Morgunblaðið - 12.02.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1980
15
Nýr sjúkrabíll
til Egilsstaða
í DAG. 9. íebrúar afhenti Rauða-
krossdeild Fljótsdalshéraðs og
Borgarfjarðar eystra sjúkrahús-
inu á Egilsstöðum nýjan og full-
kominn sjúkrabíl tií rekstrar.
Það var Ragnar 0. Steinarsson
formaður Rauðakrossdeildarinn-
ar, sem afhenti forstjóra sjúkra-
hússins bifreiðina, sem er af
gerðinni Citroen CX Ambulance.
Bifreiðin er flutt inn með full-
komnasta neyðarútbúnaði. Að-
staða til aðhlynningar er mjög góð
að sögn lækna. Þar er möguleiki á
vökvagjöf og súrefnisgjöf og hægt
er að tengja ýmis tæki við rafkerfi
bifreiðarinnar. Fullt verð er kr.
16,7 milljónir, en eftir niðurfell-
ingu ýmissa opinberra gjalda var
verðið 9,7 m.kr.
Sjúkrabifreiðin verður rekin af
sjúkrahúsinu á Egilsstöðum og sjá
starfsmenn þess um akstur bif-
reiðarimiar að öllu jöfnu. Sú
tilhögun er þó höfð á kvöldin að þá
ganga félagar í björgunarsveitinni
Gró hálfgerðar sjálfboðaliðsvaktir
við akstur þegar þörf krefur.
Fréttaritari.
Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur:
Námskeið í rallakstri ívor
NÝLEGA var haldinn aðalfund-
ur Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykja-
víkur, en félagar eru nú kringum
170. BÍKR gerðist stofnfélag í
Landssambandi íslenskra akst-
ursiþróttamanna á síðasta ári, en
innan þeirra samtaka eru öll
félög sem stunda akstursiþróttir
hér á landi.
Á aðalfundinum voru m.a.
kynntar þær keppnir, sem fyrir-
hugað er að halda á árinu:
Næst á dagskrá klúbbsins er
keppni í ísakstri og ís-cross, og er
þetta önnur keppnin á þessu ári.
Sú fyrri var í janúarlok og voru
áhorfendur þá fjölmargir. ís-
keppnir á vegum klúbbsins fara
fram á Leirtjörn við Úlfarsfell og
verður næst sunnudaginn 17.
febrúar, ef veður leyfir.
Sparakstur verður síðan hald-
inn 11. maí og verður með breyttu
fyrirkomulagi, sem nánar verður
kynnt síðar. Þar gefst bifreiða-
umboðunum kostur á að kynna
nýjar tegundir fyrir árið 1980.
Fysta rall-keppni klúbbsins
verður haldin dagana 20.—24. ág-
úst og verður hún með svipuðu
fyrirkomulagi og Vísis-keppnin í
fyrra. í tengslum við þá keppni
hafa erlendir keppendur og bíla-
framleiðendur þegar haft sam-
band við klúbbinn og beðið um
upplýsingar varðandi keppnina.
Hið árlega haustrall verður
síðan haldið dagana 25. og 26.
október.
Fyrir utan keppnir BÍKR verða
a.m.k. tvær rall-keppnir hjá öðr-
um klúbbum, þ.e. hjá BÍB og
BÍKH.
Þá er á næstu vikum ráðgerð
sýning á rallbílum og ýmsum
búnaði er tilheyrir akstursíþrótt-
um og þegar líður á vorið er
ætlunin að koma á fót rallskóla og
halda æfingarall í tengslum við
hann.
Gamlar krónur og nýkrónur
verða í gildi um áramótin
MEÐ setningu laga nr. 35 frá
29. maí 1979 um breytt verð-
gildi íslenzks gjaldmiðils var
ákveðið. að frá og með 1. janúar
1981 hundraðfaldist verðgildi
krónunnar. Jafngildir þá ein
króna eitt hundrað gömlum
krónum og á sama hátt jafn-
gildir einn eyrir nýrrar krónu
einni gamalli krónu. Verð eldri
seðla og myntar. sem í umferð
eru um áramótin. breytast í
samræmi við það.
Hvers konar fjárhæðir í verð-
bréfum, víxlum, samningum,
gjaldskrám og dómum, svo að
nokkuð sé nefnt, sem stofnað er
til fyrir næstu áramót en greidd-
ar eftir þau, breytast þannig, að
hin nýja fjárhæð telst einn
hundraðasti hluti af hinni eldri
fjárhæð.
Með verðgildisbreytingunni
koma nýir seðlar og mynt í
umferð, samhliða því að núgild-
andi seðlar og mynt fara smám
saman úr umferð.
Viðskiptaráðuneytið hefur nú
auglýst hina nýju seðla og mynt
í Lögbirtingablaðinu hinn 8. þ.m.
Er útgáfan í aðalatriðum
óbreytt eins og hún hefur áður
verið kynnt. ítarlegri kynning er
væntanleg í fjölmiðlum fljót-
lega.
Heiti nýja gjaldmiðilsins verð-
ur óbreytt og aurar teknir í
notkun á ný. Tímabundið á þessu
ári fram á næsta ár getur verið
gagnlegt í viðskiptum, sérstak-
lega í skriflegum samningum, að
taka upp stytt heiti á gamla og
nýja gjaldmiðlinum. Gert er ráð
fyrir, að gamli gjaldmiðillinn
heiti „gömul króna" eða „gamlar
krónur" stytt „gkr“ eða „Gkr“,
en „ný króna“ og „nýkrónur"
stytt „nýkr“ og „NÝkr“. Ekki er
ráðlegt að nota styttinguna
„nkr“, þar sem sú skammstöfun
á einkum við norskar krónur.
Núgildandi seðla og mynt
verður hægt að nota í öllum
viðskiptum fram til 1. júlí 1981.
Eftir það er hægt að fá þeim
skipt í Seðlabankanum til árs-
loka 1982.
Öll skjöl, sem dagsett eru fyrir
1. janúar, eru skráð í gömlum
krónum, og skjöl, sem dagsett
eru frá og með 1. janúar, verða í
nýkrónum, nema annað sé ótví-
rætt tekið fram.
Jýju seðlarnir og myntin fara í
unferð um næstu áramót.
Bókhald um öll viðskipti þessa
árs færast í gömlum krónum, en
eftir áramótin í nýjum krónum.
Lokaundirbúningur að fram-
kvæmd verðgildisbreytingar og
gjaldmiðilsskipta er nú hafinn.
Hefur Seðlabankinn umsjón með
framkvæmdinni. Er ætlunin að
kynna öll þessi mál ítarlegar
síðar, og verða rit og bæklingar
gefin út fyrir einstaklinga, fyrir-
tæki og stofnanir.
Verðgildisbreyting og gjald-
miðilsskipti eiga ekki að vera
almenningi og fyrirtækjum erf-
ið. Segja má, að komma sé flutt
til um tvö sæti í öllum fjárhæð-
um, og að hundraðföldun gjald-
miðils sé tiltöhdega einföld að-
gerð og bjóði ekki fram mikilli
hættu í daglegum viðskiptum.
Rétt er að taka sérstaklega
fram, að gjaldmiðilsbreytingin
hefur hvorki i för með sér
fjárhagslegan ávinning eða tap
fyrir einn eða neinn, og engin
skráning verðmæta mun fara
fram við seðla- og myntskiptin.
(Fréttatilkynning).
Þroskandi að kynnast siðum
og venjum annarrar þjóðar
— Spjallað við færeyska skiptinema
Eiíil.sstöðum. lO.fcbr.
Þann 2. febr. sl. kom til Egils-
staða hópur færeyskra ungl-
inga í nemendaskiptum
Menntaskólans á Egilsstöðum
og Föröyja Studentaskuli og
HF í Þórshöfn. Til Færeyja fóru
hins vegar 19 nemendur og einn
kennari frá Menntaskólanum,
eins og greint var frá í Mbl.
nýlega. Dveljast hóparnir viku
á hvorum stað og kynna sér
skóla- og alþýðumál í löndun-
um.
Þau eru 24 sem komu hingað
frá Þórshöfn, 22 nemendur og 2
kennarar sem fararstjórar.
Fréttaritari Mbl. ræddi stutt-
lega við kennarana Malan Sim-
onsen og Björg Róin.
Þær sögðu að Stúdentaskólinn
í Hoydalir hafi verið stofnaður
1937 og 1974 hafi verið stofnuð
svonefnd HF braut við skólann,
sem er eins konar fjölbrautasvið.
í dag eru um 365 nemendur við
nám í 17 bekkjardeildum. Rektor
við Hoydalaskulann er Arnbjörn
Mortensen cand. mag. Hluti
nema eru í heimavist eins og við
M.E. sem auðveldaði mjög þessi
nemendaskipti.
Þegar hér var komið spjallinu
bættust við tvær færeyskar
námsmeyjar og heita þær Mar-
jun Jakupsstovu og Vigdis Fry-
dal. Við ræddum nú um dvöl
þeirra hér á Egilsstöðum og voru
þær allar mjög ánægðar með
veruna hér. Nemendurnir hafa
sótt kennslustundir í þeim fög-
um, sem þeir hafa ákveðið sjálf-
ir. Hópurinn hefur ferðast nokk-
uð um Austurland. Heimsótti
hann m.a. Jón Loftsson skóg-
ræktarstjóra á Hallormsstað,
sem sagði þeim frá sögu skóg-
ræktar á íslandi og sýndi þeim
árangur af geysiöflugu skóg-
ræktarstarfi. Sögðu þær stöllur í
þessu sambandi að í Færeyjum
hafi skógrækt legið niðri í mörg
ár, en hafi nú tekið fjörkipp á
nokkrum stöðum. Ekki sögðust
þær þó geta hugsað sér Færeyjar
skógi vaxnar milli fjalls og fjöru.
Á miðvikudag fóru færeysku
nemarnir niður á firði. Farið var
um Reyðarfjörð og Eskifjörð til
Norðfjarðar þar sem þeir skoð-
uðu ýmis fiskvinnslufyrirtæki.
Einnig hittu þeir bæjarstjórann
í Neskaupstað, sem fræddi þá
um gott skipulag verkalýðsmála
þar. Leiðin um firðina þótti þeim
skemmtileg. Kom þeim þó nokk-
uð á óvart hve göngin um
Oddsskarð voru þröng, en í
Færeyjum sögðu þau að til væru
göng bæði lengri og breiðari.
Þau sögðust hafa gert sér góða
hugmynd um ísland og íslenskt
landslag, sem svipar mjög til
þess sem er í Færeyjum. Hins
vegar var bæði kaldara og meiri
snjór en þau áttu von á hér.
Lengi voru þau að venjast pen-
ingamálunum. Líktu þau seðla-
gildinu við „Matador“-peninga
og helst þyrfti að hafa seðlana í
rúllum. Fararstjórarnir töldu
vafalítið að nemendaskipti sem
þessi ættu framtíð fyrir sér,
bæði væri það mjög þroskandi
að kynnast venjum og siðum
annarrar þjóðar og ekki síður
skólamálum, sem og að eignast
vini af sömu kynslóð í öðru
landi. Þær sögðust vona að
framhald verði á þessum nem-
endaskiptum og með því sköpuð
tengsl og vináttubönd milli ungl-
inga á íslandi og í Færeyjum, því
svo stutt er á milli þessara landa
og möguleikar góðir á meirihátt-
ar samskiptum.
Að lokum báðu fararstjórarn-
ir þær Malan og Björg Mbl. að
færa sérstakar þakkir til allra
þeirra sem hópurinn þáði góð-
gerðir hjá og óeigingjarna að-
stoð. Þá vildu þær geta sérstak-
lega um góðan aðbúnað og frá-
bæra leiðsögn Vilhjálms Einars-
sonar skólameistara, sem í góðri
samvinnu við Arnbjörn Morten-
sen rektor Hoydalaskóla, kom
þessum tengslum á.
Fréttaritari.