Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983 7 Músikleikfimin hefst mánudaginn 17. janúar. Styrkj- andi og liökandi æfingar fyrir konur á öllum aldri. Byrjenda- og framhalds- tímar. Tímar í húsi Jóns Þorsteinsson- ar, Lindargötu 7. Kennari Gígja Her- mannsdóttir. Upplýsingar og innritun í síma 13022 eftir kl. 1 og um helgar. Öllum er heiðruöu mig á sjötugsafmæli mínu þann 16. des. sl. með gjöfum, skeytum og heimsóknum sendi ég hjartans kveðjur. Eg saknaði þeirra sem ekki áttu þess kost að heimsækja mig,fannst mér þó að allir væru gestir mínir, svo mikla alúð sem ég fann í gegn um þeirra gerðir. Verkin merkja sterkir stafir, standa mér að baki næstir, vinarhug og valdar gjafir vil ég þakka kæru gestir. Guð ykkur leiði lífs um bratta vegi, liðsinni mitt þar dugir eigi. Mig vantar orð er vildi segja verð semfyrr að hugsa; þegja Engilbert Guðmundsson Hallsstödum við ísafjarðardjúp. Saga Austur-Þjódverja ^lS^r þýzkan dugnað ^,eingrímurJlemaSS^ Mun að sjálfsögðu Ieggja til þingrof °g nýjar kosningar ^^^gákvorðunarfrumvarpið verðn/r.M, 1 Framsóknarfræðin Steingrímur Hermannsson, formaöur Framsóknarflokksins, talar nú annars vegar um nauösyn þess aö efna til kosninga sem fyrst eöa hann hefur hins vegar í „hótunum" við stjórn- arandstööuna og segist sko skulu sjá til þess aö kosið veröi sem fyrst hagi hún sér ekki vel. Þessi pólitísku framsóknar- fræöi byggjast líklega á því, aö flokkurinn er í miöju stjórn- málanna og sveiflast þar í einhvers konar tómarúmi. En sérfræðingur flokksins í utanríkismálum er ekki í neinu tómarúmi þegar hann tekur sér fyrir hendur aö lofa dýröina í Austur-Þýskalandi, væntanlega í því skyni aö þakka gest- risni undanfarinna árá. Takmarka- laust blaður Svo ofl hefur verið vakið niál.s á þeim þverstæðum •sem er að finna í málflutn- ingi Steingríms Her- mannssonar, formanns Kramsóknarflokksins, aö lesendum fínnst það kannski vera aö bera í bakkafullan lækinn að gera það enn einu sinni. l’egar framsóknarmenn og alþýðubandalagsmenn voru að hristast saman í þessu da'malausa stjórn- arsamstarfi höfðu tals- menn kommúnista á orði, að helsti efnahagsvandi þjóðarinnar væri líklega blaðrið í honum Stein- grími. Siðan hefur efnahagsvandinn síður en svo minnkað og síst af öllu verðbólgan sem framsókn- armenn hafa ætlað að sigra með „blaðri" eins og kunnugt er. Kn formaður Framsóknarflokksins held- ur fast við sinn keip og seg- ir eitt í dag og annað á morgun, hvort heldur hann er að tala um gengið, út- gerðarmál eða kosningar. Nýjasta dæmið um mál- flutning framsóknar- leiðtogans er að sjá á bak- síðu Morgunblaðsins í gær, þar sem Steingrímur er heldur en ekki borgin- mannlegur yflr frumvarpi því sem hann mun nú flytja á alþingi í framhaldi af ákvörðuninni um flsk- verð sem hann segist vcra höfundur að og leiddi til 9% gengisfellingar þótt Steingrímur hafl auðvitað sagst vera andvígur geng- isfellingu. Um framgang frumvarps síns á þingi seg- ir Steingrímur: „Ég teldi það mjög góða stöðu fyrir mig pólitískt, ef hún (stjórnarandstaðan. innsk. Mbl.) felldi það (Trumvarpið, innsk. Mbl.). Kg held að hún fari ekki að gefa mér þá óskastöðu. l‘á fæ cg tækifæri til að fá kosningar fljótt og þá hef- ur hún stöðvað útgerðina, en ég hef enga trú á að hún geri það.“ l»essi ummæli formanns Framsóknarflokksins eru dæmigerð fyrir pólitíska ábyrgðarlcysið og valdapot- ið sem setur svip sinn á rikisstjórnina og ráðherra hennar: Nú, ef þeir vilja ekki styðja mig þá fer ég bara i kosningar og það er bara betra að þeir styðji mig ekki, er boðskapur Steingríms. Hvernig væri nú að hann léti verða af því að fara í kosningar og það sem fyrst? I’eim mun meira sem framsóknar- menn hafa blaðraö um niðurtalningu verðbólgunn- ar því meira hefur hún far- iö upp á við. I>eint mun fastar sem Steingrímur kvað að orði um að gengiö yrði ekki feílt því fyrr var það fellt. Þeim mun meira sem Steingrímur blaðrar um að hann vilji kosningar strax þvi meiri líkur eru á að þeim seinki. Dásemdin í austri l'órarinn l>órarinsson, riLstjóri Tímans og helsti sérfra'ðingur framsókn- armanna um utanríkismál, ritar lofrollu um Áustur- Þýskaland í blaö sitt í gær í tilefni af því, að 10 ár eru liðin frá því að stjórnmála- samband var tekið upp milli íslands og Austur- Inskalands. í grein sinni grípur I>órarinn til sam- anburðarfræðinnar með næsta nýstárlegum hætti, að þessu sinni vill hann ekki nota hana til að sanna aö Bandaríkin séu ívið verra risaveldi cn Sovétrík- in heldur til að sýna fram á að Austur-I>jóðverjar hafi unnið meira afrek í efna- hagsmálum frá stríðslok- um en Vestur-Þjóðverjar, af því að Bandaríkjamcnn hafl hjálpað þeim fyrir vestan járntjaldiö en Sov- étmenn hafl ekki vcrið af- lögufærir fyrir austan, þvert á móti hafl Austur- Þjóðverjar orðið að greiöa Sovétmönnum stríðsskaða- ba'tur. Kitstjóri Tímans flnnur Austur-Þjóðverjum ekkert til foráttu og skýrir jafnvel sem næsta sjálfsagöan hlut með efnahagsþróun þeirra í huga, að þeir skuli hafa reLst múrinn í Berlín sem IVirarinn kallar að vísu „illræmdan". Og hann seg- ir meðal annars: „Þótt Austur-Þjóðverjar telji ekki meira en 17 milljónir manna, eru þeir í hópi tiu mestu iðnaðarvelda heims. Lífskjör eru þar mun betri en í öðrum löndum í Austur-Kvrópu. Þrátt fyrir það eru lífskjör mun lakari en í Vcstur-Þýskalandi, en hins vegar er þar ekkert atvinnuleysi." Sama dag og l*órarinn Þórarinsson birti grein sína um það, að saga Austur-Þýskalands sannaði „þýskan dugnað", var frá því grcint um heim allan, að Krich Honecker, leið- toga kommúnLsta i Austur- I*ýskalandi og einra'ðis- herra þar, hefði verið sýnt banatilræði. Og samkva'mt frásögn vestur-þýska viku- blaðsins Der Stern fylltist tilra'ðismaðurinn ómót- sta'ðilegri þörf til að fremja moröið eftir að hann hafði kynnst því hvernig komm- únistaforingjarnir í hinni nýju stétt lifa í vellysting- um pragtuglega á meðan alþýðan hefur vart til hnífs og skeiðar og býr einnig við andlegt svelti. Um þá hliö mála sá I*órarinn IVir- arinsson ekki ástæðu til að fjalla. Höfum ávallt fyrirliggjandi saunaofna og klefa á mjög hagstæöu veröi. Helo I stærö 162x205x201 cm. íifaliö í veröi er klefi meö ofni, bekkjum, lofti, ..........jnlli .......... ......... einangrað- ur. Verö 25.440,- Helo III stærö 205x205x201 cm. Innifaliö í verði sama og með Helo I. Verö kr. 29.150,- Stakir ofnar 4.5 kw ofn kr. 5.907.- 6,0 kw ofn kr. 6.141,- 7.5 kw ofn kr. 6.694,- (Gengi 17/12 ’82). Benco, Bolholti 4, sími 21945. Nú er rétti tíminn til að huga að sumarbústaðnum Trésmiöjan Rangá hf. Hellu framleiöir ýmsár Síæröir af sumarbústöðum 20 m2, 25 m2, 38 m2 og 50 fm2. Einhver þeirra gæti hentað yður. Getum útvegað land í Fljótshlíöinni RANGÁ HF. Hellu. sfmi 99-5859

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.