Morgunblaðið - 23.10.1977, Side 31

Morgunblaðið - 23.10.1977, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÖBER 1977 63 — Bækur Framhald af bls. 34. Mary Stewart. Aður hefur kom- ið út á íslensku skáldsagan I skjóli nætur eftir sama höfund. Iðunn hefur á undanförnum árum lagt áherlsu á útgáfu barna- og unglingabóka. I ár hefst útgáfa á teiknimyndasög- um. Fyrsta bök í flokki er um Sval og félaga og nefnist Hrak- fallaferð til Feluborgar. Höfundurinn, Franquin, hefur þegar hlotið heimsfrægð fyrir teiknimyndasögur sínar. Hin fjögur fræknu og kapp- aksturinn mikli og Hin fjögur fræknu og vofan eftir Francois- Georges eru fyrstu teikni- myndasögurnar í flokki um krakka sem láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. ^ Galdramaðurinn eftir Ursula Le Guin kemur nú út í íslenskri þýðingu Guðrúnar Bachmann og Peter Cahill. Stríðsvetur er unglingabók eftir hollenskan höfund, Jan Terlouw. Hún gerist í síðari heimsstyrjöldinni þegar Hol- land er hersetið af Þjóðverjum. Úlfur Hjörvar íslenskaði bók- ina sem hlaut verðlaun sem besta barnabók í Hollandi 1973. Græna blómið er bók í máli og myndum eftir Róbert Guille- mette, franskan myndlistar- mann, sem hefur verið búsettur hér á landi undanfarin ár. Bók- in er við hæfi barna og fullorð- inna. Magnús Rafnsson og Arn- lín Óladóttir sneru bókinni á íslensku. Lærið að tefla er nýútkomin kennslubók í skák fyrir börn. Bókin er i stóru broti og prýdd fjölda litmynda. Hún er prent- uð og bundin á Kararíeyjum. Tvær bækur um Barbapapa eru nýlega komnar út. Þær nefnast Barbapapabókin 1977 og Skólinn hans Barbapapa. Bækurnar um Barbapapa eru gefnar út í nálega tuttugu lönd- um. Sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar um Barbapapa og fjölskyldu hans. Albin og furðuhjólið og Albin og undraregnhlífin eru nýjar bækur yfir yngstu les- endurna eftir sænska höfund- inn Ulf Löfgren. Þá koma út fjórar nýjar bæk- ur um Tuma og Emmu eftir Gunilla Wolde. Af bókum útgefnum fyrri hluta árs má nefna: Uml, grein- ar um dægurmál eftir Þorgeir Þorgeirsson. Veðurfar á tslandi eftir Markús A. Einarsson. Heilbrigð skynsemi í skák eftir Emanuel Lasker í þýðingu Magnúsar G. Jónssonar. Þættir úr rekstrarhagfræði eftir Gylfa Þ. Gíslason. Drög að almennri og fslenskri hljóðfræði eftir dr. Magnús Pétursson. Móðurmál, leiðarvisir handa kennurum og kennaranemum, eftir Baldúr Ragnarsson. Endurprentanir áður útgef- inna bóka eru m.a.: Jón Oddur og Jón Bjarni eftir Guðrúnu Helgadóttur, 1 afahúsi eftir sama höfund, Vísanbókin í út- gáfu Símons Jóh. Ágústssonar, Bfllinn eftir Guðna Karlsson, sjö bækur eftir Alistair Mac- lean, Punktur, punktur, komma, strik eftir Pétur Gunn- arsson, Galdra-Loftur eftir Jóhann Sigurjónsson í útgáfu Njarðar P. Njarðvík, Hrafn- kellssaga i útgáfu Óskars Hall- dórssonar, Mál og málnotkun eftir Baldur Ragnarsson, Merkingarfræði eftir Arna Böðvarsson og Sálarfræði eftir Simon Jóh. Ágústsson. A síðasta ári gaf Iðunn út sína fyrstu hljómplötu með vís- um úr Vísnabókinni. I ár gefur Iðunn út tvær hljómplötur. Önnur þeirra er með visum úr Vísnabókinni og nefnist Ut um græna grundu. Hin nefnist A bleikum náttkjólum og hefur að geyma ljóð og lög Megasar, flutt með aðstoð Spilverks þjóð- anna sem annast útsetningar. — Aðallega Framhald af bls. 37 að því hvernig hugmyndir hans verði til: — Það er eiginlega með ýmsu móti, stundum teikna ég á blað og stundum geri ég módel af hugmyndinni í létt efni, t.d. plast og stundum í tré. Þessi vinnubrögð verða til að miklu leyti hjá hverjum og einum held ég, tæknina lærir maður í skólanum, en síðan velur hver úr sína aðferð. Eg vinn líka oft fleiri en eina mynd út úr sömu hygmyndinni. það er svona eins og að yrkja mörg vers út frá sama yrkisefninu, en ég hef mjög gaman að fást við þannig myndir. Sem fyrr segir á Guðmundur Benediktsson 10 verk á haust- sýningu Félags íslenzkra mynd- listarmanna á Kjarvalsstöðum og lýkur þeirri sýningu á sunnudagskvöld. — Handbragð Framhald af bls. 38 kynnti mönnum úrsmiðar, og öll þau verkfæri og úr sem i básnum voru. Sagði Hjörtur það af sem áður hefði verið, nú væru heil úr eða hlutir i þau vart smíðuð, ef eitthvað færi úrskeiðis i úrunum, heldur ný úr og nýjar klukkur keyptar. I kynningarriti Arbæjar- safnsins segir svo um úrsmiði: Þegar i fornöld voru menn farnir að mæla timann eftir gangi sólar. A miðöldum hófst smiði hjólúrs, en' frá því hafa þróast þær gerðir úra sem við þekkjum. 1 fyrstu var eingöngu um stórar klukkur að ræða, var úrverkið knúið áfram með lóð- um og erfitt að flytja. Urfjöðrin var fundin upp við lok miðalda og var þá unnt að flytja klukk- urnar til án þess að úrverkið stöðvaðist við það. Leiddi upp- finning^úrfjarðarinnar til smiði vasaúrs i byrjun 16 aldar. Enda þótt úrsmiði sé alda- gömul iðn, munu islendingar ekki hafa lært hana fyrr en eftir miðja siðustu öld. Ur og klukkur bárust seint til lands- ins og voru þau send til Dan- merkur, ef viðgerðar var þörf. Eyjólfur Þorkelsson var fyrsti islendingurinn sem lauk námi í úrsmíði. Starfaði hann i Reykjavik og smiðaði bæði klukkur og úr. Árið 1881 kom Magnús Benjamínsson heim frá námi í Danmörku og setti á stofn vinnustofu og verslun og starfaði fyrirtækið til ársloka 1976. Smiðaði Magnús bæði úr og klukkur og þótti snillingur á sínu sviði. Á siðari tímum hefur verið æ fátiðara að úrsmiðir smiði úr og klukkur sjálfir heldur’ hafa þeir nær eingöngu unnið við viðgerðir. Fram á okkar daga hefur þetta hins vegar breyst með tilkomu rafhlöðuúra. — Veröld Framhald af bls. 43 hefur hún sett upp nokkrar bæki- stöðvar á helztu spilavítaleiðun- um og gistir þar á ferðum sínum. Er þar alls staðar höfðinglegt heim að líta. 1 Teheran á hún höll, I París íbúð, sem kostaði 500 þús. sterlingspund (165 millj.kr.) og hún keypti óséna, í London gríðarstórt einbýlishús, annað ekki síðra í Juan Les Pins, og loks hefur hún hótelíbúð í New York á leigu allan ársins hring. Er það ærinn starfi að flengjast milli þessara viðkomustaða. enda sér prinsessan næsta lítið af fjöl- skyldu sinni, eiginmanni og þremur börnum. Hún hefur þó gefið sér tíma til þess á undanförnum árum að vinna að framgangi kvennrétt- indamála, svo og útbreiðslu lestr- ar- og skriftarkunnáttu í Iran. Þrír fjórði lilutar Irana eru ólæs- ir og óskrifandi, svo að ekki mun af liði prinsessunar veita. Aftur á móti lætur hún sér ekki jafn annt um mannréttindamál-- in. Um þau sagði hún aðspurð í viðtali fyrir stuttu: „Ég las það einhvers staðar, að fangar í tran væru brenndir lifandi ... eða hvað þið nú kallið það .. >„Kom þá hirðmaður til hjálpar og sagði „grillaðir, yðar hátign?“ Allir föru að hlæja og prinsessan bætti við: „Einmitt —grillaðir“. En þið megið trúa þvi, að þetta er alger fjarstæða. Hví skyldum við grilla menn? Þess er engin þörf; við höfum miklu mannúðlegri ráð til þess að fá sannleikann upp úr fólki. Lyfjagjafir til dæmis. Við Iranir erum siðmenntuð þjóð ...“ — ROSSBENSON Frœdslufundir um kjarasamninga V.R. Nýir þættir kjarasamninga V.R. Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 26. október 1977, kl. 20.30 að Hagamel 4 Framsögumaður Magnús L. Sveinsson t k ' Magnus L Sveinsson >1 ÖiBílEá viö erum yÖDLEGRl k' Sem einn hlekkur í stœrstu bílaleigukeóju Evrópu er okkur unnt aó veita mun betri þjónustu en óóur begar þú feróast til útlanda, þa er aóeins aó hafasamband vióokkur, aóuren þú feró og vió munum sjó urfi aó bíll fró InterRent bíói eftir þer ó hvaóa flugvelli sem er, eóa annars staóar, ef þu óskar þess car rental OKKAR BÍLL ER ÞINN BILL HVAR SEM ER OG HVENÆR SEM ER þetta er þjónustutakmark okkar Aó sjólfsögóu veitum vió allar uppiýsingar þú þarft aóeins aó hringja eóa koma BORGARTUNI 24 - SIMAR 24460 & 28810

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.