Morgunblaðið - 15.07.1975, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JtJLl 1975.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLt 1975.
19
Afreksfólkið sannaði ágæti sitt og
nýjar stjörnur skutu upp kollinum
Hornfirzku karlmennirnir
heima við heyskapinn, en
sex stúlkur á landsmótinu
Það var ekkí laust við að Guðmundur Jónsson ágirntist verðlauna-
pening Sigurðar bróður sfns, enda hafði hann unnið til sigurlaun-
anna f langstökkinu á landsmótinu 1971.
Bróðir kemur
í bróður stað
Selfyssingarnir Sigurður og Guð-
mundur Jónssynir halda langstökks-
verðlaunum innan fjölskyldunnar
A landsmótinu 1971 á Sauðár-
króki sigraði Guðmundur Jónsson
Selfyssingur f langstökki. Á mótinu
á Akranesi var það hins vegar Sig-
urður bróðir hans sem bjargaði
heiðri Selfyssinganna og bar sigur
úr býtum f langstökkinu með þvf að
stökkva 7,01 metra, en það er bezti
langstökksárangur sem Islendingur
hefur náð í ár.
Er við ræddum við þá bræður að
langstökkskeppninni lokinni sagðist
Guðmundur ekki hafa getað keppt
að þessu sinni vegna meiðsla, sem
hann hlaut á héraðsmóti Skarp-
héðins fyrir nokkru síðan. — Það
var vitanlega leiðinlegt að geta ekki
verið með, en Sigurður bróðir sá um
að bjarga málunum fyrir okkur og
halda verðlaununum í langstökkinu
innan fjölskyldunnar, sagði Guð-
mundur.
Keppnin í langstökkinu varð all-
söguleg vegna þess að það var með
naumindum að Sigurður komst I
úrslitakeppnina. Það var ekki fyrr
en í síðasta stökki sinu i undan-
keppninni, að hann tryggði sér rétt
til þátttöku i úrslitunum, og
„skreið“ þá yfir lágmarkið, með því
að stökkva einum sentimetra lengra
en hann þurfti. I úrslitakeppninni
var Sigurður hins vegar hinn sterki
maðúr og náði þeim góða árangri að
stökkva 7,01, er það nýtt glæsilegt
landsmótsmet og sló Sigurður þar
með met þeirra Tómasar Lárus-
sonar UMSK og Gests Þorsteins-
sonar UMSS, en það var 6.89. Setti
tómas sitt met árið 1952 og var.
metið því eitt elzta landsmótsmetið.
Við spurðum Sigurð um aðstöðu
til frjálsíþróttaiðkana á Selfossi og
áhuga íþróttafólks innan Skarp-
héðins. — Áhuginn er mestur á
Selfossi og í næsta nágrenni, sagði
Sigurður, og í vor kom til okkar
danskur leiðbeinandi, Ole Sjöler, og
hefur hann verið mjög dugandi við
að örva áhuga fólks. Að undanförnu
hefur mikill fjöldi stundað æfingar
og þá að sjálfsögðu með landsmótið í
huga! Ég vona bara að áhuginn
haldist að því loknu. Aðstaðan er
allgóð fyrir austan hjá okkur,
nokkuð svipuð og hér á Akranesi og
yfir þvi sem hér er boðið upp á hef
ég engan heyrt kvarta.
— Annars finnst mér að þar sem
landsmótsdagarnir eru orðnir þrír,
mætti einnig fjölga keppnisgrein-
unum og hef ég þá einkum greinar
eins og 200 metra hlaup í huga,
sagði Sigurður að lokum.
Hafsteinn Jóhannesson glfmir við stangarstökkið og áhorfendaskarinn að baki honum fylgist með þvf sem fram fer.
# Gotthjá
þeim eldri
Ýmsir keppendanna á þssu lands-
móti hafa tekið þátt f þremur lands-
mótum, og sá sem oftast hefur keppt
á landsmóti af þeim, sem voru með
þessu sinni, var Guðmundur Hall-
grfmsson UÍA, sem keppti nú á sfnu
sjötta landsmóti. Tók hann þátt f
400 metra hlaupinu og varð í 13.
sæti af 21 keppanda. Erla Öskars-
dóttir UNÞ tók nú þátt í sínu
fimmta landsmóti og varð hún f
fimmta sæti í kringlukasti. Þegar
rætt er um keppendur af eldri
árgerðum má ekki gleyma Björk
Ingimundardóttur UMSB, sem varð
í þriðja sæti I langstökki og fjórða í
100 metra hlaupinu.
Frjálsfþróttakeppni landsmótsins tók hvorki meira né minna en 18
klukkutfma. Föstudag, laugardag og sunnudag börðust fulltrúar ung-
mennafélaganna harðri en drengilegri baráttu. Barizt var um sentimetra
og sekúndur og ekkert gefið eftir. Fram á sjónarsviðið komu fjölmörg ný
nöfn og eldra fólkið sýndi að það þarf ekki að vera úr sögunni f hinni hörðu
keppni þó árin færist yfir. Meðal keppenda voru nokkrir sem rétt hafa fyilt
fyrsta tuginn og aðrir sem komnir eru á þann fimmta. Allt þetta fólk lagði
sitt af mörkum, en eigi að sfður var það hið þrautþjálfaða afreksfólk sem
oftast stóð á efsta þrepi verðlaunapallsins. 1 stigakeppninni báru Kjalnes-
ingar sigur úr býtum, hlutu 131,5 stig, en stig Skarphéðinsmanna, sem urðu
f öðru sæti, urðu alls 88,5.
I frjálsfþróttakeppninni varð
Hólmfríður Erlingsdóttir frá Stóra-
Dunhaga í Eyjafirði stigahæst
kvenna með 14 stig. I karlaflokki
'urðu þeir jafnir og efstir kapparnir
Karl West Fredriksen UMSK og
Sigurður Jónsson HSK, báðir 16.
Kristfn Björnsdóttir UMSK vann
bezta afrek kvenna f keppninni er
hún stökk 1,57 m í hástökki, en það
afrek gefur 802 stig. Strandamaður-
inn sterki, Hreinn Halldórsson,
hlaut flest stig f keppni karlanna
eða 944 fyrir að varpa kúlunni 17,71
meter.
Það væri að æra óstöðugan að
greina frá hinni líflegu keppni í
einstökum greinum frjálsíþrótta-
keppninnar. Alls var keppt í 25
greinum frjálsfþrótta og þátttakan
var gífurlega mikil. Nefna má að f
100 metra hlaupi og langstökki
karla og kvenna voru keppendur
yfir 30. Segir það sig sjálft að í þeim
greinum hefur keppnin verið um-
fangsmikil og tekið langan tfma.
Fæstir keppendur I frjálsíþróttun-
um voru I grindahlaupunum.
0 Helzta afreksfólkið
Af félögunum I ungmennafélög-
unum hafa 11 verið valin til að
keppa með landsliði Islands I frjáls-
um íþróttum I Kalottkeppninni milli
Island, N-Noregs, N-Svlþjóðar og N-
Finnlands nú innan skamms. Eru
það þau Sigurður Jónsson HSK, Jón
H. Sigurðsson HSK, Ingibjörg Guð-
mundsdóttir HSH, Guðrún Ingólfs-
dóttir USÚ, Guðni Halldórsson
HSÞ, Pétur Pétursson HSS, Hreinn
Halldórsson HSS, Arndís Björns-
dóttir UMSK, Hafdís Ingimarsdóttir
UMSK, Karl West Fredriksen
UMSK og Jón Diðriksson UMSB.
Eðlilega setti þetta fólk mikinn
svip á keppnina á landsmótinu og
nældi sér I marga verðlaunapen-
inga. I þessum hópi eru nöfn sem
segja má að séu sjálfvalin I Iandslið.
En athygli vekur nafn Péturs
Péturssonar af Ströndum sem kom
á óvart I þrístökkinu og stökk allra
manna lengst, 13.88 metra en Aðal-
steinn Bernharðsson UMSE varð I
öðru sæti með 13.77 metra.
Hvorugur þeirra þótti líklegur til
sigurs fyrir keppnina, en komu
báðir á óvart og stóðu sig einnig með
sóma I langstökkinu.
Hólmfrlður Erlingsdóttir stóð sig
bezt allra stúlknanna á mótinu og
varð þessi tveggja barna móðir úr
Eyjafirðinum stigahæst allra. Hún
sigraði I 100 metra hlaupi, yarð
önnur I 400 metra hlaupi og fjórða I
langstökki. Fyrir þennan árangur
sinn fékk hún 14 stig og varð þvl
stigahæst kvennanna.
Bræðurnir Magnús og Angantýr
Jónassyni frá Héraðssambandi
Vestur-Isfirðinga hlupu hraðar en
allir aðrir I 100 metra hlaupinu, og
fleiri félagar þeirra að vestan stóðu
sig mjög vel. I 4x100 metra boð-
hlaupinu varð sveit HVl t.d. I öðru
sæti, og ef skiptingar þeirra Vestan-
manna hefðu verið betri, er senni-
legt að sigurinn hefði orðið þeirra.
Hraðann vantaði liðsmenn sveitar-
innar ekki.
Kristín Björnsdóttir sigraði bæði I
hástökki kvenna og 100 m grinda-
hlaupi en I langstökkinu var það
Hafdis Ingimarsdóttir sem hafði
vinninginn. Hafdísi tókst þó ekki
eins vel upp I 100 metra hlaupinu
eins og margur hafði búizt við eftir
fyrri árangri hennar að dæma og
var hún dæmd I þriðja sæti, sjónar-
mun á eftir Bergþóru Benónýsdótt-
ur.
Karl West og Sigurður Jónsson
voru mestir afreksmenn þessa móts
I karlaflokki frjálsíþróttanna, en
báðir áttu þeir við nokkur meiðsli
að stríða. Svo upptalningunni á
löngu kunnu og illsigrandi frjáls-
íþróttafólki sé fram haldið, þá unnu
þau Guðrún Ingólfsdóttir USÚ og
Hreinn Halldórsson næsta örugg-
lega slnar greinar og er langt I að
veldi þeirra verði ógnað.
0 Efnilegir unglingar
Af unga fólkinu var það Þráinr.
Hafsteinsson sem náði hvað beztum
árangri, en hann er sonur Hafsteins
Þorvaldssonar formanns Ung-
mennafélags Islands. Varð Þráinn I
2. sæti I hástökki og spjótkasti og
númer 3 I kringlukasti. Af unga
fólkinu voru það þó einkum
stúlkurnar sem vöktu athygli
Nefna má nöfn þeirra Bergþóru
Benónýsdóttur HSÞ, Sigurlínu
Gísladóttur UMSS, Maríu Guðna-
dóttur HSH og Ingibjargar Ivars-
dóttur HSK. Það er þó ósanngjarnt
að taka þessi ungmenni fram yfir
önnur þar sem svo margir ungir
keppendur sýndu skemmtileg til-
þrif, og var margt efnið á ferðinni á
mótinu á Akranesi.
0 Fjölmörg
landsmótsmet
Landsmótsmetin féllu ört á þessu
móti og alls voru metin bætt I 7
greinum. Þá var að þessu sinni
keppt I nokkrum nýjum greinum og
árangurinn þar því landsmótsmet.
Landsmótsmet voru bætt I eftirtöld-
um greinum:
Kristln Björnsdóttir I hástökki
Hreinn Halldórsson I kúluvarpi
Sigurður Jónsson I langstökki
Alda Helgadóttir I spjótkasti
Hafdís Ingimarsdóttir I langstökki
Hafsteinn Jóhannesson I 110 m
grindahlaupi
Ásbjörn Sveinsson I spjótkasti
0 Röskleg stjórn
Keppnin I frjálsum Iþróttum á
landsmótinu gekk eins vel fyrir sig
og framast var hægt að reikna með.
Eiga Sigurður Helgason, sem
stjórnaði keppninni og samstarfs-
menn hans gott hrós skilið fyrir
dugnaðinn. Ef hægt væri að kvarta
yfir einhverju, væri það hve mikið
var að gerast I einu og gátu áhorf-
endur ekki fylgzt með atburðarás-
inni I öllum greinum samtlmis.
— Þetta gekk ekki vel hjá mér,
að þessu sinni, sagði hún að lok-
inni keppni. — Það var eitthvað
að hjá mér og því slæmt að hafa
ekki þjálfarann minn nærstadd-
an. Annars meiddi ég mig I ökla I
einu af fyrstu köstunum og við
það bættist, að ég er vansvefta,
þar sem ónæði var nokkuð I tjald-
búðunum s.l. nótt. — Það var
systir min, sem sigraði I kúlu-
varpi á síðasta landsmóti, en þá
var ég 13 ára og varð I 3—4 sæti.
Ég sigraði hins vegar þá I kringlu-
kasti og keppi nú aftur I þeirri
grein og vonast til að verja titil-
inn.
— Ég hef æft ágætlega I sumar,
en það er frekar slæm æfingaað-
staða hjá okkur heima og áhugi
ekki sérlega mikill.
Hún virtist alls óþreytt, er við
hittum hana að loknu hlaupinu.
— Nei, nei, þetta var ekkert erfitt
og á morgun ætla ég að keppa i
400 m hlaupi.
— Ég byrjaðs að æfa almenni-
lega I vetur og lengsta hlaup, sem
ég hef tekið þátt I, var 4,2 km, en
það var víðavangshlaup.
— Þetta er stærsta mótið, sem
ég hef tekið þátt I, þar sem hér
eru svo margir keppendur. Um
s.l. helgi var ég á Islandsmóti
þeirra yngstu, sem fram fór í
Hafnarfirði og þar vann ég 600 m
hlaupið.
— Jú ég er ákveðin I að halda
Spretthörðu Flateyingarnir
komu heldur betur á óvart
ÞEIR tveir einstaklingar sem hvað
mesta athygli vöktu I frjálstþrótta-
keppni landsmótsins voru bræðurnir
Magnús og Angantýr Jónssynir frá
Héraðssambandi Vestur-lsfirðinga.
Sigraði Magnús I 100 metra hlaupi,
en Angantýr bróðir hans varð annar.
Þeir eru frá Flateyri og I sumar vinna
þeir báðir hjá Vegagerðinni, annar er
á jarðýtu en hinn á skurðgröfu.
Magnús hyggst hefja nám I bygg-
ingarverkfræði við háskólann f haust,
en Angantýr stundar nám við
Menntaskólann á fsafirði.
— Við æfum eiginlega ekki neitt,
sögðu þeir bræður að keppni lokinni f
100 m. — Aðstaða er yfirleitt slæm á
stöðunum fyrir vestan og áhugi ekki
nægilega mikill. A Núpi er þokkalcg
aðstaða og þar kepptum við fyrir hálf-
um mánuði á eina móti sumarsins
hingað til, er HVÍ hélt héraðsmót sitt.
Sögðust þeir bræður hafa átt von á
þvf að Sigurður Jónsson HSK mundi
sigra þá f úrslitahlaupinu, en hann
hefði ekki getað beitt sér að fullu
vegna meiðsla og hefði auk þess verið
þreyttur. Aðspurður um það hvort
hann ætlaði ekki að æfa af fullum
krafti þegar hann kæmi suður f haust
sagði Magnús að hann hefði áhuga á
þvf, en hann reiknaði tæpast með að
hafa mikinn tfma til þess frá náminu
f háskólanum.
Bræðurnir voru helzta umræðuefni
margra að lokinni keppni f 100 metra
hlaupi og undraðist fólk árangur
þeirra. I fyrra náðu þeir þó enn betri
árangri er þeir hlupu á 10.0 sekúnd-
um, en sá árangur þótti ótrúlegur og
var honum lítill gaumur gefinn.
Héldu sérfræðingar um hlaup að
tfmavarzlan hefði ekki verið nákvæm
og tfminn verið gefinn betri en hann
var. Á þessu móti syndu þ?ir bræður
þó að þeir eru sterkir hlauparar, sem
vonandi leggja rækt við fþróttirnar,
— þá lætur árangurinn tæplega á sér
standa.
Ú.M.F U.M.S.
SKIPASKAGI BORGARFJARÐAR
KÚLUVARP kvenna fór fram á
föstudagskvöldið og var það
fyrsta greinin á þessu landsmóti,
sem úrslit fengust f.
Þar sigraði, eins og við var
búist, Islandsmethafinn Guðrún
Ingólfsdóttir frá Ungmennasam-
bandinu Úlfljóti, en ekki með
eins miklum yfirburðum og ætla
hefði mátt. Það var greinilegt á
Guðrúnu, að hún var ekki ánægð
með árangur sinn, þar sem hún
varpaði kúlunni 10,30, en met
hennar er 12,61. Landsmótsmetið
er hinsvegar aðeins 10,64 og er
frá árinu 1961. Það met tókst
henni ekki að bæta, að þessu
sinni.
— Það eru alis 6 stúlkur frá
USÚ, sem taka þátt I þessu móti,
en enginn karlmaður. Þeir eru
þara heima við heyskapinn, þvi
það er nefnilega „Kvennaár" hjá
okkur I Hornafirði I ár, sagði
Guðrún að lokum.
Karl West Fredriksen f boðhlaupskeppninni. Karl var sigursæll mjög
á landsmótinu.
ná mér og reyni að fara eins var-
lega og ég get, sagði Karl er við
ræddum við hann. — Það má ekki
mikið út af bera til að meiðslin
taki sig upp aftur og þá get ég átt
á hættu að vera frá keppni I allt
gerði, en þar sem 1.02 nægðu ti
sigurs þá var ég ekkert að sperr
mig meira, enda átti ég þá eftir a
keppa I þremur greinum.
Mikill fögnuður...
Hólmfrfður Erlingsdóttir varð öllum á óvart stigahæst kvennanna f
frjálsfþróttakeppninni. Hún hlaut 14 stig og setti stjörnur eins og
Kristfnu Björnsdóttur, Hafdfsi Ingimarsdóttur og fleiri aftur fyrir sig.
Hólmfrfður er úr Þingeyjarsýslunni, en býr nú að Stóra Dunhaga I
Eyjafirði og keppir fyrir UMSE.
Hólmfrfður er tveggja barna móðir og hefur ekkert getað keppt tvö
sfðastliðin ár vegna barnanna. Er við ræddum stuttlega við hana að
keppninni f 100 metra hlaupi loknu sagðist hún ætla sér að vera með á
næsta landsmóti, svo framarlega sem hún gæti, ekki vantaði áhugann.
Það var mikið fagnað þegar Hólmfrfður kom sem sigurvegari í mark
í 100 metra hlaupinu. Eiginmaður hennar Arni Arnsteinsson og
þjálfari hennar Sigvaldi Ingimundarson fögnuðu mest og það eru þeir
sem halda á stigahæstu konunni f frjálsfþróttakeppninni — Hólmfrfði
Erlingsdóttur — á milli sfn.
KARL West Fredriksen úr UMSK
varð fyrir þvf óláni f upphafi
keppnistfmabilsins að meiðast
illa á fæti og var því frá keppni og
æfingum um tfma. En á lands-
móti ungmennafélaganna var
Karl aftur kominn f keppenda-
hópinn og dró ekki af sér. Hann
var f fremstu röð f hástökki, lang-
stökki og stangarstökki auk þess
sem hann var f hinum sterku boð-
hlaupssveitum Kjalnesinga.
— Nei ég er ekki alveg búinn að
Það skiptist á gleði og sorg f keppni landsmótsins. Á þessari mynd er
það gleðin sem ræður rfkjum, þingeyskar hlaupakonur fagna glæsi-
legum sigri f 4x100 metra boðhlaupi.
r
„Eg var ekkert þreytt”
HÚN ER ekki há i loftinu,
hún Thelma Björnsdóttir
úr Kópavogi, enda ekki
nema 11 ára. Hún lét sig
samt hafa það að keppa í
800 m hlaupi, er fram fór á
föstudagskvöldið, þar sem
hún hafnaði í 15. sæti, en
keppendur voru alls 20.
áfram að æfa og keppa og ég á
vonandi eftir að keppa I mörgum
mótum.
Þrátt fyrir meiðslin
gaf Karl hvergi eftir