Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975 17 í dag eru liðin 100 ár frá fæð- ingu Sigurðar Eggerz, fyrrum for- sætisráðherra og bæjarfógeta, eins þeirra manna, sem stóðu í fylkingarbrjósti í íslenzkri stjórn- málabaráttu á fyrri hluta þessar- ar aldar. Sigurður fæddist á Borðeyri 1. marz 1875, sonur Péturs Eggerz verzlunarstjóra þar og konu hahs Sigriður Guðmundsdóttur. Hann brautskráðist sem stúdent frá Lærða skólanum i Reykjavik 1895 og lauk lögfræðiprófi frá Kaup- mannahafnarháskóla 1903. Árið 1905 var hann settur sýslumaður í Barðastrandarsýslu, en árið eftir varð hann aðstoðarmaður í stjórnarráðinu. Þá var hann um tíma, 1907, settur sýslumaður í Rangárvallasýslu, eri árið 1908 varð hann sýslumaður í Skafta- fellssýslu og gegndi því starfi unz hann varð ráðherra islands 1914. Er hann lét af því embætti árið eftir, var hann skipaður sýslu- maður Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu, en varð síðan bæjarfógeti i Reykjavik 1917. — A sama ári tók Sigurður svo sæti i ríkisstjórn Jóns Magnússonar og var þar fjár- málaráðherra. Gegndi hann því embætti til 1920. Þá varð hann framkvæmdastjóri i Smjörlíkis- gerðinni í Reykjavík og gegndi þvi starfi til 1922, er hann varð forsætis- og dómsmálaráðherra og hafði það embætti á hendi í tvö ár, eða til 1924. Síðan var Sigurður bankastjóri Islandsbanka til 1930, en á næstu árum, 1930 — 1932, málflutnings- maður í Reykjvik. Hann varð svo sýslumaður í Isafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Isafirði 1932—1934, en var svo skipaður sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Akureyri. Þvi embætti gegndi hann 1. marz 1945, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þá fluttist hann til Reykjavíkur og átti þar heima, er hann lézt 16. nóv. 1945. Sigurður Eggerz átti um langt skeið sæti á alþingi. Hann var fyrst þingmaður Vestur- Skaftfellinga 1911 — 1916, lands- kjörinn þingmaður 1916—1926 og þingmaður Dalamanna 1927—1931. Forseti sameinaðs þings var hann valinn 1922 og átti sæti í alþingshátíðarnefnd 1926—1930. Jón Pálmason, þáverandi for- seti sameinaðs alþingis, minntist Sigurðar Eggerz á sérstökum þingfundi við lát hans. Hann sagði m.a.: „Með Sigurði Eggerz er hniginn í valinn einn hinn vinsælasti og glæsilegasti stjórnmálamaður þjóðarinnar á siðari árum. Sjálf- stæði hennar var honum alia tíð hjartfolgnast allra mála, en ein- lægari baráttumaður á þvi sviði var ekki til í landinu. Það er og víst og kunnugt, að áhrif hans i sjálfstæðisbaráttunni voru mikil og sterk. Mesta aðdáun meðal al- mennings hlaut hann 1915, þegar hann lagði ráðherrastöðu sína að veði, er hann fékk ekki fram- gengt í ríkisráði Dana þeirri kröfu varðandi réttindi Islands, sem alþingi hafði gert og hann sjálfur hafði óbilandi sannfær- ingu fyrir að væri réttmæt og sjálfsögð. Alla tíð siðan hefur staðið ljómi af nafni Sigurðar Eggerz i hugum þjóðarinnar." Sigurður Eggerz aldarminning „Mikill fögnuður var þá í Reykjavik meðal þorra manna," segir Benedikt Sveinsson, gamall baáttufélagi Sigurðar Eggerz, í grein um hann sjötugan, er Sigurður hafði staðfastlega haldið fram skildaga alþingis um flutn- ing islenzkra mála fyrir konungi, og „lét þá ráðherraembættið í söl- urnar fyrir málstað þjóðarinnar." Um þetta sama atriði segir Pét- ur Ottesen i minningargrein irm Sigurð: „Jók þessi karlmannlega og drengilega framkoma Sigurðar mjög vinsældir hans og traust með landsmönnum. Þótt þessi staðfastleiki Sigurðar í sókn sinni af okkar hálfu á hendur Dönum í sjálfstæðismálinu þokaði okkur ekki áleiðis að þvi sinni, þá er það engum vafa undirorpið, að þessi framkoma Sigurðar hafði stórtæk áhrif framgang þessa máls síðar.“ A fyrstu áratugum aldarinnar áttu Islendingar marga glæsilega, einbeitta og harðsnúna fulltrúa, sem háðu ótrauða baráttu fyrir réttindum þjóðarinnar, frelsi hennar og sjálfstæði. „Það orkar ekki tvímælis, að Sigurður Eggerz var á maðurinn i þessari friðu og gunnreifu fylkingu sem lagt hefur fram drýgstan og raunhæfastan skerf til þess að leysa af þjóðinni viðjar erlends valds,“ segir Pétur Ottesen. „Þess vegna mun stjórn- málasaga þessa timabils ávallt varpa ljóma á nafn Sigurðar Eggerz, þegar hugleidd eru þau afrek, sem unnið hafa verið á þessu sviði.“ Sigurður Eggerz átti mikinn þátt i sambandslagasáttmálanum við Dani 1918, og lagði hann mikla áherzlu á uppsagnarákvæði sáttmálans. „Þótti þar sumum eigi nógu traustlega um búið af hálfu Islendinga, hvað snerti skil- yrði þau, sem sett voru um þátt- töku í atkvæðagreiðslunni um þetta atriði,“ segir Pétur Ottesen. „En Sigurður Eggerz hafði þá óbifanlegu trú á þjóðinni í þessu máli, að hann taldi þar öllu vel borgið, ef réttilega væri á þeim málum haldið og fulltrúar þjóðar- innar væru vakandi í málinu. ..“ Kristilegt æskulýðsstarf á rætur sínar að rekja til þess fegursta og bezta sem foreldrar hafa innrætt börnum sínum. Á því byggir unga kirkjan i dag og þaðan er komið líf kristinnar æsku. Island á i dag þakkir að gjalda föður og móður, sem gáfu börnum sínum trúararf- inn að vegarnesti, fararheill og kjölfestu þjóðarinnar. Það var kristið fjölskyldulíf, sem byggði upp farsæld og frelsi þessa lands. Á þeim grunni stöndum við í dag. Eg vil í þessu sambandi minna á orð og ummæli Þórarins heitins Eld- járns bónda á Tjörn i Svar- faðardal: „Æska aldamótanna siðustu, sem oft heyrist nefnd í Frá œskulýðsstarfi þjóðkirkjunnar: hvernig áhrifin í gegnum þau orka á fjölskyldulífið. Það varðar miklu, aö hryllings- myndir og glæpaverk hafi þar ekki meira rúm, en brýnust þörf er vegna frétta af þvi sem er að gerast i heiminum. Auka- skapimtarnir af því tæi þjóna ekki öðrum tilgangi en að skemmta skrattanum. xxXxx „Hafið andstyggð á hinu vonda en haldið fast við hið góða,“ (Róm. 12.9) er grund- vallarsjónarmið kristins manns. Áhrif sem sljóvga þá vintund og magna hið illa, fara í bága við heill fjölskyldunnar og valda spjöllum í þjóðlíf- inu.— Unglingar leiðast út í drykkjuskap. En hvað er talið eftirsóknar- vert á veitinga- og skemmtistöð- Ungakirkjan — Eftir sr. Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup ræðu og riti, var borin inn í harðan heim fátæktar og fábreyttra atvinnuhátta, næsta ólíkan þeim, er blasir við í dag. Uppeldisboðorð þeirra tíma voru heldur ekki miðuð við það fyrst og fremst að komast yfir fjármuni með sem léttustu móti og minnstri vinnu og eiga i skjóli auðs rósanna daga, heldur hin að gera ungdóminn skilningsríkan á gildi drengi- legs starfs og starfsgleði fram- vindu lífsins til bættra lífs- kjara, skapa með æskunni heil- brigða hugsun og lífsviðhorf, kenna henni að gera fyrst kröfuna til sjálfrar sín, setja hana ofar kröfunni til annarra. Boðorð þeirra uppeldishátta voru: atorka í starfi, skyldú- rækni, hófsemi, nýtni, guðstrú og ættjarðarást. (Dagur, 27. nóv. 1960). xx Xxx Við segjum kost og löst á ungu fólki í dag, og erum all- hörð í dómum, þegar miður fer og unglingar leiðast á glap- stigu. Börn og unglingar eru með gott og illt á vogarskálum sem áður fyrr og alla tið. Af löngum kynnum minum við börnin veit ég, að þeim hæfa hin sömu ummæli og Meistar- inn frá Nazaret gaf þeim, að „slikra er guðsríki“ — Hvort það verður hið góóa eða illa, sem fær yfirhönd i lífi þeirra fer mjög eftir því, hvað að þeim snýr. Hvers konar áhrif eru það, sem vió leitumst vió að leiða yfir æskulýðinn i dag? Öflugustu uppeldistæki nútímans eru fjölmiðlar. Þess er ekki gætt sem skyldi, um, í veizlum og mannfagnaói? Þeir, sem hafa hagnað af sölu áfengis, reyna að selja það eftir beztu getu. Meðal fórnar- lambanna eru unglingarnir. Hið sama er að segja um ávana- og fíkniefnin, sem ógna heimilum og þjóðfélögum. — Margur unglingur hreppir þaó, sem hann óskar sér, fjármuni og fritima. En þar veróur honum hált á svellinu, því að það er vandi að fara með slíka hluti. Við köllum unga fólkió til ábyrgðar á gerðum sínum, en við þurfum ekki síður að gæta þess, hvað við erum að leiða yfir æskuna, og kalla okkur sjálf til enn meiri ábyrgðar. Ég hugleiði oft, aó mikil þversögn er i þeirri fullyrðingu, að við köllum okkur kristió þjóðfélag. xxXxx I þjóðfélagi, sem stefnir aó marki göfugs lífs, verður um- _aHfcr etfia toehr ai vera Ksm&Bmmmn 1975 hyggjan fyrir barninu og áhugi hinna eldri á velferð þess, aðal- atriði. Þetta mark og mið telur unga kirkjan vera i sínum verkahring. Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar hefir að þessu sinni fyrirsögnina: „Allir eiga þeir að vera eitt.“ Þau orð sagði Kristur. Hann er sá, sem sam- einar og undir hans merki er æskan kölluð. Kristur er það afl, sem glæðir og vekur hið fegursta og bezta með hverjum manni og gefur honum styrk. Heimilið hefir þörf fyrir blessun kristinnar trúar, Island allt. Séra Matthias kvað: Vígðu starf þitt land og lýð lærðu hið bezta i þinni tíð. Trúðu fast á góöan Guó. Það gefur þrek og lífsfögnuð. Arið 1928 bar Sigurður svo fram fyrirspurn á alþingi um það, hvort ríkisstjórnin vildi gera allt, sem verða mætti til þess að Island gæti tekið öll sín mál í eigin hend- ur aó loknum umsömdum tíma. Galt forsætisráðherra, fulltrúar allra flokka og þingheimur allur jákvæði við því. „Sigurður Eggerz hafði gengið svo frá þessu máli á alþingi, áður en hann lét þar af störfum, að markmiðið var staðfastlega ákveðið og það svo, að því gátu engin óheillaöfl hrundið síðar,“ segir Pétur Ottesen. I forsætisráðherratíð sinni hratt Sigurður þeirri tilhögun, að landhelgisgæzlan lyti yfirráðum Dana, en í þess stað tók islenzka ríkið gæzluna í sínar eigin hend- ur. Sigurður Eggerz fékkst nokkuð við skáldskap, bæði ljóóa og leik- ritagerð. Hann „var gæddur fjörugu og gróskumiklu ímynd- unarafli og kvikri listamanns- lund,“ segir Pétur Ottesen. Og siðar segir hann: „Þessi ljóðræni þáttur i skapgerð Sigurðar kom honum löngum i góðar þarfir í stjórnmálabaráttunni og stytti honum marga leið til hjartna manna, bæði í ræðu og viðtölum. Verður ræðumennska með þessu sniði ólikt hugþekkari og minnis- stæðari en þurrar greinargerðir." Sigurður Eggerz var kvæntur Sólveigu dóttur Kristjáns dóm- stjóra Jónssonar frá Gautlöndum, og varð þeim tveggja barna auðið, Ernu og Péturs, síðar sendiherra. Og að lokum verður enn vitnað i grein Péturs Ottesen: „Embættis- rekstur Sigurðar allur fór honum mjög vel úr hendi. Jafnan var hin bezta regla í öllum fjárreiðum embættisins. Studdi hann mjög á sátt og samlyndi manna á meðal og var réttlátur dómari. Hann var tryggur í lund og vinfastur. Hann var alla tið I lífrænu sambandi við fjölda manna úr öllum stéttum, tók sér aldrei skjól „hefðar uppi á jökultindi", en lagði leiðir sínar meðal fólksins og hafði náin kynni af lífi þess og högum.“ Æskulýðsstarf kirkjunnar miðar að því að gefa æskunni hugsjón til að lifa fyrir. Án hugsjónar getur æskan ekki lifað heldur hrekst hún þá fyrir vindi og straumi. tsland þarf á hugsjónamönnum kristinnar trúar að halda til þess að bjarg- ast út úr þeirri raun, sem við höfum ratað í. Kristindómur er hjálp heimsins í dag, i veröld þar sem hver höndin er upp á móti annarri og fólk elst upp i | hatri, hryðjuverkum og ótta. I Með Kristi getur heimurinn í orðið einn heimur bræðralags | og friðar. Við getum að vísu ; ekki miklu orkað út á við að ? réttlæti og sáttum, þar sem / þjóðir og kynkvislir berast á banaspjót. En við getum rétt Islandi höndina, þó ekki okkar hönd heldur Krists sem mætir þjóð sinni með útréttar hendur, ef hún vili við þeim taka. Krist- ur vill byggja upp og blessa smæstu þjóðareininguna, fjöl- skylduna og þjóðarheildina, ísland allt. Hann gerir það með því að halda innreið sina til æskunnar, unglinganna, sem skynjað hafa köllun hans, og skipa sér í raðir lærisveinanna. xxXxx Vorið 1757 orti Eggert Ölafs- son kvæði í Kaupmannahöfn, sem hann kallaði F'öðurlands- minni. Fyrsta erindið í kvæðinu kann að heita má hvert mannsbarn á islandi. „Ísland ögrum skorið, eg vil nefna þig.“ Færri vita, að kvæði þetta var ort sem brúð- kaupskvæði, og Eggert ætlaðist til þess, að það væri sungið i brúðkaupum á tslandi. Eggert var hvort tveggja ættjarðar- og trúarskáld. Eggert vildi þjóð sinni allt hió bezta, og hóf því hugann til Guðs, að við gleymdum hvorki aó leita Guð Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.