Morgunblaðið - 08.07.1965, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.07.1965, Blaðsíða 20
20 MORCUNBLAÐIÐ Fimmludagur 8. júlí 1965 CEORCETTE HEYER FRIÐSPILLIRINN — Þetta er rómantískur staður. Ilingaff verffum viff aff fara ef /iff verffum ástfangin hvort af öðru. — Þú vjrðist alveg gleyma þessari smánarmeðferð, sem ég hef orðið fyrir. Hvað ætli mamma segði, ef hún vissi af þessu? — Sleppum því. Þú mátt ekki gera svona mikið úr þessu. Við skulum í guðs bænum gleyma því! Hún var enn móðguð, en hún sá fram á það, að ef hún héldi málinu meir til streitu, mundi það bara lækka hana í hans aug- um. Verst þótti henni, að hún hafði sýnt sig vera minni mann en Soffía í þessu atviki, sem gerzt hafði. Hún píndi sig til að brosa og segja hreystilega: — Þetta er rétt hjá þér, ég hef leyft mér að taka mér þetta of nærri. Þú skalt fullvissa hana frænku þína, að ég ætli ekki að minnast á það oftar. Þetta fékk hún launað, því að hann greip hönd hennar, og sagði: — Þarna þekki ég þig aft- ur! Ég vissi, að ég hafði þekkt þig rétt! 8. kafli Þær hittust ekki aftur fyrr en daginn, sem farið var til Merton, þar eð ungfrú Wraxton, sem þótt- ist viss um, að hún væri orðin illræmd, hafði tekið það ráð að heimsækja systur sína í Kent, sem var þekkt að því að láta gesti sína vinna fyrir mat sínum. Eugenia var nú ekkert hrifin af að fara í sendiferðir fyrir frú Ealing eða leika við afkvæmi hennar, sem var stór hópur, en hún þóttist viss um, að sér væri ráðlegast að hverfa frá London, þangað til hvíslingarnar væru um garð gengnar. Þannig slapp Rivenhall-fjölskyldan við refs- ingarheimsóknir hennar í heila sjö daga og það var næstum nægileg uppbót fyrir það, sem Soffía hafði gert af sér. Það barst nú reyndar ekki til eyrna frú Ombersley, en vitanlega vissi yngri kynslóðin 1 húsinu um það, og sumir urðu hneykslaðir, en aðrir, einkum þó Hubert og Selina töldu þetta hafa verið sniðugt bragð hjá frænku. Ekki hafði þetta nú neinar alvarlegar afleiðingar, og enda þótt hún yrði fyrir talsverðri stríðni af hendi hins unga frændfólks síns, beindist hugur þeirra brátt í aðra átt. Miklu skemmtilegra umræðuefni bauðst þeim fljót- lega, í mynd Bromfords lávarðar, sem kom snögglega inn fyrir sjónhring þeirra og var talinn að gildi jafn himnabrauðinu góð- kunna, sem rigndi af himnum ofan. Bromford lávarður, sem var næstum óþekktur hjá fína fólk- inu, hafði nýlega, við lát föður sins, erft lítilfjörlegt barónssetur. Hann var eina barn foreldra sinna, þar eð öll systkini hans (sem fólk sagði ýmist, að hefðu verið sjö eða sautján) höfðu dáið 1 bernsku. Líklega hefur það verið þess vegna, að móðir hans taldi sig ekki mega sleppa hend- inni af honum, sökum lélegrar heilsu hans. Að minnsta kosti kom engin önnur ástæða fram, enda þótt Soffía benti þeim nú á, að gildvaxið sköpulag þyrfti ekki að vera merki um sterka heilsu. Hann hafði menntazt heima og enda þótt einhverntíma hefði verið ymprað á því að senda hann til Oxford, hafði tímabært kvef orðið til þess að bjarga honum frá háskólanámi. Bromford lávarður vissi vel, að lungu erfingja hans voru eitt- hvað veil, og móðir hans varði til þess nokkrum vikum að út- lista það daglega fyrir manni sínum, að hann þyldi ekki lífið í Oxford, og fékk hann þannig til að hætta við þessa fyrirætlun. Henry var því sendur, í fylgd 22 klerks nokkurs, sem móðir hans treysti mjög á, til Jamaica, til þess að dvelja þar hjá landsstjór- anum, frænda sínum. Loftslagið þar var sagt heilsusamlegt fyrir veik lungu, og það var ekki fyrr en Henry var búinn að vera fjóra daga á sjónum, að móðir hans uppgötvaði, að á Jamaica komu stundum fellibyljir, sem ætluðu allt að drepa. Það var nú orðið of seint að kalla hann heim og Henry var afskaplega sjóveikur, en lenti í Port Royal og kenndi þá alls ekki hóstans, sem mamma hans hafði verið' svo hrædd við. Enginn fellibylur kom þarna, meðan hann dvaldi þar, til að sópa honum á sæ út, og þegar hann kom heim til Eng- lands, rétt áður en hann varð myndugur, var hann orðinn svo feitur, að mamma hans gat ekki annað eð hrósað happi yfir lukku legum árangri tiltækis síns. En hún tók bara ekki eftir því, að þessi fjarvera hans frá henni í hálft annað ár, hafði gert hann því algjörlega fráhverfan að gefa sig undir stjórn hennar og vald. Sarnkvæmt ráði hennar fór hann í þykkari sokka, batt trefla um hálsinn, breiddi hlý teppi yfir fæturnar á sér, og forðaðist allan óheilnæman mat, en þegar hún ráðlagði hoiium að fara ekki í sollinn í London, sagði hann, eftir nokkra umhugsun, að hann vildi nú heldur eiga heima í Lon- don, og þegar hún benti honum á mjög álitlegt konuefni, þakkaði hann henni fyrir, en kvaðst ekki enn vera búinn að ákveða, hvers konar konu hann vildi eiga. Hann reifst ekkert út af þessu en sneri bara þegjandi baki við þessu álitlega konuefni og sett- ist að í London. Móðir hans fór að segja vinkonum sínum, að Henry gæti látið laða sig en ekki reka, en skósveinninn hans, sem var hispurslaus í orðum, sagði að hans hágöfgi væri bölvaður þverhaus. Hann hafði nú verið i borginni að skemmta sér um nokkurt skeið áður en Rivenhallfjölskyldan hafði hugmynd um tilveru hans, nema þá mjög óljóst. Kunningj- ar hans (sem Hubert sagði, að væru samvaldir leiðindapokar) voru engir sérstakir kunningjar fjölskyldunnar, og það var ekki fyrr en hann hitti Soffíu í Almackklúbbnum og dansaði við hana, að hann birtist þeim í allri sinni dýrð. Því að Bromford lá- varður, sem lét hvorki á sig bíta fegurð Ceciliu né forsjá móður sinnar, ákvað þegar í stað, að Soffía væri alveg tilvalin kona handa sér. Hann kom í heimsókn á Berkeleytorgið og einmitt þeg- ar Hubert og Selina voru heima hjá móður sinni. Hann stóð við í hálftíma og veitti gestgjöfum sínum ýmsan fróðleik, svo sem um jurtalíf á Jamaica, áhrif róandi meðala á mannlegan lik- ama, og fjölskyldan hlustaði á hann hissa og móðguð, þangað til Soffía kom inn í stofuna. Þá upp- J lukust augu allra og þau skildu, J hvaða erindi lávarðurinn hafði átt með því að heiðra húsið með morgunheimsókn, og leiðindi þeirra breyttust í illkvittnislega kæti. Biðill Soffíu varð á svip- stundu efni til allskonar glanna- legrar gamansemi, og ungling- arnir kepptust við að ljúga hann fullan. Enginn strætasöngvari mátti upphefja sína raust úti á götunni, án þess að Hubert og Cecilia segðu Bromford lávarði, að þarna væri verið að syngja ástaróð til Soffíu, og þegar mað- urinn var forfallaður í þrjá daga, sökum magaveikí, var sagt, að hann hefði háð einvígi fyrir hin fögru augu hennar, og sagnir hans af Vestur-Indíum urðu svo ægilegar í meðförum systkinanna að frú Ombersley og ungfrú Adderbury gátu ekki stillt sig um að hreyfa mótmælum. En þó að frúnni þætti þessi gamansemi ganga heldur langt, þótti henni í aðra röndina gaman að þessari ásókn hans á frænku hennar. Hann fór að koma í heimsókn af minnsta tilefni, gekk daglega í Garðinum, einungis til að geta hitta Soffíu, bað mömmu sína að koma sér í nánari kynni við frú Ombersley og að bjóða Soffíu með sér á hljómleika, þar sem gamla tónlistin var leikin. Hann var algjörlega ónæmur fyrir öllu háði, og þegar mamma hans gaf honum í skyn, að Soffía væri varla hæf kona fyrir alvörugef- inn mann, þar sem hún væri öll i allskonar tiltektum og hégóma, kvaðst hann áreiðanlega mundu geta beint huga hennar inn á al- varlegri brautir. En hámark skemmtunarinnar af þessu, fannst unga fólkinu, var þó það, að Charles, sem var svo frá'bitinn öllum látalátum og gamansemi fór af einhverjum óskiljanlegum ástæðum að ala á hans hágöfgi. Charles sagði, að það væri ýmislegt gott til í Bromford lávarði. Að tal hans bæri vott um góða skynsemi og lýsingar hans frá Jamaica mjög eftirtektarverðar. En Selina (sem Charles sagði, að væri orðin óþarflega kjaftfor), sagði að koma lávarðarins væri öruggt merki fyrir Charles til að leggja af stað í klúbbinn sinn. Lífið þarna við Berkeleytorgið var orðið fullt gamans og til- breytingar og olli því bæði nær- vera lávarðarins, undirbúning- urinn undir dansleikinn, gesta- straumurinn á hverjum degi og tiltektir Soffíu. Jafnvel Omibers- ley lávarður tók eftir þessu. — Svei mér ef ég veit, hvað er hlaupið í ykkur öll, því að hér áður var hérna álíka skemmtilegt og í dauðs manns gröf! sagði hann. — Ég skal segja þér frú mín góð .... ég held svei mér, að ég verði að biðja hann York að líta inn í samkvæmið okkar. Ekkert formlegt, en ég trúi ekki öðru en hann líti hér inn í hálf- tíma eða svo. — Ætlarðu að fara að bjóða hertoganum af York á ballið okkar? spurði frúin, alveg stein- hissa. — Þú hlýtur að vera alveg frá þér, góði maður! Tíu eða kannski tólf pör í setustofunni og eins og tvö spilaborð í Rauða salnum! Þú lætur þér vonandi ekki detta þetta í hug! — Tíu eða tólf pör? Nei, Dass- ett væri þá ekki að tala um rauða dregla og garðtjöld, ef um svo lítið samkvæmi væri að ræða, sagði lávarðurinn. Yið þessi ískyggilegu orð, fór hrollur um frúna. Að því frá- töldu, að hún hafði ákveðið dag- inn og áminnt Ceciliu að gleyma ekki að senda boð til leiðinlegrar stúlku, sem var guðdóttir henn- ar, hafði frúin ekki neitt hugsað um þessa væntanlegu veizlu. Hún herti sig nú upp í það að spyrja frænku sina, hve margir gestir væru væntanlegir, og þeg- ar hún heyrði svarið, hafði hún næstum fengið krampa. Hún neyddist til að drekka styrkjandi meðal í vatni, sem Cecilia hafði þrýst í hönd hennar, áður en hún fengi svigrúm til mótmæla. Svo sat hún með meðalið og þefaði af ediki, og hugsaði til þess með hryllingi, sem Charles mundi segja um þetta. Soffía var tutt- ugu mínútur að gera henni skiljanlegt, að úr því að Charles yrði ekki látinn bera kostnaðinn af þessu, þá varðaði hann ekkert um það, en jafnvel þá óaði frúnni við þeirri stund, er þetta bærist honum til eyrna, og hún gat varla horft á hann koma inn í stoíuna, án þess að kippast við. Svo vel vildi til fyrir fram- gang fyrirtækisins, að Charles hafði ekkert um það heyrt, þega- ar hópurinn lagði af stað í heim- sóknina til greifafrúarinnar af Villacanas í Merton. Allt virtist spá góðu .... greifafrúin hafði skrifað frúnni mjög vingjarn- legt bréf, og sagzt hlakka til að sjá hana, og bað hana að hafa eins mörg sinna skemmtilegu barna með sér og hún vildi. Sólin skein og engin hætta virtist á neinum aprílskúrum, og ungfrú Wraxton, sem hafði komið aftur til borgarinnar í tæka tíð til að taka þátt í þessari skemmtiferð, var í prýðilegasta skapi, sem jafnvel Soffía naut góðs af. Þórshöfn Umboffsmaffur Morgun- blaðsins á Þórshöfn er Helgi Þorsteinsson, kaupmaður og í verzlun hans er blaffið selt í lausasölu. Reyðarfjörður KRISTINN Magnússon kaupmaffur á Reyffarfirffi, ei umboðsmaffur Morgunblaðs ins þar í kauptúninu. Að komumönnum skal á þaf bent aff hjá Kristni er blað ið einnig selt í lausasölu. SeyðisfjörðuL UMBOÐ Morgunblaðsins Seyffisfjarffarbæ er í Verzi Dvergasteinn. Blaðiff er þai einnig í laugasölu fram til kl. 11,30 á kvöldin. „Bar inn“, veitingastofa, hefi blaðiff í Iausasölu. AKUREYRI Afgreiffsla Morgunblaðs ins er að Hafnarstræti 9/. simi 1905. Auk þess að annast þjón ustu blaðsins við kaupend- ur þess í bænum, er Akur eyrar-afgreiffslan mikilvæg ur hlekkur í dreifingarkerfi Morgunblaðsins fyrir Norð urland allt. Þaffan er blaffið sent meff fyrstu beinu ferð- um til nokkurra helztu kauj staffa og kauptúna á Norffui landi, svo og til fjölda ein staklinga um allan Eyjaf jí Á Egilsstöðun HJÁ Ara Björnssyni i Egii staðakauptúni er tekið móti áskrifendum að Morg unblaðinu. Þar í kauptún- inu er Morgunblaðið selt gestum og gangandi i Ás- bíói og eins í Söluskála kaup félagsins. JAMES BOND Ettir IAN FLEMINC ÍECSET SESV/CE AQENT MMES B0MP ' OUT TO SMfi&H SUSS/AN A6ENT... K AS ...H/HOBONP POES NOT VET ÁCNON /S THE S/SL VESPE/Z K * MATH/S Of THE PEUX/EMB BUZEHU tells h/m he has been allottep AV UNPEP-COVEP ASS/STHNr. . . Bur UE MJS BEEN STUPV/NS THE PUSS/ANASENT LE CH/EFPE /N THE CfíS/NOAT POyfíLE-L ES-EAUX KT 25 James Bond, starfsmaður brezku unni segir honum, að honum hafi En Bond hefur að undanförnu gefið leyniþjónustunnar, er á hælum rúss- verið fengin leynilegur aðstoðarmað- rússneska njósnaranum Le Chiffre nesks njósnara.... ur, sem er, án vitneskju Bonds, stúlk- góðar gætur , spilavítinu Royale-les- Mathis frá frönsku leyniþjónust- an Vesper. eaux.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.