Morgunblaðið - 12.02.1980, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1980
23
• ólafur H. Júnsson fyrirliði ok þjálfari Þróttar átti góðan leik með liði sínu á móti KA. Sérstaklega þó í
vörninni ok á línunni.
KA vann upp 4 marka
forskot á 3 mínútum
ÞAÐ er óhætt að segja að endir-
inn á leik Þróttar og KA hafi
verið ævintýralegur. Þróttur
hafði tryggt sér fjögurra marka
forystu 22—18 þegar þrjár
mínútur voru til leiksloka og
virtust hafa nokkuð góð tök á
leiknum. En norðanmenn gáfust
ekki upp þrátt fyrir mótlætið og
endir leiksins sýnir fram á að allt
getur gerst í kappleikjum ef
barist er til síðustu mínútu.
Aðeins ein minúta var eftir af
leiknum þegar staðan er 22—20
fyrir Þrótt. Páli Ólafssyni var þá
vísað af velli í þriðja sinn og
hann útilokaður frá leiknum.
Þróttur missir boltann og KA-
menn hefja skyndisókn. Alfreð
Gíslason sendir failega sendingu
inn í teiginn á Þorleif sem
blakaði boltanum beint i netið.
Þróttur komst ekkert áleiðis í
næstu sókn sinni þar sem KA lék
maður á mann. heldur glopraði
frá sér boltanum. Markvörður
KA sendir boltann beint fram á
Armann Sverrisson sem brunaði
upp, stökk inn i teiginn og
jafnaði leikinn 22 — 22. aðeins 3
sekúndum fyrir leikslok. Fögn-
uðu leikmenn KA ákaft þessu
3S“r 22:22
dýrmæta stigi liðsins. Þróttar-
arnir sátu hins vegar cftir með
sárt ennið. óskiljanlegt hvernig
þeir fóru að þvi að missa leikinn
niður i jafntefli á siðustu minút-
unni.
KA átti frumkvæðið fyrstu
mínúturnar og komust í 3—1, en
leikmenn Þróttar léku vel og voru
ákveðnir, tóku leikinn í sínar
hendur og staðan í hálfleik var
11—8, þeim í hag.
Allan síðari hálfleikinn höfðu
Þróttarar örugga forystu, og þeg-
ar þrjár mínútur voru eftir var
staðan 22—18, Það var eins og
leikurinn á móti Armann hefði
tekið mesta kraftinn úr liði KA.
Og um tíma leit út fyrir að þeir
hefðu sætt sig við tap í leiknum en
svo kom stórkostlegur endasprett-
ur og þeim tókst að krækja sér í
annað stigið.
Lið Þróttar lék mjög vel. Varn-
arleikur liðsins var góður, svo og
markvarslan.
Olafur H. Jónsson var lykil-
maður liðsins bæði í vörninni og
sókninni. Sérstaklega var leikur
hans á línunni góður og sýndi
hann þá gamalkunna snilldar-
takta. Páll Olafsson var og sterk-
ur, en fullgrófur þegar hann var
að taka Alfreð úr umferð. Var Páli
þrívegis vísað af velli. Magnús
Margeirsson átti góða spretti í
leiknum. Lið Þróttar er greinilega
á uppleið. Sigurður Sveinsson gat
ekki leikið með liðinu að þessu
sinni þar sem hann tognaði í nára.
Munar um minna.
Lið KA var ekki eins ákveðið í
leik sínum eins og á móti Ár-
manni. Alfreð var tekinn úr um-
ferð frá fyrstu mínútu og liðið býr
ekki yfir annarri stórskyttu, nema
ef vera skyldi Gunnar bróðir
Alfreðs. Þorleifur fyrirliði KA
leiddi lið sitt til jafnteflis með
mikilli baráttu allan leikinn og
skoraði hann mörg gullfalleg
mörk úr hornunum úr þröngum
færum.
Mörk Þróttar: Páll 7, Magnús 6
(2v), Sveinlaugur 2, Einar 2, Ólaf-
ur H. 2, Gísli, Grétar og Lárus 1
mark hver.
Mörk KA: Þorleifur 7 (2v),
Alfreð 6, Gunnar 4, Jóhann 2,
Friðjón, Ármann og Guðmundur 1
hver. — þr.
Mikil spenna er
Týr sigraði Þór Ak
ÞAÐ var hörkuleikur í 2. deild-
inni á laugardaginn þegar Týr
og Þór frá Akureyri mættust í
Eyjum. Týrarar tryggðu sér sig-
ur og tvö dýrmæt stig þegar
aðeins 3 sek. voru eftir af leiktím-
anum. Enn cinu sinni i heima-
leikjum sínum héldu Týrarar því
hinum fjölmörgu áhangendum
sínum á barmi taugaáfalls eða
spennufalls í þeim æsingum sem
uppi voru á siðustu mín. leiksins.
Annars hafa þeir norðanmenn
ríka ástæðu til þess að naga sig í
handarbökin eftir að hafa gloprað
þessum leik niður. Þeir fyrirhittu í
leiknum slaka Týrara sem þarna
léku sinn lakasta leik í vetur og
Þórsararnir voru lengst af í leikn-
um skrefinu á undan Týrurum í
skoruninni. Fyrri hálfleikur var
til þess að gera jafn en Þór þó
ávaílt með forustuna og í hálfleik
hafði Þór yfir 14—12. Týr jafnar
metin í upphafi s.h. en smátt og
smátt sígur Þór framúr og nær
upp 4 marka forskoti og virtist nú
öll nótt úti hjá Týrurum. En þá
loksins fóru Eyjamenn í gang og
þeir gerðu nú harða atlögu að
norðanmönnum staðráðnir í því
að berjast til síðustu stundar.
Þegar ein og hálf mínúta var eftir
tókst Týrurum að jafna 24—24 og
26:25
nú var spennan í hámarki. 50 sek.
eftir og Týr er yfir 25—24. 25 sek.
eftir og Þór jafnar 25—25. Sókn
rennur út í sandinn hjá Týr og
leiktöf er dæmd á Þórsara sein um
of ætluðu að hangá á jafntefliiu.
Þegar aðeins 3 sekúndur voru eftir
sveif Kári Þorleifsson inn úr
hægra horninu og skoraði glæsi-
lega sigurmark Týs 26—25. Þá
hreinlega ærðist mannfjöldinn af
fögnuði en Þórsarar gengu niður-
lútir af leikvelli.
Þetta var slakur leikur hand-
knattleikslega en mikil harka og
spenna allan tímann. Týrarar
hafa ekki fyrr í vetur leikið eins
slaklega sem lið en það sem nú
bjargaði þeim var stórleikur hjá
bræðrunum í liðinu Sigurlási og
Kára Þorleifssonum. Lási reif sig
upp úr veikindum rétt fyrir leik-
inn og var auk þess draghaltur
vegna meiðsla en engu að síður
var hann óstöðvandi og skoraði 15
mörk í leiknum. Mikið afrek hjá
Sigu-lási. Kári Þorleifsson hefur
mikið verið að sækja sig að
undanförnu og lék nú sinn besta
leik og skoraði 5 mörk. Síðasta
markið hreint alveg stórkostlegt.
Bræðurnir því með 20 af 26
mörkum liðsins.
Þórsliðið leikur frekar þung-
lamalegan handbolta, liðið er
skipað stórum og stæðilegum
köppum og vel sett með stórskytt-
ur. Þá á liðið á að skipa mjög
góðum markverði, Tryggva Gunn-
arssyni, en hann varði stórvel í
Eyjum á laugardaginn. Þá réðu
Eyjamenn lítt við eldsnöggan
línumann, Árna Stefánsson, sem
skoraði 8 mörk í f.h. eða í hvert
skipti sem hann fékk boltann inn
á línuna. Þá vöktu þrumuskot
Sigtryggs Guðlaugssonar mikla
aðdáun í Eyjum nema þá kannski
hjá húsverðinum sem hefur óttast
að Sigtryggur bryti niður marks-
úlurnar þegar hann skaut í þær.
Mörk Týs: Sigurlás Þorleifsson
15 (7 v), Kári Þorleifsson 5,
Ingibergur Einarsson 2, Þorvarð-
ur Þorvaldsson 2, Logi Sæmunds-
son 1, Helgi Ragnarsson 1.
Mörk Þórs: Arni Stefánsson 9,
Sigtryggur Guðlaugsson 7 (2 v),
Arnar Guðlaugsson 2, Sigurður
Sigurðsson 2, Ólafur Jónsson 1,
Pálmi Pálmason 1, Hrafnkell Ósk-
arsson 1, Benedikt Guðmdundsson
1, Valur Knútsson 1.
— hkj.
Stórskotahríð Atla sökkti Val
l.DEILDIN í handknattleiknum er allt í einu orðin spennandi á nýjan
leik. En ekki toppbaráttan. þvert á móti. Svo hefur nefniiega farið að
undanförnu, að botnliðin hafa hvert um annað þvert verið að rífa til
sín stig. ekkert þeirra þó af eins mikilli græðgi og lið HK. sem virtist
dauðadæmt eftir fyrstu sex umferðirnar með ekkert stig. ÍR tók
einnig kipp eftir að hafa farið halloka fyrir HK og nú síðast var það
Fram sem vaknaði til lífsins og lagði Val að vclli um helgina. Þetta
var fyrsti sigur Fram á þessu keppnistímabili og hann var mjög
giæsilegur, lokatölur leiksins urðu 25 — 23 Fram í vil, en staðan í
háifleik var 14 — 10 fyrir Fram.
Það var hreint ótrúlegur kraft-
ur í Fram-piltunum, greinilegt var
að þeim þótti tími til kominn að
hrista af sér slenið, ekki seinna
vænna, þar sem ekki er ýkja mikið
eftir af keppnistímabilinu. Að
öðrum ólöstuðum var Atli Hilm-
arsson foringi áhlaupsins, hann
lék sinn besta leik sem undir-
ritaður hefur séð til hans. En Atli
hefði aldrei-unnið leikinn einn,
liðið fylgdi eftir heils hugar og nái
Framarar upp sama krafti og
baráttu í hinum erfiðu leikjum
sem framundan eru, verður liðið
ekki meðal þeirra sem falla í 2.
deild.
En Fram gekk illa framn af að
hrista Valsmennina af sér, það tók
þá dálítinn tíma að hnýta saman
vörnina og markvarsla var slök.
Ungur nýliði kom í markið þegar
líða tók á fyrri hálfleik og gerði
það fljótlega gæfumuninn, auk
þess sem vörnin tók að smella
saman. Snæbjörn Arngrímsson,
en svo heitir nýja markvarðar-
undrið hjá Fram, varði hvað eftir
annað meistaralega á mikilvægum
augnablikum, m.a. vítakast Þor-
björns Guðmundssonar, það varð
til þess að staðan breyttist úr 6—6
í 14—10 fyrir Fram síðustu 10
mínútur fyrri hálfleiks.
Framarar hafa nógu oft í vetur
náð forystu í leikjum sínum,
einungis til þess að glopra henni
niður í síðari hálfleik og tapa. Það
verður ekki annað sagt en upphaf
síðari hálfleiks hafi bent til þess
að sama sagan ætlaði að endur-
taka sig. Valsmenn skoruðu tvö
fyrstu mörkin og sýndu bata-
merki. En skyndilega rifu Fram-
arar sig upp og kvöddu. Á sjö
mínútna leikkafla skoruðu þeir
bláklæddu 5 mörk án svars frá Val
og staðan var allt í einu orðin
19—13 fyrir Fram. Valsmenn
vöknuðu nú á nýjan leik, skoruðu
þrjú í röð og síðan var skipst á að
skora.
Spenna hljóp í leikinn undir
lokin, er staðan var 24—21 fyrir
F?ání: 23:25
Fram og rúmar tvær mínútur til
leiksloka, Valsmenn höfðu þá
skorað tvö síðustu mörkin. Vals-
menn léku maður á mann, en Egil'
Jóhannesson komst í dauðafæri,
en var óheppinn og skaut í stöng.
Atli var rekinn af leikvelli og
Þorbjörn Guðmundsson skoraði,
22—24. En sekúndurnar tifuðu,
Atli kom inn á rétt fyrir leikslok
og skoraði strax, sigurinn var í
höfn.
Sigur Fram var verðskuldaður,
liðið mætti baráttuglatt til leiks
og hélt einbeitingu allt til leiks-
loka, í fyrsta skipti í vetur. Atli
Hilmarsson átti sem fyrr segir
stórkostlegan leik og var langbesti
leikmaðurinn á vellinum. En
Fram-liðið var einnig sterk heild
að þessu sinni. Erlendur Daviðs-
son lék einnig mjög vel, örugglega
sinn besta leik í vetur, einnig
Sigurbergur, en reynsla hans er
ungu piltunum nauðsynleg. Snæ-
björn í markinu lék stórt hlutverk,
Egill og Andrés voru góðir, einnig
Hannes, en hann var frekar mis-
tækur framan af.
Hjá Val sást nú best hversu
mikilvægur leikmaður Stefán
Gunnarsson er. Hann var meiddur
og lék ekki með, enda vantaði
tilfinnanlegu kjölfestu í liðið. Jón
Karlsson reyndi sitt besta og
komst vel frá leiknum. Það gerði
líka Bjarni þó stundum væri hann
hálf utangátta í vörninni. Brynjar
Harðarson fékk meira að vera með
en oftast áður og gerði marga
hluti laglega, að öðru leyti ríkti
meðalmennska og áhugaleysi hjá
Val.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild Valur—
Fram 23-25 (10-14)
Mörk Vals: Þorbjörn Guð-
mundsson 5/1, Stefán Halldórsson
5/5, Brynjar Harðarson 4, Bjarni
Guðmundsson 3, Jón Karlsson 3,
Gunnar Lúðvíksson, Steindór
Gunnarsson og Þorbjörn Jensson
1 mark hver.
Mörk Fram: Atli Hilmarsson 10,
Erlendur Davíðsson 6/5, Andrés
Bridde 5/1, Hannes Leifsson 3,
Egill Jóhannesson 1 mark.
Víti í vaskinn: Erlendur brenndi
einu sinni af og Snæbjörn varði
vítakast Þorbjörns Guðmundsson-
ar.
Brottrekstrar: Erlendur og Sig-
urbergur, báðir Fram og Þorbjörn
Jensson Val í 2 mínútur hver.
— KK-
FH mátti þakka fyrir
annað stigið gegn HK
Atli skoraði 10 mörk á móti Val.
Ekkert þeirra var úr vítaskotum.
FRAM sigraði FH í mjög slökum
leik í 1. deild kvenna í hand-
knattleik um helgina. Lokatölur
15—10 fyrir Fram, staðan í
hálfleik var þó jöfn, 7—7.
Fram átti einn af sínum lakari
dögum að þessu sinni og ef hið
unga lið FH hefði haft úthald á
við reynsluríkara lið Fram er
aldrei að vita hvernig farið hefði,
því að FH hélt lengst af i við
Fram.
FH átti þokkalegan leik, liðið
hefur sýnt miklar framfarir frá
því í haust, en betur má ef duga
skal. Katrín og Kristjana komu
FH MÁTTI þakka fyrir að
hreppa eitt stig er liðið mætti
ákveðnu liði HK að Varmá um
helgina. HK, sem hafði unnið tvo
leiki í röð, var um tíma fimm
mörkum yfir gegn Hafnarfjarð-
arliðinu sem haíði aðeins tapað 3
stigum fram að því. En ef HK
hefði ekki misst tvo af máttar-
stólpum liðsins er ekki óliklegt
að liðið hefði sigrað í leiknum.
Fyrst var það Kristján Þór Gunn-
arsson scm meiddist illa á fingri í
fyrri hálfleik eftir að hafa gert
FH-ingum lífið leitt. Þetta gekk
þó hjá liðinu þangað til að
Ragnar Ólafsson var rekinn af
leikvelli í þriðja skiptið. úti-
lokaður. Breiddin er ekki mikil
Erna með
ERNA Lúðvíksdóttir hefur sann-
arlega reynst Valsliðinu betri en
engin í síðustu tveimur lcikjum
liðsins í 1. deild kvenna í hand-
knattleik. í umræddum tveimur
leikjum hefur hún nefnilega
skorað sigurmark Vals á lokasek-
úndum leiksins. Það gerði hún
um helgina gegn KR, úr vítakasti
þcgar 7 sekúndur voru til leiks-
loka. Valur sigraði 11 — 10 eftir
ar 15:10
einna best frá leiknum hjá FH, en
Jenný og Kolbrún í markinu komu
best frá leiknum hjá Fram. Já,
markvarsla Kolbrúnar var oft
hreint ótrúleg.
Mörk Fram: Guðríður 7/5,
Jenný 3, Jóhanna og Oddný 2 hvor,
Guðrún 1 mark.
Mörk FH: Kristjana 5/1, Ellý og
Svanhvít 2 hvor, Katrín 1 mark.
—gg.
Smk- 19:19
hjá HK og úr því íór leikur
liðsins versnandi. FH saxaði á
forskotið, en stigunum var deilt
bróðurlega, 19—19.
Jón Einarsson hjá HK gaf
tóninn framan af, Hilmar var
sterkur og Einar Þorvarðar varði
eins og berserkur í markinu.
Kristján skoraði hvert markið af
öðru, en meiddist síðan. FH-ingar
sigurmark
;s„ 10:11
að staðan i hálflcik hafði verið
6-6.
Leikurinn var ekki sá besti í
vetur, sóknarleikur beggja liða
hægur og oft tilviljanakenndur og
varnarleikurinn fyrir vikið bæri-
legur. Liðin skiptust allan tímann
á um forystuna og það var hlut-
skipti Vals að hafa hana þegar
leiknum lauk, það gat farið á
hvorn veginn sem var. Eitthvað
þótti vítakastið sem gaf sigur-
markið umdeilt, en knötturinn fór
þá af KR-stúlku í hendur mark-
varðarins. Dómarinn var ekki í
vafa, vítakast.
Þrjár stúlkur báru af á vellin-
um, Erna og Jóhanna hjá Val og
Hansína hjá KR, annars var mikið
um meðalmennsku.
MÖRK Vals: Erna 5, Harpa 2,
Ágústa, Marín, Karen og Elín 1
hver.
MÖRK KR: Hansína 7, Hjördís 2
og Birna 1 mark.
— Kg-
sem léku án Sæmundar Stefáns-
sonar áttu ekkert svar og staðan í
hálfleik var 12—10 fyrir HK.
í síðari hálfleik dró enn í sundur
og verst leit úr fyrir FH þegar
staðan var orðin 17—12. FH-ingar
reyndu að taka Hilmar Sigur-
gíslason úr umferð, en með litlum
árangri, hins vegar kom það illa
við HK-menn þegar Ragnar var
rekinn af leikvelli í þriðja skiptið.
Riðlaðist þá mjög allur leikur
þeirra og FH-ingar minnkuðu
muninn óðfluga. Þeir komust
meira að segja yfir, 19—18, þegar
tvær mínútur voru til leiksloka.
Magnús Guðfinnsson jafnaði og
lokakaflann voru FH-ingar með
knöttinn án þess þó að þeim
tækist að knýja fram sigur. Það
hefði verið ósanngjarnt.
HK í ham er stórskemmtileg
sjón og ætla mætti eftir að hafa
séð leikmenn liðsins á háa é-inu að
það taki þá nokkrar klukkustundir
að ná sér niður á nýjan leik.
Hilmar Sigurgíslason var besti
maður liðsins, skammt á undan
Einari Þorvarðarsyni í markinu.
Kristján Þór hefur verið vaxandi
leikmaður og lék mjög vel meðan
hans naut við. Þá var Jón Einars-
son mjög frískur framan af. Hjá
FH var nokkur meðalmennska,
helst að Valgarð kæmi vel frá
leiknum.
I stuttu máli:
íslandsmótið í 1. deild HK—FH
19-19 (12-10)
Mörk HK: Hilmar 6/1 Kristján
Þór 6/2, Jón 3, Magnús 2, Ragnar
og Kristinn 1 hvor.
Mörk FH: Valgarð 4, Kristján
4/3, Guðmundur Magnússon, Geir,
Pétur 3 hver, Magnús og Hans 1
hvor.
Víti: Hilmar brenndi tvívegis
illa af og Einar varði eitt víti.
Brottrekstrar: Ragnar Ólafsson
þrívegis út af, Valgarð tvivegis,
Hans, Pétur og Magnús Guðfinns
hjá HK í 2 mínútur hvor.
ríh/gg.
Fram sterkari
Ljósm. Sor.
Hinn ungi og stórefnilegi leikmaður KA Alfreð Gíslason skoraði 1? mörk á móti Ármann. Hér er Alfreð,
kominn í gegn og skorar mark, reyndar á heimavelli sinum fyrir norðan. En hann er seigur við að skora
þar líka.
KA sýndi stórleik
og burstaði Ármann
LIÐ KA frá Akureyri vann stór-
an og góðan sigur yfir Ármann á
laugardaginn í Laugardalshöll-
inni. Lið KA kom mjög ákveðið
til leiks og var greinilegt á
leikmönnum að þeir ætluðu að
taka á honum stóra sínum. Enda
voru ekki liðnar nema átta
mínútur af leiknum er KA hafði
náð öruggri forystu í leiknum.
5 — 1. Voru þeir síðan óstöðvandi
og sigruðu 25—18 og var sá sigur
síst of stór eftir gangi leiksins.
Tveir leikmenn KA áttu stór-
leik. Alfreð Gíslason hefur ekki
verið betri. Alfreð skoraði 12 mörk
í leiknum þrátt fyrir að vera í
strangri gæslu. Þá átti Magnús
Gauti Gautason markvörður af-
bragðsleik og varði ekki færri en
fjögur vítaköst í leiknum. Bak við
þessa tvo leikmenn stóð svo sterk
liðsheild sem vann mjög vel sam-
an í leiknum bæði í vörn og sókn.
Af 13 mörkum KA í fyrri
hálfleik skoraði Alfreð 8. Réð vörn
Ármanns og Heimir markvörður
ÍTAnn 18:25
ekkert við eldsnögg og föst skot
hans, sem höfnuðu flest í bláhorn-
um marksins. Þess er þó rétt að
geta að barátta í liði Ármanns var
í algjöru lágmarki, og virtust
leikmenn liðsins vera slegnir út af
laginu með hinni góðu byrjun KA.
Þegar 10 mínútur voru eftir af
síðari hálfleik hafði KA náð 10
marka forystu, 24—14, og hafði þá
oft leikið Ármann grátt. Síðustu
mínúturnar slökuðu leikmenn KA
nokkuð á og skoruðu Ármenning-
ar síðustu fjögur mörk leiksins.
Við þetta tap á lið Ármanns varla
möguleika á að sigra í 2. deild en
lið KA verður í baráttunni, og
undirrituðum segir svo hugur að
því takist að sigra í deildinni verði
sami hugur í liðsmönnum og þeir
sýndu á laugardag. Enda myndi
liðið sóma sér vel í 1. deild með
slíkum leik.
Bestu menn KA voru eins og
áður sagði þeir Alfreð og Magnús
Gauti. Gunnar Gíslason bróðir
Alfreðs átti góðan leik, sérstak-
lega í vörninni. Þá eru Ármann
Sverrisson og Þorleifur Ananías-
son góðir leikmenn og dýrmætir
fyrir liðið. Var nú allur annar
bragur á leik KA en fyrr í haust.
Frískleiki og kraftur og um leið
mikil yfirvegun í spili liðsins
þegar þess þurfti með.
Lið Ármanns var í daufara lagi.
Enginn leikmanna bar af öðrum.
Stórskyttunni Friðrik tókst til
dæmis ekki að skora eitt mark í
leiknum og var hann greinilega
miður sín. Það voru einna helst
Smári og Þráinn sem eitthvað
kvað að.
Mörk KA: Alfreð Gíslason 12 (4
v), Gunnar Gíslason 6 (1 v),
Þorleifur Ananíasson 5, Ármann
Sverrisson 2.
Mörk Ármanns: Smári 6 (3 v),
Björn 4 (2 v), Þráinn 4, Kristinn 2,
Haukur 1, Bragi 1. — þr.
Þórssigur hlaut þaó að verða
ÞÓRARAR úr Eyjum unnu sinn
fyrsta sigur í 2. deildinni á
sunnudaginn þegar nafnarnir
frá Akureyri voru að velli lagðir
í Eyjum. Sigur Eyjaþórs 24—20 í
miklum hörkuleik. Þórararnir
voru allan timann betri aðilinn í
leiknum en það var ekki fyrr en
síðasta korterið í leiknum sem
þeim tókst að hrista þá norðan-
menn af sér og innbyrða sann-
gjarnan sigur.
Þetta var leikur mikilla svipt-
inga. Fyrri hálfleikur var mjög
jafn en Eyjamenn gengu til leik-
hlés með þrjú mörk yfir, 11—8.
Baráttan hélt áfram í s.h. og enn
voru í leiknum miklar sviptingar.
Akureyringar ná að jafna og
komast yfir, um tíma fjögur mörk,
en heimamenn hleyptu í sig hörku
í lokin, jöfnuðu 16—16 þegar 11
mín. voru eftir. Síðust 10 mín.
skoruðu síðan heimamenn 8 mörk
en Akureyringarnir aðeins 4 og
öruggur sigur Þórs Vm. í höfn.
Var þeim sigri vel og innilega
fagnað í Eyjum. ísinn loksins
brotinn.
Þórsliðið hefur í vetur verið
mönnum mikil ráðgáta. Liðið er
skipað mörgum mjög góðum hand-
knattleiksmönnum og leikur á
.u,vú 24:20
köflum ágætan handbolta en samt
hefur liðinu ekkert gengið í stiga-
söfnun í vetur. Það er eins og
einhvern neista vanti. Verður
fróðlegt að sjá hvort þessi kær-
komni sigur liðsins á sunnudaginn
verði til þess að liðið komist nú á
sigurbraut. Herbert Þorleifsson
átti aldeilis góðan dag og skoraði
þrjú hreint stórkostlegt mörk,
stökk inn í teiginn, greip boltann
frá meðspilara og þar sem hann lá
flatur í loftinu skoraði hann án
þess að markvörður Þórs Ak. vissi
hvaðan á sig stóð veðrið. Að skora
eitt slíkt mark í leik þykir gott, en
Hebbi skoraði hér þrjú. Stórkost-
legt. Þá lék Gústaf Björnsson nú
sinn besta leik með Þórsliðinu.
Stórskemmtilegur leikmaður. Sig-»
mar Þröstur varði vel, m.a. þrjú
vítaköst.
Sem í fyrri leiknum var leikur
Þórs Ak. þungur og lítt fyrir
augað. Það var helst Pálmi Pálma-
son sem bauð uppá eitthvað
skemmtilegt, en hann sást varla í
leiknum deginum áður. Þó háði
það Pálma nokkuð að meðspilarar
hans voru oft á tíðum ekki með á
nótunum þegar honum hafði tek-
ist að opna vörn andstæðingsins
með leikfléttum. Annars skaraði
enginn framar fram úr öðrum í
liðinu og mikill ljóður var það á
leikmönnum Þórs Ak. hvernig þeir
voru sífellt að jagast við dómar-
ana. Slíkt er mjög hvimleitt og svo
vita tilgangslaust.
Mörk Þórs Vm.: Herbert Þor-
leifsson 7 (4v), Gústaf Björnsson 6
(lv), Ásmundur Friðriksson 5,
Ragnar Hilmarsson 3, Karl Jóns-
son 2, Gestur 1.
Mörk Þórs Ak.: Pálmi Pálmason
7 (2v), Hrafnkell Óskarsson 3,
Benedikt Guðmundsson 3, Sig-
tryggur Guðlaugsson 3 (lv), Árnar
Guðlaugsson 2, Árni Stefánsson 1,
Sigurður Sigurðsson 1.
Dómarar í báðum leikjunum
voru Bjarni Hákonarson og Pétur
Gunnarsson og voru þeir ekki
öfundsverðir af hlutverkum sínum
í þessum miklu baráttuleikjum.
Urðu þeim á mörg mistök en þau
bitnuðu ekki frekar á öðru liðinu
en hinu.
— hkj.