Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 48. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975 Prentsmiðja MorgunblaSsins. Símamynd AP. jArnbrautarslys — Slökkviliðsmenn að starfi i einum vagni lestarinnar sem ók gegnum brautartálma í Moorgate-stöðinni í London i gær. Þetta er mesta neðanjarðarjárnbrautarslys í sögu Lundúna. Ræningjarnir 1 París hurfu „út í buskann” Lest ók á - 29 fórust London, 28. febrúar. AP. Reuter. NTB. ALLT AÐ 29 biðu bana og 90 slösuðust þegar neðanjarðarjárn- brautarlest fullhlaðin farþegum ók á fullri ferð á múrvegg í enda Viðræður að nýju í Danmörku Kaupmannahöfn 28. febr. NTB. AÐILAR vinnumarkaðarins i Danmörku hófu nýjar viðræður f dag til að afstýra verkföllum sem geta náð til 300.000 verkamanna. Sigurd Wechselmann rfkis- sáttasemjari stjórnaði viðræðun- um. Hann hefur þegar notað rétt sinn til að fresta verkföllunum f hálfan mánuð. Þótt ekkert hafi verið látið upp- skátt um viðræðurnar er talið vfst að aðallega hafi verið fjallað um vfsitölubætur. Vinnuveitendur vilja afnema þær en verkamenn halda þeim og sáttasemjari reyn- ir að finna málamiðlunarlausn. Simamynd AP. MANNRAN — Þessi mynd af vestur- þýzka stjórnmálamanninum Peter Lorenz, blindgangna í jarnbrautarstöð f miðborg Lundúna i dag. Þetta er mesta slys 150 ára sögu neðanjaróarjárnbrauta Lundúna. Tiu klukkustundum eftir slysið var sagt að búizt væri við að fleiri lík fyndust í brakinu. Talið er að um 400 manns hafi verið í lestinni þegar slysið varð. Flestir þeirra sem týndu lffi voru í þremur fremstu vögnunum sem klesstust saman þegar lestin þeyttist gegnum tálmanir við enda brautarspora i Moorgate- járnbrautarstöðinni. Flestir farþeganna í þremur aftari vögnunum gátu staulazt út óstuddir en marðir og brákaðir. Björgunarstarfið var erfitt og nota varð logsuðutæki til að bjarga fólki úr brakinu. 250 lög- reglumenn, slökkviliðsmenn og hjúkrunarkonur tóku þátt i björg- unarstarfinu og unnu baki brotnu í allan dag. Lestarstjórinn er enn ófundinn en talið er að hann hafi lokazt fremst i lestinni, og sé ef til vill á lífi. 19 ára lögreglukona og einn karlmaður voru i brakinu í tíu tíma áður en þeim var bjargað. Talið er að þau séu illa slösuð, og liðan margra annarra sem slösuó- ust er sögð alvarleg. Slysið varð á aðalumferðartim- anum í morgun og flestir farþeg- anna voru frá útborgum Lundúna og á leið til vinnu sinnar í fjár- málahverfinu. Fjöldi sjúkrabif- reiða var sendur á staðinn og voru síðan stöðugt i förum milli stöðv- arinnar og nærliggjandi sjúkra- húss. Samtímis skoruðu yfirvöld á fólk að gefa blóð. Aðkoman á slysstaðnum var hræðileg að sögn björgunar- manna. Neyðaróp slasaðra berg- máluðu i dimmum göngunum og hitinn niðri var gifurlegur. Sjónarvottar segja að lestin hafi virzt stjórnlaus og verið á 60 til 70 km hraða og hraðinn síðan aukizt og hún þeytzt gegnum stöðina inn á hliðarspor þar sem hún rakst á varnartálma og loks á múrvegg- inn. Rannsókn slyssins er á frum- stigi en lestarstjórar ræða þann möguleika að hemlar lestarinnar 'París, 28. janúar. NTB. FRANSKA lögreglan stóð uppi ráðþrota í kvöld eftir flótta þriggja vopnaðra ræningja frá banka í miðri París. Banka- ræningjarnir sluppu úr umsátri lögreglunnar og höfðu á brott með sér þrjár konur sem þeir höfðu f gíslingu og eina milljón franka. Seinna fundust konurnar heilar á húfi en ræningjarnir virðast hafa gufaó upp. Lögreglan telur að þeir séu enn i Paris .en þeirra er leitað um allt Frakkland. Ræningjarnir rændu bankann Societé General de Banque við Avenue de la Republique i gær- kvöldi en komust ekki undan með ránsfenginn þar sem gjaldkeran- um tókst að þrýsta á neyðarbjöllu. Ræningjarnir skutu hann, tóku fimm gísla og bjuggust til varnar i bankanum. Síðan kröfðust ræningjarnir þess að fá að fara óhultir úr landi. Þeir kröfðust þess að fá bifreið til umráða, tvær byssur og tvær milljónir franka í lausnargjald fyrir gísiana. Eftir mikið þref féllst lögreglan á að afhenda þeim bifreið og helming lausnargjaldsins sem þeir kröfðust, en þeir fengu ekki byssurnar. Þá komu ræningjarnir út, ýttu gíslunum á undan og miðuðu á þá byssunum. Þeir tóku konurnar með sér i bilnum, sem hvarf á ofsahraða. Síðan hófst æðisgenginn eltingarleikur um götur Parísar. Ekki leið á löngu þar til tiu lögreglubílar tóku þátt í eltingar- leiknum. Þeir höfðu þó ekki roð við bíl ræningjanna þótt þeir ækju á 140 km hraða enda var það sportbíll af gerðinni Alfa Romeo en konurnar fundust heilar á húfi og bíllinn tómur. STYRK FAGNAÐ Einkaskeyti frá AP. London, 28. febrúar FORSVARSMENN sjávarútvegs- ins i Bretlandi hafa fagnað þeirri ákvörðun stjórnarinnar að styrkja fiskiskipaflotann með 6,25 milljónum punda vegna aukins eldsneytiskostnaðar og lækkunar á fiskverði, en viðbrögð þeirra lýsa varkárni. Talsmaður brezka togarasam- bandsins sagði að ákvörðunin væri ,,mjög gleðileg" en tók fram að hún drægi aðeins úr sársauk- anum og læknaði ekki sjúkdóm- inn. Hann taldi að með þessum styrk fengi sjávarútvegurinn aðeins viðbótarfrest til að ráða fram úr vandamálum sínum. Hann benti á að kostnaður við útgerð togara frá Norður- Englandi næmi 1200 pundum á dag að meðaltali en hagnaðurinn sem þeir skiluðu væri aðeins 900 pund að meðaltali. sem rænt var í Vestur-Berlín, barst vest- ur-þýzkri fréttastofu frá mannræningjun- um. A spjaldinu framan á honum stendur: „Peter Lorenz, fangi hreyfingarinnar 2. Ræningjar Lorenz fá kröfu framgengt 2 föngum sleppt en 6 öðrum ekki Vestur-Berlín, 28. febrúar. Reuter. GENGIÐ verður að kröfu ræn- ingja Peter Lorenz, frambjóð- anda kristilegra demókrata f borgarstjórakosningunum f Vestur-Berlín á sunnudaginn, um að sleppt verði tveimur föngum sem voru handteknir eftir mótmælaaðgerðir vinstri sinna í Vestur-Berlín í nóvem- ber að sögn lögreglunnar f kvöld. Hins vegar höfðu ræningj- arnir einnig krafizt þess að sex aórir stjórnleysingjar yrðu látnir lausir og sett fram fleiri kröfur sem lögreglan í Vestur- Berlin minnist ekki á. Þó boð- aði hún nánari tilkynningu um málið siðar i kvöld. Fangarnir tveir verða látnir lausir kl. 9 í fyrramálið. Hinir fangarnir sex sem ræningjar Lorenz vilja fá leysta úr haldi voru dæmdir fyrir alvarlegri afbrot, meðal annars sprengju- árásir, morðtilraun og banka- rán. Helmut Schmidt kanslari fór til skrifstofu sinnar í dag i fyrsta skipti síðan hann veiktist af lungnabólgu fyrir tólf dögum og boðaði strax stjórn- ina og formenn þingflokkanna til fundar um rán Lorenz. Þeir sátu á fundi um málið i allan dag. Ræningjarnir sem kalla sig Télaga í „Hreyfingunni 2. júni“ hótuðu því í dag i bréfi til fréttastofunnar DPA að myrða Lorenz ef yfirvöld slepptu ekki föngunum sem eru úr samtök- unum sem eru kennd við Baader og Meinhof. Þeir krefjast þess enn fremur að fá 20.000 mörk og fjögurra hreyfla þotu til umráða til þess að komast undan ásamt föng- unum. Áður á að flytja fangana með þotunni til Vestur- Berlinar. Ræningjarnir krefjast þess að fyrrverandi borgarstjóri Vestur-Berlinar, séra Heinrich Albertz, verði með í þotunni. Auk þess er þess krafizt að lög- reglan hætti rannsókninni á ráni Lorenz og ræningja hans. Yfirvöldunum var gefinn 72 klukkutíma frestur til að ganga að þessum kröfum. Að öðrum kosti yrði Lorenz myrtur. Til þess að sýna að Lorenz sé heill á húfi hafa mannræningj- arnir afhent fréttastofum mynd af honum í haldi hjá sér. Þegar myndin var afhent ásamt bréfi hafði ekkert spurzt til Lorenz í heilan sólarhring.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.