðan var farið á
tveimur bátum upp ána að La
Penca. Þar sem skuggsýnt var orðið
ákvað Eden Pastora að fresta eigin-
legum blaðamannafundi til næsta
dags. Blaðamenn söfnuðust engu að
siður í kringum hann og beindu til
hans spurningum um hugsanlega
sameiningu við FDN og innbyrðis
deilur í ARDE vegna þess máls.
ÍRAFAR í
FRUMSKÓGINUM
„Hansen" iagði stóra málmtösku
sem hann geymdi myndavélar sínar
í á gólfið þar sem Pastora og blaða-
mennirnir stóðu. Hann tók síðan
nokkrar myndir, en kvartaði hástöf-
um yfir því að myndavél hans væri
í einhverju ólagi. Myndbandsupp-
taka sem Jorge Quiros, kvikmynda-
tökumaður fyrir Rás 6-sjónvarps-
stöðina í Costa Rica, gerði sýnir svo
hvar „Hansen“ mjakar sér að út-
göngudyrum kofans. Stuttu síðar, kl.
19.20, kvað við mikil sprenging.
Þakið rifnaði af kofanum, djúpur
gígur myndaðist í gólfinu og átta
manns létust samstundis eða síðar
af völdum sára sinna og tæplega
þrjátíu slösuðust, bæði skæruliðar
og blaðamenn, margir hverjir alvar-
lega. Tony Avirgan var þar á meðal.
Önnur hönd hans limlestist, auk
þess sem hann hlaut brunasár og
sár af völdum sprengjubrota.
Mikið írafár greip um sig eftir
sprenginguna. Skæruliði hóf skot-
hríð út í náttmyrkrið, þar sem hann
hélt að árás hefði verið gerð á bæki-
stöðvarnar. Eden Pastora, næstráð-
anda hans, Tito Chamorro, og öðr-
um særðum skæruliða var í flýti
komið um borð í eina tiltæka hrað-
bátinn og farið með þá til nærliggj-
andi bækistöðvar ARDE. Beiðni
blaðamannanna um að þeir starfs-
bræður þeirra sem alvarlegast voru
særðir væru teknir með var synjað.
Orion Pastora, frændi Edens og
helsti talsmaður ARDE, réttlætti
það síðar og sagði: „Við héldum að
þetta væri fyrirsát sandínista og urð-
um að koma skotmarkinu, Eden
Pastora, undan. Við vissum ekki þá
hverjir stóðu á bak við sprenging-
una.“
Blaðamenn voru ekki fluttir í
sjúkrahús fyrr en síðar um kvöldið
og nóttina og þeir síðustu komust
ekki undir læknishendur fyrr en
undir morgun næsta dags, 31. maí.
„Per Anker Hansen" komst burtu
frá La Penca með fyrsta bátnum,
sem lagði af stað einni klukkustund
eftir sprenginguna. Hann reyndist
aðeins vera með tvær skrámur á
hægri handlegg, að sögn starfsfólks-
ins í sjúkrahúsinu sem annaðist
hann. „Hansen" svaf um nóttina í
sjúkrahúsinu og yfirgaf það
snemma næsta morgun. Skömmu
síðar borgaði hann reikninginn í
gistihúsinu þar sem hann hafði búið
í San José og sagðist vera á leið til
Miami í Flórída. „Per Anker
Hansen“ hefur ekki sést síðan.
Tony Avirgan og eiginkona hans,
Martha Honey, sem einnig er blaða-
maður, rannsökuðu tilræðið við
Pastora í meira en ár, og eftir samtöl
við meira en eitt hundrað manns
víðs vegar um heiminn komust þau
að þeirri niðurstöðu að tilræðismað-
urinn hefði verið „Per Anker
Hansen". Maðurinn sem gekk undir
því nafni heitir í rauninni Amac
Galil og er hægrisinnaður líbýskur
hryðjuverkamaður. Hann ferðaðist
um á vegabréfi sem var stolið í íbúð
dansks námsmanns í Kaupmanna-
höfn í desember 1980. Avirgan og
Honey halda því fram í ritlingi sem
þau gáfu út um rannsókn sína á mál-
inu, að Amac Galil hafið verið ráð-
inn til verksins af hryðjuverkahópi
sem samanstendur af Bandaríkja-
mönnum, hægrisinnuðum kúb-
önskum útlögum í Miami og aðilum
innan FDN-kontrahreyfingarinnar,
sem sumir hverjir hafi tengsl við
bandarísku leyniþjónustuna, CIA.
TRÉSMIÐURINN OG
DAVID
Rannsóknin var komin nokkuð
vel á veg og heildarmynd af tilræð-
inu var farin að skýrast, þegar
Avirgan og Honey duttu í lukkupott-
inn. Það gerðist föstudaginn 29.
mars 1985.
Ungur kostaríkanskur trésmiður
Þessi mynd var tekin nokkrum
augnablikum eftir sprenginguna í La
Penca. Tony Avirgan er í köfióttu
skyrtunni.
að nafni Carlos kom við á Rendez-
vous-barnum í miðborg San José á
leið heim eftir vinnu. Á meðan hann
sat aleinn við barinn og sötraði bjór
komu þrír menn inn utan af göt-
unni. Tveir þeirra sögðu þeim þriðja
að setjast niður, panta sér bjór og
bíða þeirra. Carlos heyrði á mæli
mannanna að þeir voru frá
Nicaragua.
Um leið og tvímenningarnir voru
farnir aftur út sneri þriðji maðurinn,
sem sagðist heita David, sér að
Carlosi. „Þú verður að hjálpa mér,“
hvíslaði hann. „Komdu mér í felur.
Ég verð að komast í burtu. Ég vil
ekkert eiga meira saman við þá að
sælda. Þeir ætla að sprengja upp
bandaríska sendiráðið og myrða
háttsetta embættismenn. Fjöldi sak-
lauss fólks mun deyja.“
í stuttu máli var saga Davids á þá
leið, að hann sagðist tilheyra hópi
hægrisinnaðra hryðjuverkamanna
sem starfaði í Mið-Ameríku og væri
í tengslum við öfgasinnaða and-
stæðinga Fidels Castro í Flórída, og
• Leynigengíð á bok við íran-kontra-hneykslið
afhfúpað • Múlaferli í Bandaríkjunum •
Ólöglegir vopnaflutningar til Mið-Ameríku •
Hryðjuverkamenn á vegum CIA reyndu að myrða
kontraforingfann Pastora • Tilrœðismaðurinn
ferðaðist með danskt vegabréf • Fréttamenn
afvegaleíddir • Rannséknarmönnum hétað líflúti
• llpphafið mú rekja til leynistríðsins gegn
Castro
HELGARPÓSTURINN 27