Morgunblaðið - 12.02.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1980
25
„Geri mitt besta"
— segir Haukur Sigurðsson
HAUKUR Sigurðsson heitir einn
af sex skíðamönnum sem keppir
á Lake Placid næstu dagana.
Haukur er einn af þremur göngu-
mönnum sem þarna keppa fyrir
íslands hönd og er hann einn af
hinum sterku göngumönnum Ól-
afsfirðinga. Hann hefur stundað
gönguna frá því hann var 14 ára,
eða um 9 ára skeið. Reyndar æfði
hann lítið tvö af umræddum
árum. Haukur byrjaði strax að
æfa göngu, reyndar var hann um
tíma dálítið í svigi. en hætti því
fljótlega. Haukur er óumdeilan-
lega einn sterkasti göngumaður
landsins og hann hefur unnið
alla flokka á íslandsmótum frá
því hann var 13 ára gamall. Mbl.
lagði fáeinar spurningar fyrir
Hauk.
„Áhuginn á gönguíþróttinni
færist mjög í vöxt, sbr. síðasta
göngumót, en þar voru 15 kepp-
endur í yngsta fiokknum, en að-
eins 7 keppendur í karlaflokki. Á
mótið, sem fram fór í Siglufirði,
mættum við Ólafsfirðingar með 17
manna lið. Annars hafa ekki nema
6—7 menn æft þessa keppnisgrein
af fullum krafti síðustu árin,“
svaraði Haukur, þegar hann var
spurður um vöxt íþróttarinnar.
Því næst var Haukur spurður um
stöðu íslendinga í skíðagöngu í
heiminum í dag og í beinu fram-
haldi af því hvert hlutskipti
íslensku keppendanna yrði á kom-
andi Ólympíuleikum.
„Það er erfitt fyrir okkur að
áætla hvar við stöndum, það eru
svo margar þjóðir sem við höfum
enga hugmynd um hvar standa.
En við vorum að keppa á Norður-
löndum síðustu vikurnar og miðað
við t.d. Svía, Finna og Norðmenn
hefur vegur okkar farið vaxandi
og gagnvart þeim þjóðum stönd-
um við betur að vígi heldur en í
alpagreinunum. Hitt er svo annað
mál, að Norðurlandaþjóðirnar
eiga marga af sterkustu göngu-
mönnum veraldar. Það er því
erfitt að átta sig á hvert okkar
hlutskipti verður á Lake Placid,
get bara sagt að við gerum okkar
besta,“ sagði Haukur.
Loks spurðum við Hauk hvernig
legðist í hann að vera að fara á
Ólympíuleika. „Það er engin sér-
stök tilhlökkun, ég er ekkert
spenntari heldur en ég væri að
fara á eitthvert annað mót. Ég
endurtek bara að ég geri mitt
besta,“ sagði Haukur að lokum. —
— gg.
„ 5 ára spriklandi
í garðinum heima"
— segir Björn
BJÖRN Olgeirsson frá Húsavik
er aðeins 18 ára gamail, en engu
að síður hefur vegur hans í
skíðaíþróttinni hérlendis verið
slíkur, að hann var valinn í
Olympíulið íslands sem keppir á
vetrarolympíuleikunum í Lake
Piacid næstu dagana. Keppir
Björn í svigi og stórsvigi.
„Ég byrjaði að fást við skíðin
heima á túni þegar ég var 5 ára
gamall. Mér líkaði það strax vel og
þegar ég var 8 ára keppti ég í
fyrsta skiptið. Hef ég verið á kafi í
þessu sleitulaust síðan" sagði
Björn í stuttu viðtali, en hann var
Því miður tókst Mbl ekki
að ná viðtali við Sigurð
Jónsson sem keppir í
svigi og stórsvigi á leik-
unum.
Olgeirsson
spurður um upphaf ferils síns sem
skíðamaður.
Björn er jafnan í fremstu röð á
skíðamótum þessa dagana og Mbl.
spurði hann hvort alltaf hefði
verið svo í gegn um árin. „Mér
hefur alltaf gengið vel“ segir
Björn og síðan ekki meira um það
mál, vill greinilega ekkert vera að
gera sig stóran. Mbl. spurði Björn
hinnar klassísku spurningar, hvar
hann stæði að vígi gagnvart því
skíðafólki sem hann mun etja
kappi við og í framhaldi af því
hvert hlutskipti hans yrði og að
hverju hann stefndi.
„Ég hef enga hugmynd um hvar
ég stend gagnvart fremsta
skíðafólki heims, það kemur í ljós.
Þar af leiðandi get ég ekkert sagt
um hvert hlutskipti mitt eða
félaga minna verður, get aðeins
sagt að ég geri mitt besta. Meira
er ekki hægt að gera að mínu viti“
sagði Björn.
En hvernig líkar þér að vera að
fara á Olympíuleika í fyrsta
skipti? „Mér líkar það vel, þetta
verður vonandi gaman, eitthvað
nýtt“ var svar Björns.
Dálitlar vangaveltur voru víða í
sambandi við val skíðalandsliðsins
varðandi skiptingu milli göngu-
manna annars vegar og svig-
manna hins vegar. Voru margir á
því að svigmenn hefðu átt að vera
fleiri heldur en göngumenn, frek-
ar en þrír af hvoru eins og valið
var. Mbl. spurði Björn og reyndar
Steinunni Sæmundsdóttur einnig
um álit þeirra á þessu. Svar þeirra
var mjög á eina lund. „Þetta er
rétt, göngumennirnir eru mjög
jafnir og það var meira vit að
velja þá alla þrjá heldur en að
bæta við svigfólki, því að næstu
menn eru það langt á eftir okkur
eins og er“ sögðu Björn og Stein-
unn.
Er þetta þá sterkasta landslið
sem Island getur teflt fram?
Almennur hlátur við spurning-
unni. Loks segir Björn, „ætli
maður svari því ekki játandi, þó
að ég sé sjálfur í liðinu."
ólafsfirðingurinn Haukur Sigurðsson göngumaður stikar stórum.
„Valió á leikana
er réttlátt
— segir Þröstur Jóhannesson
— Það var ekki fyrr en árið 1974, að ég fór að æfa
göngu; fram að því hafði ég verið í sviginu' sagði
Þröstur Jóhannesson, 25 ára gamall ísfirðingur, en
hann keppir fyrir íslands hönd í 15, 30 og 50 km göngu
á ólympíuleikunum. Ég var plataður til þess að taka
þátt í göngukeppni árið 1973 og það varð til þess að
áhugi minn vaknaði á íþróttinni sagði Þröstur. Fram að
því hafði ég verið í svigi og leikið mér mikið á skíðum
eins og strákar gera á Isafirði.
Þröstur Jóhannesson ísafirði.
— Aldrei fyrr hef ég verið í
jafngóðri æfingu og nú, og því lít
ég björtum augum á Ólympíuleik-
ana. Flkki að því sé fyrir að fara að
ég geri mér einhverjar vonir um
verðlaun, það er enginn möguleiki
á því, vegna þess að allflestir
göngumennirnir eru miklu betri
en við. Heldur vonast ég til þess að
ná mínum besta árangri í öllum
göngugreinunum þremur.
Ég æfði feikilega vel í Svíþjóð
með félögum mínum og vonast til
að ég uppskeri eins og ég sáði til.
Það hefur ekki verið neitt lang-
tima markmið hjá mer að komast
á Ólympíuleika. Það var eiginlega
fyrst úti í Svíþjóð sem það rann
upp fyrir mér, þegar vel fór að
ganga, að ég ætti möguleika.
Valið á leikana finnst mér vera
réttlátt, við göngumennirnir erum
allir svo jafnir að ekki er hægt að
gera upp á milli okkar. En skoðun
mín er sú að Ólympíunefndin ætti
að senda fleiri keppendur á leik-
ana.
Steinunn Sæmundsdóttir á skil-
ið að fara á leikana, hún er svo
langsamlega best af stúlkunum,
en ég tel það hafi verið réttmæt
ákvörðun að fórna hinni stúlkunni
fyrir göngumann þar sem geta
hennar var svo mikið langt á eftir.
Og kom það best fram á mótunum
erlendis.
Leikarnir í Lake Placid eru mitt
fyrsta stórmót, og leggjast þeir að
öllu leyti vel í mig. Ég er ekki með
nein langtíma markmið. Ég stefni
á Islandsmótið sem verður á
Akureyri um páskana.
Þegar maður keppir í skíða-
göngu reynir maður að æfa allt
árið um kring. Á sumrin hleyp ég
mikið og geng á fjöll. Ég starfa
sem mælingamaður hjá vegagerð-
inni og fæ þar gott tækifæri til að
ganga og hleyp þegar tækifæri
gefst.
Þörstur sagðist að lokum vilja
þakka vinnufélögum sínum í vega-
gerðinni fyrir þann ómetanlega
stuðning sem þeir veittu honum.
Það gerði mér kleift að komast til
æfinga í Svíþjóð, og færi ég þeim
bestu þakkir fyrir.
— gg-
Ljósm. Mbl. Guðjón B.
- ÞR.