Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983 Útgefandi stHiifrift hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 150 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakið. Nafnnúmer ömmunnar og oddatalan að þykja ekki tíðindi á líðandi stund þó að undir- stöðuatvinnuvegir, sem lífs- kjör þjóðarinnar og efna- hagslegt sjálfstæði hvíla á, séu reknir með bullandi tapi. Það er heldur ekki saga til næsta bæjar þótt opinberar stofnanir ríkis og sveitarfé- laga eyði langt um tekjur fram. Það má nefnilega ná endum saman með erlendri skuldasöfnun og velta vand- anum yfir á framtíðina! Heimilin í landinu stefna nú hraðbyri í sömu skulda- súpuna. Skattbyrði eigna- skatta hefur nærri tvöfaldast síðan 1977 sem hlutfall af tekjum greiðsluárs. Skatt- byrði tekjuskatta hefur auk- izt um 50% á sama mæli- kvarða mæld. Á sama tíma hefur vörugjald verið hækkað um 6% og söluskattur um 2%, auk þess sem orkujöfn- unargjald, sem í raun er 1,5% nýr söluskattur, hefur komið til. Þessir hækkunarþættir ríkisvaldsins í almennu verð- lagi hafa öðru fremur hækk- að útgjöld heimilanna í land- inu. Hér við bætist að stjórn- völd hafa skert verðbætur á laun, samkvæmt almennum kjarasamningum, 13 sinnum frá og með ríkisstjórnaraðild Alþýðubandalagsins 1978. Samtals nemur þessi verð- bótaskerðing nálægt 50%. Alþýðubandalagið, mönd- ullinn í ríkisstjórninni, hefur hinsvegar hannað hagstjórn- arleið í þágu hinna lakar settu í þjóðfélaginu, svokall- aðar „láglaunabætur", í framhaldi af bráðabirgðalög- um ríkisstjórnarinnar frá því í ágúst sl., sem enn eru að velkjast í meðförum Alþingis. Jón Kjartansson, formaður verkalýðsfélags Vestmanna- eyja, segir um þessar „lág- launabætur" í viðtali við Morgunblaðið: „Ég verð nú að játa að ég skil hvorki upp né niður í þessu, mér finnst þetta hálf- gerð skrípamynd. Mér hefur fundizt skásta skilgreiningin sem maður á skattstofunni hér kom með, þegar ég spurði hann eftir hvaða regium þeir færu við útreikning bótanna. Hann sagði að þeir legðu nafnnúmer ömmu viðkom- andi við nafnnúmer hans. Ef út kæmi oddatala þá fengust bætur, annars ekki.“ Háukur Friðriksson segir í lesendabréfi til Morgunblað- sins: „Það sem Jón segir kem- ur heim og saman við reynslu okkar hér í Sjálfsbjargarhús- inu. Við fengum að sjálfsögðu ekki eyri. Bæturnar háfa að sjálfsögðu farið til þeirra sem meira hafa þurft á þeim að halda en við, samkvæmt rök- réttum reglum yfirvalda," en Jón Kjartansson hafði látið að því liggja að „bæturnar" væru einskonar höfundar- laun fyrir skondnustu skatta- framtölin. Ef lesa má einhverja niður- stöðu út úr opinberri stjórn- sýslu í atvinnu- og efna- hagsmálum síðustu árin sýn- ist hún helzt sú, að afkoma atvinnuvega og heimila í landinu skipti engu höfuð- máli, heldur sú skömmtunar- skrifstofa, sem ríkisstjórnin hefur gert sig að. Það er sum sé miðstýringin sem blívur. „Láglaunabæturnar" eru síð- an prófmálið á réttlætið og árangurinn! Aðförin að Reykjavík Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að greiða fargjöld SVR niður um 50 m.kr 1983. Jafnframt að hækka fargjöldin þann veg, að reksturinn standi undir sér með þessari meðgjöf. Hér var gerð tilraun til að koma skaplegri skikkan á afkomu þessarar borgarstofnunar. Þegar hér er komið rís ríkisvaldið upp á afturfætur, ekki af umhyggju fyrir far- þegum SVR, heldur kaup- gjaldsvísitölunni, sem m.a. tekur mið af fargjöldum SVR. Reynt er að koma lög- banni á ákvörðun borgar- stjórnar. Skylda á reykvíska skattgreiðendur til að borga niður kaupgjaldsvísitölu í ríkara mæli en ákvörðun borgarstjórnar stendur til. Hér er um beina aðför að sjálfsforræði Reykjavíkur sem sveitarfélags að ræða. Ríkisvaldið á ekki að geta ákveðið rekstrarhalla á fyrir- tækjum Reykjavíkurborgar. Það er óskemmtileg uppá- koma fyrir fyrrverandi borg- arstjóra í Reykjavík og þing- mann Reykvíkinga að þurfa sem forsætisráðherra að láta slíkan yfirgang ríkisvaldsins gagnvart Reykjavíkurborg yfir sig ganga. Umhverfid kannad og súrefnis aflað. Sólmundur bað um að fram kæmi, að rostungar séu yfirleitt friðsamir, en ef þeir verða Rifsrostungurinn er ungur að árum og því kannske ekki til stórræðna, Sólmundur bað þó fólk að sýna honum tillitssemi bæði hi Rostungurinn í Rifshöfn: „Gæti verið Val —réttur aldur, stærð ogseins tennur, segir Sólmund ROSTUNGURINN í Rifshöfn tók Morgunblaðsmönnum og fylgdarliði á Suðurgarðinum í gærmorgun með stóískri ró og lét hvorki myndavélar né spígspornadi forvitna tvífætlinga trufla sig frá gómsætum skelfiski og hressandi morgunleikfimi í gárum morgungolunnar. Hann stakk sér með mjúkum hreyfingum undir yfir- borðið við enda hafnargarðsins, þrátt fyrir 600—700 kílóa þyngd, birtist síðan á ný eftir tvær til þrjár mínútur. A milli köfunarferða lét hann sig fljóta nokkra stund, fnæsti svolítið, safnaði súrefni og kannaði umhverfið með heimspekilegum svip. „Þessi rostungur er mjög vel á sig kominn og ekkert að honum, eins og talið hefur verið. Hann er augsýnilega í góðu matarbúri þarna, það sézt á því hversu oft hann fer niður á sama stað. Hann gæti átt eftir að dvelja hér svo vikum, jafnvel mánuðum skiptir, ef hann verður ekki fyrir áreitni," sagði Sólmundur Einarsson, fiski- fræðingur og sérfræðingur um lifnaðarhætti sela, er hann hafði virt rostunginn fyrir sér skamma stund í sjónauka. Sólmundur fylgdist með Morgunblaðs- mönnum vestur, þá var í förinni vigtarmaðurinn á Rifi, Sæmundur Kristjánsson, en hann varð fyrst- ur var við rostunginn í fyrradag, þar sem hann lá á kletti við flæð- armálið á Suðurgarði. Sæmundur taldi hann vera útsel sem biði dauða síns, enda koma þeir ekki upp í landsteina í byggð á þessum árstíma, nema þeir séu illa farnir. Sæmundur sótti skotvopn og ætl- aði að binda enda á kvalir skepn- unnar. Er hann mundaði skot- vopnið brá skepnan hreifunum undir sig og kom þá í ljós mynd- arleg rostungstönn, en aðeins ein, því hægri tönnin er brotin, alveg eins og í Valla víðförla, sem ís- lendingum er að góðu kunnur frá sögulegu ferðalagi hans frá aust- urströnd Bretlands til Grænlands, síðla árs 1981. - O - Við fylgdumst með rostungnum fram undir hádegi af Suðurgarð- inum, en hann stundaði köfunar íþróttina stöðugt af mikilli list. Dýralíf í höfninni á Rifi er fjöl- breytt. Auk rostungsins voru að minnsta kosti fjórir selir liggjandi á klettum Norðurgarðs og aragrúi fugla, æðarfugla og sjófugla, ým- ist á sundi eða flugi. Sæmundur benti okkur á einn sundfuglinn, sem hann sagði vera Toppgoða, sjaldgæfan flækingsfugl. Topp- goðinn birtist í Rifshöfn skömmu fyrir komu rostungsins. Minnug þess að Sæmundur kom að rostungnum liggjandi uppi á klettum laust fyrir hádegi daginn áður, ákváðum við að yfirgefa staðinn um stund, ef nærvera okkar truflaði hann frá því að taka sér hvíld. Um klukkutíma síðar vitjuðum við hans aftur, en gengum þá út Norðurgarðinn. Hann virtist þá hafa tekið ákvörðun um að láta alla hádeg- ishvíld lönd og leið þennan daginn og hélt uppteknum hætti: kafaði, hvarf og birtist á ný, en nú við enda Norðurgarðsins þar sem við höfðum komið okkur fyrir. Eftir að hafa fylgst með honum — og hann með okkur — í nokk- urn tíma fundum við út, að sá tími sem hann var í kafi hverju sinni skakkaði örsjaldan meiru en nokkrum sekúndum frá tveimur og hálfri mínútu. Þá mátti nokk- urn veginn jafnnákvæmlega reikna út hvar hann kæmi upp, því athafnasamur sundfugl elti hann á röndum. Að sögn Sólmundar naut hann góðs aÞróti rostungsins á botninum sér til fæðuöflunar. - O - Skilaboð bárust okkur, er við tókum hvíld frá „yfirsetunni", frá brezkum blaðamanni á Daily Mail, sem að beiðni Mbl. hafði samband við náttúruverndarmennina brezku, sem beittu sér fyrir flutn- ingi Valla viðförla á sínum tíma, til að forvitnast um hvort og þá hvernig Valli hefði verið merktur. Skilaboðin sögðu að hann hefði verið merktur með gulri máln- ingu, — stafurinn hefði verið málaður á hægri hlið hans. Sólmundur fór á sínum tíma, að beiðni Landhelgisgæzlunnar, með varðskipinu Tý frá Keflavík til þess staðar sem Valla var sleppt á undan ströndum Grænlands. Hann sagðist minnast þessarar málningar, en taldi lítið gagn að henni nú. Ef þetta væri Valli, hefði hann með því að fella hár tvívegis á þessu tímabili sam- kvæmt lögmáli náttúrunnar, losað sig við merkinguna. Við spurðum hann í framhaldi af þessu hversu miklar líkur hann teldi á að hér væri Valli víðförli enn á ferð. Hann svaraði því til að þessi rostungur væri 3—4 ára, en á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.