Morgunblaðið - 12.02.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1980
3
Flokksráð sjálfstæðismanna á 12 tíma fundi:
FLOKKSRÁÐ sjálfstæðis-
manna kom saman til fundar á
sunnudag kl. 14 í Valhöll til að
ræða þau viðhorf, sem skapast
hafa vegna stjórnarmyndunar
Gunnars Thoroddsens. Á fund-
inum. sem stóð í um tólf
klukkustundir. var samþykkt
ályktun, sem Geir Hallgrímsson
formaður flokksins bar fram
um andstöðu Sjálfstæðisflokks-
ins við ríkisstjórnina og mál-
efnasamning hennar. Hlaut
þessi tillaga 103 atkvæði, 29
voru á móti en auðir seðlar voru
9. Þá var samþykkt samhljóða
tillaga Geirs. þar sem hvatt er
til einingar og trúnaðar við
flokkinn til heilla landi og lýð.
Þegar fjölmennast var á fund-
inum sóttu hann rúmlega 180
flokksráðsmenn víðsvegar að af
landinu. Atkvæðagreiðslan fór
fram langt gengið í þrjú aðfara-
nótt mánudagsins og höfðu þá
Geir Hallgrímsson og Gunnar Thoroddsen heilsast í upphafi flokksráðsfundarins. Á milli þeirra
stendur Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþingismaður. Ljósm. RAX.
Ræðumenn lögðu áherslu
á einingu innan f lokksins
— engar tillögur eða kröfur um brottrekstur
nokkrir horfið af fundi, eins og
atkvæðatölur bera með sér. Alls
voru fluttar 34 ræður á fundin-
um.
Samkvæmt 10. grein skipu-
lagsreglna Sjálfstæðisflokksins
skal bera samstarf við aðra
flokka undir flokksráð, sem fer
með æðsta vald í flokksmálum
milli landsfunda. Gunnar Thor-
oddsen varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins virti ekki þetta
ákvæði reglnanna við stjórn-
armyndun sína og var til flokks-
ráðsfundarins boðað að frum-
kvæði Geirs Hallgrímssonar. í
ræðum manna var aðdragandi
stj órnarmyndunarviðræðnanna
rakinn og afstaða tekin til mál-
efnasamnings ríkisstjórnarinn-
ar. Um nánari viðhorf í þessum
efnum er vísað til forystugreinar
Morgunblaðsins í dag. Ekki
komu fram neinar tillögur eða
kröfur um brottrekstur manna
úr flokknum og lögðu allir ræðu-
menn áherslu á nauðsyn eining-
ar innan flokksins, þótt skilið
hefðu leiðir að sinni, er a.m.k. 3
þingmenn hafa gengið gegn
meirihlutaákvörðun þingflokks
til stjórnarsamstarfs við Fram-
sóknarflokk og Alþýðubandalag.
Ræður fluttu í þessari röð:
Geir Hallgrímsson, Gunnar
Thoroddsen, Sverrir Hermanns-
son alþingismaður, Jónas H.
Haralz bankastjóri, Matthías
Bjarnason alþingismaður, Pálmi
Jónsson landbúnaðarráðherra,
Ellert B. Schram fyrrv. alþingis-
maður, Friðjón Þórðarson dóms-
og kirkjumálaráðherra, Ólafur
G. Einarsson alþingismaður,
Gísli Jónsson menntaskólakenn-
ari, Guðmundur H. Garðarsson
fyrrv. alþingismaður, Egill
Jónsson alþingismaður, Jón
Magnússon héraðsdómslög-
maður, Guðmundur Borgþórsson
tæknifræðingur, Matthías Á.
Mathiesen alþingismaður, Júlíus
Þórðarson bóndi, Ófeigur
Gestsson ráðunautur, Björn
Arason umboðsmaður, Óðinn
Sigþórsson bóndi, Halldór
Blöndal alþingismaður, Gísli
Baldvinsson kennari, Björgólfur
Guðmundsson forstjóri, Haukur
Gunnar Thoroddsen forsætlsráðherra kemur til fundar í fylgd
sjónvarpsmanna. Ljósm. RAX.
Eggertsson forstjóri, Sigurlaug
Bjarnadóttir fyrrv. alþingis-
maður, Stefán Jónsson bóndi,
Árni Helgason símstöðvarstjóri,
Ragnhildur Helgadóttir fyrrv.
alþingismaður, Víglundur Þor-
steinsson forstjóri, Birgir ísl.
Gunnarsson alþingismaður,
Björg Einarsdóttir formaður
Hvatar, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson alþingismaður,
Árni Grétar Finnsson hæsta-
réttarlögmaður.
Hlé var gert á fundinum frá
19.15 til 20.45. Eftir kvöldmat
var ræðutími manna takmark-
aður við 7—10 mínútur, það er
eftir ræðu Ellerts B. Schram, þó
var þeim Friðjóni Þórðarsyni og
Ólafi G. Einarssyni heimilað að
tala í 15 mínútur hvorum. í lok
umræðnanna tóku þeir Gunnar
Thoroddsen og Geir Hallgríms-
son aftur til máls. Þess var
krafist, að atkvæðagreiðsla væri
leynileg og skrifleg um tillögu
Geirs Hallgrímssonar og þá
breytingartillögu, sem við hana
var gerð.
Tillaga Geirs Hallgrímssonar
var svohljóðandi:
„1. Flokksráð Sjálfstæðisflokks-
ins lýsir yfir stuðningi sínum við
afstöðu miðstjórnar og þing-
flokks til stjórnarmyndunar
Gunnars Thoroddsen, Alþýðu-
bandalags og Framsóknarflokks.
Flokksráðið lýsir því yfir and-
stöðu Sjálfstæðisflokksins við
ríkisstjórnina og málefnasamn-
ing hennar.
2. Flokksráðið leggur áherzlu
á að samstaða sjálfstæðisfólks
um land allt er meginforsenda
fyrir framgangi sjálfstæðis-
stefnunnar og hvetur því til
einingar og trúnaðar við flokk-
inn til heilla landi og lýð.“
Stefán Jónsson á Kagaðarhóli,
formaður kjördæmisráðs í Norð-
urlandi vestra, og fleiri báru
fram eftirfarandi breytingartil-
lögu við tillögu Geirs Hallgríms-
sonar.
„Fiokksráð Sjálfstæðisflokks-
ins lýsir vonbrigðum sínum yfir
því, að þingflokkurinn skyldi
ekki ná samstöðu um myndun
starfhæfrar ríkisstjórnar. jafn-
framt telur flokksráðið að öll
andstaða Sjálfstæðisflokksins
við ríkisstjórnina verði að
mótast hverju sinni eftir mati á
málefnum.
Flokksráðið leggur höfuð-
áherzlu á, að samheldni og
eining náist meðal sjálfstæðis-
fólks um land allt, en það er
meginforsenda fyrir framgangi
sjálfstæðisstefnunnar. Þess
vegna skorar flokksráðið á al-
þingismenn og aðra forystu-
menn að leggja sig fram um að
ná samkomulagi og felur for-
manni að hafa forgöngu um þess
háttar tilraunir."
Undir tillöguna skrifuðu: Stef-
án Jónsson, Jóhann Sæmunds-
son, Ingibjörg J. Hannesson,
Björn Arason, Adolf J. Bernd-
sen, Jón Ólafsson, Þórarinn
Þorvaldsson, Sigríður Ásgeirs-
dóttir, Þráinn'Jónsson, Ólafur B.
Óskarsson.
Breytingartillaga Stefáns o.fl.
var fyrst borin undir atkvæði af
þessum tveimur tillögum og var
hún felld þar sem 106 sögðu nei,
32 já en 3 seðlar voru auðir.
Þá var tillaga Geirs Hall-
grímssonar borin upp í tveimur
liðum. Fyrri hlutinn var sam-
þykktur með 103 atkvæðum, 29
sögðu nei og 9 seðlar voru auðir.
Annar liður tillögunnar var
samþykktur samhljóða.
Björgólfur Guðmundsson
flutti eftirfarandi tillögu, sem
vísað var til miðstjórnar með
yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða:
„Flokksráð leggur höfuð-
áherslu á samheldni og einingu
innan flokksins og skorar á
alþingismenn og aðra forystu-
menn flokksins að leggja sig
fram um að ná sáttum og
samstöðu.
Fundurinn minnir jafnframt á
þau meginatriði, sem mótuð
voru við stofnun flokksins árið
1929: „Að vinna að víðsýnni og
þjóðlegri umbótastefnu á
grundvelli einstaklingsfrelsis."
Fundurinn leggur áherslu á, að
Sjálfstæðisflokkurinn keppi að
þessu sama markmiði, þótt um
stundarsakir greini á um leiðir.
Þess vegna samþykkir flokks-
ráð að kjósa 5 menn, sem leiti
allra leiða til sátta svo að
flokkurinn megi starfa heill og
óskiptur eins og hinn almenni
flokksmaður ætlast til. Flokks-
ráð verði kallað saman að nýju,
þegar álit þessara aðila liggur
fyrir og geti að því fengnu tekið
yfirvegaða og heilladrjúga af-
stöðu.“
Þá samþykkti flokksráðið
samhljóða að vísa þessari tillögu
sem Óðinn Sigþórsson auk 17
annarra ritaði undir til mið-
stjórnar: „Flokksráð Sjálfstæð-
isflokksins skorar á miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins að boða til
landsfundar flokksins næsta
haust.“
Gunnar Thoroddsen heilsar Birni Þórhallssyni stjórnarformanni Dagblaðsins. Ljósm. Ól. K. M.