Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975 3 0 Þingfararkaupsnefnd Al- þingis og skrifstofustjóri Alþingis héldu fund með fréttamönnum í gærdag, þar sem gerð var grein fyrir kaupi og kjörum alþingismanna. Alþingismenn taka laun sam- kvæmt B-launaflokki í kjara- samningum ríkisstarfsmanna í samræmi við lög um þingfarar- kaup frá 1971. Að fengnu áliti fjármálaráðuneytisins var alþingismönnum skipað í launaflokk B-6 frá og með 1. janúar 1974. Mánaðarlaun alþingismanns eru samkvæmt þvl kr. 117.421. Auk þess fá þingmenn eftirtaldar greiðslur samkvæmt ákvörðun þingfarar- kaupsnefndar: ^ Þingmenn, sem búsettir eru úti á landi fá húsaleigustyrk, sem nemur allt að kr. 23.000. Þingmenn kjördæma utan Reykjavíkur, sem eiga lög- heimili í Reykjavík fá ekki þennan styrk. Styrkurinn er einvörðungu greiddur um þing- tfmann. 0 Þingmenn, sem búsettir eru utan Reykjavíkur, fá fæðispen- inga, sem nema 1140 kr. á dag. Greiðslur þessar miðast ein- vörðungu við þingtímann. Þingmenn, setn hafa fastan starfa i Reykjavík fá ekki þennan styrk, þó að þeir eigi lögheimili utan Reykjavíkur. Ráðherrar fá ekki þennan styrk. 0 Þingmenn fá greiddar kr. 200 þúsund til ferðalaga í kjör- dæmi. Þeunan styrk fá þing- menn Reykjavíkur til jafns við aðra þingmenn. Þingmenn fá endurgreiddan ferðakostnað til og frá þingi. Þeir fá ennfremur greiddar 24 ferðir á ári til og frá kjördæmum sinum. Loks fá þeir greitt afnotagjald eins síma, umframgjöld og lang- linusfmtöl. Sverrir Hermannsson, for- maður þingfararkaupsnefndar, stjórnaði fundinum, en auk hans sátu hann Helgi Seljan, Sigurlaug Bjarnadóttir, Ingvar Gislason, Friðjón Þórðarson, Eggert G. Þorsteinsson og Frið- jón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis. Sverrir Hermannsson sagði, að tilefni fundarins væri það, að alþingismenn hefðu verið i sviðsljósinu vegna kaup- og kjaramáia sinna. Þingfarar- kaupsn^fnd vildi með þessum fundi ganga hreint til verks og gefa allar upplýsingar, þó að aldrei hafi ríkt nein leynd um kjaramál þingmanna og skrif- stofustjóri Alþingis hefði ávallt veitt allar upplýsingar þar um, ef eftir því hefði verið óskað. AUKAGREIÐSLUR HÆKKUÐUUM 20% Sverrir Hermannsson sagði aðspurður um hlutverk þing- fararkaupsnefndar, að hún hefði það verk með höndum að lita á breyttar forsendur og taka afstöðu til nýrra ákvarð- ana varðandi kjörin. Bein laun færu eftir kjarasamningi rikis- starfsmanna, nefndin tæki því afstöðu til ferðakostnaðar, dag- peninga og húsaleigustyrks. Nefndin hefði sl. haust ákveðið 20% hækkun á þessum auka- greiðslum. Þrátt fyrir 40 til 50% verðbólgu hefði nefndinni ekki þótt rétt að hækka greiðsl- urnar meira. Þá sagði Sverrir Hermanns- son, að nefndin væri sammála um að launakjör þingmanna Frá fundi þingfararkaupsnefndar með biaðamonnum i gæraag. lano ira vmstri: Helgi Seljan, Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri Alþingis, Sigurlaug Bjarnadóttir, Sverrir Hermannsson, formaður þing- fararkaupsnefndar, Ingvar Glslason, Friðjón Þórðarson og Eggert G. Þorsteinsson. Blaðamannafundur þingfararkaupsnefndar: Húsaleigustyrkir og fæðispeningar landsbyggðarþingmanna duga ekki til Aukagreiðslur tQ þingmanna hækkuðu um 20% sL haust væru góð. Alþingismenn hefðu áður fyrr haft sultarlaun, þegar þeir urðu að afla tekna með störfum utan þingsins. Að því væri eindregið stefnt, að þing- mennskan yrði fullt starf. Al- þingismenn gegndu þó ráð- herraembættum og ýmsum öðr- um pólitiskum störfum, sem þeir ættu að gegna. Friðjón Sigurðsson, skrif- stofustjóri Alþingis, upplýsti því næst, að embættismenn, er sætu á Alþingi, fengju greidd skert embættislaun. Sú skerð- ing næmi frá 30% til 40% eftir aðstæðum. KJARADÖMUR AKVEÐI LAUN ÞINGMANNA Eggert G. Þorsteinsson sagði, að Alþýðuflokkurinn hefði rætt þetta mikið. Það væri ekkert launungarmál, að hann teldi það vera veikasta hlekkinn, að þingmenn tækju sér sjálfir laun. Þingflokkur Alþýðu- flokksins hefði þvi lagt til, að kjaradómur yrði látinn skera úr um laun þingmanna. Sú hug- mynd hefði fengið góðar undir- tektir. Friðjón Þórðarson sagði, að þingmenn hefðu ekki búið við nein sældarkjör . áður fyrr. Aðalbreytingin i þessu efni hefði orðið 1971. Frá þeim tima hefðu aiþingismenn haft góð lauh. Það væri dýrt fyrir al- þingismenn utan af landi að halda tvö heimili. Avallt yrði erfitt að gæta fyllsta réttlætis varðandi aukagreiðslur. Ymis- legt mætti lagfæra í þeim efn- um. Takmarkið væri að halda uppi góðum kjörum, en gæta þess jafnframt, að þau væru sanngjörn. RUGLINGUR MORG UNBLAÐSINS Helgi Seljan sagði, að það væri e.t.v. viðkunnanlegra að láta kjaradóm ákveða launin. En sin skoðun væri sú, að það fyrirkomulag myndi jafnvel leiða til betri kjara. Þá sagðist hann vilja andmæla ruglingi þeim, sem fram hefði komið hjá blaðamanni Morgunblaðsins varðandi hlunnindi þing- manna. Menn yrðu að gera sér grein fyrir því, að þingmenn, sem byggju úti á landi þyrftu að halda tvö heimili. Að því er hann sjálfan varðaði, hefði húsaleigustyrkurinn aldrei náð þvi, sem hann hefði þurft að greiða i leigu í Reykjavík og mismunurian hefði farið upp í 6000 krónur á mánuði. Þegar hann hefði búið á hóteli hefðu fæðispeningarnir ekki dugað að hálfu. Þingmenn veröu til ferðalaga miklu hærri upphæð- um en ferðastyrknum næmi. En sin skoðun væri þó sú, að þeir væru ekkert of góðir að borga aðeins með sér. Aðspurð- ur, hvort hann gerói ekki grein- armun á fæðispeningum þing- manna, er búsettir væru i næsta nágrenni Reykjavíkur og þeirra, sem byggju úti á landi sagði hann jú, en á hitt væri að lita að margir þingmenn eins og t.d. fjárveitingarnefndarmenn væru oft mjög önnum kafnir í Reykjavik og gætu því ekki borðað heima hjá sér. Ingvar Gislason sagði, að menn yrðu að gera sér grein fyrir því, að ærinn kostnaður væri samfara þingmannsstarf- inu. Það væri ekkert nýtt, að dvalar- og ferðakosnaður væri greiddur fyrir þingmenn utan af landi. Framhald á bls. 18 TÝR — nýja varðskipió í Árósum og á minni mynd- inni má sjá Guðmund Kjærnested, skipherra, sem hefur haft eftirlit með smíðinni undanfariö fyrir hönd Landhelgisgæzlunn- ar. Seinkar reynslusiglingu Týs vegna verkfalla í Arósum? TYR — hið nýja varðskip fslenzku landhelgisgæzlunnar, sem nýlega var hleypt af stokkun- um f skipasmíðastöðinni í Arós- um, átti að fara í reynslusiglingu í dag. Raunar leit í gær illa út með að orðið gæti af reynslu- siglingunni i dag, þar eð verka- menn við skipasmíðastöðina gerðu verkfall í gær til að mót- mæla aðbúnaði á vinnustað. Stendur enn í stappi milli for- ráðamanna fyrirtækisins og verkamannanna, og ekki var full- Ijóst í gærdag hvort hægt yrði að láta verða af reynslusiglingunni í dag með aðstoð verkfræðinga og lærlinga við skipasmfðastöðina. t tilefni af reynslusiglingunni hefur danska skipasmfðastöðin boðið til sín fulltrúum 25 fyrir- tækja, sem lagt hafa til efni og tæki í skipið. Einnig verða við- staddir fimm menn frá íslenzku landhelgisgæzlunni með Guð- mund Kjærnested f fararbroddi. broddi. Verkföll hjá dönskum skipa- smíðastöðvum á síðasta ári eru meginorsök þess að afgreiðslu á varðskipinu hefur seinkað um tvo mánuði. Ráðherra um zetuna: „Ekki á ákvörðun- arstig ennþá” 1 TILEFNI áskorunar 100 Islend- inga til menntamálaráðherra um að hann felli úr gildi breytinguna sem gerð var á fslenzkri stafsetn- ingu 1974, þar sem zeta var m.a. Reykjanes- kjördæmi t . / GUÐMUNDUR H. Garðarsson, alþm. mun flytja ræðu um kjara- mál og stjórnmálaviðhorfið á stofnfundi launþegaráðs Sjálf- stæðisflokksins í Sjálfstæðishús- inu f Hafnarfirði kl. 14.00 í dag. Eru launþegar f Reykjaneskjör- dæmi hvattir til þess að fjöl- menna á stofnfundinn. afnumin f opinberu ritmáli, átti Mbl. f gær samtal við Vilhjálm Hjálmarsson menntamálaráð- herra. Ráðherrann sagði: „Ég hef fengið þetta skjal í hendur fyrir nokkru og lesið það með mikilli eftirtekt en hef lítið meira getað sinnt erindinu vegna anna við lausn efnahagsmála að undanförnu. Ég hafði nú reyndar íhugað þetta mál nokkuð gaum- gæfilega áður en áskorunin barst mér, enda liggur fyrir samþykkt Alþingis um sama efni, og langar mig í þvi sambandi að það komi fram, að hér er ekki um zetuna eina að ræða, heldur fleiri atriði, t.d. varðandi stóran staf og lítinn. En málið er ekki komið á ákvörð- unarstig af minni hálfu ennþá.“ Siglfirðingar fá rækjuveiðileyfi SJÁVARÚTVEGSRÁOUNEYTIÐ hef- ur veitt tveimur bátum frá Siglufirði leyfi til rækjuveiða við Grímsey og Kolbeinsey, en þar hefur einn bátur frá Dalvik verið á tilraunaveiðum um hríð og fengið góðan afla af af- bragðsgóðri rækju, þeirri beztu sem veiðist hér við land. Verður rækjan unnin á Siglufirði. Umræddir bátar heita Berglind og Jökultindur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.