Morgunblaðið - 21.06.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1985 5
Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, um mótmæli Breta:
„Ekki annað en endurtekn-
ing á fyrri afstöðu þeirra“
Framhald málsins á að ráðast af Hafréttarsáttmálanum
Geir Hallgrímsson, utanríkisráö-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann teldi jarðfræðilega
röksemdafærslu Breta í sambandi
við yfirráðarétt íslendinga yfir Rock-
all, vera veika og utanríkisráðuneyt-
ið hefði þekktan jarðfræðing, dr.
Manik Talwany, á sínum snærum
sem gæti snúið rökunum gegn Bret-
um sjálfum.
„Þessar yfirlýsingar frá Bretum
og raunar yfirlýsing sem okkur
barst í dag frá írum sama efnis, er
ekkert annað en við áttum von á
og endurtekning á fyrri afstöðu
þessara þjóða," sagði Geir.
„Það sem við höfum í huga næst
er að efna til fundar með Dönum
og Færeyingum, sem ég og utan-
ríkisráðherra Dana urðum ásáttir
um að efna til í heimsókn minni
þar um daginn. Við munum þá
ganga úr skugga um hvort við
annars vegar getum ekki sam-
ræmt okkar sjónarmið í þessum
efnum og hins vegar koma okkur
saman um hvernig við bregðumst
við viðhorfum Breta og Ira, en
þeir hafa mótmælt réttindakröf-
Bretar senda
utanríkisráðu-
neytinu yfirlýs-
ingu vegna
Rockall-málsins
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
breska sendiráðinu, sem Morgun-
blaðinu barst í gær, hefur sendiráðið
sent utanríkisráðuneytinu orðsend-
ingu þar sem fram koma mótmæli
vegna kröfu íslenskra stjórnvalda
um að landgrunn íslands nái yfir
víðáttumikið svæði vestur af breska
eyjaklasanum. í tilkynningunni lýsa
Bretar yfir fullum yfirráðum yfir
svæðinu, með vísan til alþjóðalaga.
Breska ríkisstjórnin bendir á að (ís-
lenska) reglugerðin (frá 9. maí sl.)
hafi verið gefin út á meðan enn var
beðið svars frá fslendingum við til-
boði um áframhaldandi viðræður
milli lögfræðinga þjóðanna tveggja.
Fréttatilkynningunni fylgdu
upplýsingar Breta um Hatton-
Rockall-svæðið:
„íslenska reglugerðin á sér enga
stoð i alþjóðalögum. Land-
grunnskrafa íslendinga nær inn á
landgrunn Stóra Bretlands og á
öðrum stöðum nær hún yfir svæði,
sem teljast utan við ytri mörk
landgrunnsins, eins og lýst er í al-
þjóðalögum.
Það eru engin tengsl milli ís-
lands og Hatton-Rockall-svæðis-
ins.
í fyrsta lagi telst tsland nýlega
myndað af völdum eldgosa. Á
(Rockall) svæðinu er hins vegar
gamalt berg, sem líkist hömrum
Skotlands. Það eru því engin
jarðfræðileg tengsl milli íslands
og svæðisins.
í öðru lagi stendur ísland á öðru
eldgosasvæði. Það er skörp brún (í
landgrunni) suður af íslandi og
við tekur djúpsævi. Það er grund-
vallarvilla i íslensku reglugerðinni
þar sem sést hefur yfir þá stað-
reynd að skýr lína afmarkar rætur
landgrunnshlíðarinnar nálægt
suðurströnd tslands. Af þeim sök-
um eru engin landmótunarleg
tengsl milli tslands og svæðisins.
I þriðja lagi liggur ísland fjær
svæðinu en Stóra Bretland og eru
Íví engin landfræðileg tengsl milli
slands og svæðisins.
Þar sem engin jarðfræðileg,
landmótunarleg eða landfræðileg
tengsl eru sjáanleg milli tslands
og svæðisins er enginn grundvöll-
ur fyrir tilkalli landsins til (Rock-
all) svæðisins."
um Dana fyrir hönd Færeyinga á
sama hátt og Bretar og írar hafa
mótmælt réttindakröfum okkar. í
kjölfarið munum við láta reyna á
hvort Bretar og írar eru reiðubún-
ir að taka upp viðræður við okkur.
t þeirri reglugerð sem við gáfum
út 9. maí sl. er gert ráð fyrir því og
boðið upp á viðræður við viðkom-
andi lönd sem telja sig eiga rétt-
indi á þessum svæðum enda erum
við skyldugir til að leita sátta
samkvæmt Hafréttarsáttmálan-
um ef réttindakröfur stangast á.
Samkvæmt honum er gert ráð
fyrir sérstakri málsmeðferð,
sáttatilraunum og dómsúrskurði
ef til þess þarf að koma, en
Hafréttarsáttmálinn tekur hins
vegar ekki gildi fyrr en ári efir að
60 ríki hafa staðfest hann og enn
sem komið er hafa ekki nema inn-
an við 20 ríki gert það. Bretar hafa
hvorki undirritað né staðfest
sáttmálann og þess vegna vakti
það athygli að í orðsendingunni
sem við fengum frá Bretum var
vitnað í hann.“
Geir Hallgrímsson sagði að
lausn deilunnar færi fyrst og
fremst eftir Hafréttarsáttmálan-
um svo fremi sem viðkomandi að-
ilar hefðu samþykkt hann og stað-
fest.
„Það er svo spurningin hvort
þessir aðilar eru tilbúnir að leggja
slíkan ágreining fyrir Alþjóða-
dómstólinn, en það bíður seinni
tíma,“ sagði Geir.
„Næsta skref okkar er sem sagt
að hefja viðræður við Dani og
Færeyinga og í kjölfar þess fundar
verður væntanlega leitast við að
fá fram viðræður við Breta og loks
íra, en um það skal ég ekki full-
yrða fyrr en að afstöðnum fundin-
Ekki er búið að ákveða hvenær
fundurinn fer fram, en utanríkis-
ráðherra sagði að samkomulag
ríkti milli sín og danska utanrík-
isráðherrans um að hefja viðræð-
urnar sem fyrst.
„Strax í upphafi lögðum við til
að þessi fjögur lönd sem gera til-
kall til svæðisins gerðu samkomu-
lag sín á milli um að skipta af-
rakstri af auðlindum á hafsbotni
eftir hlutfölllum sem samkomulag
yrði um, í stað þess að afmarka
hafsbotnssvæðið og eigna sér hver
sinn hluta. Þessa fyrirmynd höf-
um við frá samkomulaginu við
Norðmenn um Jan Mayen, en und-
irtektir hafa verið tregar við
þeirri tillögu. Við höfum bent á að
ef þessi lönd deila um yfirráðarétt
yfir þessu svæði sé sú hætta fyrir
hendi að Sameinuðu þjóðirnar
muni úrskurða svæðið tilheyrandi
alþjóða hafsbotnssvæði og mundi
Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra
þá engin þessara þjóða njóta góðs^
af auðlindum svæðisins. Enn sem
komið er hafa ekki verið gerðar
itarlegar rannsóknir á hve miklar
auðlindir eru á þessu svæði.
Ég tel að röksemdafærsla Breta
sé ekki sterk og hægt er að snúa
þeim gegn þeim sjálfum og við
höfum til þess heimsþekktan
jarðfræðing, dr. Manik Talwany,
sem hefur verið ráðunautur okkar
í þessu máli,“ sagði Geir Hall-
grímsson, utanríkisráðherra, að
lokum.
F
VBæeQLSUNNI
OFBVÐUR
Oft hefur verðbólgunni þótt sér misboðið í Hljómbæ. Greyið er nefnilega með
ofnæmi fyrir hlægilega lágu verði. í dag sauð þó upp úrog hún rauk á dyr.
Ástæðan eróþolandi lágt verð á Pioneer hljómflutningssamstæðum.
• Sambyggður magnari (2 x 32 w) og kassettutæki með Dolby B suðminnkun
og metal stillingu (35-15 kHz) • Útvarp með FM stereo AM-LW móttöku •
Beltadrifinn hálfsjálfvirkurplötuspilari • 40 watta hátalarar, tónsvið 50-20 kHz
• Hljómtækjaskápur úrrósaviðarlíki, með glerhurð og á hjólum.
• Verð á þessu öllu frá aðeins
24,900.-stgr.
eða 6.000.-útog eftirstöðvar á 6 mánuðum.
P.S. Efþetta erekki tilboðið sem þú beiðst eftirþá biðjum við kærlega að
heilsa verðbólgunni.
flö PIOIVEEIT
HUÐMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999