Morgunblaðið - 21.06.1985, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚNl 1985
Ljósmyná Páll A. Pálsson
Veður var hið besta á þjóðhátíðardaginn á Akureyri þegar skólaslit menntaskólans fóru fram. Hér eru
nýstúdentarnir 117 sem fengu prófskírteini sín afhent sama dag.
117 stúdentar útskrifast frá MA
Skólaslit Menntaskólans á Akureyri fóru fram á þjóðhátíðardaginn
17. júní samkvæmt gamalli hefð skólans. Útskrifaðir voru 117 nem-
endur og hlaut Halldóra Gunnlaugsdóttir af eðlisfræðibraut hæstu
einkunn, eða 9,28. Semidúx var Elvar Aðalsteinsson, einnig af eðlis-
fræðibraut, og hlaut hann einkunnina 9,09.
Útskriftin fór fram í Akur-
eyrarkirkju eins og venja hefur
verið sl. 20 ár og flutti Tryggvi
Gíslason, skólameistari, ræðu
við athöfnina. Einnig flutti
Bragi Sigurjónsson ræðu fyrir
hönd 50 ára stúdenta, Anna Jó-
hannesdóttir fyrir hönd 40 ára
stúdenta, Iðunn Steinsdóttir
fyrir hönd 25 ára stúdenta og
Gunnar Stefánsson fyrir hönd
10 ára stúdenta.
Að venju komu júbílantar
ekki tómhentir til athafnarinn-
ar og færðu 50 ára stúdentar
skólanum ensk-islenska orða-
bók að gjöf, 40 ára stúdentar
gáfu í minningarsjóð Þórarins
Björnssonar, 25 ára stúdentar
gáfu í málastofusjóð og 10 ára
stúdentar gáfu sérstakt sjón-
varp og myndsegulband til
kennslu.
„Það var óvenju vel mætt og
voru um 80 af árgangi 10 ára
stúdenta mættir til að halda
upp á stúdentsafmælið og yfir
helmingur af öðrum afmælis-
árgöngum mættu til leiks,"
sagði Jóhann Sigurjónsson,
konrektor, í samtali við Morg-
unblaðið. Alls voru um 600 við-
staddir útskriftina og sagði Jó-
hann að margir hefðu orðið frá
að hverfa vegna þrengsla í
kirkjunni og var staðið utan
dyra sem innan.
„Flestir afmælisstúdentarnir
komu til Akureyrar 14. eða 15.
júni og voru haldin sérstök hóf
fyrir hvern árgang 15. og 16.
júní,“ sagði Jóhann. „Svo komu
allir júbílantarnir saman þann
16. i Sjallanum og var þá mikið
fjör.“
Útskriftin fór fram fyrir há-
degi á 17. júní og um eftirmið-
daginn voru um 400 til 500
manns saman komnir í gamla
skólahúsinu til kaffidrykkju í
boði skólans. Hátíðarmáltíð
nýstúdenta var svo haldin í
Sjálfstæðishúsinu um kvöldið
og samkvæmt hefð gengu þeir í
skrúðgöngu um bæinn á mið-
nætti.
„Skrúðgangan setur alltaf
mikinn svip á bæinn og ekki
spillti góða veðrið fyrir," sagði
Jóhann, en á Akureyri var sól-
skin og blíða á þjóðhátíðardag-
inn allan.
Menntaskólinn á Akureyri er
eini skólinn, sem enn heldur
þeirri venju að útskrifa stúd-
enta á 17. júní, og var Jóhann
inntur eftir því hvort sú venja
myndi haldast.
„Það er nú verið að ræða það,
en alla vega verður útskriftin á
næsta ári með sama móti. Það
er okkur mikils virði að júbíl-
antarnir komi hingað til að
halda upp á stúdentsafmælið en
svo gæti farið að við héldum
skólahátíð á þessum degi þótt
skólaslit færu fram nokkru
fyrr.“
Hvað segja þau um kjarasamningana!
„Kaupmáttur eykst um
7% til 1. september“
— segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR
„ÉG HAFÐI ekki farið dult með þá skoðun mína að ég taldi mjög brýnt,
miðað við það kaupmáttarhrap sem þegar hefur orðið og fyrirsjánlegt var á
næstu vikum, að freista þess að gera samninga þegar í stað,“ sagði Magnús
L. Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, er hann var
spurður álits á nýgerðum kjarasamningum ASI og VSÍ.
Magnús sagðist hafa talið að samkvæmt hinum lágu launatöxt-
samningarnir þyrftu að koma í
veg fyrir frekara kaupmáttarhrap
og stefna að kaupmáttaraukningu.
„Þess vegna fagna ég því, að
samningar hafa nú tekist, sem
gera ráð fyrir því að kaupmáttur
aukist um 3 prósentustig nú þegar
og samtals um 7 prósentustig til 1.
september nk.,“ sagði Magnús.
Hann sapði að fólk sem tæki laun
um verkalýðsfélaganna hefði ekki
þolað að taka á sig frekari kaup-
máttarskerðingu.
„Þess vegna var mjög brýnt að
gera samninga nú þegar," sagði
Magnús, „og að mínu mati hefði
það verið mjög alvarlegt, vegna
kjara þessa fólks, að halda að sér
höndum fram á haustið."
„Mér sýnist nokkuð vel
hafa tekist til miðað
við aðstæður“
— segir Sigurður Óskarsson formaður
Alþýðusambands Suðurlands
„ÉG ER nýbúinn að fá samninginn í hendur og hef því ekki getað kynnt mér
hann til hlítar, en í fljótu bragði sýnist mér að nokkuð vel hafi tekist til,
miðað við aðstæður og væntingar manna," sagði Sigurður Óskarsson formað-
ur Alþýðusambands Suðurlands.
„Það er mikilvægt að við losnum
við þá óvissu, sem framundan var.
Sumarið er sá tími þegar margir
afla bróðurpartsins af tekjum sín-
um og þvi er mikilvægt að tryggja
vinnufrið nú. Mér sýnist að menn
hafi lagt sig fram um að ná sam-
komulagi og tekist að mætast á
eina útskotinu, sem var í sjónmáli.
Ég fagna því, þó ég sé auðvitað
ekki fullkomlega ánægður með
þessa samninga fremur en aðra.
Nú liggur mest á að láta hendur
standa fram úr ermum til að
tryggja hag fiskvinnslufólksins,
eins og fyrirheit eru gefin um, svo
það verði ekki fyrir vonbrigðum,"
sagði Sigurður Oskarsson að lok-
um.
Þingmannafundur
EFTA hófst í gær
ÁRLEGÚR þingmannafundur EFTA hófst í Reykjavík í gær og af því
tilefni ræddi Morgunblaðið við Per Kleppe framkvæmdastjóra EFTA,
sem hér er staddur vegna fundarins.
Kleppe sagði að dagskrá fund-
arins væri mjög víðtæk og þar
yrði rætt vítt og breitt um mál-
efni samtakanna, enda væri hér
um að ræða fundi, sem haldnir
væru til þess að stjórnmálamenn
frá löndunum gætu borið saman
bækur sínar og samræmt stefn-
una í ýmsum málum. „Þessir
fundir eiga að miðla upplýsing-
um frá EFTA til hinna einstöku
aðildarríkja og öfugt, það er frá
hinum einstöku ríkjum til höfuð-
stöðva samtakanna," sagði Per
Kleppe. Aðspurður sagði Kleppe
að brotthvarf Portúgals úr
EFTA, samfara inngöngu þess í
Efnahagsbandalag Evrópu um
næstu áramót, myndi hafa lítil
áhrif á starfsemi samtakanna.
„EFTA mun halda áfram að vera
til í sinni núverandi mynd. Það
eru engar líkur á að þau ríki, sem
eftir eru í samtökunum, gangi i
Efnahagsbandalagið, enda eru
flest þeirra hlutlaus og geta því
Sjómannadagurinn
á Reyðarfirði
Rejtarfirði, 4. júnf.
Sjómannadagurinn var haldinn
hátíðlegur að venju.
Róðrakeppni fór fram laugardag-
Reyðarfjörður:
Rósir frá
Lionsmönnum
KeróarfirAi, 3. jání.
ÞEGAR Lionsmenn hvaðanæva að
af landinu þinguðu á Egilsstöðum
laugardaginn 1. júní buðu Lionsfé-
lagar á Reyðarfirði konum þeirra og
bílstjórum upp á kaffiveitingar í Fé-
lagslundi.
Markús Guðbrandsson hótel-
stjóri sá um kaffiveitingar, en 6
félagar úr Lions tóku á móti gest-
um.
Að kaffisamsæti loknu gáfu
Lionsfélagar öllum konunum rós
um leið og gestir voru kvaddir.
Gréta
inn 1. júní og í kvennaflokki unnu
starfsstúikur verslunar og bakarís
G. Hjaltasonar en í karlaflokki vann
sveit frystihúss KHB.
Dansleikur var haldinn í Fé-
lagslundi laugardagskvöld. Þar
spilaði hljómsveit frá Akureyri,
Rokkbandið. Milli 250—300 manns
sóttu dansleikinn.
Messað var í Reyðarfjarðar-
kirkju kl. 2 e.h. Séra Davíð Bald-
ursson messaði. Þar áttum við
Reyðfirðingar sem sóttum kirkju
þennan dag góða stund með prest-
inum okkar.
Tveir sjómenn lásu ritningarorð
og að messu lokinni báru tvær
konur sjómanna krans úr kirkju
og lögðu að minnisvarða drukkn-
aðra sjómanna.
Eftir messu var skemmtun og
grín við sundlaugina og kaffiveit-
ingar voru í Félagslundi.
Snæfugl sigldi til Þýskalands
með 170 tonn í söluferð 1. júní sl.
Gréta
ekki gengið í pólitísk bandalög
eins og EBE er,“ sagði Per
Kleppe einnig. „Hinsvegar mun
samvinna hvorra tveggju sam-
takanna væntanlega aukast í
framtíðinni, enda er unnið að því
að efla frjáls viðskipti í allri
Vestur-Evrópu og hafa þjóðar-
leiðtogar rætt það á fundum sín-
um, meðal annars i Lúxemborg í
fyrra. Á þessum fundi hér í
Reykjavík verður einmitt rætt
um niðurstöður þeirra viðræðna
og hvernig vinna beri að því að
fylgja þeim eftir í framtíðinni,"
sagði Kleppe ennfremur.
Fram kom hjá Kleppe að á
fundinum yrði einnig rætt um
viðskipti með landbúnaðar- og
sjávarafurðir og aukið frelsi í
þeim efnum en hingað til hefur
EFTA að sögn hans einkum unn-
ið að fríverslun með iðnaðarvör-
ur.
Per Kleppe var að lokum
spurður hvort EFTA muni veita
íslendingum stuðning í baráttu
þeirra fyrir því að fá felldan
niður toll af innfluttum saltfiski
í löndum Efnahagsbandalags
Evrópu. „Það vona ég,“ sagði Per
Kleppe framkvæmdastjóri
EFTA.
Oft samið um minna
með meiri fyrirhöfn
— segir Pétur Sigurðsson formaður
Alþýðusambands Vestfjarða
„AUÐVITAÐ er alltaf gott að ná samningum án átaka og mér sýnist aö oft
hafi verið samið um minna en þetta með meiri fyrirhöfn," sagði Pétur
Sigurðsson formaður Alþýðusambands Vestfjarða, aðspurður um nýgerða
kjarasamninga. „Þá er maður auðvitað með í huga að ríkisstjórnin standi við
stóni orðin og tryggi þetta eins og þeim er unnt og við skulum vona að
yfirlýsingin um það haldi. Þá er möguleiki á meiri friði á vinnumarkaðinum
en oft hefur verið útlit fyrir áður.
En ef þetta stenst ekki verða
menn auðvitað að brýna busana
um áramótin,“ sagði Pétur ennfr-
emur. „Hitt er svo annað mál, að
þessi samningur er engin sérstök
leiðrétting á kjörum fiskvinnsl-
ufólks, nema síður sé. Þarna eru
líka ýmsir orðaleppar, sem allir
vita fyrirfram að ekki standast,
eins og þegar talað er um að þeir,
sem ekki hafa notið launaskriðs
eigi að hækka umfram þá sem
þess hafa notið. Þegar slíkt kerfi
er komið á tekur það öllum laun-
akækkunum hjá öðrum, þannig að
þetta eru bara orð sem ekki stand-
ast. Og þessar yfirlýsingar sem
fylgja eru meira en litill vonarp-
eningur, enda hafa slíkar yfirlýs-
ingar sem gerðar hafa verið til
hliðar við kjarasamninga á und-
anförnum árum aldrei staðist.
Þrátt fyrir þessa vankanta er ég
sáttur við þessa samningsgerð nú.
Ég tel það hafi verið nauðsynlegt
að ná samkomulagi og þarna eru
þær úrbætur þó, fyrir launþega al-
mennt, að það megi alveg vel við
una fram að áramótum," sagði
Pétur Sigurðsson að lokum.
„Þetta er betra en
að bíða til haustsins“
— segir Þóra Hjaltadóttir formaður
Alþýðusambands Norðurlands
„ÉG TEL það hafa verið betra að fá þó þetta núna heldur en að bíða til
haustsins. Það blasti við mikið kaupmáttarhrap fram í september og þetta
bjargar því þó alla vega í bili, en þetta er auðvitað skammtímasamningur.
Nú verður að byrja í tíma að
undirbúa kröfugerð, svo að sem
hagstæðastir samningar náist um
áramótin,” sagði Þóra Hjaltadótt-
ir formaður Alþýðusambands
Norðurlands. „Gallinn við þessa
samninga er auðvitað sá að í þeim
felst engin kaupmáttartrygging.
Þarna er aðeins um að ræða yfir-
lýsingu, en ekkert uppsagnar-
ákvæði, ef hún stenst ekki,“ sagði
Þóra ennfremur. „Nú verðum við
að snúa okkur að því að bæta kjör
fólks i fiskvinnslu og öðrum fram-
leiðslugreinum, það eru fyrst og
fremst þær sem eru illa borgaðar,"
sagði Þóra Hjaltadóttir formaður
Alþýðusambands Norðurlands að
lokum.