Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975 ? Sérslátta Seðlabankans, tveir silfurpenmgar, 500 og 1000 krónur Seðlabankinn selur þessa mynt til útlanda fyrir 5 700kronur. Canada H3C 3L2. Skulu beiðnir um gögn hafa borist fyrir 31. marz næstkomandi og teikningar að hafa borist nefndinni fyrir 31. maí n.k. Vonandi verða einhverjir fslenzkir listamenn til þess að taka þátt í samkeppni þessari, en al- þjóðleg dómnefnd mun veita 4 beztu úrlausnunum 1500 kana- díska dollara í verðlaun. Enn eru til sölu hjá Seðlabank- anum 500 og 1000 krónu silfur- peningarnir, sérunna sláttan frá sfðastliðnu ári. Kostar settið í sér- lega fallegri öskju 4000 krónur. Ég yrði ekki hissa þótt þessir pen- ingar hækkuðu fljótlega, en eftir næst sfðustu gengislækkun fóru þeir úr 3200 krónum og upp í 4000. Líklega hækka þeir því fljótlega aftur. Þessir peningar eru seldir af mörgum myndsölum um allan heim og eru nú allmiklu ódýrari hér heima en erlendis. Mér hefir alltaf þótt þetta sett mjög fallegt og ég vil benda á að þetta er mjög frambærileg ferm- ingargjof, en fermingar fara nú brátt að hefjast. og fleira nefnilega bera of oft til, að drengir komu á afgreiðslur blaða og tíma- rita, á þessum árum, og tóku til sölu blöð og tfmarit, en gleymdu sfðan að skila andvirðinu. Var því þessi skráning upp tekin og skfr- teini og merki látin í té þeim, sem viðurkenndir blaðasalar voru. Fyr- ir þessu stóð Jón heitinn Pálsson bankagjaldkeri, föðurbróðir Páls ísólfssonar tónskálds. Upphaflega voru gefin út 11 —12 merki. Ekki er þó vitað hve mörg merki voru gerð alls, líklega ekki fleiri en 30. Eru þau úr silfri eða silfurhúðuð. Fyrstu merkin munu hafa verið gerð árið 1932. Félag blaðasölu- drengja hélt á þeim árum fund eða skemmtun einu sinni á ári, að minnsta kosti, en þessi siður mun fljótt hafa aflagast. Með tilkomu félagsins og útgáfu skfrteinisins og merkisins komst góð skikkan á blaðasölumálin hér í höfuðstaðn um. Standardinn hækkaði mjög, frá því sem áður var. En það var einmitt markmiðið með þessu öllu saman. Þökk sé þeim sem að því stuðluðu. Ég hefi rekist á það í einum tveimur erlendum blöðum, sem skrifa um mynt og myntsöfnun, að kanadfska Olympíunefndin hyggst efna til samkeppni um hönnun einnar seríu af kanadfsku Olym- píumyntinni. Þetta er hönnun sjöttu seríunnar — af sjö sem nefndin hyggst láta slá. Þátt- takendur geta verið frá öllum þeim löndum, sem senda lið til keppni á Olympíuleikunum í Montreal árið 1976. Þeir, sem áhuga hafa á að hanna þessa pen- inga, geta skrifað eftir gögnum til: Coin Design Competition, P.O. Box 6323, Montreal, P.Q., Otti Sæmundsson blaðakóngur. Myndin er tekin árið 1 939, sein- asta daginn sem hann seldi blöð. Blaðsölumerkið ber hann í hægra jakkahorninu. Otti rekur nú hjólbarðaverkstæði í Skip- holti. SKÍRTEINI. '*///£■ /77// WS/7' jfc, J//M)rt/t r/c////>7/^ yi/ / y*:. d ^ ^ st /4. / y. / / hefir leyfi til blaðasölu í Reykjavík. F.h. b.irnavcnulánwfinlar Rcvkjavíkin f / / ,.va// //•*// / ~ i Skírteini Bjarna Guðmundssonar póstmanns. Skírteinið er númer 9, eins og sjá má. Hallgrímur Jónsson, síðar skólastjóri, undirritar skírteinið barna ÞaS var fjölmennt á fundi Mynt- safnarafélagsins á laugardaginn var, um 80 manns. Fyrst voru rædd félagsmál, sagt frá aðalfundi og fleira. Á uppboðinu voru fyrst boðnir upp nokkrir danskir eins- eyringar frá þvl fyrir og um alda mótin siðustu. Seldist aðeins einn af 1 7 peningum, sem boðnirvoru. Kóngaskiptapeningurinn frá 1906 fór á 2300 krónur, íslenzkir tvegg- eyringar með kórónu 6 saman í gæðaflokki 1-01 fóru á 800 og 1200 krónur (það voru 2 sett eftir R AGNAR B0RG seld). Alþingishátlðarpeningar 3 I original öskju, en nokkuð rispaðir voru slegnir á 30 þúsund og 10 krónu gullpeningur, danskur, frá 1873 á 16.500 krónur. Eru þetta allt mjög eðlilegir prlsar. Merkið, sem á stendur „Blaða sala barna" og mynd er af í sein- asta þætti rifjaði upp endurminn- ingar margra blaðasala. Hefi ég nú fengið góðar upplýsingar um þetta merki. Þessar upplýsingar hafa veitt mér Bjarni Guðmundsson, Otti Sæmundsson sem var blaða- kóngur áratugarins milli 1930 og 1940, Ásbjörn Magnússon og fleiri. Ennfremur fylgir hér mynd af skirteini, sem blaðasöludrengir þess tima fengu. Merkið mun hafa verið gert til að auðkenna félaga f blaðsölufélagi drengja. Það þótti Um blaðsölumerki Karvel Pálmason, alþm.: Vill Tíminn hafa það sem sannara reynist? ÞANN 22. des. s.l. er birt í Tímanum innrömmuð grein, sem ber fyrirsögn- ina „Staðfestu orð samgönguráð- herra ', og fylgir greininni mynd af samgönguráðherra Halldóri E. Sig- urðssyni. Grein þessari virðist ætlað að færa rök fyrir þeim ummælum samgöngu- ráðherra, sem hann viðhafði á Alþingi við 2. umræðu fjárlaga þann 16. des. s.l. og lutu að afgreiðslu láns Atvinnuleysistryggingasjóðs til Hafnabótasjóðs. Ráðherrann sagði orðrétt, tekið upp úr Alþingistiðind- um: „I fyrsta lagi vil ég geta þess út af þvi, sem hv. 5. þm. Vestfjarða sagði um Hafnabótasjóðinn, að tillögur að skiptingu á fé Hafnabótasjóðs voru sendar fjárveitinganefnd í dag. Og það er rétt, það er seint á ferðinni, en ástæðan fyrir þvi að það er svo seint á ferðinní, sem raun ber vitni um er sú, að Hafnabótasjóður hefur ekki fengið afgreiðslu á sínum málum fyrr en nú i s.l. viku. í fyrsta lagi fékk hann það hjá Atvinnuleysis- tryggingasjóði i þessum mánuði og hjá Framkvæmdasjóði i þessari viku." Ummæli samgönguráðherra um, að lánið úr Atvinnuleysistrygginga- sjóði hafi ekki fengist fyrr en I desember eins og hann fullyrti dró undirritaður i efa að væru réttar upplýsingar hjá ráðherranum og urðu af því nokkur orðaskipti okkar i milli. En svo vikið sé aftur að ramma- greininni i Timanum þar sem fullyrt er, að orð samgönguráðherra hafi verið staðfest og því til sönnunar birt bréf beggja sjóðanna, þá er sá galli á þessu, að dagsetningar vantar á bæði bréfin. Bréf Atvinnuleysis- tryggingasjóðs er dagsett 12 nóvember 1974 og þar tilkynnt, að lánveiting hafi verið ákveðin 6 nóvember 1974, en ekki i desember eíns og ráðherra fullyrti og Timinn reynir að rökstyðja. En það var ein mitt fullyrðing ráðherra um af- greiðslu láns úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði, sem undirritaður dró i efa að væri rétt. Um bréf Framkvæmdasjóðs er það að segja. að það er dagsett 19. des. eða þremur dögum eftir að umræð- urnar á Alþingi fóru fram, og ekki verður annað séð á þvi bréfi en að lán Framkvæmdasjóðs til Hafnabóta- sjóðs hafi verið ákveðið hinn 29. mai 1974. Það stendur því óhaggað, að þær upplýsingar, sem samgönguráðherra gaf við 2. umræðu fjárlaga og lutu að dagsetningu láns Atvinnuleysis- tryggingasjóðs til Hafnabótasjóðs voru rangar og breytir þar um engu góður vilji Timans ráðherra til handa með birtingu rammagreinarinnar. Hjálagt fylgja Ijósrit beggja bréf- anna, og æskilegast væri, til að full- nægja öllu réttlæti, sem ég veit að þér viljið I heiðri hafa, að þér birtuð með dagsetningar bréfanna, og þó sérstaklega bréfs Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs. sem deilan stóð um. Ég var satt að segja að vona, að Timinn leiðrétti af fyrra bragði hina vask- legu framgöngu ráðherranum til. handa og þess vegna er þetta svo seint á ferðinni. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Bolungarvik, 9. febr. 1975, Karvel Pálmason. • •• Reykjavik, 12. nóv. 1974. Á fundi sjóðsins 6. þ m var ákveðið að veita Hafnarbótasjóði lán að upphæð kr. 35.000.000,00 — þrjátiuogf immmilljónirkrónaOO /100 — vegna hafnarframkvæmda. Afgreiðsla lánanna er háð venju- legum skilyrðum af sjóðsins hálfu um veðtryggingu og fullnaðarskil. Fh. Atvinnuleysistryggingasjóðs. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS. Samgöngumálaráðuneytið, Arnarhvoli, Reykjavík. • •• Reykjavík, 1 9 des. 1974 Samgönguráðuneytið, Arnarhvoli, Reykjavik. Á fundi sinum 29. mai s.l. sam- þykkti stjórn Framkvæmdastofn- unarinnar áætlun um útlán Fram- kvæmdasjóðs til fjárfestingalána- sjóða á árinu 1974. Þar með var lán til Hafnabótasjóðs að fjárhæð 75 millj. kr. Á næsta fundi þar á eftir, hinn 11. júni s.l., fjallaði stjórnin um lánveitingar til einstakra sjóða og samþykkti m.a., að væntanlegt lán Framkvæmdasjóðs til Hafnabóta- sjóðs að fjárhæð 75 millj. kr. sé háð þeim skilyrðum, að vanskil hafna- sjóða og bæjasjóða vegna hafna- framkvæmda við Framkvæmdasjóð Islands og Byggðasjóð verði greidd að fullu af fé þessu. í framhaldi af viðræðum samgönguráðherra við Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.