Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983 45 i 'A 1« / i 1» í* * | ? j 11S 5 ^^I^KAfiDr SVARAR í SÍMA ■'íl 10100 KL. 10—12 Jí FRÁ MÁNUDEGI % nV^ „ Þessir hringdu .. . Hverjir borga svo á endanum? Helga Þorsteins hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig lang- aði bara til að lýsa stuðningi við hann Davíð Oddsson að því er varðar strætisvagnana. Eg er nefnilega strætisvagnakona og ferðast ævinlega með strætisvögn- um um borgina okkar. Ég hef aldrei getað skilið, hvernig Reykjavík hefur getað haft almenningsfargjöld að því helm- ingi lægri en allar borgir í Vest- ur-Evrópu. Annað mál hefur legið mér lengi á hjarta: Hvers vegna í ósköpun- um getum við ekki borgað raf- magn og hitaveitu. Vitum við yfir- leitt hvað við eigum gott að njóta hvors tveggja. Og þó eru fyrirtæk- in, sem þessa þjónustu veita svelt svo að þau geta ekki einu sinni staðið undir brýnustu viðhalds- framkvæmdum, hvað þá meira, og látin fjármagna taprekstur sinn með botnlausri skuldasöfnun. En hver borgar svo á endanum? Engir aðrir en við Reykjvíkingar auðvit- að. Víkingsstúlk- urnar voru byrj- aðar að æfa Hrefna Birgitta Bjarnadóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég las grein ísfirðings í dálkunum hjá þér í dag (þriðju- dag), þar sem hann er öðrum þræði að svara greininni minni, sem birtist í Velvakanda 6. þ.m., um upphaf kvennaknattspyrnunn- ar hér á landi. Mig langaði aðeins til að benda ísfirðingi á fyrri hluta málsgreinar þeirrar sem hann hefur orðrétt eftir úr grein minni: „En hér á undan hef ég gef- ið örlitla mynd af því sem ég veit um upphaf kvennaknattspyrnu á íslandi. Ef rangt er með farið vona ég að sá sem betur veit láti til sín heyra.“ Um leið og ég þakka ísfirðingi fyrir tilskrifin, vil ég láta þess getið, að skömmu eftir að ég skrif- aði fyrrgreinda grein, frétti ég, að Víkingsstúlkur hafi verið byrjaðar að æfa knattspyrnu á undan okkur. Þakkir til snjó- mokstursmanna Ó.H. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Mig langar að koma á framfæri þakklæti mínu til þeirra sem sjá um skipulag og framkvæmd á snjómokstri hér í borg, fyrir lipurð og hjálpsemi við borgarana og dugnað og mynd- arskap í starfi. Mér finnst fyllsta ástæða til að þakka fyrir sig. Ég hlustaði á spurningaþáttinn þeirra Akureyringa á sunnu- dagskvöld. Þar var spurt um höf- uðborg Texas-fylkis í Bandarikj- unum og rétt svar talið Dallas. En höfuðborgin heitir Austin, að því sem ég best veit. Itrekaðar fyrir- spurnir til SVR og Kirkju- garðanna Anna Guðmundsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég hef aldrei fengið svar við spurn- ingu minni um lagalegan rétt Strætisvagna Reykjavíkur til að taka alla afsláttarmiða úr umferð, áður en borgarstjórn hafði sam- þykkt hækkun á fargjöldum. Ég leyfi mér að itreka þessa beiðni mína og álít að stjórn fyrirtækis- ins beri að sýna þá kurteisi að svara svona fyrirspurnum. Einnig bar ég upp fyrirspurn til Kirkju- garða Reykjavíkur varðandi jóla- lýsingu í kirkjugarðinum í Foss- vogi, en henni hefur heldur ekki verið svarað. Alveg stór- kostleg D.L. skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til að þakka öllum þeim er komu fram í áramóta- skaupi sjónvarpsins fyrir góða skemmtun. Sérstakar þekkir til Eddu Björgvinsdóttur. Hún er al- veg stórkostleg. Gleðilegt ár.“ hér sjálfur hornsteinn lýðræðis- ins, sem er leynilegur kosninga- réttur almennings og mætti á sama hátt halda því fram, að niðurstöður leynilegra kosninga séu ekki marktækar og ekki ástæða til að fara eftir slíku rugli. Enda gert óspart í þeim löndum sem það þjóðskipulag ræður ríkj- um, sem sumir starfsmenn frétta- stofu ríkisútvarpsins vinna að leynt og ljóst að á verði komið hér á landi með linnulausum komm- únistaáróðri og annarri moldvörpustarfsemi. Vel kemur í ljós tvískinnungur- inn, í gagnrýni starfsmanna fréttastofu útvarpsina á nafnlaus lesendabréf, ef athugað er að eft- irfarandi .var lesið í fréttatíma sjálfs Ríkisútvarpsins þann 2. janúar, 1983: „Samkvæmt nafn- lausri grein í Pravda" ... og svo kom einhver áróðurslestur ætlað- ur „friðarhreyfingunni". Þurfa menn lengur vitnanna við?“ Hugað að hneykslanlegu athæfi nágrannans: Sigurður Sigurjónsson og Edda Björgvinsdóttir í áramótaskaupi Sjónvarpsins. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Konur í íran hylja andlit sín með blæjum. I»etta er erlend setningargerð. Rétt væri: Konur í íran hylja andlitið með blæju. (Nema hver kona hafi fleiri en eitt andlit.) SIG6A WöGA « 1*»» W M£. £> Notaðar vinnuvélar til sölu Komatsu D45 A jaröýta 90 hö. árg. 1981. Case 1150 jarðýta 105 hö. árgerö 1978. Komatsu FD 30 diesellyftari 3 tonna meö snún- ingsbúnaöi og húsi árg. 1981. Hino KB 422 vörubifreið árg. 1979, ekinn 95.000 km. Allar nánari upplýsingar veitir sölumaður Véladeildar BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99 Alltaf á fóstudögum Mannalúsin skýtur ennþá upp kollinum Vélsleöarnir hafa opnað hálendiö Hverjir eru möguleikarnir hvað varöar fjárfestingu og ávöxtun einkafjármagns? • Aö segja NEI getur verið vandamál Föstudagsblíidid ergott forskot á helgina AUGIYSINGASTOFA KRISTlNAR HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.