Morgunblaðið - 05.05.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ1982
5
Sinfóníuhljómsveit íslands:
19. og næstsíðustu
áskriftartónleikar
vetrarins a
NÍTJÁNDU og næstsíðustu
áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands verða í
Háskólabíói á morgun,
fimmtudag 6. maí, kl. 20.30.
Efnisskráin er eftirfarandi:
Mozart: Forleikur að Brúð-
kaupi Fígarós. Mozart: Fiðlu-
konsert í G-dúr. Glaszunow:
Fiðlukonsert. De Falla: E1 am-
or brujo. Stjórnandi er Jean-
Pierre Jacquillat, aðalhljóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands. Einleikari er
Kernst Kovacic. Hann er tal-
inn meðal fremstu fiðluleikara
af yngri kynslóðinni í Austur-
ríki. Hann naut víðtækrar tón-
listarmenntunar, m.a. í fiðlu-
leik, orgelleik og tónsmíðum
morgun
og hefur hann þegar að baki
alþjóðlegan listferil sem hefur
einkennst m.a. af frumflutn-
ingi margra nýrra tónverka
fyrir fiðlu jafnhliða flutningi
á einleikssónötum Bachs og
fiðlukonsertum Mozarts, svo
eitthvað sé nefnt. Kovacic hef-
ur unnið til fjölda verðlauna í
fiðlukeppnum, m.a. í Genf,
Múnchen og Barcelona, og
leikið á tónleikum í útvarp og
sjónvarp víða í Evrópu, í Mið-
austurlöndum og Austurlönd-
um nær og fjær. Hann hefur
einnig komið fram á mörgum
stærstu tónlistarhátíðum í
Evrópu, m.a. í Berlín, Salzburg
og Vín. Kovacic leikur á fiðlu
frá árinu 1759, smíðuð af Gio-
vanni Battista Guadagnini.
(Kréttatilkynning.)
Halldór Laxness kjör-
inn heiðursfélagi Leik-
félags Reykjavíkur
Á AÐALFUNDI Leikfélags Reykja-
víkur, sem haldinn var 3. maí sl., var
Halldór Laxness kjörinn heióursfé-
lagi Leikfélags Reykjavíkur.
Halldór Laxness hefur verið tíð-
ur gestur Leikfélagsins um árabil.
Fyrsta leikrit hans, Straumrof,
var frumsýnt hjá Leikfélaginu
haustið 1934 og flutt síðar öðru
sinni á vegum félagsins árið 1977.
Dúfnaveislan var leikin hjá Leik-
félaginu árið 1966, leikgerð á
Kristnihaldi undir jökli árið 1970,
leikgerð á Atómstöðinni árið 1972,
og loks leikgerðin á Sölku Völku,
sem valin var til sýningar á 85 ára
afmæli Leikfélagsins í janúar sl.
og sýnt til heiðurs skáldinu átt-
ræðu.
Þess má geta, að þetta er í
þriðja sinn, sem leikritahöfundur
er kjörinn heiðursfélagi Leikfé-
lagsins, en Indriði Einarsson og
Einar H. Kvaran voru kjörnir
heiðursfélagar árið 1934.
Laxness
Aðrir heiðursfélagar Leikfé-
lagsins eru Ragnar Jónsson í
Smára og leikararnir Auróra
Halldórsdóttir, Valur Gíslason,
Vilhelm Norðfjörð og Þóra Borg.
Sérstök sýning
myndar um KGB
NÆSTKOMANDI fimmtudag, 6.
maí, kl. 20.30 gangast Varðberg og
Samtök um vestræna samvinnu
(SVS) fyrir sýningu á nýlegri kan-
adískri sjónvarpsmynd um sovézku
leyniþjónustuna, KGB. Myndin
verður sýnd í Kristalssal Hótels
l.oftleiöa og hefst sýningin kl. 20.30.
Öllum er heimill aðgangur að mynd-
inni, sem ekki hefur áður verið sýnd
hér á landi, en sýning hennar tekur
um l'/2 klst.
Hér er um að ræða ítarlega
heimildarmynd um sögu, skipulag
Hafnarfjörður:
Páfagauk-
ur týndist
Um kvöldmatarleytið í gær
tapaðist gulgrænn páfagaukur
frá Norðurbraut 22 í Hafnarfirði.
Finnandinn er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 54657.
og ýmsar starfsaðferðir og aðgerð-
ir KGB. Kastljósunum er aðallega
beint að starfsemi KGB í Norður-
Ameríku, þ.e. Bandaríkjunum og
Kanada, en efni myndarinnar á þó
hvarvetna erindi.
Myndin var gerð af óháðu kan-
adísku fyrirtæki, Norfolk
Communication Ltd. Hún skiptist
í stutta 5—10 mínútna langa
kafla. Inn i frásögn myndarinnar
er fléttað viðtölum við ýmsa nú-
verandi og fyrrverandi yfirmenn
vestrænna leyniþjónusta og helztu
leyniþjónustumenn austantjalds-
ríkjanna, sem flúið hafa vestur yf-
ir. Myndin geymir einnig mynda-
og hljóðupptökur, sem framleið-
endur myndarinnar tóku leynilega
á þeim tveimur árum, sem gerð
myndarinnar stóð yfir.
Þess skal að lokum getið, að
mynd þessi hefur vakið mikla at-
hygli, þar sem hún hefur verið
sýnd. Ekki er um að ræða sömu
mynd og þá, sem nýlega var sýnd í
íslenzka sjonvarpinu, en þar var á
ferðinni brezk mynd gerð af BBC.
(Kréttatilkynning.)
Hið nýja skip Nesskips, sem verður afhent félaginu í maílok.
Nýtt skip til Nesskips
í stað Suðurlandsins
NESSKIP hf. hefur gengið frá
kaupsamningi um kaup á 999
brúttólesta flutningaskipi í stað
Suðurlandsins, sem sökk undan
Færeyjum á dögunum. Skipið er
byggt í Vestur-Þýzkalandi árið
1972 undir eftirliti og samkvæmt
kröfum Germanische Lloyds og
hæsta ísklassa.
Burðargeta skipsins er 2.500
tonn, en það er búið tveimur
Hagglund-krönum með 12 tonna
lyftigetu. Framrými er 160.000
kúbikfet á tveimur dekkjum og
er ein lestarlúga, sem er 51x10,2
metrar að stærð.
Aðalvél skipsins er af Deutz-
gerð um 2.400 hestöfl og er með
sjálfvirknibúnaði frá German-
ische Lloyds.
Skipstjóri á þessu nýja skipi
Nesskips verður Halldór Alm-
arsson, sem stýrði Suðurlandinu,
og yfirvélstjóri verður Þorsteinn
Sverrisson, sem þegar er kominn
um borð til að kynnast skipinu,
sem verður afhent í Evrópu í lok
maímánaðar.
Evrópudagur-
inn í dag
í DAG er „Dagur Evrópu“ og hefur
Samband íslenzkra sveitarfélaga
hvatt sveitarfélög til að minnast Evr-
ópudagsins með því að hafa við hún
þjóðfánann og fána Evrópu, sem er
með 12 gulum stjörnum á bláum
feldi.
I ár er þess minnst, að 25 ár eru
liðin frá stofnun sveitar- og hér-
aðsstjórnarþings Evrópuráðsins
og um þessar mundir er kynnt
uppkast að Evrópusáttmála um w
sjálfforræði sveitarfélaga, sem
væntanlega hlýtur fullgildingu
síðar á árinu.
Samband ísl. sveitarfélaga hef-
ur lagt til að almenn kynning á
starfi sveitarfélaga fari fram frá
Evrópudegi til vikuloka.
„Hvað er að
gerast...“
ÞEIR sem vilja koma að frétt-
um í þáttinn „Hvað er að ger-
ast um helgina", eru beðnir um
að skila þeim inn á ritstjórn
Morgunblaðsins eigi síðar en
fyrir kvöldið í kvöld. Berist
fréttir seinna er ekki hægt að
tryggja birtingu þeirra í þætt-
inum.
H€RRfl
RÍKI
Snorrabraut 56
Glæsibæ
Miðvangi
Þrumujakkar meö gamla laginu og enginn eins.
Á undraveröinu 350,00
og skyrtur viö á kr. 100,00.
Austurstnrti K)