Morgunblaðið - 24.06.1983, Síða 11
HVAD ER AD GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JÚNl 1983 43
blómabændur framleiöa. Sýningin
er í þeirri álmu hússins, sem Borg-
arbókasafniö fær til afnota síöar
og er salurinn um 700 fermetrar.
Þaö er Blómamiöstööin hf. sem
heldur þessa sýningu, en hún er
sölufyrirtæki 24 blómabænda í
Hverageröi, Biskuþstungum,
Hrunamannahreþpi og Mosfells-
sveit. Þeir rækta nú blóm á liölega
40 þúsund fermetra plássi í
gróöurhúsum, eöa um 80% allra
inniblóma á markaöi hér.
Á laugardaginn mun Óli Valur
Hansson garðyrkjuráöunautur
flytja erindi um fjölgun og meðferö
stofublóma, hiö fyrra kl. 14 og hiö
síðara kl. 17. Þau veröa flutt í hlið-
arsal.
Þá veröur þægileg hljómlist
stööugt leikin í sýningarsal, en af
og til rofin af stuttum upplýsingum
og fræöslu, sem Óli Valur sér um.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 14 til 22 og frá kl. 10 til 22 á
laugardögum og sunnudögum og
stendur til 3. júlí. Engin blóm eru til
sölu á sýningunni. Börn yngri en 12
ára fá ókeypis aðgang í fylgd meö
fullorönum. Allir gestir fá meö sér
lítinn bækling meö heilræðum um
umhiröu blóma.
Listmunahúsið:
Sýningu Gunnars
Arnar að Ijúka
Sýningu Gunnars Arnar Gunn-
arssonar, sem veriö hefur í List-
munahúsinu Lækjargötu 2 undan-
fariö, lýkur nú um helgina. Gunnar
Örn sýnir alls 96 myndir, stórar og
smáar. Sýningin er opin á milli kl.
10 og 18 í dag, en frá 14 til 18 urry
helgina.
Gallerí Langbrók:
Nýir meðlimir
sýna verk sín
Gallerí Langbrók hefur nú starf-
aö í 5 ár og hefur felagatala aukist
úr 12 í 24, en tíu konur bættust í
hópinn í þessum mánuðí og kynna
þær verk sín í Gallerí Langbrók á
Bernhöftstorfu 24. júní. Sýnlng
hinna nýju Langbróka stendur til
10. júli og veröa á henni ýmis verk
til sýnis og sölu.
Þjóödansasýning í Reykjavík
Þjóðdansafélagiö „Fiörildin“ frá Egilsstöðum er nú á leið í sýningarferö til Sovétríkjanna en á
leiö sinni dvelja þau í Reykjavík og halda eina sýningu í Glæsibæ. Veröur sú sýning sunnudag-
inn 26. júní og hefst kl. 16.00.
SENDffilLSTJORAE
Eigum íyrirliggjandi dekk
undir hinar ýmsu gerdir sendibíla
HAGSTÆÐ VERÐ
Fullkomin hjólbarðaþjónusta
Tölvustýrð jafnvægisstilling
Hópurinn í Gallerí Langbrók
LITMYNDIR SAMDÆGURS!
Filman inn ffyrir kl. 11 — Myndirnar tilbúnar kl. 17.
Verzlið hjá fagmanninum
LJOSMYNDAÞJONUSTAN H.F.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK SÍMI 8581lHi
PRISMA