Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975 19 — Karvel Framhald af bls. 10 Framkvæmdastofnunina samþykkti stjórn stofnunarinnar 9. desember s.l. að Byggðasjóður gefi eftir helm- ing vanskila hafna hjá Byggðasjóði að undanskildum vanskilum Akur- eyrarkaupstaðar þar sem helmingur yrði lánaður til 10 ára með 8% vöxtum og skuld þeirri breytt i ísl. krónur. Lánstíminn var siðar lengdur í 16. ár. Þessi ákvörðun stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar var bundin þvi skilyrði, að Hafnabóta- sjóður greiði helming vanskilanna til Byggðasjóðs, að hálfu á árinu 1974 og að hálfu á árinu 1975 við afgreiðslu lána Framkvæmdasjóðs til Hafnabótasjóðs. Það sem til uppgjórs komi frá Hafnabótasjóði samkvæmt framan- sögðu yrði sem hér segir: (Þús. kr ). Akureyrarkaupst. Vanskil Hafnabótasjóður alls 1974 1975 28.400 7.100 7.100 Eyrarhreppur 230 57 58 Flateyrarhreppur 778 194 195 Hólshreppur 4.500 1.125 1.125 Höfðahreppur 182 45 46 Neskaupstaður 6.500 1.625 1.625 ólafsfjarðarkaupst. 7.400 1.850 1.850 Patrekshreppur 265 66 66 Sauðár krókskau pst. 324 81 81 Vopnaf jarðarhr. 20.800 5.200 5.200 69.379 17.343 17.346 Lán Framkvæmdasjóðs til Hafna- bótasjóðs 1974 verður í tvennu lagi þ.e. 54 millj. kr. til 15 ára með 17% breytilegum vöxtum og 21 millj. kr til 12 ára með 6V«% vöxtum og bundið visitölu byggingarkostnaðar. Virðingarfyllst, Framkvæmdastofnun ríkisins Guðmundur B Ólafsson. — Messur Framhald af bls. 23 víkurprestakall, messar. Sókn- arnefndin. Ytri-Njarðvíkursókn Messa kl. 2 í Stapa. Séra Páll Þóróarson, umsækjandi um Njarðvíkursókn, messar. Sókn- arnefnd. Keflavíkurprestakall Kvöldvaka verður í Stapa kl. 8.30 siðd. Fjölbreytt og vönduð dagskrá. Bilferð verður frá BSK klukkan 8.15 síðd. Séra Björn Jónsson. XXX Stokkseyrarkirkja Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 2 síðd. Sóknarprestur. Eyrarbakkakirkja Æskulýðsmessa kl. 5 siðd. Sóknarprestur. — Jón úr Vör Framhald af bls. 16 Nú færi kannski best á þvi að láta söguna enda hér, en því mið- ur, sannleikans vegna verðum við að halda áfram. Útgefandinn er hinn elskuleg- asti maður. Hann hafði engu lofað varðandi útgáfu þessarar ágætu bókar. Alltaf gaman að tala við rithöfunda. En timarnir eru erfiðir, eins og allir vita. Svona bók þarf að seljast i 750 eintökum á fyrsta ári miðað við að upplagið sé 1 200 eintök, ef endar eiga að ná saman. Og hann treysti sér ekki til að taka áhættuna að þessu sinni. Það tók þvi ekki að taka hand- ritið upp úr tösku — og i stað þess að halda til vinnu sinnar varð rithöfundurinn okkar að ganga þau þungu spor, sem lágu til vin- arins, með þessi erindislok og hin- ar tvö hundruð þéttrituðu hand- ritssíður. — Ekki tekur þvl að harma örlög kápubaksspjallsins. ★ En meðal annarra orða. Höfund- ur þessarar umræddu bókar hefur ritað 20 skáldsögur, býr ekki við nein skáldalaun — og enginn fær viðbótarritlaun nema hann riti bækur, sem gera I blóðið sitt, einhver vilji gefa þær út. Jón úr Vör |Wor0MnbIíit>il> rvlHRRGFniDRR I mRRKflfl VÐRR ÞAÐ er sagt, að menn geti orðið svo gerruglaðir f svartri þoku að þeim sýnist árnar renna uppí móti, einnig eru þess dæmi að sú bardagavilla hafi hent menn að þvælast yfir f lið andstæðinganna og taka að berjast með því að fella sína eigin liðsmenn. Nú hefur sú villa kontið yfir suma sjálfstæð- ismenn hérlendis að þekkja ekki sósialista frá sjálfum sér og sósiölsk vinnubrögð frá einkaframtaki. Afdankaður skilningur Viða um heim sjáum við það gerast þjóðum til óþurftar, að einkaframtaksmenn og eftir ASGEIR JAKOBSSON í mikilli villu renna ámar uppímóti sósíalistar hanga eins og hund- ar i bandi í 19du aldar merk- ingu orðanna einkaframtak og sósfalismit Sá skilningur ríkir hjá þeim fyrrnefndu að öll stjórnun sé andstæð einkafram- taki og hinum siðarnefndu að allt einstaklingsframtak sé and- stætt sósfalisma. Þar sem stjórnvöld hafa fylgt þessum 19du aldar kenningum út i æs- ar hafa bæði kerfin leitt til ófarnaóar. Báðir aðilar hafa svo hlakkað yfir óförum hins. „Sjá- ið þið, hvernig fer þar sem skefjalaus samkeppni ræður,“ segja sósi'alistar og hinir svara: — „sjáiðþiðhvernigþærþjóðir dagast afturúr sem framkvæma skeflalausan sósíalisma." Frjálslynd stjórnvöld bæði til hægri og vinstri hafa áttað sig á yztu mörkum kerfanna og reynt að fara bil beggja. Ráðherra, sem vill efla einstaklingsfram- tak hlýtur að taka í taumana, þegar það blasir við honum ranghverfan á einstaklings- framtaki og auðsætt er að ekki muni annað gerast en allir falli og bíði tjón af samkeppninni. Sá ráðherra, sem ekki gerði þetta væri óvinur einstaklings- framtaksins i raun og legði sósialistum vopn í hendur. Það þarf ekki mikla skarpskyggni til að sjá fyrir, hvaó myndi ger- ast, ef „einstaklingsframtakið“ fengi að njóta sin með þeim hætti, sem óskað er eftir af sumum „einkaframtaksmönn- um“ við Húnaflóann. Vinnslu- stöðvarnar við Húnaflóa eru þegar i fjárþröng og farnar að leita eftir aðstoð frá ríkinu. Nú bætist ein við á vegum „ein- staklingsframtaksins", sósial- istum til aðhlægis, því að innan tíðir taka þeir að kyrja að svona sé einstaklingum fengið í hendur almennings fé til að stofnsetja vonlaús fyrirtæki og síðan komi þeir og biðji um ríkisaðstoð. Ef samkeppni leiddi til algerrar stöðvunar annað hvort vegna of mikillar sóknar i rækjustofninn eða fjármagnsskorts þáhlægjuþeir enn þá hærra „já, þarna sjáið þið nú hvernig skefjalaus sam- keppni leiðir atvinnuleysi yfir byggðarlögin...“ Það er engum meira kappsmál en sósíalistum að einkafram- takið sýni sig i þeirri mynd, sem Blönduósingar eru að bregða upp af því... og það er einmitt barátta af þessu tagi, sem sósíalistar óska eftir að einkaframtaksmenn heyi, þá geta þeir hlakkað yfir valn- um. .. Allir eitthvað — enginn nóg — í rækjustríðinu við Húnaflóa horfir svo við, að það er einung- is um að ræða að skipta tilteknu aflamagni milli aðila. Fram- leiðslan getur ekki aukizt um- fram þetta magn og framtaks- semi einstaklinga í byggingu vinnslustöðva getur ekki aukið framleiðsluna né heildarafköst- in með nokkru móti. Ein megin- forsendan fyrir ágæti einka- framtaks er þvi ekki fyrir hendi. I atvinnuvegi, þar sem ekki getur lengur verið um neinn heildarvöxt að ræða gilda önn- ur , lögmál en í atvinnuvegum með vaxtarskilyrði. í þeim fyrr- nefndu njóta kostir einkafram- taksins sín helzt í aukinni hag- kvæmni i rekstri og það er því æskilegasta rekstrarformið einnig í þeim atvinnugreinum, en heildarþátttökuna í slíkum atvinnuvegum hlýtur að verða að takmarka. Sjávaraflinn er takmarkaður og heildarsóknin orðin meiri en nóg. ÖII viðbót verður aðeins til að spilla fyrir þeim sem fyrir eru í atvinnu- veginum. Þegar svo er komið er aðalkostur einkaframtaks og samkeppni (aukin afköst), hættur að nýtast þjóðinni og hagkvæmnin i einkarekstrinum líka, ef fyrirtækin verða of mörg. I þvi dæmi, sem hér um ræðir er hvorki um aukin af- köst að ræða né aukna hag- kvæmni heldur það gagnstæða. Eins og horfir um aflabrögðin á rækju við Húnaflóa og þá ekki síður markaðshorfurnar meðan við búum við EBE-tollana á rækju, þá birtast engir kostir einkaframtaks i byggingu og rekstri fleiri rækjustöðva við Húnaflóa heldur er hér um þá hreinræktuðu sósíölsku fram- kvæmd að ræða, að allir fái eitthvað en enginn nóg. Algktun ungra sjálfstœðismanna Ungir sjálfstæðismenn sömdu og sendu frá sér ályktun sem laut að umræddu rækju- stríði og átöldu sjávarútvegs- ráðherra fyrir að hamla einka- framtaki. Ég hef áður bent á að sú aðstaða hljóti oft að vera til staðar, að stjórnvöld hlynnt einkaframtaki verði að setja því einhverjar hömlur til að það fari ekki sjálfu sér að voða. Einnig hef ég minnt á 19du aldar hugmyndir um skefja- lausa samkeppni sem nú sé af- dankaður skilningur einka- framtaksmanna, sem enginn taki sér í munn lengur og þaðan af síður reyni að framkvæma hann, eins og hin ýmsu samtök einkaframtaksmanna sýna. Það virðist vera nauðsyn á að rifja upp fyrir þessum ungu mönn- um, sem hafa lesið of gamlar bækur, hver sé skilningur flestra 20tu aldar manna á ein- staklingsframtaki og sam- keppni. Þeir eðliskostir, sem þurfa að geta notið sín, ef ein- staklingsframtak á að sýna sitt rétta andlit, eru hugkvæmni, áræði og dugnaður. Afleiðing- arnar eiga síðan að vera: aukin afköst, aukinn ágóði, betri nýt- ing fjármagns og vinnuafls. Ekkert af þessu er fyrir hendi i framkvæmd Blönduós- inganna og þar af leiðir að hún á ekkert skylt við einkaframtak í 20tu aldar skilningi þess orðs. Sú villa hefur greinilega af blaðaskrifum að dæma — kom- ið yfir fleiri sjálfstæðismenn en þá ungu, að rugla saman einkaframtaki og hreppa- pólitísku atvinnubótapuði. Er ekki mœlirinn fullur? Sjávarútvegurinn er nýttur til atvinnubóta i sjávarplássun- um viða um land. Það er vafa laust okkur tiltækast, þó að af- leitt sé að verða að reka aðalút- flutningsatvinnuveginn sem atvinnubótavinnu, að stórum hluta. Öeðlilegt virðist að sveitahéruð, eða kauptún sem lifa af sveitaverzlun og við skiptum við sveitir, seilist til þeirra atvinnubóta. sem ætlað- ar eru þeim plássum sem eiga allt sitt undir sjávarafla og vinnslu hans. Egilsstaðir, Blönduós og Selfoss eiga erfitt með að sanna réttmæti þess að sjávarafli sé fluttur um sjávar- plássinn til atvinnubóta í þess- um sveitaplássum. Þessa þróun hlýtur að verða að stöðva. Nóg- ur er nú slagurinn fyrir um þessa bútunga. Hœpin álgktun Það hefur verið haft á orði (Mbl. 27. febr. G.Þ.), að Morgunblaðið væri áberandi hallt undir þá menn á Blöndu- ósi, sem sjá ekki önnur ráð til bjargar sér en seilast í hálftóm- ar matarkistur nágranna sinna. Það er rétt að þessir sósialistar með einkaframtakskápuna á öxlunum hafa verið fyrirferðar- miklir í Morgunblaðinu, en er það ekki bara af þvi að þeir hafi sótt blaðaskrifin fastar? Æsing- urinn meiri? Margir sem voru þeim mótsnúnir í málinu, töldu rétt að blanda sér ekki í það meðan von var um friðsamlega iausn. Sá aöilinn, sem æsinga- skrifin bitnuðu mest á, sjávar- útvegsráðherra og ráðuneyti hans, hefur sjálfsagt talið sér skyldara að reyna að jafna deil- una en svara æsingaskrifum í blöðum. A flagfirli t Ægis Á síðustu Sjómannasíðu var rætt um aflabrögðin I janúar. Hér fylgir þá heildarskýrslan fyrir janúar og er þess þá að gæta, að togaraafli Vestfirðinga er hér með öðrum togaraafla en ekki með bátaaflanum eins og f yfirlitinu á Sjómannasiðunni á laugardag- inn var. Eins og sést af þessu heildaryfirliti hefur þorskfisksaflinn aukizt verulega frá þvi í janúar i fyrra og munar þar mestu um aukinn bátaafla fyrir Suðurlandi og aukinn togaraafla. Loðnuafl- inn er afturámóti 58 þús. lestum minni í janúar en í fyrra. Rækjuaflinn hefur heldur dregizt saman, kannski vantar fleiri vinnslustöðvar og hörpudisksaflinn en þær veiðar bundu smá- bátar allmiklar vonir viða, er hverfandi. Þvi veldur fyrst og fremst minni sókn en áður. Markaður og vinnsla er þessum veiðum ekki nógu hagstæð. 1975 1974 I. ÞORSKAFLI: janúar janúar A) Bátaafli: lestir ósl lestir ósl Hornafj./ 5.410 4.449 Stykkishólmur 2.668 2.946 Vestfirðir 885 1.802 Norðurland 184 127 Austfirðir 129 447 Landað erlendis Samtals 9.276 9.771 B) Togaraafli: Síðutogarar landað innanl 812 503 Síðutogarar landað erl 0 1.271 Skuttogarar landað innanl 10.881 4.639. Skuttogarar landað erl 698 1.751 Samtals 12.391 8.164 II. SlLDARAFLI: Landað innánl 0 0 Landað erl. 0 154 Samtals 0 154 III. LOÐNUAFLI: Samtals 47.887 105.952 IV. RÆKJUAFLI: Samtals 511 588 V. HORPUDISKUR: Samtals 30 195 VI. ANNAR AFLI: Samtals 0 15 HEILDARAFLI: Samtals 70.095 124.839 (Bráðabirgðatölur)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.