Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.03.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1975 5 Skiptar skoðanir um Jörund í Finnlandi: SUHNUKVÖLD Feróakynning! Sagt frá hinum vinsæiu og ódýru Sunnuferðum. Hinir heimsfrægu bresku sjónvarpsstjörnur The Settlers skemmta. STÓRBINGÓ — Vinningar eru 3 utanlandsferðir AUSTURRÍKI — MALLORCA — KANARÍEYJAR Vestmannaeyjum laugardaginn 1/3 Sjálfstæðishúsinu Akureyri sunnudaginn 2/3 kl. 21.00 Hnífsdal mánudaginn 3/3 kl. 20.30 Sindrabæ, Hornafirði fimmtud 6/3 kl. 20.30 IMýja bíó, Keflavík föstudaginn 7/3 kl. 21.00 Akranesbió, Akranesi laugardaginn 8/3 kl. 17.00 Hótel Sögu, Reykjavík sunnudaginn 9/3 kl. 21.00 I SÓLSKINSSKAPI MED SVNNU FERÐASKRIFSTDFAN SUNNA LÆKJARGÖTU 2 SÍMAR 16400 12070 ' þú að missa af þessum kostakjörum ■— ■ ■■ ■ \#i vai vlii ai jakkafötum, kum jökkum, leðurjökkum, kuldaflíkum dömu og herra, blússum, pilsum, skyrtum, bolum o.m.fl. 50—70% afsláttur KARNABÆR Utsölumarkaöur Laugaveg 66 N „ÞIÐ munið hann Jörund" eftir Jónas Árnason var frum- sýnt á Wasa Teater í Wasa í Finnlandi sl. Faugardag. Höfund- ur var sjálfur viðstaddur sýn- inguna og raunar komu Is- lendingar mjög við sögu þess- arar sýningar. Borgar Garðars- son sem dvelst F Finnlandi annað árið í röð, lék Jörund sjálfan auk þess sem hann var aðstoðarleikstjóri. Búningar eru aftur á móti eftir eiginkonu Borgars, Grétu Þórsdóttur, en hún stundar nám i leikbúninga- teikningu í Konstindustrella hög- skolan F Helsinki. Leikstjóri er Kirstin Olsoni, annar tveggja leikhússtjóra Wasa Teater, en hinn leikhússtjórinn fer með hlutverk Trampe greifa í Jörundi. Inger Pálsson þýddi leikinn á sænsku. Leikhús f Noregi og Danmörku hafa sýnt áhuga á að fá þetta leikrit Jónas- ar Árnasonar til sýninga. Morgunblaðinu hafa borizt tvær umsagnir um sýninguna. Er önnur eftir Gunnil Lindroos í Wasablaðinu, hin eftir Greta Brotherus í Hufvudstadsblaðinu, og kveður ekki við sama tón hjá báðum. Lindroos segir i upphafi um- sagnar sinnar, að sýningin hafi vakið mikla athygli fyrirfram, mikið verið skrifað um uppruna og baksvið verksins o.s. frv., og því hafi menn jafnvel átt von á því að verða fyrir svolitlum vonbrigðum. „En þær áhyggjur reyndust óþarfar. Jörundur upp- fyllti vonir manna í einu og öllu.“ Síðan gerir hún grein fyrir efni verksins, og segir svo: „Auðvitað er það ekki aðeins textinn sem var góður. Öll uppfærsla leikrits- ins með Kirstin Olsoni, leikhús- stjóra, sem hugmyndaríkan, atorkusaman leikstjóra, olli þvi, að áhorfendum var skemmt frá upphafi." Rekur Lindroos einstök atriði uppsetningarinnar, og segir t.d.: „Að áhorfendasalurinn er notaóur sem leiksvið, leikararnir léku í salnum og áhorfendur fengu hlutverk íslenzku þjóðar- innar, lagði sitt af mörkum til að gera þetta allt fjörugt og grípandi." Um frammistöðu einstaklinga hefur Lindroos góð orð, og vekur sérstaka athygli á búningum Grétu Þórsdóttúr. „Ögerlegt er að hæla einum leikara fremur en öðrum, hver og einn var ómót- stæðilegur í sínu hlutverki. Borg- Frábærlega fjörug skemmtun — klénn og ömurlegur farsi Borgar Garðarsson f hlutverki Jörundar og Elise Ahlström f hlutverki Dala-Völu. ar Garðarsson sem Jörundur var velviljaður og réttsýnn og um leið dálítið bljúgur og fáfróður á af- vopnandi hátt ...“ Sérstakt lof fær þó Martin Kurten í hlutverki Trampe greifa („Þegar (hann) kom inn á sviðið sá maður engan annan“). Að lokum segir Gunnil Lindr- oos að á þessari sýningu hafi tek- izt það sjaldgæfa að fá finnska áheyrendur til að syngja, og að lokinni sýningu þegar Jónas Árnason steig sjálfur upp á sviðið til að stjórna fjöldasöng létu áhorfendur ekki segja sér það tvisvar. Greta Brotherus er hins vegar öllu neikvæðari í umsögn sinni i Hufvudstadsblaðinu: „Leikhússtjórapar Wasaleik- hússins, Kirstin Olsoni og Martin Kurtén, hefur reynzt traust i verkefnavali. Nú hefur þeim að mínu mati mistekizt. Hinni klénu kómediu Jónasar Árnasonar, Hundadagakónginum, verður gott að gleyrna." Síðar segir: „Efni verksins er i sjálfu sér hugþekkt, en höfundur- inn er alveg ráðalaus þegar til þess kemur að skapa úr því leik- þráð. Urmull af stuttum, mest- megnis óverulegum farsabitum hefur verið hrönglað upp með miklu af lofti á milli. Undir lokin verða orðin öllu fleiri og atburða- rásin hægari." „Eftir allar upplýsingarnar sem maður fékk fyrirfram hafði ég búizt við velþekktum írskum og enskum lögum. En það var eins og sett hefði verið stopp og tyggi- gúmmi í lögin . . .“ Siðan segir Brotherus, að Guillermo Michel hljómsveitar- stjöri hafi gert sitt bezta með sex manna hljómsveit, leiktjöld Harry Öhmans hafi verið ævin- týraleg og búningar Grétu Þóris- dóttur fallegir. „Þrátt fyrir að leikstjórn Kirstin Olsoni eigi mörg skemmtileg augnablik þá standa þau aðeins eftir sem ein- staka ljósglætur i minni manns eftir rúmlega þriggja tíma þunna skemmtun." Þá nefnir hún það sem henni finnst bezt takast: Martin Kurtén kostulegur, bumbumikill Trampe greifi, sem eigi snilldarhreyfing- ar í skylmingunum við Jörund. Lasse Hjelt í nokkrum atriðum sem Charlie Brown. „En hann þurfti einnig að þola ósmekklega ástarsenu með fallbyssu." Mynd- rænt, skemmtilegt skuggamynda- atriði, og Rune Bergman og Lenn- art Snickars sem „dæmigerðir Is- lendingar”. Og einnig oft Borgar Garðarsson, þótt hlutverk hans hafi ekki verið sérlega bitastætt. Bezt hafi þó verið sú aðferð að láta Hundadagakonunginn nota hrognamálstúlk og Trampe tala dönsku. „Þrátt fyrir kómisk tilþrif af þessu tagi skil ég ekki hvers vegna leikhúsið leggur svona mikið á sig fyrir svona ömurlegan texta. Áhorfendur hlógu við öll minnstu tækifæri sem til þess gáfust," segir Greta Brotherus að lokum. Nýjung Nú bjóðum við nýja þjónustu 4ra vikna megrunarnámskeið fyrir konur sem vilja losna við 1 5 kg. eða meira. Læknir mun gefa ráðleggingar á staðnum. Sérstakur matar- kúr, vigtun, mæling, gufuböð og Ijós. Einnig er hægt að fá sérstakt megrunarnudd. Öruggur árangur ef viljinn er með. Leitið uppl. í síma 83295 ala virka daga kl. 1 3—22. Júdódeild Ármanns, Ármúla 32.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.