Morgunblaðið - 14.03.1984, Síða 48
MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Yfirvinnubannið í Eyjum:
Ef ekki semst í dag
loka húsin sjálfkrafa
— segir formaður útvegsbændafélagsins
Vestmannaeyjum, 13. mars. Frá Ómari Valdimarssyni, blm. MorjninblaAsins.
UGGS gætir meðal riskvinnslufólks og atvinnurekenda í Eyjum vegna yfirvof-
andi yfirvinnubanns í fiskiðjuverunum hér. Takist ekki samningar fellur bannið
á næstkomandi fdstudag. Samningafundi verkalýðsfélaganna og Vinnuveitenda-
félags Vestmannaeyja, sem hófst í dag, lauk um kvöldmatarleytið án þess að
verulega hefði þokast í samkomulagsátt, að sögn Jóns Kjartanssonar formanns
Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. Annar fundur hefur verið boðaður klukkan
10.30 á morgun. „Báðir aðilað hafa heilmikið til að sofa á í nótt,“ sagði Jón í
samtali við blaðamann Mbl. að loknum fundinum.
Kristinn Pálsson, formaður Út-
vegsbændafélags Vestmannaeyja,
sagði væntanlegt yfirvinnubann
„ruddalegar aðfarir". Verkalýðsfor-
ystan hér stendur með allt öðrum
hætti að málum en annars staðar á
landinu. Það hlýtur að vera mjög
alvarlegt mál að þetta gerist á sama
tíma og samningar ASf og VSÍ eru
samþykktir víðast um landið.
Kristinn sagði að ef svo héldi
fram sem horfði yrði útgerðarmenn
í Eyjum að fara að hugsa sinn gang
þótt þeir ættu ekki beina aðild að
deilunni. „Ef ekki næst samkomulag
í dag eða á morgun lokast húsin
„Náði að
halda höku
og nefi
upp úr
ísköldu
vatninu“
„ÉG ÞOKÐI ekki að henda mér
út úr vélskóflunni þegar hún var
að velta, því ég óttaðist að lenda
undir henni. Eg kastaði mér því
á gólfið og lenti á kafi í ísköldu
vatni. Ég náði að halda höku og
nefi upp úr vatninu svo að ég gat
andað, en ég gat gat mig hvergi
hreyft utan aðra höndina fítil-
lega. Aðstoð barst fljótlega en lít-
ið var hægt að gera. Um stund-
arfjórðungi síðar var ég farinn að
hríðskjálfa enda uppsprettuvatn-
ið ekki nema fjögurra til fimm
gráðu heitt. Því bað ég um að
heitu vatni yrði dæit á mig. Það
var borið úr Hraunsbænum í föt-
um og sett í tunnu og síðan leitt í
slöngu inn á mig. Þannig hafðist
ég við í um tvo klukkutíma,"
sagði Guðmundur Ingi Karlsson,
32 ára gamall Hafnfirðingur,
sem í gærmorgun bjargaðist á
ótrúlegan hátt eftir að 12—14
tonna vélskóifa, sem hann ók,
valt niður 3 til 4 metra háan veg-
arkant við Hraun í Ölfusi.
Húsið á vélskóflunni lagðist
alveg saman þegar hún valt og
Guðmundur gat sig hvergi
hreyft og má telja mikla mildi
að hann skuli ekki hafa
klemmst eða drukknað. Þegar
var hafist handa um að bjarga
honum úr prísundinni. Stærsti
kraninn, sem finnanlegur var á
Selfossi, var sóttur og með
honum var véiskóflan hífð upp
úr vatninu. „Þegar það hafði
tekist var hafist handa um að
ná mér út. Þeim tókst að rjúfa
gat á þakið með tjökkum og ná
mér út um 20 mínútum síðar.
Það var ánægjuleg tilfinning
að losna úr prísundinni," sagði
Guðmundur Ingi Karlsson.
sjálfkrafa," sagði hann. „Það gengur
ekki upp í fiskverkun að ekki megi
jafnóðum vinna þann afla sem berst
að landi. Það er einfaldlega ekki
hægt að hætta klukkan fimm á dag-
inn og byrja ekki aftur fyrr en
klukkan átta næsta morgun."
Nokkrir Vestmannaeyjatogar-
anna hafa þegar landað afla sínum
á fastalandinu og landar til dæmis
Klakkur VE i Hafnarfiði árdegis á
morgun, miðvikudag. Sindri landaði
á Hornafirði í gær. Tveir togarar
útgerðar Kristins Pálssonar Bergs
— Hugins sf. munu landa á næstu
dögum utan Vestmannaeyja, Berg-
eyin strax á morgun. „Þeir höfðu
verið að reyna að fá löndun hér í
Eyjum en húsin ekki treyst sér til að
gefa ákveðin svör," sagði Kristinn.
„Þetta er vissulega mjög alvarlegt
ástand," sagði hann. „Á meðan verið
er að skammta fisk um allt landið
yfir hávertíðina er skellt á yfir-
vinnubanni hér. Þetta er pólitík
meira og minna.“
Af samtölum blaðamanns Mbl.
við fiskvinnslufólk hér í Eyjum að
dæma eru skoðanir nokkuð skiptar
um fyrirhugað yfirvinnubann. f dag
hafa verið nokkuð háværar raddir
þeirra, sem telja óráðlegt að verka-
fólk í Eyjum standi eitt í kjaradeilu,
jafn alvarlegri og hér er í uppsigl-
ingu.
Búferlaflutningar 1983:
2.154 fluttu til lands-
ins, en 1.924 fóru
ALLS fluttu 2.154 menn til íslands á síðasta ári, en frá landinu fluttu hins
vegar 1.924, eða 230 færri, samkvæmt upplýsingum, sem birtar eru í febrú-
arhefti Hagtíðinda, sem Hagstofa íslands gefur út. Alls fluttu 1.552 íslenzkir
ríkisborgarar til landsins, en frá landinu fluttu 1.487, eða 65 færri.
Ef litið er á búferlaflutningana
samkvæmt kynskiptingu, kemur í
ljós, að á síðasta ári fluttu samtals
1.003 karlar til landsins og 1.151
kona. Frá landinu fluttu hins veg-
ar 939 karlar og 985 konur.
Flestir fluttu hingað frá Svíþjóð
á síðasta ári, eða 551 talsins, þar
af 257 karlar og 294 konur. Frá
Danmörku fluttu hingað til lands
519, þar af 252 karlar og 267 kon-
ur. Þessi tvö lönd skáru sig nokkuð
úr því næst í röðinni kemur
Noregur með 287, þar af 145 karla
og 142 konur. Þá koma Bandaríkin
með 237, þar af 99 karla og 138
konur. Það vekur athygli, að
hingað til lands fluttu samtals 59
frá Asíu og síðan 68 frá Eyjaálfu
eða Ástralíu.
Ef litið er á brottflutta kemur í
Ijós, að til Danmerkur fluttu alls
646, þar af 330 karlar og 316 kon-
ur. Til Noregs fluttu 330, þar af
164 karlar og 166 konur. Til Sví-
þjóðar fluttu 285, þar af 149 karlar
og 136 konur. Þá fluttu til Banda-
ríkjanna 246, þar af 106 karlar og
140 konur. Til Asíu fluttu 16 og til
Eyjaálfu, eða Ástralíu fluttu 64.
Gunnhildur Friðgeirsdóttir í miöasölu Kegnbogans í gærkvöldi eftir að gert
hafði verið að meiðslum hennar á Slysavarðstofunni. Morgunblaðið/RAX
„Komdu með
peningana“
sagði árásarmaður sem í gærkvöldi
réðst á afgreiðslustúlku Regnbogans
„MAÐURINN kippti hendinni út um lúguna, snéri upp á og sagði: „komdu
með peningana". Ég hrópaði á hjálp þvi ég vissi að fólk var ekki langt
undan. Þá snéri hann meira upp á hendina. Eg hrópaði aftur, fjórum, fimm
sinnum og mig verkjaði ákaflega í handlegginn. Maðurinn forðaði sér á
hlaupum þegar fólk kom mér til aðstoðar," sagði Gunnhildur Friðgeirsdótt-
ir, 23 ára gömul afgreiðslustúlka við kvikmyndahúsið Regnbogann, í samtali
við Mbl. í gærkvöldi, eftir að ungur maður hafði reynt að ræna hana er hún
var að afgreiða aðgöngumiða laust fyrir klukkan sjö. Gunnhildur var flutt í
slysadeild eftir atburðinn þar sem gert var að meiðslum sem hún hlaut.
„Maðurinn var óvopnaður, hafði
hvorki hníf né byssu og því kallaði
ég á hjálp. Það kom ekki til greina
að láta féð af hendi. Lögreglan
kom strax á staðinn, bókstaflega
áður en ég hafði snúið mér við og
ég var flutt í slysadeild. Ég marð-
ist á hendi og bólgnaði en verð
fljótlega jafngóð," sagði Gunn-
hildur. Hún telur að árásarmað-
urinn sé um 25 ára gamall, dökkur
yfirlitum og með yfirvaraskegg.
„Ég geri mér ekki glögga grein
fyrir útliti mannsins. Þetta gerð-
ist ákaflega snöggt og sársaukinn
gerði það að verkum að ég gerði
mér litla grein fyrir atburða-
rásinni," sagði Gunnhildur.
Þrátt fyrir að mikið lið lögreglu
hefði þegar drifið að, var árásar-
maðurinn ófundinn seint í gær-
kvöldi.
Sókn felldi samningana með
246 atkvæðum gegn 177
Ný samninganefnd kjörin á félagsfundi í gærkvöldi
„ÉG LÍT ekki á þessi úrslit sem
vantraust á mig. Ég barðist
lengst af fyrir 15 þúsund króna
lágmarkslaunum og var ekki al-
hlynnt þessum samningum,“
sagði Aðalheiður Bjarnfreðsdótt-
ir, formaður Starfsmannafélags-
ins Sóknar, í samtali við Mbl. í
gærkvöldi eftir að félagsfundur
hafði fellt kjarasamninga ASÍ og
VSÍ með 246 atkvæðum gegn
177, en 30 atkvæðaseðlar skil-
uðu sér ekki. Að atkvæðagreiðsl-
unni lokinni lagði Aðalheiður til
að ný samninganefnd yrði kjörin
og stakk upp á fimm manns,
sem samþykktir voru með lófa-
taki.
„Mér fannst rétt, þegar úr-
slitin lágu fyrir, að þeir, sem
harðast höfðu barist gegn
Frá félagsfundi Starfsmannafélagsins Sóknar í gærkvöldi. MorP,nbl»4i*/R«*-
samningunum tækju að sér
framhaldið," sagði Aðalheiður
í samtali við Mbl. í gærkvöldi.
Félagsfundur Sóknar hófst
klukkan 20.30 í gærkvöldi í
Hreyfilshúsinu og mættu um
450 manns á fundinn. Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir talaði
fyrst og mælti með samþykkt
samningsins og síðan útskýrði
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, samningana. Síðan var
mælendaskrá opnuð. Ellefu
manns tóku til máls um samn-
ingana og mæltu þrír með
samþykkt, en hinir voru á
móti. Helztu gagnrýnisatriði
þeirra voru, að launahækkun-
in væri of lítil og mótmæltu
sérstökum unglingatöxtum
fyrir 16 og 17 ára unglinga.
í nýrri samninganefnd
Sóknar eru: Óttar Magni
Jónsson, Guðlaug Pétursdótt-
ir, Súsanna Torfadóttir,
Harpa Sigfúsdóttir og ólafur
Gísli Magnússon.