Morgunblaðið - 21.06.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ1986
3
Forseti íslands sæmd
heiðursdoktorsnafnbót
FORSETI íslands, Vigdís Finnbogadóttir, var í gær sæmd heióursdoktors-
nafnhót við háskólann í Grenoble í húmanískum fræðum.
Haraldur Kröyer, sendiherra ís- forsetinn um tungumálið
lands í Frakkiandi, var viðstaddur
athöfnina og sagði Halldór Reyn-
isson forsetaritari í samtali við
Morgunblaðið, að sendiherrann
lýsti athöfninni þannig, að hún
hefði hafizt með því, að forsetinn
gekk i saiinn í fylgd rektors há-
skólans og fulltrúa menntamála-
ráðherra Frakklands í Grenoble.
Fulltrúinn flutti fyrst stutt ávarp,
og síðan tók rektorinn til máls.
Minntist hann í ræðu sinni á ís-
lenskar fornbókmenntir og hlut-
verk þeirra í menningarsögu Vest-
urlands. Einnig rakti hann tengsl
íslands og Frakklands, og hlut-
verk Vigdísar Finnbogadóttur í
því að stuðla að menningarsam-
skiptum landanna en hún stund-
aði á sínum tíma nám í Grenoble.
Þegar rektorinn hafði lokið máli
sínu sæmdi hann forseta íslands
tákni heiðursdoktors, en það er
hermelínskragi sem borinn er um
hálsinn.
í ávarpi sínu þakkaði Vigdís
Finnbogadóttir auðsýndan heiður.
Hún minntist þeirra áhrifa sem
hún hefði orðið fyrir í Grenoble,
þegar hún kom þangað 19 ára
gömul, og hvernig hún hefði reynt
að koma þeim á framfæri, þegar
heim kom án þess að glata sinum
íslenska menningararfi. Þá ræddi
Samningar ASÍ og VSÍ:
Iðja og Fram
samþykktu
— mikil fundahöld hjá
verkaiýðsfélögum
IÐJA, félag verksmiðjufólks í
Reykjavík, samþykkti í gær nýgerða
skammtímasamninga ASÍ og VSÍ
með 74 atkvæðum gegn 2. Samning-
arnir voru einnig samþykktir hjá
verkalýðsfélaginu Fram i Sauðár-
króki í fyrrakvöld.
Fjöldi verkalýðsfélaga hafði
boðað til funda um samningana i
gærkvöldi og mörg halda sína
fundi í kvöld. Svo samningarnir
taki gildi þurfa þeir að hljóta
staðfestingu fyrir kl. 12 á þriðju-
daginn, 25. júni. Síðustu fundir i
verkalýðsfélögunum verða haldnir
á mánudagskvöldið, m.a. i Verka-
mannafélaginu Dagsbrún i
Reykjavík.
Reyðarfjörður:
Austursfld
hf leggur nið-
ur alia vinnu
þar til í haust
Reyðarfirði, 3. júni
EKKI lagasl atvinnumálin hér á
Reyðarfirði, þar sem Austursfld hf.
leggur niður alla vinnu nú þar til í
haust, er sfldveiðar hefjast.
Búið er að segja öllu starfsfólki
upp frá og með miðjum júní, en
hjá Austursíld hafa starfað 25
manns í vetur.
Afli frá miðjum janúar til apr-
ílloka var 446 tonn, að auki lítils-
háttar af ufsa og ýsu, en annars
eingöngu þorskur.
Fiskurinn fór að mestu jafnóð-
um og hann var verkaður.
Um mánaðamótin maí-júní var
búið að skípa 105 tonnum af salt-
fiski á Spán og Portúgal.
Reiknað er með að afskipun
verði lokið fyrir miðjan júní.
Reikna má með að flest af þessu
fólki verði að leita á aðra staði á
landinu eftir vinnu, því hér er
hvert pláss skipað.
Gréta
um tungumáliö sem
uppistöðu menningar og hvernig
Frakkar ekki síður en íslendingar
varðveittu tunguna. Hún sagði að
það væri nauðsyn hverri þjóð að
varðveita eigin tungu, arfleiða
komandi kynslóðir að henni, án
þess þó að útiloka utanaðkomandi
áhrif.
Að lokinni athöfninni var hald-
in stutt móttaka i háskólanum þar
sem forseta íslands gafst færi á að
hitta prófessora háskólans. Borg-
arstjóri- Grenoble, sem einnig er
forseti þings Alpahéraðanna í
Frakklandi, bauð forseta í mót-
töku seinna um daginn, en í
gærkvöldi var hún viðstödd tón-
leika Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.
AP/Símamynd
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir tekur viö heióursdoktorsnafnbót úr
hendi rektors Saint Martin d’Heres-háskólans, Jean Laverdrin.
Og enn er
Daihatsu Charade
a toppnum
og aldrei betri
Daihatsu Charade vann sinn fyrsta sigur í spar-
aksturskeppni haustiö 1979 og síðan hefur sigur-
ganga hans meðal íslenskra kaupenda veriö óslitin
og 2300 Charade eru nú á götunni. Þaö var Dai-
hatsu Charade diesel sem sigraði í keppninni sl.
helgi með 3,72 I pr. 100 km og varð Daihatsu
Charade þriðji í bensínflokki með 4,12 I pr. 100 km.
En þaö segir ekki alla söguna þótt diesel- og
bensínbílar Daihatsu og annarra japanskra fram-
leiðenda eyði sáralitlu. Það sem hefur gerst er að
bensíneyðslan hefur minnkað ár frá ári, en Dai-
hatsu Charade hefur engu að síöur stækkað að
utan og innan, en verðið breyst lítið hlutfallslega.
í dag bjóðum við Daihatsu Charade, glæsiiegan rúmgóðan
5 manna bíl á aðeins krónur
329.800
Allir þekkja gædin,
þjónustuna og
endursöluna hjá
Daihatsu.
□AIHATSU
umboðiö
Ármúla 23 — 81733 — 685870.
BILASYNING A MORGUN
Komið, skoðið og reynsluakið Daihatsu Charade, Daihatsu Rocky og Daihatsu Cab Van 4W sendibílnum.
v