Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975 ' Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen Já, mig minnti það; þú taldir þær fyrir mig? Já, þú lézt mig telja þær, og mig minnir ekki betur en þær væru átján, jú, það veit drottinn minn, þær voru, sem ég lifi, átján. Og í dag eru þær ekki nema sextán; skoðum þá til, fjórar eru farnar, ekki hafa þær hlaupið sjálfar úr sánum; því segi ég það, það verður að hafa gát á því hérna, ef það á ekki að stela mann út á húsganginn; en nú getur það stolið fyrir mér, eins og það vill; ekki sé ég, þó það steli úr mér augunum, ég er ekki orðinn maður til að líta eftir því. En viltu ekki skreppa snöggvast upp til mín, Guðmundur minn, fyrst þú komst? Mig langar til þess að líta snöggvast ofan i fremstu kjöttunnuna hérna; ég held hún sé búin að míga niður úr sér öllum pæklingum; en ég ræð ekki við helluna ofan á henni. Ójú, fóstri minn, ég skal koma, sagði Guómundur og fór upp og tók helluna ofan af tunnunni; það er ekki von, að þú ráðir við þetta bjarg, fóstri minn! Af þvi ég er orðinn svo dauður og farinn, að ég þoli ekkert á mig að reyna fyrir mjöðminni á mér — ónei, ekki hefur hún leikið enn til skemmda, held ég, tunnugreyið. — Því segi ég það, ég er ekki orðinn fær um aó eiga lengur í þessu búskaparbasli, Guðmundur minn! Ég vildi helzt, að þú værir búinn að taka við því öllu saman og ég mætti hírast hérna í kofunum; hafa skemmugreyið mitt út af fyrir mig; nokkrar kindur í heyjum og afgjaldið af þessum fáu jarðaskikum; ég vil þú farir að taka við jörðinni hérna, en ekki legg ég ofan á hana, það segi ég þér HÖGNI HREKKVÍSI fyrir; þú verður að taka við kofunum hérna eins og þeir eru; og þeir eru líka allstæðilegir, nema hvað göngin eru farin að síga dálítið saman, en að öðru leyti getur bærinn hérna lafað uppi nokkur ár enn. Hvað segir þú um þetta, viltu ekki fara að reyna til að hokra? Ég veit ekki, hvað ég á að segja um það, fóstri minn. Og þá yrðir þú, vænti ég, að taka þér einhvern kvenmannsræfil. Já, ekki treysti ég mér að búa með henni Guddu hérna. Það lái ég þér ekki, Guðmundur minn. Ég er búinn að fullreyna mig á henni, og ekki ætla ég að ráða þér Sagan af kóngsdóttur og svarta bola boli væri ekki til í öllu ríkinu. En það var ekki vió það komandi, þaö varð aó slátra honum, ekki um annað að tala. Þegar Katrín konungsdóttir heyrði það, varð henni mjög illa við og fór niður í fjós til bola. Þar stóð hann með hangandi höfuð og var eitthvað svo stúrinn á svipinn, að Katrín fór að hágráta. „Hvers vegna ertu að gráta?“ spurði boli. Þá sagöi hún honum, aó konungurinn væri kominn heim aftur, og að drottningin hefði lagst veik, og sagt, að hún gæti ekki komist á fætur aftur, nema hún fengi kjöt af honum svarta bola sjálfum aó boróa. „Ef mér verður komið fyrir kattarnef, þá verður ekki verið lengi að gera út af við þig líka,“ sagói boli. „Ef þú ert sama sinnis og ég, þá förum vió burtu héóan í nótt.“ Katrínu konungsdóttur fannst að vísu leiðinlegt aó fara burtu frá föður sínum, en þó var enn verra að vera undir sama þaki og drottningin, og svo lofaði hún bola að hún skyldi koma með honum. Um kvöldið, þegar allir aðrir voru háttaðir, læddist Katrin út í fjós til bola, og svo lögóu þau af stað eins fljótt og þau gátu. Boli bar konungsdóttur á bakinu. Hann munaði ekki mikið um þaó, og hann fór hratt yfir. Þegar svo fólk kom á fætur næsta morgun og átti aó fara að slátra svarta bola, þá var hann allur á burt, og þegar konungur kom og spurði eftir dóttur sinni, var hún líka horfin. Hann lét leita hennar um allt landið og lýsa eftir henni vió allar kirkjur, en enginn hafði séó neitt til hennar né heldur til svarta bola. En meðan á þessu gekk, fór boli um mörg lönd meó Katrínu konungsdóttur, og svo komu þau að stórum koparskógi. Tré og greinar og blöð og blóm, allt var úr kopar. ÍTteóTnorgunkaffinu □ Frá Rómaborg berast þær fréttir, að búið sé að berja saman söngleikinn „Ari“ sem byggir á sögu- legum persónum nú- tímans svo sem eins og skipakóngnum Aristotle Onassis (Ari), konu hans Jacqueline Onassis (Kennedy), glaumgos- anum Paul Getty, — milljónarasyninum, sem rænt var í Róm og eyrað var skorið af. Þar koma líka við sögu furstahjón- in af Monaco. í frásögn af þessum söngleik um hina ríku segir að ekki fjalli hann eingöngu um Onassis gamla heldur hinn alþjóðlega peninga- aðal, almennt talað. Söngleikurinn verður sýndur í Rómaborg í haust, en kvikmynda- félög í Lundúnum og New York hafa keypt réttinn til að kvikmynda þennan söngleik. Frá borginni Perth í Ástralíu berast fregnir um konu sem reykt hefur lengi og náð háum aldri. Konan sem fyrir skömmu varð 105 ára, skýrði frá því á afmælis- daginn, að hún myndi af heilbrigðisástæðum hætta að reykja en hún kvaðst aðeins hafa verið 6 ára er hún byrjaði að reykja. Sú gamla sem er að sjálfsögðu á elli- heimili, krafðist þess þó, að áður en hún tæki á móti ættingjum og vinum á þessu stóraf- mæli sínu, fengi hún sinn daglega sjúss- skammt og engar refjar. Árla morgun fyrir skömmu, vakti það athygli fólks á götum í einu hverfa Bogata höfuðborgar Venezuela, að feikna hlátrarsköll ungrar konu bárust langar leiðir því þetta var árla mogun sem fyrr segir og kyrrð. í ljós kom að konan hafði verið rænd þarna á götunni rétt áður. Þjófur komið á harðahlaupum og grip- ið veski hennar og var horfinn með það sama. — En að það gæti verið konunni slíkt hláturs- efni vakti furðu vegfar- enda. — Hún sagði þá að hún gæti ekki varist ofsahlátri við tilhugsun- ina um það þegar þjófur- inn færi að kanna veskið og innihald þess. — Konan var á leið til læknisskoðunar og í veskinu voru glös og staukar með þvagsýni og fleira af því taginu!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.