Morgunblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977 29 f/)ik í umJu Bm ■ fréttum ( ~ „Bláu bami” bjargað með skurðaðgerð + Litli drengurinn á mynd- inni heitir Campbell McMillan. Þegar hann fæddist var hann svokallaS „blátt barn" og hefSi lifaS í mesta lagi 24 tíma ef ekk- ert hefSi veriS aS gert. En Campbell litli var strax fluttur á skurSdeild sjúkra- hússins í Glasgow F Skot- landi þar sem hann fæddist og þar gerSi yfirlæknirinn, prófessor Philip Caves, einn af færustu hjartasér- fræSingum í heimi, aSgerS á honum. Hann var 1 2 tima á skurSarborSinu. Camp- bell litli er nú kominn heim til foreldra sinna og virSist fullkomlega heilbrigSur. Yfirlæknir barnadeildarinn- ar þar sem Campbell var eftir uppskurðinn segir: „Það er einsdæmi að svona lítið barn gangist undir svo flókna skurSaðgerð. Fyrir tveimur árum hefSi ekki verið hægt að bjarga lifi drengsins. Það hefSi verið talið vonlaust." Prófessor Philip Caves sagSi, er hann var spurSur hvort hann hefði ekki verið orðinn þreyttur, að standa 12 tima við skurðarborðið: „í svona tilfellum gleymir maSur timanum, ég hugsaði ekki um annað en að bjarga lifi litla drengsins." Á mynd- inni er Campbell litli um- kringdur hjúkrunarfólkinu sem aðstoðaði við upp- skurðinn. Litla myndin efst í hægra horninu er af pró- fessor Caves. Hárfín kóróna + Það var mikið um dýrðir í Englandi í tilefni 25 ára ríkis- stjórnarafmælis Elísabetar Englangdsdrottningar. Vanya frá Hong Kong vildi Ifka gera eitthvað til hátíðabrigða. Hún fór til hárgreiðsiumeistara og árangurinn var þessi nýstár- lega hárgreiðsla sem við sjá- um á myndinni. + Það er ekki fyrir alla að hafa gæludýr. Það sannar þessi smái Shetlands-hestur eins og vel má sjá. Peter Saunders, dýraeftirlitsmaður i bænum Plaistow i New Hampshire i Bandarikjunum, sem hér sést við hliö hestsins, tók hann af eiganda hans eftir að kæra hafði borizt um illa meðferð dýrsins. Hesturinn hafði verið bundinn á stalli i rúmlega 2 ár og hafði aldrei verið mokað frá honum eða hreinsað i kringum hann allan timann. Hófar hestsins eru ofvaxnir eins og sjá má. Menn geta gert sér í hugarlund hvernig dýrinu hefur liðið. — Dauðadómur Framhald af bls. 10 frystistöðvar Stokkseyrar á næstunni. Jóhann var spurður fyrst hvers vegna Stokkseyrarhrepp- ur hefði ekki hlutazt til um að togarinn Bjarni Herjólfsson landaði afla sínum úr siðustu ferð hérlendis svo nægt hráefni hefði verið fyrir hendi. — Við i sveitarstjórninni skiptum okk- ur ekkert af rekstri togarans beint, heldur er okkar fulltrúi i stjórn fyrirtækisins sem sér um rekstur hans, og að þeirra mati var nauðsynlegt að selja aflann gegn staðgreiðslu en það var algjörlega ómögulegt hérlendis. *Ef togarinn hefði hins vegar landað hér hefði það þýtt að sjómennirnir hefðu ekki fengið sín laun greidd og ekki hefði verið hægt að kaupa oliu til áframhaldandi veiða. En þetta gengur frá viku til viku á þeim fiski sem bátar hraðfrystistöðvarinnar leggja upp en það er engan veginn það magn sem frystihúsið gæti tek- ið á móti. En við gerum okkur auðvitað vonir um að hægt verði að fá afla togarans úr næstu ferð til vinnslu hér og í Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Eitt dæmi um hversu fólk er fljótt að draga i land er að þegar fréttist um einhvern sam- drátt hættir fólkið umsvifalaust að greiða sin gjöld til sveitarfé- lagsins. Eins og er þá er enginn hjá okkur á atvinnuleysiskrá, þann- ig að við getum ekki kvartað ennþá þó lokunardraugurinn vaki stöðugt yfir okkur. Þá eru skólar að byrja svo að við það fækkar fólki töluvert og miðað við sama afla ætti að vera mjög þokkaleg vinna hér hjá okkur sagði Jóhann að lokum. — Jakob Hafstein Framhald af bls. 17 mála landslag Efniviður margra myndanna á sýningunni er sóttur til Snæfellsness „Ég hef mikið lagt leið mína þar um síðustu árin og orðið meir og meir hugfanginn af þeirri fegurð sem þar er Því má segja að hér séu þingeysku áhrifin að dvína, en það er alltjent gott að fara með þingeyskt loft til Snæfells- ness. Þannig verður útkoman von- andi ágæt, en ég held að það sem hér er sé vandaðasta sýningin sem ég hef haldið til þessa". bætti Jakob við Jakob sagðist mest dálæti hafa á vatnslitunum, og væri það sennileg- ast fyrir það hve erfiðir þeir væru Sagði hann og að myndlistin væri nú orðin snar þáttur í lífi hans að hún gæti vart talizt tómstundagam- an lengur, þó svo hann málaði aldrei nema hann beinlinis langaði til þess „En maður skellir sér samt sennilega ekki út i þetta að öllu leyti, þvi brauðstritið og lífsbaráttan kalla allt- af á mann", bætti hann við Að- sptjrður sagðist Jakob hafa mestar mætur á Sverri Haraldssyni og Jó- hannesi Geir islenzkra málara, og auk þess hefði Sverrir heitinn Þórar- insson verið mikill listamaður, og það væri einnig eftirlifandi kona hans, Karin Agnete Jakob sagði að Listasafn íslands hefði ekki keypt neina mynda hans, „enda ekki i þeim klassa sem til þarf", og forstöðukona þess reyndar aldrei sótt sýningar sinar Reykja- vikurborg hefur þó keypt nokkur málverka Jakobs Alls sýnir Jakob 47 myndir að þessu sinni og eru myndirnar á verði frá 35 þús upp i 200 þús kr þær allra stærstu, en flestar eru þær á bilinu 35—60 þúsund, að sögn Jakobs \l (il.YSlNCASIMINN KK: 22480 Jíl#rj)imI)Inbií> Á næstunni ferma pskipvor til íslands isem hér segir: írafoss 7. sept. Úðafoss 8. sept. | Skeiðsfoss 1 3. sept. Grundarfoss 1 9. sept. ROTTERDAM: Úðafoss 7. sept. Skeiðsfoss 1 4. sept. Grundarfoss 20 sept. FELIXSTOWE Mánafoss 6. sept. Dettifoss 1 3. sept. Mánafoss 20 sept. Dettifoss 27. sept. HAMBURG: Mánafoss 8. sept. Dettifoss 1 5. sept. Mánafoss 22. sept. Dettifoss 29. sept. PORTSMOUTH: Selfoss 6 sept Bakkafoss 7. sept Brúarfoss 21 sept Bakkafoss 30 sept KAUPMANNAHÖFN: Laxfoss 6. sept. Háifoss 1 3. sept. Laxfoss 20. sept. Háifoss 2 7. sept. í GOTHENBURG: Laxfoss 7. sept. Háifoss 1 4 sept. Laxfoss 21. sept. j Háifoss 28. sept. i HELSINGBORG: Urriðafoss 1 4 sept Tungufoss 21. sept Álafoss 30. sept. MOSS: Urriðafoss Tungufoss Álafoss j KRISTIANSAND Álafoss Urriðafoss Tungufoss Álafoss | STAVANGER: Álafoss Urriðafoss Tungufoss Álafoss 1 5 . se 22. se 1. o 5. se 1 6 . se 23. se 3 c 6. : 1 7. : 24. 4 GDYNIA/GDANSK: Múlafoss 8. i VALKOM: Múlafoss 13. rs írafoss 2 7. Ljj Múlafoss 1 1 m fp WESTON POINT: U Kljáfoss 13 W Kljáfoss 29. I _ p Reglubundnar É ferðir hálfs- P mánaðarlega I fráValkomí Finnlandi ALLT MEÐ EIMSKIP ll 1 1 rI IF i ®

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.