Morgunblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977 5 Þrír bjóða sig fram til formennsku í SUS ÞRtR menn hafa boðið sig fram til formennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna; Jón Magnússon, lögfræðingur Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Reykjavfk, og Sigurpáll Einarsson^skipstjóri, Grindavík. Mbl. hafði samband við þá þremenningana og bað þá að svara spurningum um það, hvers vegna þeir sæktust eftiriformannsstarfinu og hvaða mái þeir myndu leggja áherzlu á sem formaður SUS. J6n iHagnússon SUS á að vera tæki til sjálfstæðrar stefnumótunar - segir Jón Magnússon % „ÉG GEF kost á mér sem for- maður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna, vegna þess, að ég hef áhuga á þvi að vinna að málefnum ungra sjálfstæðismanna", sagði Jón Magnússon. „Sem formaður Heimdallar og með setu í mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins, hef ég átt þess kost, að vinna að bar- áttumálum ungra sjálfstæðis- manna og afla þeim fylgis innan flokksins og utan. Lögð hefur ver- ið áhersla á sjálfstæða stefnumót- un og að fá fleira ungt fólk til starfa. Stofnuð hafa verið ný fé- lög ungs sjálfstæðisfólks innan Heimdallar og tengsl okkar við framhaldsskólana efld. Samband ungra sjálfstæðis- manna á að vera vettvangur ungs fólks til að korna áhugamálum sinum í þjóðmálum á framfæri og tæki til sjálfstæðrar stefnumótun- ar. Ungir sjálfstæðismenn þurfa núna að herða sóknina i þeim málum, sem þeir hafa sett sér- staklega á oddinn t.d. gegn rikis- bákninu og fyrir breytingum á kjördæmaskipaninni. En það eru ýmis fleiri mál, sem snúa beint að ungu fólki og taka þarf á af festu. Vandamálin í húsnæðis- og menntamálum, gifurleg skulda- söfnun erlendis og verðbólguþró- unin eru meðal þeirra mála. Markviss uppbygging atvinnulífs- ins er líka markmið sem skiptir ungt fólk miklu máli, því að með því móti skapast möguleikar til bættra lífskjara. Góður málefnagrundvöllur er undirstaðan, en einnig er mikil- vægt að unnið sé að eflingu félaga ungra sjálfstæðismanna með þvi að fá fleira fólk til liðs við okkur. Það er æskilegt að fleiri en einn maður gefi kost á sér til for- mannskjörs í S.U.S. Fólk á að eiga þess kost, að velja um það hver skuli gegna slíku starfi og ungir sjálfstæðismenn hafa alltaf sætt sig við úrslit slíkra kosninga og staðið saman að þeim loknum af fullri einurð. 1 þessu felst grund- vallarmunur á ungum sjálfstæðis- mönnum og fylgismönnum ým- issa annarra stjórnmálaflokka." EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Starfsemi SUS þarf að færa meira út á land — segir Sigurpáll Einarsson 0 „Ástæða þess að ég gef kost á mér til formannsstöðu SUS er sú, að ég er eindregið þeirrar skoðun- ar að timabært sé að menn af landsbyggðinni láti meira að sér kveða í forystu Sambands ungra sjálfstæðismanna", sagði Sigur- páll Einarsson. „Við síðasta formannskjör voru tveir Reykvíkingar í framboði og þegar ég vissi af því að tveir Reykvíkingar hygðust bjóða sig fram nú, fannst mér það skylda mín þegar fleiri framboð voru ekki nefnd, að gefa kost á mér. Ég vil stefna að því að starf SUS verði meira i þágu þeirra, sem búa utan höfuðborgarsvæðis- ins, og þá hefði ég fullan hug á að færa starfsemina meira út á land og þá í réttu hlutfalli við búsetu stjórnarmanna. Nú eru 9 af 22 stjórnarmöjnum SUS úr Reykja- vík og slik skipting ætti að bjóða upp á 9 af hverjum 22 fundum í Reykjavík, en hinir þrettán yrðu þá haldnir úti á landi, þar sem gæfist þá kostur á að fjalla itar- lega um málefni hvers kjördæmis Dönsku lista- konurnar sýna til 4. september FRÁ þvi hafði verið skýrt i Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum, að dönsku listakonurn- ar, Lone Plaitner og Mabel Rose, sýndu í Norræna húsinu til 7. september. Hér var um ranghermi að ræða sýning þeirra stendur aðeins til 4. september. Þetta leiðréttist hér með. Enskur mynd- listarmaður sýnir hér ENGLENDINGURINN John Liggings mun á laugardaginn opna málverkasýningu i gallerí Suðurgötu 7 klukkan 20.00. Sýningin verður opin virka daga klukkan 18—22 og um helgar frá 14—22 til 14. september. John sem er Eng- lendingur að þjóðerni hefur lengst af sinum ferli sem myndlistarmaður starfað í Hol- landi. Tónleikar Guðnýjar og jenkins GUÐNÝ Guðmundsdóttir og Philip Jenkins halda sónötu- tónleika í Norræna húsinu á sunnudagskvöld. A efnisskránni eru sónötur eftir Leclair, Brahms, Jón Nor- dal og Grieg. Tónleikarnir hefjast kl. 8.30 e.h. Sigurpáll Einarsson fyrir sig. Með þessu yrði á engan hallað, því það er ekkert erfiðara fyrir Reykvíkinga að sækja fundi út á land, en fyrir landsbyggðar- menn að sækja fundi í höfuðborg- inni. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur allra landsmanna og ég vil að það verði tryggt með sem víðtækustu starfi, en ekki að öll völd einangrist í Reykjavik. Nú, ég hef mikinn áhuga á sjáv- arútvegsmálum og ég vildi að þeim málum yrði þannig skipað, að ábyrg og virk stjórnun á þeim i framtíðinni yrði tryggð, burtséð frá þvi hvaða einstaklingur færi með embætti sjávarútvegsráð- herra". Taka verður tillit til ungra sjálf- stæðismanna — segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 0 ..ÉG HEF lengi haft áhuga á stjórn- málum og í fjölmörg ár tekið þátt I starfsemi ungra sjálfstæðismanna', sagði Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson ..Undanfarin ár hef ég setið í stjórn SUS og siðustu tvö kjörtímabil egnt þar stöðu varaformanns. Með þátttöku I starfi ungra sjálfstæðismanna hef ég talið mig geta lagt lið baráttunni fyrir þeim grundvallarhugsjónum sem Sjálf- stæðisflokkurinn byggir á Ég vil sjá þær grundvallarhugsjónir rætast, verða að veruleika en ekki þynnast út i daglegri stjórnsýslu Svo að þessum markmiðum verði náð þarf SUS að beita sér fyrir auknu fræðslu- og menningarstarfi, ekki sízt úti á landsbyggðinni. Efling Stjórn- málaskóla Sjálfstæðisflokksins, sem ég hef starfað við undanfarin ár, er mikil- vægur þáttur i þessu Nú um nokkurt skeið hefur Sam- Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson band ungra sjálfstæðismanna lagt höf- uðáherzlu á baráttu gegn auknum rikis- afskiptum á öllum sviðum en þess í stað dregið fram gildi einstaklingsfrels- isins i atvinnu- og menningarmálum. Mikil undirbúningsvinna hefur verið lögð i þetta starf af hálfu stjórnar SUS. Þetta verkefni ásamt baráttunni gegn verðbólgunni á að vera þungamiðja hins pólitiska starfs sem ungir sjálf- stæðismenn verða að einbeita sér að á næstu misserum. Það er ekki nóg að samþykkja álykt- anir um þessi mál, heldur verður að fylgja þeim fast eftir og gera kröfu til þess að flokksforystan og þingmenn flokksins taki fullt tillit til sjónarmiða ungra sjálfstæðismanna og aðgerðir þeirra á þingi og í rikisstjórn mótist af þeim

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.