Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983 39 fclk í fréttum Margrét sneri sig í ballett + Fólk beitir hinum ýmsu adferöum við að halda sér í góöu formi eins og það er kallað. Sumir láta sér nægja að glugga í nokkrar bækur, sem lúta að heilsurækt, en aðrir eru róttækari og iðka leikfimi af cinhverju tagi. Margrét Danadrottning kvað stunda ballettæfingar nokkrum sinnum í viku og láta vel af. Hún varð hins vegar fyrir því óhappi fyrir skömmu að snúa á sér annan fótinn við iðkanirnar skömmu áður en hún átti að taka á móti sendi- nefnd frá Helsingjaborg. Eigin- maður hennar hljóp í skarðið fyrir hana, en henni hefur verið ráðlagt af læknum sínum að halda kyrru fyrir í nokkra daga a.m.k. áður en hún helduntil opinberra starfa sinna að nýju. Skál fyrir Nóbels- verðlaunahafanum! + Betty Williams, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1976, sést hér hin kátasta eftir að hafa gengið í það heilaga í síðastliðinni viku. Betty Williams barðist ötullega fyrir friði á Norður-írlandi á sinum tíma, en hinn heppni kvað heita Jim Perkins og vera Bandaríkjamaður. Kátína hjá dönskum jafnaðarmönnum ... + l'að var kátt hjá dönskum jafnaðarmönnum nú í byrjun janúar þegar „krónprins" þeirra, Knud Ileinesen gekk í það heilaga með Karen Vilhjelmsen i ráðhúsinu í Kaupmannahöfn. I'au hafa búið saman nokkur undanfarin ár, en bæði hafa þau verið gift áður og koma hvort um sig með þrjú börn i þetta nýja hjónaband ... Ástæðuna fyrir hjónabandinu nú segja þau vera einskæra ást, sem þau beri hvort til annars, en ekki sé um neinar hagkvæmnisástæður aö ræða. Meðfylgjandi mynd sýnir Anker Jörgensen óska hinum nýgiftu alls hins besta, undir rauðum fána. COSPER — I»u getur vel sofiö á sófanum í stofunni í nótt. Hvernig Harris hætti aó drekka + Leikarinn Richard Harris hefur nýverið látið hafa eftir sér hvernig honum tókst að láta af drykkju sinni þegar dagskammturinn var kominn upp í tvær vodkaflöskur og hann gerði sér skyndilega Ijóst, að hann yrði að hætta þegar í stað eða vínið kæmi honum i gröfina á skömmum tíma. „Égfyllti húsið af áfengi og það var vodki í hverju herbergi — jafnvel í baðherberginu. Freist- ingin var mikil, en mér tókst að halda aftur af mér og snerta ekki dropa," sagði hann og bætti við að hann hefði látið af fleiri nautna- lyfjum, þar sem hann sagði einnig skilið við fimm grömm af kókaíni á dag. ... Endurskoðun og rekstrarráðgjöf Hef opnaö endurskoöunar- og ráðgjafarskrifstofu aö Suðurlandsbraut 12, Rvk. Sími: 33650. Starfsemi: Bókhald, endurskoðun og skattskil (skattfram- töl). Rekstrarhagfræöiþjónusta. Rúnar Bj. Jóhannsson, rekstrarhagfraeöingur og löggiltur endurskoöandi. TJÁSKIPTI, NÁIN TENGSL & LÍKAMLEG VELLÍÐAN Námskeið í líkamssálfræði Wilhelm Reich Breski sállæknirinn Terry Cooper heldur hér á landi: A. Helgarnámskeið (14. —16. jan.) þar sem kenndar veröa aðferöir sem losa um spennta vöðva, leiðrétta ranga öndun, bæta tjáningaraðferðir og auka lík- amlega vellíðan. B. Fyrirlestur í Norræna húsinu, fimmtudaginn 13. jan. kl. 20.30 sem fjallar um kynlífskenningu Wilhelm Reich. Aögangseyrir 30 kr. Upplýsingar og skráning á nám- skeiöið er i Miögaröi Bárugata 11, sími: 12980 kl. 10—19. /MÐG/4RÐUR mmmmm^^ammmmmá ^Dale . Carnegie námskeiðið Kynningarfundur Kynningarfundur veröur haldinn í Sjálfstæðishúsinu Njarðvík kl. 20:00, fimmtudaginn 13. janúar. Allir velkomnir. ★ Námskeiðiö getur hjálpaö þér aö: ★ Öölast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST. ★ Bæta MINNI þitt á nöfn, andlit og staö- reyndir. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfæringarkrafti í samræöum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU. ★ Taliö er aö 85% af VELGENGNI þinni sé komin undir því, hvernig þér tekst aö umgangast aöra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á vinnustaö. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíöa. Fjárfesting í menntun gefur þér arö æfilangt. Innritun og upplýsingar í síma [ög 82411 r,r f.u k.»lr>yfi ,V IslurnJjv M// órnunarskólin a Konráð Adolphsson STJÓRNUNARSKÓLINN, GILJALANDl 7,108 REYKJAVÍK. Vinsamlegast sendu mér 10 BOÐORÐ VEL GENGNINNAR, mér aö kostnaðarlausu. Nafn: ________________________________ Heimili: _____________________________

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.