Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983 M l>órir Jensen formadur Bílgreinasambandsins: „Fjöldi óseldra bifreiða sá sami og síðustu ár‘ „l»KSSI fjöldi óseldra bifreiða er mjög sambærilegur við fjölda óseldra bifreiða við mörg undanfar- in áramót. Hins vegar er tala blaðs- ins um fjölda óseldra bifreiða af ár- gerðinni 1982 mjög röng, fjöldi þeirra bifreiða er vart meiri en 15% af fjölda óseldra bifreiða, eða um 300 í stað 13—1500 bifreiða," segir l'órir Jensen formaður Bílgreina- sambandsins í samtali við Mbl. í til- efni fréttar um fjölda óseldra bif- reiða i landin um áramótin. Þórir sagði að flestar óseldu bif- reiðanna væru af 1983 árgerðum, sem farið hefðu að berast til landsins í september. „Við gerum okkur ljóst að kreppueinkennin, sem alls staðar eru farin að koma fram, mun hafa sín áhrif á bíla- sðlu í ár, og því búast bílamenn við að á þessu ári verði seldar milli 6.000 og 6.500 bifreiðar, mið- að við rúmlega 10 þúsund 1982,“ sagði Þórir. Þórir sagði að bílaumboðin ættu misjafnlega mikið af óseldum bif- reiðum. Þau sem ættu margar fengju fáar næstu mánuðina, en þau sem ættu fáar myndu fá hlut- fallslega fleiri næstu mánuði. Þetta færi allt eftir innkaupavenj- um umboðanna, hvernig þau hefðu pantað í sumar og haust, en venju- lega þyrftu umboðin að panta frá verksmiðjum með allt upp í sex mánaða fyrirvara. Jafnframt sagði Þórir sér ókunnugt um hvort einstök bif- reiðaumboð myndu leita eftir verðafslætti frá verksmiðjum í þeim tilgangi að losa sig við óseld- ar bifreiðar, en útsala af hálfu umboðanna kæmi vart til greina, þar sem álagning á bifreiðar væri það lág. Hinn mikli floti óseldra bila í Borgarskála Eimskips. Morgunblaðiö/ ÓI.K.M. Flogið til Patreksfjarðar í gær eftir rúmlega hálfs mánaðar hlé Þungfært á Vestfjörðum og Norðurlandi FLUGSAMGÖNGUR eru nú óóum að færast í samt horf eftir umhleypingana að undanfórnu. í gær var til dæmis flogið til Patreksfjarðar í fyrsta sinn síðan 27. desember. í gær var flogið til allra viðkomustaða Flugleiða nema Yestmannaeyja og Norðfjarðar og er nú lítið um það að fólk bíði flugs. Að sögn Sæmundar Guðvinsson- ar, blaðafulltrúa Flugleiða, gekk innanlandsflugið vel og voru meðal annars farnar sex ferðir til Þing- eyrar, en þar var ekki hægt að koma við stórum vélum og voru því leigðar smærri vélar til flugs þang- að. Þó langt sé síðan að flogið var til Patreksfjarðar biðu þar aðeins um 50 manns, aðrir höfðu komizt af staðnum eftir öðrum leiðum, meðal annars með Landhelgisgæzl- unni. Sagði Sæmundur, að innan- landsflugið væri nú að færast í eð- lilegt horf og lítið væri um það, að menn biðu fars enda hefðu á annað þúsund manns verið fluttir með vélum Flugleiða í fyrradag og millilandaflug gengi mjög vel. Samkvæmt upplýsingum Vega- gerðarinnar var talsverður skaf- renningur víða á Suður- og Vestur- landi í gær. Ágæt færð var þó á Suðurnesjum eftir aðalleiðum og Engar líkur á að frumvarpið falli — segir Gunnar Thoroddsen forsætisrádherra „ÉG TEL ENGAR líkur á að þetta verði fellt á Alþingi, og sé því ekki ástæðutil að ræða það nánar,“ sagði dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra í samtali við blaðamann Morgunblaðsins i gærkveldi, er hann var spurður hvort hann væri sammála formanni Framsóknarflokksins um að rjúfa þurfi þing og boða til kosninga, verði fiskverðsákvörðunarfrumvarpið fellt á Alþingi. I Morgunblaðinu í gær var eftir- farandi haft eftir Steingrími Her- mannssyni um þetta mál: „Ég mun að sjálfsögðu leggja til þing- rof og nýjar kosningar því flotinn siglir þá í land og útgerðin stöðv- ast og þá er náttúrlega ekki annað að gera en leggja málið fyrir þjóð- ina. Ég hef fulla trú á þvi að for- sætisráðherra hafi sama skilning á þessu og ég.“ „ÞAÐ er verið að ganga frá því núna þessa dagana, að Bandalag jafnaðarmanna — sem ekki verður flokkur — verði til, og ég geri ráð fyrir því að þetta verði eitt af því sem þar verður rætt mjög ítarlcga um þegar í byrjun,“ sagði Vilmund- ur Gylfason álþingismaður í sam- tali við blaðamann Morgunblað- Leiörétting í FRÉTT um doktorsvörn dr. Ara K. Sæmundsen sl. þriðjudag varð slæm villa. Síðasta málsgrein fréttarinnar er rétt þannig: Ari er kvæntur Sigríði Á. Skúladóttur og eiga þau tvö börn. Morgunblaðið biður hlutaðeig- andi velvirðingar á þeim mistök- um, sem urðu við birtingu fréttar- innar. sins í gær. — Vilmundur var að því spurður, hver afstaða hans yrði til fiskverðsfrumvarps ríkisstjórnar- innar er það kemur fram á Alþingi. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði sem kunnugt er í samtali við Mbl. í gær, að verði frum- yarpið fellt, muni hann leggja til að þing verði rofið og efnt til nýrra kosninga þegar í stað. — Þar sem Vilmundur er einn hinna 40 þingmanna í neðri deild Alþingis, þar sem stjórn og stjórnarandstaða hafa sína 20 þingmennina hvor, getur það oltið á atkvæði hans hvort frum- varpið nær fram að ganga eða ekki. Með tilliti til þess að málið þyrfti að ræðast innan Banda- lags jafnaðarmanna, sagðist Vilmundur ekki geta svarað því núna, hver afstaða hans yrði. austur um Þrengsli, en Hellisheiði var ófær. Fært var austur eftir Suðurlandi, austur á Firði, en ófært var um Fjarðarheiði og Vatnsskarð. Á Héraði voru flestir aðalvegir færir. Fært var frá Reykjavík til Akraness og Borg- arness og vestur Mýrar, um Heydal og á norðanverðu Snæfellsnesi allt vestur til Hellissands, en á sunnan- verðu Nesinu var aðeins fært jepp- um og stórum bílum og fjallvegir ófærir. Fært var vestur í Saurbæ, en þungfært þar fyrir vestan. I gær var opnað út á flugvöll á Patreks- firði en að öðru leyti var ófært í nágrenni Patreksfjarðar. Ófært var á milli Flateyrar og Þingeyrar. Frá ísafirði var fært í Hnífsdal og Bolungavík. Ófært var til Súðavík- ur. I uppsveitum Borgarfjarðar var talsverður skafrenningur og þung- fært um Norðurárdal og Holtavörðuheiði og einnig var víða þungfært í Húnavantnssýslum. Vatnsskarð og Öxnadalsheiði voru þungfær og þungt frá Sauðárkróki til Siglufjarðar. Frá Akureyri var ófært til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og austur um til Húsavíkur. Frá Hús- avík var þungfært upp í Mý- vatnssveit, ófært var um Tjörnes, en fært úr Kelduhverfi austur á Vopnafjörð. Á aðalleiðum sunnan- lands er mokað daglega en norður í land tvisvar í viku og á Snæfells- nesi, næst á föstudag. I dag búast veðurfræðingar við vaxandi suðaustanátt um landið og slyddu og rigningu í kjölfar hennar suðvestanlands. Undir kvöldið er búizt við að hann gangi í suðvest- an- og síðan vestanátt með slyddu og síðan éljum vestanlands. Afstaða Vilmundar til fiskverðsfrumvarpsins: „Þarf að ræðast innan Bandalags jafnaðarmanna“ 205 árekstrar fyrstu 9 dagana FYRSTU níu daga janúar uróu 205 árekstrar í umferðinni i Reykjavík, sem lætur nærri að vera í meðallagi — eða um 25 árekstrar á dag. Flestir urðu árekstrarnir á þriðju- dag, eða á þriðja tug. Hins vegar er athyglisvert, að slys hafa ekki orðið alvarleg og flestir hafa árekstrarnir verið smávægilegir. Ástæðan er, að vegna slæmrar færðar í Reykja- vík hefur ökuhraði verið mun minni vegna ófærðar en almennt gerist. Davíð Oddsson Aðalfundur fulltrúa- ráðsins í kvöld: Davíð Oddsson flytur ræðu AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður haldinn í kvöld, fimmtu- dagskvöld, í Valhöll og hefst klukkan 20:30. Davíð Oddsson borgarstjóri flytur ræðu á fundin- um. Á aðalfundinum verða kosnir sex menn í stjórn fulltrúaráðsins og formaður sérstaklega og gefur Guðmundur H. Garðarsson kost á sér til áframhaldandi formennsku. Einnig verður kosið í flokksráð Sjálfstæðisflokksins. Skýrsla stjórnar verður flutt og síðan rædd önnur mál. Tollgæslan:. Selur upptækan smygl- varning á millilandaskip ÚTLENDAR matvörur sem rcynt er að smygla hingað til lands, eru gerðar upptækar, en þa-r eru síðan seldar um horð í islensk millilandaskip og á hið sama við um bjór sem reynt hefur verið að smygla til landsins. Verð vörunnar er hið sama og er erlcndis, en millilandaskip hafa leyfi til að kaupa kost í ýmsum erlendum höfnum, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Krislni Ólafssyni tollgæslustjóra. Samkvæmt veðskrá sem Mbl. hef- ur borist er verð á nokkrum tegund- um matvara, sem seldar eru með þessum hætti, sem hér segir: Skinka, 36 kr. kílóið, hamborgarahryggur, 51 kr. kílóið, kalkún 30 kr. kílóið, kjúklingar, 23 kr. kílóið, endur, 32 kr. kílóið og bacon, 32 kr, kílóið. Kristinn Ólafsson sagði að þetta hefði verið tíðkað í áraraðir, enda fengju millilandaskip að kaupa kost erlendis og væri verð vörunnar hér það sama og skipafélögin greiddu þar. Þetta væri gert til þess að mat- vælin eyðilegðust ekki og ekki skemmdist meira magn en óhjá- kvæmilegt væri. Einnig sagði Krist- inn að bjór væri og seldur í millilandaskip með fyrrgreindum hætti. Andvirði þessara vara sagði Kristinn renna til ríkissjóðs. Samkvæmt lögum nr. 11/1928 er lagt bann við innflutningi á hráu kjöti og segir í lögunum að bannvör- una eigi að ónýta eða gera upptæka, eða, ef eigandi hennar kýs, að að láta vöruna fara úr landi á ný. Því væri litið svo á að með því að láta vöruna í millilandaskip til neyslu færi hún úr landi. Jónas Guðmundsson Hef skrifað ógætilega um ýmis heilög mál Það er undirrót brott- rekstrar míns af Tíman- um, segir Jónas Guð- mundsson, rithöfundur MÁLIÐ er nú svo einfalt, að ég var einfaldlega rekinn með upp- sagnarbréfi, undirrituðu af for- manni blaðstjórnar, Halldóri Ás- grímssyni. Þar er mér tjáð, að ákveðið hafi verið að allt starfs- fólk Tímans skuli hafa fasta við- veruskyldu á blaðinu. Ég er ráð- inn scm greinahöfundur að blað- inu og hef aldrei haft skrifborð á Tímanum í 11 ár. Það er ekkert verið að kvarta undan afköstun- um, það er innihaldið. Ég hef skrifað ógætilega um ýmis heilög mál, eins og landbúnað og ég tel það vera undirrót brottrekstrar- ins, því þetta fólk þolir ekki gagnrýni,“ sagði Jónas Guð- mundsson rithöfundur meðal annars, er Morgunblaðið ræddi við hann um brottrekstur hans af daghlaðinu Tímanum. „Ég hélt því að málið snérist um það hvar ég ynni mín verk en ekki hvaða verk ég ynni. Bréfið er dagsett 29. septem- ber, en það er ekki fyrr en líður að þessum fresti, að það kemur í ljós, að það á að taka mig frá þeim verkum sem ég hef verið í og láta mig segja mönnum hvaða apótek séu opin og síma- númer hjá slökkviliðinu. Þetta á ég að vinna eftir sérstökum lista, sem mér er fenginn. Ég á sem sagt að vera með beizli alla daga í unglingavinnu og byrjendastörfum og það er greinilegt að endurskoðendur blaðsins telja að ég þurfi að læra upp á nýtt og byrja á byrjuninni. Jafnvel þótt for- maður blaðstjórnar telji helg- arpakkann vera heillandi við- fangsefni er ég ekki á sömu skoðun," sagði Jónas. Morgunblaðið reyndi vegna jessa að ná í Halldór As- grímsson og Gísla Sigurðsson, framkvæmdastjóra Tímans, en' án árangurs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.