Morgunblaðið - 21.06.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1985
7
Stjóm Pólýfónkórsins ásamt stjórnanda frá vinstri: Ólöf Magnúsdóttir, ritari, Guðmundur Guðbrandsson, meðstjórn-
andi, Friðrik Eiríksson, formaður, Steina Einarsdóttir, varaformaður, og Ingólfur Guðbrandsson, stjórnandi kórsins.
Pólýfónkórinn:
Býðst að flytja H-moll
messu Bachs á Ítalíu
PÓLÝFÓNKÓRNUM stendur til
boða að flytja Il-moll-mes.su Jii.
Bachs á ári tónlistarinnar í Evrópu í
vikulangri hljómleikaferð um Ítalíu í
byrjun júlí. Haldnir verða fernir
tónleikar í ferðinni, í Róm, Assisi,
Flórens og Feneyjum. Þar verður
messan flutt í heild sinni en auk
þess mun kórinn halda stutta tón-
leika í Sixtínsku kapellunni í upphafi
ferðarinnar.
„Takmarkið er að syngja betur
en nokkru sinni fyrr,“ sagði Ing-
ólfur Guðbrandsson, stjórnandi
kórsins, „því aldrei áður hefur
kórnum og stjórnanda hans verið
sýnt slíkt traust og heiður sem nú,
að flytja eitt mesta snilldarverk
tónlistarinnar í landi söngsins í
helstu listaborgum Ítalíu og verið
valinn til að opna alþjóðlegu tón-
listarhátíðina í Assisi. Á tónlist-
arhátíðinni verða staddir margir
af færustu tónlistarmönnum
heims í öllum helstu tónlistar-
greinum."
Kórfélagarnir 80, sem taka þátt
í ferðinni, hafa undirbúið sig af
kappi að undanförnu bæði við æf-
ingar og að safna fé til fararinnar,
en kostnaður við fyrirtæki sem
þetta er um 4 milljónir. í þessari
upphæð felast laun og ferðakostn-
aður fyrir 4 einsöngvara og 35
manna kammerhljómsveit, en
kórfélagar greiða ferðakostnað
sjálfir. Kórinn hefur ekki notið
neinna opinberra styrkja utan
þeirrar fyrirgreiðslu sem hann
hefur fengið frá ítalska mennta-
og ferðamálaráðuneytinu, sem sér
um undirbúning tónleikanna og
auglýsingu fyrir þá.
Einu tekjur Pólýfónkórsins eru
aðgangseyrir að tónleikum og að
þessu sinni voru þeir haldnir í
nafni Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands í tilefni af 300 ára afmæli
J.S. Bachs. Á blaðamannafundi
með stjórn kórsins og fjáröflunar-
nefnd kom fram að engar greiðsl-
ur hefðu komið til kórsins fyrir
þessa tónleika, sem stjórnandi og
kór höfðu lagt mikla vinnu i mán-
uðum saman. Ennfremur kom
fram að ekki hefði tekist að ná í
borgarstjóra Reykjavíkur,
menntamála- né fjármálaráð-
herra til að kanna hvort þar sé
viðurkenningar eða stuðnings að
vænta. Þegar hefur verið leitað
eftir stuðningi ýmissa stofnana og
fyrirtækja en árangur af því svar-
ar enn sem komið er aðeins til W
af áætluðum framlögum, sem
nokkrir skilningsríkir og velvilj-
aðir menn hafa þegar styrkt kór-
inn með.
Fengist hinsvegar um hálf
milljón í opinberum styrkjum og
nokkur fyrirtæki styrktu kórinn
um 20 til 25 þúsund krónur hvert
næðust endar saman og „þetta
eina tækifæri íslands að leggja
fram eitthvað til árs tónlistarinn-
ar á alþjóðavettvangi getur orðið
að veruleika, en eins og staðan er í"
dag er ekki útlit fyrir að það tak-
ist“, sagði Ingólfur Guðbrandsson
að lokum.
Þeir sem áhuga hafa á að
styrkja kórinn og hlýða jafnframt
á hvað hann hefur fram að færa á
alþjóðavettvangi gætu einnig
keypt miða á fyrirhugaða hljóm-
leika kórsins 2. júlí nk. Velunnara
kórsins geta einnig lagt framlög
inn á sparireikning nr. 240 í
Landsbanka íslands, Múlaútibúi
— 0139-05-240 „Ferðasjóður Pólý-
fónkórsins“.
$pf
leið og 1PU
MTT) tttur
fra_____
'dmtmm
•• V
fflMM
WM
iHim,
tiusé
gffl
váív.'. ^ .v m
(úil
"****V»,4**,\*.
ii** *<**??,»**♦//
wc
|1Í£ ,
r' '